Dagur - 09.12.2000, Síða 17
LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 2000 - 17
IjyjÐ J LAjJDJjJU j
Undir bárujámsboga
Á morgnana tæmdust hverfin nánast af körlum sem héldu sem leið lá á sfna vinnustaði. Eftir voru kon-
urnar með börnin sín. Þessi mynd er frá barnaleikvellinum i Camp Knox. i baksýn sjást Meistaravellir.
mynd: pAll sicurðsson.
Braggarnir settu mikinn svip á
bæjarlífið í Reykjavík á árum
seinni heimsstyrjaldarinnar og
fyrstu áratugina þar á eftir. Dag-
ur birtir hér kaflabrot úr hinni
fróðlegu og vönduðu bók Egg-
erts Þórs Bernharðssonar um
braggahverfin í Reykjavík, Undir
bárujárnsboga. Hér er lýst lífi
kvenna og barna sem voru
heima á meðan karla voru í
vinnu.
Konurnar í hverfunum þekktust oft náið og
iðulega hjálpuðust þær að eftir bestu getu.
En vissulega var sambandið milli kvenn-
anna mismikið, sums staðar voru kunn-
ingjakonurnar fáar og þá helst næstu ná-
grannar en annars staðar þekktu allir alla.
Slíkt fór nokkuð eftir stærð hverfanna.
Tengsl út fyrir hverfi voru misjöfn. Sumar
fjölsk>'ldur höfðu náið samband við ætt-
ingja og vini annars staðar í bænum, aðrar
héldu sig meira út af lyrir sig en þess meiri
samgangur var þá innan skálahverfisins. 17
Stundum héldu konurnar sambandinu eft-
ir að þær höfðu flust úr herskálunum í
önnur íbúðahverfi. 18
Einkum virtist samstaðan rík í þeim
hverfum sem voru smá og tiltölulega ein-
angruð frá annarri íbúðabyggð, t.d. var
samheldnin mikil í Balbokampi og Nes-
kampi. I Balbokampi voru konurnar m.a.
með saumaklúbba, þær buðu hver annarri
í mat og oft voru þær með sameiginlega
kaffitíma síðdegis, einkum á sumrin þegar
gott var veður. Þá stóðu þær fyrir eins kon-
ar „útikaffi" um þrjúleytið og öll börn
hverfisins söfnuðust saman og nutu veit-
inganna sem konurnar buðu upp á. Þær
skiptu með sér verkum og fór nokkuð eftir
efnum og ástæðum hverrar konu hvað hún
gerði í hvert skipti. Ein bakaði kannski
pönnukökur, önnur bjó til kleinur, sú þriðja
sá um drykkjarföng o.s.frv. Konurnar tóku
gjarnan bandavinnuna með sér út, sauni-
uðu út og prjónuðu, spjölluðu saman og
filgdust með börnunum leika sér. Karlarnir
voru víðs fjarri í vinnunni. Þarna myndað-
ist stundum hálfgerð „karnivalstemning"
setn lífgaði mjög upp á umhverfið og jók
samstöðuna í hverfinu.19
Heimur barnanna
Þótt skipuleg leiksvæði með tilheyrandi
tækjum væru af skornum skammti virtust
börnin í braggahverfunum ekki láta það
mikið á sig fá. Umhverfi flestra hverlanna
veitti börnunum nefnilega mikið frelsi til
athafna og það kunnu þau vel að meta.
Víðáttumikil óbyggð svæði, holt og hæðir,
vellir og tún, melar og móar, voru tilvalin
leiksvæði. Þannig voru krakkarnir í nánum
tengslum við náttúruna og þá ekki síður
„sveitina" í bænum því bóndabýli voru í
grennd við sum skálahverfin, ekki síst Sel-
bykamp og Neskamp.
Ævintýrin leyndust víða. A sumrin voru
túnin í grennd við Selbykamp tilvalinn leik-
völlur og á veturna var hægt að renna sér
þar á skautum. I nágrenni kampsins áttu
krakkarnir sér dálítið afdrep sem þeir köll-
uðu „holtið" og þar byggðu þeir heilan
heim; brýr og vegi, hús og hlöður.50
Krakkarnir í Balbokampi áttu svipaðan
„heirn", moldargarð sem farið var í þegar
þurrt var úti og þar léku þeir sér m.a. með
heimasmíðaða fólks- og vörubíla, byggðu
hús, lögðu vegi og undu glaðir við sitt.51
Og í ýmsum braggahverfum fengu krakk-
arnir að byggja sér dúfnakofa og höfðu
gaman af.52
Reykjavíkuræskan að leik
Enda þótt aðstæður í herskálahverfunum
væru um sumt ólíkar og hefðu áhrif á leiki
barnanna voru krakkarnir þar ekkert frá-
brugðnir öðrum börnum í bænum að því
leyti að þeir höfðu unun af hefðbundnum
leikjum Reykjavíkuræskunnar. Hópleikir
utanhúss voru afar vinsælir, ekki síst
hlaupa- og boltaleikir eins og kýlubolti eða
kýló, brennibolti eða brennó og yfir, einnig
fallin spýta eða saltabrauð, stórfiskaleikur,
að hlaupa í skarðið, útilegumaðurinn, sem
var feluleikur, og höfðingjaleikur. Krakkar á
öllum aldri léku sér saman í þessum leikj-
um, bæði strákar og stelpur, enda voru ekki
svo margir jafnaldrar í hverju hverfi. Síðan
voru tískuleikir sem réðu ríkjum tímabund-
ið, eitt sumarið sló t.d. indíánaleikur ræki-
lega í gegn í Balbokampi. Leikfélagar barn-
anna í herskálahverfunum voru allajafna
úr nánasta umhverfi þótt mörg börn úr
bröggunum ættu vitaskuld vini utan hverf-
isins. Þegar ný íbúðahverfi byggðust í
grcnnd við braggana jukust möguleikar á
fjölmennum hópleikjum, t.d. háttaði
þannig til í Selbykampi þegar smáíbúða-
hverfið var að rísa í upphafi sjötta áratugar-
ins og svipað var uppi á teningnum í Þór-
oddsstaðakampi þegar Háahlíð og Hörgs-
hlíð byggðust.
Götubardagarnir
Svokallaðir götubardagar voru algengir í
Reykjavík á sjötta og sjöunda áratugnum
og voru háðir vítt og breitt um bæinn.
Krakkarnir í herskálahverfunum fóru ekki
varhluta af þeim frekar en aðrir. Börn og
unglingar f mörgum braggahverfum öttu
kappi við jafnaldra í næstu götum eða
íbúðahverfum. Harðastir virtust þó þeir
sem bjuggu í Camp Knox en í því hverfi
voru jafnvel bardagar á milli einstakra
hverfahluta. Þannig börðust þeir sem
bjuggu t.d. í R- og C-hluta hverfisins sam-
an gegn þeim sem bjuggu í H-hlutanum.
En þegar barist var við andstæðinga utan
hverfis, t.d. þá sem áttu heima á Melunum
eða í Skjólunum, sameinaðist hópurinn í
hverfinu og stóð sanian sem ein heild. Oft
var hraustlega teldst á, jafnvel svo fast að
lögreglu og fullorðnu fólki leist ekkert á
ástandið. En samstaðan í Camp Knox var
óvenju rík og þess nutu sumir krakkarnir
þar, ekki síst fyrirferðarmiklir strákar sem
áttu það til að gera skammarstrik utan
hverfisins.
Sveinbjörn sýnir klærnar
IHHH Sveinbjörn Sig-
BRIDGE urðsson hefur
gaman af bridge
og hefur spilað
Icngi. Sum spil
eru þó skemmti-
legri en önnur.
Svo fannst
Sveinbirni um
eftirfarandi gjöf
sem kom upp
hjá Bridgefélagi
Akureyrar sl. sunnudagskvöld.
S/AV á hættu
* ÁD74
* DT754
* 6
* K96
* G85
r G986
* 93
* G852
N
V A
S
* 632
* K2
* KG742
* D74
KT9
Á3
ÁDT85
ÁT3
SuðurVestur Norður Austur
BÞ Örlygur Pétur Sveinbjörn
pass pass Ihjarta lgrand
dobl pass pass pass
Ofanritaður sat í suður og
kom sér í hlutverk fórnarlambs-
ins eins og stundum áður. Á
vinstri hönd var Örlygur Örlygs-
son, Pétur Guðjónsson sat í
norður en stjórnanda þáttarins í
austur er þegar búið að kynna til
sögunnar.
Eftir tvö pöss, opnaði Pétur á
hjarta, Sveinbjörn stakk sér inn
á grandi og spilaði það doblað.
Spilið þróast á annan hátt ef
hjartakóngi er spilað út en suður
taldi heppilegast að reyna við
tígullitinn og spilaði fjórða
hæsta. Sveinbjörn lét Iítið í
blindum og átti slaginn á áttuna
heima. Þá spilaði hann laufás og
lauftíu sem Pétur drap á kóng
og skilaði laufi til baka. Suður
drap á drottningu og skipti nú
yfir í hjartakóng. Sveinbjörn
drap og spilaði aftur hjarta á ní-
una og Pétur tók tvo slagi í þeim
lit. Þá spilaði Pétur spaðadrottn-
ingu, enda í þvingaðri stöðu.
Sveinbjörn drap með kóngi sem
hélt og spilaði níunni að blind-
um og yfirdrap með gosa, enda
fýsti hann í fríslagina þar. Ekld
gekk það. Pétur drap með ás og
spilaði enn spaða sem Svein-
björn átti með níunni heima og
þá var sviðið sett. Tígulás var
tekinn og litlum tígli spilað með
þeim afleiðingum að ofanritaður
varð endaspilaður upp í
tígulgaffalinn. Sveinbjörn fékk
tvo spaðaslagi, einn hjartaslag, 3
tígulslagi og einn á ás. 180 í
húsi og hreinn toppur.
Bridgekvöld
Bridgeskólans og BSI
Mánudaginn 4. des. spiluðu 14
pör mitchell.
Lokastaðan
N-Sriðill
1. Ágúst Guðmundsson
-Magnús Bergsson 108
2. Sjöfn Sigvaldadóttir
-Guðmundur Lúðvíksson 98
3. Jóna Samsonardóttir
-Kristinn Stefánsson 94
A-V riðill
1. Eggert Sverrisson
-Halldór Halldórsson 122
2. Halldór Hjartarson
-Benedikt Franklínsson 90
3. Svava Jónsdóttir
-Kristján Nielsen 87
Efstu pör í hvorum riðli hljóta í
verðlaun úttekt í Bridgebúð
BSI.Síðasta spilakvöld Bridge-
skólans íyrir jól verður mánudag-
inn 11. des.Spilamennska hefst
kl. 20.00, allir eru velkomnir og
aðstoðað er við myndun para.
Frá Hvergerðingum
Vetrarstarf Bridgefélags Hvera-
gerðis hefur verið með hefð-
bundnum hætti þennan vetur.
Hinn 31. október lauk þriggja
kvölda VIS tvímenningi. Urslit
urðu þessi:
1. Pétur og Anton 557 stig
2. Kjartan K. og Valtýr 542 stig
3. Jón Guðm. og Öm Friðg. 529 stig
4. Birgir Bj. og Kjartan 511 stig
5. Össur Fr. og Birgir 506 stig
Næst var spiluð fjögurra
kvölda hraðsveitakeppni og lauk
henni 28. nóvembers.l. Urslit
urðu eftirfarandi:
1. Jón Guðmundsson, Ulfar
Guðmundsson, Guðmundur
Sæmundsson og Hörður
Thorar-cnssen 1799 stig
2. Valtýr Jónasson, Kjartan
Kjartansson, Birgir Pálsson,
Össur Friðgeirsson og
Friðgeir Kristjánsson 1758
stig
3. Þórður Snæhjörnsson,
Sturla Þórðarson, Bjarni Þór-
arinsson og Grímur Magnús-
son 1723 stig
Þriðjudagana 12. og 19.
desember verður spilaður
einmenningur. Keppnihefst
síðan að loknu jólafríi þriðju-
daginn 9. janúar með eins
kvöldstvímenningi. Spila-
mennska hefst kl. 19.30.
Nýtt fólk er sérstaklega boð-
iðvelkomið að taka í spil í
afslöppuðu umhverfi þar sem
allir spila sér tilánægju.
Tryggvi leiðir enn
Einu kvöldi er ólokið f
hraðsveitakeppni Bridgefélags
Akureyrar. Sveit Ttyggva Gunn-
arssonar hefur leitt frá upphafi
en með honum spila Pétur Guð-
jónsson, Hörður Blöndal og
Grettir Frímannsson.
Staða efstu sveita:
1. Tryggvi 801 stig
2. Gylfi Pálsson 797 stig
3. Sparisjóður Norðlendinga
781 stig
4. Sveinn Stefánsson 768 stig