Dagur - 09.12.2000, Síða 19
Da^ur
LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 2000 - 19
£„.
Laugardaginn
T2. febrúar 1983,
kiukkan 17.25,
hafði „ónafngreind
kona“ íVest-
mannaeyjum sam-
band við lögregl-
una símleiðis og
skýrði hneyksluð
frá því að farþegar í bifreiðinni
V-1648 „væru að reka bera þjó-
hnappa sína út um glugga bif-
reiðarinnar“.
Friðrik Þón
Guðmundsson
skrifar
Lögreglan brást þegar við til að stöðva at-
hæfið, þótt konan neitaði að gefa upp nafn
sitt. Eftir nokkra leit fann lögreglumaður
bifreiðina og var þá ökumaðurinn, Páll, bú-
inn að skila af sér þeim farþegum sem ætl-
að var að hefðu sýnt á sér þjóhnappana
umdeildu, ónafngreindu konunni til svo
sárrar hneykslunar. Páll re\Tidist hins vegar
samvinnufús og greindi frá þ\á að sex far-
þegar hefðu verið í bifreiðinni og hefðu
„fjórir farþegar sýnt á sér beran sitjandann
f gluggum bifreiðarinnar". Greindi Páll
skilmerkilega frá nöfnum þeirra og voru
það hinir ákærðu í málinu, Vilhjálmur, 22
ára, Viktor, 18 ára, Grétar, 22 ára og Elías,
18 ára. Auk þeirra voru farþegar í bifreið-
inni Viðar og Birgir, en þeir höfðu ckki op-
inberað þjóhnappa sína - eða „moonað"
eins og þá var kallað og þótti ekki óalgengt
háttarlag ungra galsafenginna manna á
þessum árum.
Páli sagði nánar tiltekið að fjórmenning-
arnir hefðu komið fullldæddir í bifreiðina,
en klætt sig þar úr. Efst á Hólagötu hefðu
þeir farið úr bifreiðinni á nærbuxunum
einum fata. Hann hefði beðið þá um að
„hætta þessari vitleysu", en þeir hafi verið
ölvaðir og ekki viljað hlusta á sig. Þeir hafi
síðan berað sitjanda sína við Strandveg.
Voru að heilsa vegfarendum
Lögreglan yfirheyrði síðan farþegana dóna-
legu einn af öðrum og voru þeir þá allir
með þjóhnappa sína hulda á siðsaman
hátt. Vilhjálmur sagði að þegar bifreiðinni
var ekið eftir Strandvegi hafi ákærðu girt
niður um sig, snúið berum sitjandanum að
gluggum bifreiðarinnar og þrýst að glugg-
um hennar. „Við vorum að heilsa vegfar-
endum,“ sagði Vilhjálmur. Þeir hafi fljót-
lega hætt „þar eð ekkert gaman hefði verið
Grétar sagði alla farþegana hafa verið mjög öivaða. Rétt væri, að hinir ákærðu hafi berað sitjanda sina að lok-
uðum gluggum bifreiðarinnar og hafiþeirþannig verið að „heilsa vegfarendum".
Beraðir
Eyjabossar
afþessu lengur."
Elías sagði við Iögregluyfirheyrslu að
hann minntist þess ekki að þeir hefðu ber-
að á sér sitjandann, en þeir hefðu klætt sig
úr öllum fötum í bifreiðinni, að nærbuxun-
um undanskildum. Allir farþegarnir hafi
verið meira og minna fullir. Viktor kvaðst
hafa verið ofurölvi og muna atburðina
mjög óljóst. Gæti hann hvorki játað sakar-
efnið né neitað. Grétar sagði alla farþegana
hafa verið mjög ölvaða. Rétt væri, að hinir
ákærðu hafi berað sitjanda sína að lokuð-
um gluggum bifreiðarinnar og hafi þeir
þannig verið að „heilsa vegfarendum".
Höfnuðu allir dómsátt
Ríkissaksóknari fékk málið til sín í apríl og
í maí heimilaði hann að málinu )T-ði lokið
mildilega með dómsáttum um hæfilegar
sektir og greiðslu sakakostnaðar. En þá brá
svo við að fjórmenningarnir höfnuðu
dómsátt, allir sem einn. Akæra var gefin þá
út og málið tekið íyrir í sakadómi af Júlíusi
B. Georgssyni fulltrúa bæjarfógeta.
Framburður fjórmenninganna breyttist
nokkuð fyrir dómi. Elías neitaði því að hafa
berað sitjandann og sýnt í gluggum bifreið-
arinnar. Hann ncitaði þ\i að hafa verið
fullur, heldur bara timbraður. Vilhjámur
sagðist ekki muna til þess að hafa verið ölv-
aður og bar að hann hefði ekki vísvitandi
sýnt á sér afturendann beran, heldur girt
niöur um sig og gæti það hafa sést utan af
götu. Mundi hann þó til þess þráspurður
að þeir hafi „moonað" til að heilsa einum
félaga sinna á götunni, bróður Viktors.
Viktor kannaðist við ölvunina týrir dómi,
en ekki við að hafa „moonað". Hann myndi
þetta að vísu ekki vel, en sér hafi verið sagt
að hann hefði ekki gert þetta. Grétar viður-
kenndi hins vegar fyrir dómi að þeir hali
verið ölvaðir og „moonað". Hið sama báru
farþegarnir sómakærari, Birgir og Viðar.
Moonið „innan einkamarka“
Fulltrúa bæjarfógeta þótti nauösynlegt að
yfirheyra konu þá sem hringdi inn kæruna,
en Geir Jón Þórisson lögregluvarðstjóri bar
að hún hefði ekki viljað gefa upp nafn sitt,
en sagst vera stödd á Hólagötunni. Þrátt
fyrir eftirgrcnnslan í húsum við Hólagöt-
una tókst ekki að hafa upp á konunni og
taldi Gcir Jón ógjörlegt að upplýsa hvaða
konu hafi hér verið um að ræða. Þá hafn-
aði bróðir Viktors því að hafa verið á þess-
um slóðum á umræddum tíma, heldur í
vinnu.
Hinir ákærðu reyndu að fá málinu vísað
frá á þeim grundvelli að í ákæru hafi núm-
er bifreiðarinnar verið misritað, en það
gekk ekki upp. Verjandi þeirra, Jón Hjalta-
son, benti á, að „þær athafnir, sem gerast í
bifreið, séu ekki og geti ekki almennt talist
til þeirra athafna, sem gerast á almanna-
færi í skilningi rcfsilaga. maður í bifreið sé
innan sinna einkamarka og gildi þar jafnt
um, hvort hann sé farþegi í bifreið eða
ökumaður, hvort hann eigi bifreiðina eða
hafi hana til afnota".
Enginn kynferðislegur þáttur!
Júlíus fulltrúi hafnaði þessu og benti á að
Strandvegur sé ein af aðalgötum kaupstað-
arins, þar sem ávallt má búast viö fólki á
ferli. „Telja verður að með háttalagi sínu
hafi tilgangur ákærðu vcrið sá að vekja á
sér athygli á stað, þar sem almennt mátti
búast við mannaferðum, en háttsemi seni
þessi er almennt til þess fallin að valda op-
inberu hneyksli og misbjóða almennu vel-
sæmi. Á hinn bóginn þykir mega fallast á
það með verjanda ákærðu, að hér hafi eng-
inn kynferðislegur þáttur verið í", sagði Júl-
íus.
Júlíus dænuli að þrátt fyrir breyttan
framburð yrði að teljast sannað að hinir
ákærðu hefðu gerst sekir um þá háttsemi
sem í ákæru var lýst. Hann saknaði að vísu
þess að ekki tókst að hafa upp á konunni
sem hringdi á lögregluna og hvers velsæmi
var þannig misboðið. „Þykir það ekki hafa
áhrif á ofangreinda niðurstöðu, að ekki
tókst að hafa upp á konu þeirri".
42.000 á hvem bossa
Var þá hara eftir að refsa fjórmenningun-
um fyrir ódæðið. Júlíusi þótti hæfilegt að
hver þeirra um sig skyldi greiða sekt, sem
að núvirði jafngildir um 20 þúsund krón-
um eða alls 80 þúsund, auk sakarkostnað-
ar og málsvarnarlauna. Akæruvaldið áfrýj-
aði málinu til að fá refsinguna þyngda, en
fjórmenningarnir vildu sýknu. Hæstiréttur
breytti dónmum i' engu. Ofan á 80 þús-
undin bættust við 90 þúsund krónur í
málskostnaði og málsvarnarlaunum eða
alls unr 170 þúsuncl. Það gera liðlega 42
þúsund krónur á hvern beraöan „sitjanda".
fridrik@ff.is
Jólastemning. Nú færist stemning jól-
anna yfir bæi og sveitir, enda komin
önnur helgi í aðventu. Þrettán nóttum
fyrir jól kemur fyrsti jólasveinninn til
byggða, hvað heitir hann? Og hvað
heitir sá sem kemur síðastur; á jóla-
nótt?
Fjallið. Hvað heitir fjallið það sem hér
sést á mynd, er 934 m. á hæð, og er
keilumyndað. Jafnframt að mörgu leyti
tákn þess héraðs sem það gnæfir yfir?
Presturinn. í sl. viku var sr. Hjálmar
Jónsson alþíngismaður kjörinn í emb-
ætti dómkirkjuprests í Reykjavík, og
tekur hann við embættinu á nýju ári.
Hjálmar hefur verið þingmaður frá árinu
1995, en hvar var hann prestur á tveim-
ur stöðum?
Tónskáldið. Um síðustu helgi var aldar-
afmælis tónskálds minnst með vegleg-
um tónleikum þar sem verk hans voru
flutt. Meðal annars var flutt lagið I fjar-
lægð. Hvert var þetta tónskáld?
Sungið við raust. Á mannamótum er
ævinlega til siðs að taka lagið og syngja
við raust. Ekki síst lagið Undir bláhimni,
og er hér spurt hver samdi lagið og
hver textann?
LAND OG
ÞJOÐ
1. Hverjir voru það sem sömdu söng-
leikina Járnhausinn og Deleríum búbón-
is sem sýndir voru á sjöunda áratugn-
um?
2. Snemma á sjöunda ártugnum kom út
ævisaga Hannesar Hafsteins sem sum-
um þótti í raun vera ein stór lofgjörð um
skáldið og ráðherrann. Hver skrifaði
þessa sögu hans?
3. Hvað heitir fjallið mikla sem gnæfir
yfir Siglufjarðarkauptún og er við fjörð-
inn austanverðan?
4. Hvað hét bókaútgáfa Sambands ís-
lenskra samvinnufélaga sem lengi var
starfrækt og hafði höfuðstöðvar sínar á
Akureyri?
5. Einar Már Guðmundsson sendir frá
sér skáldsögu fyrir þessi jól, sem er
beint og óbeint framhald sögu þeirrar
sem hann skrifaði og kom út fyrir tveim-
ur árum. Hvað heita þessar tvær skáld-
sögur?
6. Hvað heita melar þeir í Skagafirði þar
sem landsmót hestamanna hafa gjarnan
verið haldin?
7. Hver er skólastaðurinn í dreifbýli
Vestur-Húnavatnssýslu, sem er um 10
km. frá Hvammstanga, þar sem er og
starfrækt Eddu-Hótel á sumrin?
8. Þormóðssker. Hvar er það?
9. Hvaða forsætisráðherra varð frægur
fyrir að bregða stundum á leik við menn
sem komu á skrifstofu hans í Stjórnar-
ráðshúsinu í að stökkva jafnfætis upp á
ríkisstjórnarborðið?
10. Um aldamótin síðustu var eitt
stærsta fyrirtæki landsins Ásgeirsversl-
un sem svo var nefnd. Hvar var hún
starfandi?
■Ejjjatl uui9 jnpjoíjesj jea Bo nuipuei b ipeisdne^ xas bujojs qb pipaA>je jba ujuinujB jba nu|puB| j uiunisjoAjBunjjoura jb6sc| 96íi ppv nuipuB| buu|3 p|æjpBjs un|SJ8A quoa jecj quoa jecj iqjbl| ecj uo
‘IQJIJbsj y '0 L uosseuof uuBujjBfi '6 'Jn>|BqjjBAS sujapB jbc) J|djaÁ nu ua ‘|piaA|as 6o -e|6nj pnpuns jbc| 6o pjojB jnpe jba pua>|S Z«76l pue jba jnjsraj ujbs ijia jbc] ja 6o uinj4|/\| e !S8UJBJJBU>| jb as iu>| 9 tun J0 j0>|ssppujjoci '8 T>|>|eqB6ney l jb
-|0iuBiÚ!0qpu!A '9 'npjof b Jeuineja J0 |of issacj ju4j jn jnui8>) lubs ns ua ‘uinuuijq b jodsjoj jqiaq uB6esp|B>|s ujXj g JJpJON y -eujAqs|PH '8 uossjjsqiv uefjsjj>| z 'jiuísbujy seupf 60 !|n|A| uof jjujnpæjq iuoa npuios uui>)!a|6uos uias jjaq j
'!PJ!Jb6b>|S J pj|qnpuo|g j uin|6pA b uosB|sjg 'H snu6B|A| ÚJJ0 jb uupxaj 60 - jbabh ?JJ J0 luunqeiq jjpufi pw p!6eq , 'jjnds uin
j9 Jpq ui9s p!p|B>|supj J9 uossjiouny -p |jb>| , S66L l!J 086 L ejj p|pj>|jBpnes e 60 086L I!1 946 L bjj !6uicjBunH j |||B>|BjS9jdjepi|qjBpeiS|pg j jnissjd jba uossuof JBui|efH 'JS , 'Bineg , 'jjpueipí b 'jnjsepjs ji>jjusevJ3>l 60 jsj/ýj uio>| jnBjsef>j>|9is ,
:JQAS