Dagur - 09.12.2000, Blaðsíða 18
LlrJÐ 1 LAjJDJiJU j-
18- LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 2000
Kolbriín
skrifar
Bobby
Driscoll
varð kvik-
mynda-
stjarna sex
ára gamall,
hann var
ellefu ára þegar hann
fékk Óskarsverðlaunin
en 17 ára var hann
kominn með skrautlega
sakaskrá og hann lést
31 árs og var grafinn í
fátækrakirkjugarði.
Bobby Driscoll fæddist árið
1936. Fjölskylda hans fluttist til
Kaliforníu þegar hann var sex
ára gamall. Hárskeri sem klippti
hann sagði móður hans að
Bobby litli ætti hvergi betur
heima en í kvikmyndum. Móðir-
in tók hárskerann á orðinu og
fór með soninn í prufukvik-
myndatöku hjá MGM kvik-
myndaverinu sem tókst svo vel
að Bobby komst á kvikmynda-
samning. Hann átti afar
auðvelt með að læra
hlutverk sín, var hug-
myndaríkur og eðlileg-
ur leikari. A skömmum
tfma lék hann á móti
mörgum þekktum
kvikmyndastjörnum
eins og Veronicu Lake,
Lillian Gish, Alan
Ladd, Joan Fontaine
og Charles Boyer.
Árið 1946, tíu ára
gamall, lék hann í
Disney myndinni
Song of the South.
Hann lék Johnny,
dreng sem um tíma
býr hjá ömmu sinni í
Suðurríkjunum með-
an foreldrar hans eru
á ferðalagi. Blökku-
maðurinn Remus
frændi hefur ofan af
fyrir honum með því
að segja honum sög-
ur. Myndin
geysivinsæl og
enn, og var fyrsta
Disney myndin þar
sem blandað var
saman leiknum at-
riðum og teikni-
myndaatriðum.
Walt Disney tók
miklu ástfóstri við
Bobby og fól hon-
um fleiri hlutverk
sínum. Bobby fór einnig með
stórt hlutverk í spennumyndinni
Glugginn en fyrir frammistöðu
sfna í henni hlaut hann sérstök
Oskarsverðlaun einungis ellefu
ára gamall. Hann lék síðan
Gulleyjunni eftir sögu Robert
Louis Stevenson og þegar Walt
Disney gerði teiknimyndina um
Pétur Pan var það Bobby sem
fékk það eftirsótta starf að ljá
Pétri Pan rödd sína. Hann lék
einnig hlutverk Péturs Pan fyrir
teiknara Disneys svo þeir ættu
auðveldara með að ná fram eðli-
legum hreyfingum hjá þessari
fljúgandi hetju. Á þessum tíma
var Bobby allra eftirlæti, Ijörleg-
ur og skemmtilegur strákur sem
aldrei var til vandræða og naut
mikilla vinsælda samverkafólks
síns vegna geðprýði og þess
hversu vel hann tók leikstjórn.
Fangi eiturlyfja
Á unglingsárum varð Bobby fúl-
lyndur og þvermóðskulegur og
hlutverkunum fækkaði allveru-
lega. Hann var tvítugur þegar
hann giftist og eignaðist þrjú
börn en hjónabandið endaði
með skilnaði. Ástæðan var eitur-
Iyljanotkun Bobbys. „Eiturlyfin
breyttu honum," sagði móðir
hans, „hann fór ekki í bað, tenn-
urnar í munni hans losnuðu
hver af annarri. Hann hafði
mjög háa greindarvísitölu en eit-
urlyfin höfðu áhrif á heilastarf-
semi hans.“
Árið 1958, þegar hann var 22
ára, lék hann í síðustu kvikmynd
sinni eftir þriggja ára hlé frá
kvikmyndaleik. Myndin var
merkileg fyrir það eitt að mót-
leikkona hans var Francis Far-
mer, sem hafði um áraraðir
dvalist á geðveikrahæli, en sneri
aftur á kvikmyndatjaldið
n u
mynd sem var einnig síðasta
kvikniynd hennar. Ári seinna var
Bobby handtekinn fyrir að hafa í
fórum sínum ólögleg eiturlyf, og
næsta ár var hann enn handtek-
inn fyrir að hafa ógnað manni
mísm
■
Bobby Driscoll var þekkt barnastjarna en elturlyfjaneysla dró hann til dauoa rúmlega þritugan.
Driscoll skömmu fyrir dauða
s/nn.
mvndum
með byssu sinni og árið þar
eftir var hann handtekinn fyrir
innbrot og ávísanafals og fyrir
notkun eiturlyfja. Llann var
dæmdur til sex mánaða vistar á
stofnun sem sérhæfði sig í að
lækna eiturlvfjasjúklinga. Hann
sagði fyrir rétti: „Eg hafði allt,
átti mikið fé, fékk góð hlutverk
með jöfnu millibili. Eg
sautján ára þegar ég prófaði
fyrst eiturlyf, aðallega heróín
sem ég átti í engum vandræðum
með að borga fyrir. Nú vill eng-
inn ráða mig í vinnu vegna af-
brota minna. Eg hlakka til að
fara í meðferð."
„Vel gerður drengur"
Meðferðin skilaði ekki varanleg-
Ein frægasta mynd hans var sakamálamynd/n The Window en fyrir leik sinn í henni
hlaut hann sérstök Óskarsverðlaun.
um árangri. Næst fréttist af
Bobby í eiturbælum Ncw York
borgar og ættingjar hans heyrðu
einungis frá honum þegar hann
sló þá um lán til að eiga fyrir
dópi. Þann 30. mars 1968 voru
tvö börn að leik nærri heimilum
sínum þegar þau fundu lík ungs
manns í bakgarði. Enginn bar
kennsl á líkið en af því voru tek-
in fingraför og það síðan jarðað í
fátækragrafreit í NewYork. Einu
og hálfu ári síðar hringdi móðir
Bobbys í Walt Disncy stúdíóið,
faðir Bobbys lá fyrir dauðanum
og vildi sjá son sinn í síðasta
sinn. Hafin var leit að Bobby og
eftir fingrafararannsókn kom
Ijós að hann var látinn og hafði
verið grafinn í fátækragrafreit.
Þremur árum seinna endur-
sýndi Disney félagið Söngva
suðursins við frábærar viðtökur.
Þegar móðir Bobbys var spurð
hvað henni þætti um endursýn-
ingarnar brást móðurástin ekki
og hún sagði við blaðamanninn
„Það verður sársaukafullt að sjá
hann á hvíta tjaldinu en samt
indælt. Hann var svo vel gerður
drengur. Viltu segja öllum að
engin kona átti nokkru sinni
betri og örlátari son.“