Dagur - 09.12.2000, Blaðsíða 13
X^«r
LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 2000 - 13
LÍF OG STÍLL
Gimsteinaskrín. Á
18. öld þóttu gim-
steinaskreytt
skartgrípaskrín
sem þetta mjög
eftirsóknarverð.
Miðsteinninn er
stór sítrín, um-
kringdur ametýst-
um, agötum,
amasónitum,
granötum og
perlum.
er raunar ennþá viðurkennt allvíða í
þjóðfélögum, þótt það sé ekki hér. En
mér finnst alveg fráleitt að nútíma-
maður á Islandi skuli bera þetta á borð
fyrir fólk, eða að fólk skuli hlusta á það,“
segir Ari Trausti.
Eitt af því sem hafa þarf í huga varð-
andi skrautsteina er að um þrennt getur
verið að ræða: náttúrusteina, gervisteina
og eftirlíkingar.
Náttúrusteinarnir eru verðmætastir.
Gervistcinarnir hafa sömu eiginlcika og
náttúrusteinarnir, en eru búnir til af mönn-
um með aðferðum sem hafa verið þekktar
frá því um miðja 19. öld. Þeir eru því ekki
alveg eins verðmætir, en verðmætir samt.
En svo eru hinar eiginlegu eftirlíkingar,
en í þær er notað gler eða einhver allt
önnur tegund af steini og þær eru því
gjarnan verðlausar eða mjög verðlitlar.
Að sögn Ara Trausta eru ýmsar Ieiðir
færar til þess að þekkja í sundur, til dæmis
náttúrusteina og gervisteina, jafnvel þótt
eiginleikarnir séu þeir sömu.
„Stundum eru þær nú ekkert flóknari en
það að þú þarft að eiga gott stækkunargler,“
segir Ari Trausti. „Þá geturðu þeklit í sundur
raunverulegan safír og gervisafír til dæmis. Þá
skoða menn m.a. svonefndar innlyksur, sem eru
ýmis óhreinindi og vissir hlutir sem eru inni í stein-
inum og verða til við framleiðslu hans, sem ekki ger-
ist í náttúrunni. Eða öfugt, því ákveðin gerð af inn-
lyksum verður stundum til í framleiðslu sumra gervi-
steina en ekki í náttúrunni."
-GB
Útskorinn sítrín.
Þessi sítrínkristall
með hreinar linur
og glæsilegan
smáútskurð, eft/r
Þjóðverjann Bernd
Munsteiner, er
dæmi um nú-
tímaaðferðir við
hönnun og gerö
skrautsteina.
Tópas. Að ofan er grænn
tópas sem var lengi vel
stærsti flataslípaði gimsteinn
heims, og gengur undir nafn-
inu Brasilíska prinsessan. Að
neðan eru tópaskristallar í
móðurbergi. Tópas er til i ýms-
um litum, og eru gullgulur tópas
og bleikur tópas verðmæt-
astir allra tópasa.
Demantsnæla í líki fugls
með demöntum, smarögðum og
períum; allt greypt i gull. Fiðrildisnæla
með rúmlega 150 demöntum með
margvíslega slípuðum steinum, t.d.
ferköntuðum og bátslaga.
Gervismaragður og innlyksur í
gervismaragði. Gervisteinar
eru tiibúnir steinar, gerðir af
mannahöndum, en hafa
sömu eiginleika og nátt-
úrusteinarnir. Innlyksur
eru óhreinindi og ýms-
ir hlutir sem verða til
með ólíkum hætti
eftir því hvort steinn-
inn myndast i náttúr-
unni eða hann er
myndaður með að-
ferðum sem menn
hafa fundið upp.
Útskorna Búdda-
líkneskið er úr fyrsta
flokks afgönskum
Lapis Lazúli.
f 1
Opið til l wmm m if h 22:00