Dagur - 09.12.2000, Qupperneq 2
2
LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 2000
HELGARPOTTURINN
Hinn nýbakaði fréttastjóri Stöðvar 2, Karl
Garðarsson, er nú byrjaður að taka til í
sínum ranni og meðal ráðstafana sem hann
grípur til er að leggja niður útibúið á Egils-
stöðum. Eystra hefur Aðalbjörn Sigurðs-
son fréttamaður verið og sagt okkur tíðindi
að austan, en nú hverfur hann af þeim vett-
vangi og mun á vormánuðum fara að segja
okkur fréttir fyrir sunnan; sem er kannski
KaríGarðarson. nokkuð rökrétt, svo mikill er straumur Aust-
firðinga suður til Reykjavíkur.
Starfsfólk Morgunblaðsins er nú orðið langeygt
eftir mánudagsútgáfu biaðsins sem boðuð hefur
verið. Á útmánuðum var kynnt fyrir fólki að
mánudags-Moggi færi að koma út með
haustinu, en nú er komið fram í desember og
enn hefur útgáfa í þessa veru ekki sést. Það verð-
ur því væntanlega ekki fyrr en á nýju ári, ef þaó
verður þá, sem Moggi á fyrsta degi vinnuvikunn-
ar fer að koma út og verður það þá hlutverk nýs
eftirmanns Matthíasar Johannessen og sam-
verkamanns Styrmis Gunnarssonar að hleypa
þeirri útgáfu af stokkunum.
Sjónvarpsstöðin Skjár einn er mikið í um-
ræðunni þessa dagana og þá sérstaklega
þáttur fréttastofunnar. Helgarpottverjar tala
um spriklandl fríska fréttastofu undir stjórn
Sólveigar Kristbjargar Bergmann.
sem tók við stjórninni þar í haust. Sérstak-
lega þykir þátturinn Málið koma vel út, sem
er eins og konar viðhengi við fréttirnar, og
þar tala menn sérstaklega um þáttinn sl.
Sólveig Kr. Bergmann. mánudagskvöld þar sem Ásdís Halla
Bragadóttir bæjarstjóri f Garðabæ tók
Hannes Hólmstein rækilega í karphúsið.
Uppstokkun og endurskoðun stendur nú til
á ýmsum sviðum í ranni útgáfunnar Fróða, í
sjálfu ríkidæmi Magnúsar Hreggviðs-
sonar. f helgarpottinum er nú rætt um
hugsanlega sameiningu Séð og heyrt og
Vikunnar, sem myndi þá koma út sem fylgi-
blað S&H öðru hvoru. Þá mun á Fróða þykja
nauðsynlegt að slá í klárinn í útgáfu Mann-
lífs, en þótt blaðió seljist bærilega telja útgef-
endur það hafa enn meiri útbreiðslu-
möguleika.
Magnús Hreggviðsson.
Ýmsir höfðingjar eru til sögunnar nefndir í þriðja
bindinu af Hundrað og ein ný vestfirsk þjóð-
saga sem Gísli Hjartarson blaðamaðurá ísð-
firói skráir. Það er eitt minnsta en jafnframt eld-
spræka forlag á Hrafnseyri, Vestfirska forlagið,
undir stjórn Hallgríms Sveinssonar, sem
gefur bókina út og ýmsar fleiri til; en í þessu
bindi er eru sagðar þjóðsögur af vestan meðal
annars af séra Gunnarí Bjömssyni presti,
Finnboga Hermannssyni útvarpsmanni,
Guðjóni A. Kristinssyni alþingismanni,
Geira á Guggunni og Þorsteini Jóhann-
essyni yfirlækni og forseta bæjarstjómará ísa-
firði.
Meðal lækna heyrist nú að viss pirringur sé
með störf Sigurðar Guðmundssonar
landlæknis, en sagt er í helgarpotti lækna að
þessi læknír læknanna láti ritara sinn sía stíft
úr hverjir fái áheyrn hans. Þykir mörgum
lækninum að þeir beri þar skarðan hlut frá
borði, og reyndar mörgum fleirum, því nú sjá
menn í hyllingum þann tfma þegar Ólafur
Ólafsson var landlæknir og talaði við alla
um allt, hvort sem það voru skólanemar sem
vantaði efni í ritgerðir, öryrkjar að kvarta yfir
lífskjörum sínum, Ijósmæður sem vildu að
konur fæddu börn í vatni eða læknar sem
svall móður yfir gagnagrunnsfrumvarpinu...
Ein sú út'nefning til íslensku bókmenntaverð-
launanna sem kemur hvað mest á óvart er Saga
Akureyrar eftir Jón Hjaltason sagnfræðing
skyldi komast á blað. Helgarpottverjar margir
hverjir töluðu um útnefninguna í fyrrakvöld sem
sérstæða skrautsýningu bókmenntaelítu gáfu-
mannafélagsins, þar sem hver kepptist við að
klóra hinum. Annars er þó öllum í bókmennta-
heimi Akureyrar tæpast skemmt þó Jón Hjalta-
son náí svona langt með bók sína, þvf meðal
þeírra bóka að norðan sem sendar voru inn var
Líf í Eyjafirði sem ýmsir fræðimenn tóku saman
og var gefin út af Háskólanum á Akureyri.
Áshildur Haraldsdóttir flautuleikari er ein fjöl-
margra listamanna sem koma fram á að-
ventutónleikum Amnesty International á
morgun.
Aðventutónleikar
í þágu mannréttinda
Sannkölluð tónlistarveisla
verður haldin í Neskirkju
á morgun klukkan 15,
en tilefnið er alþjóðlegi
mannréttindadagurinn
sem er 10. desember
ár hvert. Það er
íslandsdeild mannrétt-
indasamtakanna
Amnesty International
sem efnir til þessara
tónleika á aðventunni.
Mikill fjöldi tónlistarmanna kemur
fram á tónleikunum, meðal annars
karlakórinn Fóstbræður og Blásara-
kvintett Rekjavíkur. Þarna verður
Nína Margrét Grímsdóttir píanóleik-
ari og Ashildur Haraldsdóttir
flautuleikari, auk Einars Kristjáns
Einarssonar gítarleikara og Sigurðs
Halldórssonar sellóleikara.
Einnig kemur Nora Kornbluh fram
ásamt bópi Su/.uki sellóleikara, og
þau Stefán Örn og Marion Herrera
leika á selló og hörpu.
Þá verða þarna tveir einsöngvarar,
þau Elín Ósk Óskarsdóttir og Guð-
björn Guðbjörnsson, sem syngja við
undirleik Jónasar Ingimundarsonar.
Skemmtilegt á aðventunni
„Eg vona að þetta verði skemmtilegt
hjá okkur og að við getum gefið eitt-
hvað gott af okkur," segir Elín Ósk
Oskarsdóttir söngkona. „Eg ætla
ekkert að vera voðalega dramatísk að
þessu sinni. Nú ætla ég að fara út í
óperettuna og syngja aríu úr Pagan-
íni eftir Lehar og svo taka kannski
eitt gott jólalag með. Mér finnst voða
gaman að fást við þetta, þó ég sé
venjulega meira á dramatísku nótun-
urn. Það er mjög ánægjulegt að fá að
taka þátt í þessum tónleikum og geta
styrkt verkefni af slíku tagi. Allt
rennur til styrktar þessari alþjóðlegu
herferð þeirra, sem núna er gegn
pyntingum. En þetta á fyrst og
fremst að vera fjölbreytt og upplífg-
andi, því aðventan er svo ánægjuleg-
ur tími,“ segir Elín Ósk.
Allir þessir tónlistarmenn gefa
vinnu sína, en ágóðinn rennur beint
til alþjóðlegrar herferðar Amnesty
International gegn pyntingum.
Islandsdeild Amnesty Inter-
national hefur starfað í 26 ár og heF
ur alltaf efnt til einhvers konar list-
tiðburðar á mannréttindadeginum
10. desember.
„Eg held að dagskrá helguð mann-
réttindadeginum hafi ekld fallið nið-
ur öll þessi ár,“ segir Jóhanna K. Eyj-
ólfsdóttir, framkvæmdastjóri Islands-
deildarinnar. „Yfirleitt hefur dagskrá-
in haft tónlistarívaf, auk þess höfum
við fengið rithöfunda til að lesa úr
verkum sínum, og leikara til að leik-
lesa verk. Undanfarin ár höfum \ið
verið staðið fyrir tónleikum."
Herferð gegn pyntingum
- Þetta er glæsileg dagskrá.
„Þeir sem fram koma á tónleikun-
um í ár eru allir í fremstu röð okkar
tónlistarfólks," segir Jóhanna. „Bæði
tónlistarfólk, og raunar Iistamenn al-
mennt, hafa jafnan tekið ákaflega vel
í að koma fram fyrir Amnesty
International og alltaf sýnt mannrétt-
indabaráttu samtakanna mikinn
stuðning," segir hún.
Sem íyrr segir rennur ágóðinn af
tónleikunum óskertur í herferð gegn
pyntingum, sem hófst núna í október.
„I hugum fólks, þegar pyntingar ber
á góma, sjáum við fyrir okkur pólitísk-
an fanga pyntaðan til sagna. I nýrri
skýrslu frá okkur er aftur á móti vak-
in athygli á þeirri staðreynd að börn
víða um heim sæta pyntingum," segir
Jóhanna.
I skýrslunni kemur fram að við
upphaf nýrrar aldar cru enn þúsundir
karla, kvenna og barna sem þjást af
völdum pyntinga. Þær eru sem fyrr
stundaðar með leynd innan veggja
fangelsa og í sumum tilfellum fyrir
opnum tjöldum.
Með almennu átaki er hægt að
þrýsta á ríkisstjórnir til að grípa til
raunhæfra aðgerða og stöðva pynting-
ar. Verkefni Amnesty International er
að auka meðvitund almennings um
raunveruleika pyntinga og hvetja fólk
til aðgerða gegn þeim. - GB
Ingibjörg Pálmadóttir
lætur ekki vaða ofan i sig.
Maður vikunnar er hörkutól þegar því er að skipta.
Ingibjörg Pálmadóttir brá hart við og hækkaði
röddina á Alþingi í vikunni svo eftir var tekið þegar
hún snéri niður allar grillur þingmanna Sjálfstæðis-
flokksins og lækna og hjúrunarfólks í flokknum
sem vill stofna einkasjúkrahús. Hún sagði pent að
á meðan hún væri heilbrigðisráðherra myndi hún
ekki samþykkja að upp yrði komið einkasjúkrahúsi.
Ingibjörg hefur sagt það áður að hún sé andvíg
einkareknum sjúkrahúsurn og hún stóð við það á
Alþingi í vikunni. Svo er bara að sjá hversu vopnfim
hún er þegar sjálfstæðismenn taka að sauma að
henni í málinu.