Dagur - 09.12.2000, Side 8
S - LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 2000
VEH KfA LL'JL írJU 1 IAjJDJjJU J-
Vggut-
Ég ætla
verða
að
Nú er verkfall kennara búið að
standa yfir í mánuð og er það vissu-
lega orðið áhyggjuefni margra, ekki
síst nemendanna sjálfra.
Misjafnlega hefur gengið fyrir ungmennin að
halda sig að sjálfsnámi eins og fram kemur í eft-
irfarandi viðtölum sem Dagur tók við nokkur
þeirra og margir hafa ekkert haft annað að gera
en sofa og vakna til að borða. Einnig eru dæmi
um það að erlendir skiptinemar sem hafa verið
við nám hér á landi, hafi hreinlega þurft að
pakka saman og halda til síns heimalands. Eftir-
farandi spurningarnar voru lagðar fyrir alla við-
mælendur.
- Hvaða áhrif hefur verkfall kennara haft á íyr-
irætlanir og væntingar þínar um framhaldið?
Hvernig hefurðu getað notað tímann? Og hvaða
skilaboðum viltu koma út í samfélagið varðandi
stöðuna?
Kennir í verkfallinu
Jóhannes Skagfjiirð Magnússon er nemandi á
Ijórða ári í Flensborgarskóla.
„F.g ætti að útskrifast næsta vor og ég býst ekki
við að verkfallið komi neitt til með að hafa áhrif
á það, ég er heklur ekki méð það mörg fög og á
lítið cl'tir til að geta klárað.
Eyrstu vikuna í verkfallinu var maöur bara feg-
inn að fá frí og var að skemmta sér og svoleiðis.
En svo fór ég og talaði við gamla yfirkennarann
minn í grunnskólanum hérna og sótti um að fá
að kenna í verkfallinu. Hann skoðaði gögnin mín
og leist hara vel á að fá mig og ég er svo búinn að
vera forfallakennari hjá yngstu krökkunum. Ég
ætla mér að verða kennari, framhaldsskólakenn-
ari.“
- Uefur það engin áhríf á þessa ákvörðun þína
að sjá kennara flýja úr stöðum sínum sökum lalira
kjara?
„Eg átta mig alveg á því að það verður enginn
ríkur á því að vera kennari, enda er þetta fyrst og
fremst hugsjónastarf. Mig langar að gera þetta,
því þetta starf er öðruvísi en öll önnur
störf, erfitt en skemmtilegt og ég vona
bara að ég hafi efni á því að vera hug-
sjónamaður.
Ég hef haft alveg nóg að gera þessa
dagana fyrir utan að kenna í forföllum. Ég
er í leiklistarhóp í skólanum og við höfum
verið að æfa og svo er ég í ungum fram-
sóknarmönnum og það eru búnir að vera
stöðugir fundir hjá okkur."
- Hafið þið eitthvað veríð að ræða
verkfall kennara á þessum fundum?
„Já, og við viljum helst að það verði
samið sem fyrst auðvitað. Annars eru
mjög skiptar skoðanir meðal manna á
fundum og margir sem vilja alls ekki taka
afstöðu til þessara mála, svo við höfum ekki
getað sent frá okkur neinar ályktanir. En ég
fyrir mitt leyti er alls ekki ánægður með mína
menn á þingi, framsóknarmenn ættu að vera
búnir gera meira og gagnrýna Sjálfstæðisflokkinn
og beita þá meiri þrýstingi og ég veit að það eru
flciri sammála mér í því. Davíð Oddsson og Geir
H. Haarde hafa ekki látiö sjá sig allan tímann
meðan á verkfallinu hefur staðið og svo loksins
þegar Davíð kom fram í sjónvarpinu fyrir
nokkrum dögum þá er hann bara að segja brand-
ara um kcnnara. Þessir menn hafa ekki verið
með neitt annað en skæting og Björn Bjarnason
menntamálaráðherra, lét heldur ekkert sjá sig
fýrstu þrjár vikurnar og það er nú cins og hann
sé í verkfalli líka.
Félag framhaldsskólanema boðaði til málþings
um daginn til að ræða um verkfallið og þeir sem
höfðu verið boðaðir þangað til að tala voru, einn
kennari, nemandi, Elna Katrín og svo Davíð og
Geir. Þeir tveir síðastnefndu fengu að stjórna því
á hvaða degi og tíma þingið skyldi haldið og allt í
lagi með það. En svo daginn áður en þingið átti
að vera þá afboðuðu þeir komu sína og sögðu
þetta ekki vera rétta vettvanginn til þess að ræða
þessi mál. Ég verð nú að segja, ef þetta er ekki
rétti vettvangurinn, hver er hann þá. Mér
finnst líka nemendur ekki hafa staðið sig nógu
vel, þeir hefðu átt að sýna meiri samstöðu og
Iáta heyra meira í sér.
Skilaboðin sem ég vil koma á framfæri eru til
Davíðs, Geirs og Björns um að fara að sína þessu
verkfalli meiri áhuga. Við erum hérna tæplega
tuttugu þúsund manns sem erum ekki að gera
neitt. Og þeir mættu kannski hugsa um það að
af þessum tuttugu þúsundum hafa kannski tíu
þúsund manns kosningarétt."
Jóhannes Skagfjörð Magnússon nemandi á fjórða ári í
Flensborgarskóla segir það vera hugsjón sína að ætla að
verða kennari. mynd: einar
kennari
Snorri Sigurðsson, nemi í síðasta áfanga við Menntaskólann í Hamrahlíð hefði
átt að útskrifast um næstu áramót, en nú virðist útséð um að svo geti orðið.
MYND PJETUR
Snorrí Sigurðsson nemi í
síðasta áfanga við
Menntaskólann í Hamra-
hlfð.
„Ég hefði átt að útskrifast um
næstu áramót, en nú virðist útséð
um að svo geti orðið. Ég var ekki
búinn að gera neinar sérstakar
ráðstafanir um framhaldið, nema
að fá mér vinnu, þar sem ég fer
ekki í Háskólann fyrr en næsta
haust, svo þetta ástand hefur eld<-
ert sérstaklega slæmar afleiðingar
fyrir mig að öðru leyti en því að
það dregst auðvitað að ég geti
byijað að vinna. En ég veit um
fólk sem var húið að gera heil-
miklar ráðstafanir, jafnvel skrá sig
í framhaldsnám erlendis, kaupa
sér farmiða og svo framvegis. Það
er fyrst og fremst óvissan sem cr
verst, að vita ekki neitt hvort
maður útskrifast í janúar, febrúar,
eða jafrivel einhvern tíma síðar.
En það verður ekki auðvelt að
koma sér af stað aftur eftir svona
langa ládeyðu. Ég er að vona að
það verði kennt í það minnsta
tvær vikur hjá okkur fyrir próf.
Fyrst um sinn var ég með einn
stundakennara og það hélt manni
svona gangandi. Svo er ég í báð-
um kórum skólans og jólastarf
kórsins var í húl’i, svo Þorgerður
Ingólfsdóttir stjórnandi kórs
Menntaskólans við Hamrahlíð
fékk undanþágu til að vera með
okkur á æfingum og æfa jóla-
prógrammið hér í skólanum.
Hamrahlíðakórinn er hins vegar
að langmestu leyti skipaður nem-
endum sem eru löngu útskrifaðir
og æfir út í bæ svo verkfallið hef-
ur engin áhrif á starf hans. Fyrir
utan kórstarfið hef ég eldd verið
að gera margt, hef kannski bara
sofíð einum of mikið.
Skilaboðin sem ég mundi vilja
koma á framfæri eru til nemenda,
um að þeir haldi áfram sfnu striki
og haldi í vonina. Og svo til
samningarmanna að þeir átti sig á
því að ef kennarar fá ekki stór-
bætt sín kjör þá deyr þessi stétt
út. Menn verða að átta sig á því
að kennarar eru ein af nauðsyn-
legustu stéttunum og það gengur
ekki að vera með ólærða kennara
ef það á að leggja einhvern metn-
að í menntun í þessu landi.