Dagur - 09.12.2000, Síða 4
4 - LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 2000
laugardagur. 9. des. kl. 20.00
miðvikud. 27. des. kl. 20.00
fimmtud. 28. des. kl. 20.00
síðustu sýningar!
Samstarfssýning
Leikfélagsins og Vitlausa
leikhópsins:
T'Veir wiíþíM
rvil 1« isif
Trúöaleikurinn
eða Skralli og Lalli eftir
Aðalstein Bergdal
Sýningar
sunnud. 10. des. kl. 15.00
miðvikud. 27. des. kl. 20.00
fimmtud. 28. des. kl. 20.00
Leikarar:
Aðalsteinn Bergdal og
Skúli Gautason
Leikstjóri:
Þráinn Karlsson
TRÚÐABOLIRNIR KOM-
NIR skemmtileg gjöf fyrir
börnin
Kortasalan enn
í fullum gangi!
Gleðileg jól
Jólagjöfin í ár
fyrir pabba og mömmu,
afa og ömmu
og alla hina.
Gjafakortí leikhúsið.
■ - -—-aiOiiiAiJiulUUl
I InlDlnl ríMTl ÍKII niHf
ILEIKFÉLAGAKUREYRARI
Miðasalan opin alla virka daga,
nema mánudaga, frá kl. 13:00-
17:00 og fram að sýningu,
sýningardaga.
Sími 462 1400.
www.leikfelag.is
Hjóttuferðarinnar
med Degi og íslandsflugi
Nú gotur þú lestð
• Dag í loftlnu á öllum
áætlunarlelðum
Islandsflugs.
IJiUHir tSLMDSFWG
Grískar goðsagnir
Höggmynd úr Meyjarhofinu í Alþenu. Sjá má þrjá hinna tólf guða Forn-Grikkja:
Póseidon, Appoiion og Artemis.
Goðsagnir hins
gríska menning-
arheims hafa
lifað um þús-
undir ára og
vekja víða enn í
dag almennan
áhuga. Þess má
víða sjá merki í
daglegu lífi
vestrænna þjóða
- í bókum, sjón-
varpsþáttum og
kvikmyndum.
Vafalaust eru margar skýring-
ar á því hvers vegna þessar goð-
sögur eru svo lífseigar. Ein er
tvímælalaust sú staðreynd að
skáldin sem skópu grísku guð-
ina gerðu þá háða ýmsum þeim
sterku tilfinningum sem líka
ráða ferðinni í mannheimum.
Goðsögurnar lýsa þannig heit-
um ástum og myrku hatri,
hetjudáðum og glæstum sigrum
á vígvellinum en einnig hetju-
Iegum ósigrum. Þótt guðirnir
séu eilífir eru þeir engu að síð-
ur takmörkunum háðir. Mörg
vandamál þeirra og erfiðleikar
eiga rætur að rekja til mann-
legra eiginleika svo sem girndar
og losta, öfundar og afbrýði-
semi, valdagræðgi og mikil-
mennskuæðis. Við bætist að yf-
irnáttúrulegum vopnum er
gjarnan beitt af hálfu guðanna
til að ná fram vilja þeirra og þeir
leika sér gjarnan miskunnar-
Iaust að mannfólkinu í leiðinni.
Það má því segja að grísku goð-
sögurnar séu jafn lífseigar og
raun ber vitni einfaldlega vegna
þess að þær eru spennandi og
æsilegar frásagnir af stórbrotn-
um og dramatískum örlögum
guða og manna.
Goðsagnirnar
endursagðar
Það er til dæmis um vinsældir
þessara sagna nú á tímum að í
jólabókaflóði ársins eru tvær
bækur þar sem gömlu grísku
frásagnirnar eru endursagðar,
þótt með ólíkum hætti sé.
Gunnar Dal, rithöfundur,
sem skrifað hefur fleiri bækur
um heimspeki og trúarbrögð
fyrri tíma en flestir ef ekki allir
íslenskir höfundar, hefur samið
aðra bókina - Grískar goðsögur.
Þar endursegir hann með sínu
lagi sögur af grískum guðum,
gyðjum, hetjum, skrímslum og
mennskum mönnum, eins og
það heitir í undirtitli bókarinn-
ar. Hann fjallar í 107 köflum
um allar helstu goðsögur þessa
tímabils - byrjar á kenningun-
um um hvernig heimurinn varð
til en endursegir síðan hverja
sögnina af annarri. Akur hans
er að sjálfsögðu bókmennaarfur
Grikkja og Rómverja allt frá
Hónier til Ovids hins róm-
verska. Ilver kafli er helgaður
tiltekinni goðsögn og ber yfir-
leitt nafn höfuðpersónunnar.
Þannig er auðvelt að nota bók-
ina í leiðinni sem uppflettirit
fyrir þá sem vilja kynna sér
ákveðna goðsögn eða söguhetju.
Gunnar Dal er að sjálfsögðu
þaulvanur að færa sögu og
kenningar í afar læsilegan og
áhugaverðan búning. Það þekk-
ja lesendur margra fyrri bóka
hans um heimspeki og kenning-
ar ýmissa helstu andans manna
liðinna alda. Þeir verða heldur
ekki sviknir af þessari hók þar
sem saman fer læsileg frásögn
af persónum og atburðum og
beinar tilvitnanir í samtöl og
lýsingar úr hinum fornu ritum.
Á bak við stjörnumerkin
I hinni bókinni um grísku goða-
fræðina - Saga stjörnumerkj-
anna - rekur lllugi Jökulsson
rithöfundur þær goðsögur sem
frá fornu fari tengjast stjörnu-
merkjunum tólf - en af ein-
hverjum ástæðum lifa þau enn
góðu lífi í hugum fjölmargra á
þessum mektartímum raunvís-
indanna.
Hér er að sjálfsögðu vikið að
mörgum sömu goðsögnunum og
í bók Gunnars Dal, en þeim er
raðað niður með öðrum hætti
og tengdar saman þær goðsagn-
ir sem tilheyra hverju stjörnu-
merki fyrir sig, en oft voru á
kreiki margar skýringar á tilurð
sama merkisins.
Illugi skrifar skemmtilega um
þennan skondna heim grískra
guða og leyfir sér á stundum að
hafa góðlátlegt gaman af kjána-
legustu tiltækjum þeirra. Það er
því létt yfir frásögninni sem gef-
ur ágætis yfirlit um meginlínur
grísku goðafræðinnar og helstu
hetjur og skúrka.
GRÍSKAR GOÐSAGNIR.
Höfundur: Gunnar Dal.
Utgefandi: Nýja bókafélagið.
SAGA STJÖRNU-
MERKJANNA.
Höfundur: Illugi Jökulsson.
Útgefandi: PVP forlag.
Vandamál Charlie
★ ★
Gun Shv
Aðalhlutverk:
Liam Neeson,
Sandra Bullcok
og Oliver Platt.
Leikstjóri: Eric
Blakeney.
Bandarísk, árið
2000
Sambíóin eru að
sýna bandarísku
gamanmyndina
Gun Shy. I helstu hlutverkum
eru Liam Neeson, Oliver Platt og
Sandra Bullock, sem er einnig
framleiðandi. Leikstjóri er Eric
Blakeney. Fjallar myndin um
leyniþjónustumanninn Charlie
og þau vandamál sem fý'lgja starfi
hans.
Þegar myndin hefst er
Charlie að fara á taugum og vill
hætta í vinnunni. Hann vill fly-
tja á stað með gott og fallegt út-
sýni. Ilann er hræddur um líf
sitt og fyrir vikið talar hann við
sjálfan sig og þjáist af maga-
verkjum.
Astæða þessara vandræða er
nýleg reynsla Charlies. I þeim
átökum slapp mafíósinn sem
hetja myndarinnar ætlaði að
handsama, en félagi Charlies
var drepinn og hann sjálfur
nærri því að fara sömu leið.
Hann bregður á það ráð að fara
til sálfræðings sem reynir að
hjálpa honum. Líf leyniþjón-
ustumannsins hatnar samt ekki
fyrr en hann kynnist hjúkrunar-
konunni, Judy. Hún kennir hon-
um að njóta lífsins og þau verða
ástfangin.
Vonbrigói
Gun Shy veldur nokkrum von-
brigðum. Ahersla er lögð á það í
byrjun myndarinnar að Iýsa því
hvað felst í starfi Charlies. Þau
atriöi eru áhugalítil og einungis
leikarinn, Liam Neeson, heldur
áhorfandanum við efnið. Fyrri
hlutin myndarinnar er því lang-
dreginn, en hún batnar er á líður.
Sérstaklega eftir að Charlie
kynnist Judy og samband þeirra
fer að þróast. Einnig er að finna
skemmtilcg atriði þegar Gharlie
er kominn í hópmeðferð hjá sál-
fræðingnum. Myndin hefði batn-
að til muna ef meiri áhersla hefði
verið lögð á þá þætti, en því mið-
ur eru áherslurnar aðrar. Það
sem háir þó Gun Shy mest sem
gamanmynd er að hún sýnir okk-
ur engin bráðfyndin atriði.
Áhorfendur brosa stundum út í
annað, en hlæja aldrei mikið né
lengi. Skýringin er auðvitað sú að
handritið er Iélegt. Samræðurnar
eru yfirleitt áhugalitlar ogjafnvel
heimskulegar. Þá er persónu-
sköpunin ótrúverðug. Að vísu er
samband Gharlies og Judy
skemmtilegt á köflum, en það er
meira Neeson og Bullock að
þakka en handritinu.
Þá eru aukapersónurnar Iítt
spennandi og sumar reyndar
virkilega pirrandi. Dæmi um það
erAndrew Lauer, sem þekktur er
úr gamanþátlunum Caroline In
the City. Hann fer með hlutverk
krimmans Jason Cane. Olíkt
Neeson og Bullock tekst hvorki
honum né öðrum leikurum að
bæta fyrir slappa persónusköpun
í handritinu.
Endirinn er einnig fýrirsjánleg-
ur og alltof oflseldisfullur, sér-
staklega ef haft er í huga að Gun
Shy á að vera gamanmynd.
Neeson og Bullock
Liam Neeson fer vel með hlut-
verk sitt í myndinni. Honum
tekst að gera Charlie áhugaverð-
an þrátt fyrir allt. Hann er sann-
færandi hvort sem persóna hans
á að vera taugaveikluð og ham-
ingjusöm, enda er þarna á ferð-
inni góður leikari eins og flestir
bíógestir þekkja af fyrri myndum
hans.
Sandra Bullock fer með mjög
lítið hlutverk. Hún Ieikur hina
hjartgóðu Judy og hressir upp á
myndina, enda skemmtileg að
vanda. Samleikur hennar og
Neesons er Ijósi punktur mynd-
arinnar.
Oliver Platt er ótrúverðugur í
hlutverki mafíósans Fulvio.
Hann er beinlínis lélegur í fyrri
hlutanum en á góða spretti er
líður á myndina. Því miður eru
sprettirnir of fáir og koma of
seint.
Aðdáendur Neeson og Bullock
verða örugglega fýrir nokkrum
vonbrigðum með þessa kvik-
mynd. Þótt þau standi fyrir sínu
verður Gun Shy að teljast ein lé-
legasta mynd þeirra skötuhjúa.