Dagur - 09.12.2000, Síða 23
Xfc^ur.
LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 2000 - 23
SKAKMOLAR
UMSJON:
HALLDÓR B.
HALLDÓRSSON
Khalifman og
Anand sigur-
stranglegir!
Fjörugar skákir og óvænt úrslit
eru það sem að skákaödáendur
fá að sjá um þessar mundir á
Heimsmeistaramóti FIDE sem
fram fer á Indlandi. Þegar hafa
margir stórlaxarnir 'fallið úr
leik. Hannes Fllífar Stefánsson
féll t.d. úr leik gegn Viktori
Bologan! I fyrstu umferð féllu
menn eins og Speelman, Pona-
marinov og Lautier strax úr leik
og menn eins og Ivanchuk,
Krasenkow og Short pökkuðu
niður eftir aðra umferð.
I þriðju umferð kvöddu svo
mótið þeir Van Wely og Leko
svo einhverjir séu nefndir. Loks
var svo komið að stórleikjum í
gær þegar að Svidler og Adams
mættust í bráðabana. Fór það
svo að Adams vann. Rússin
snjalli Morozevich, sem er í
íjórða sæti á heimslistanum,
tapaði lyrir Tkachiev í umferð-
inni og er því mjög óvænt úr
leik.
Af öðrum úrslitum má nefna
að unglingurinn Grichuk sló
„lslandsvininn" Ehlvest út,
Ixlialliman, Anand, og Shirov
komust einnig áfram. Stór-
viðureign er í dag en þá mætast
í átta manna úrslitum þeir An-
and og Khalifman. Það eru
einmitt þessir tveir sem eru
taldir hafa mestu möguleika á
sigri og það eru margir sem að
spá því að sigurvegari þessarar
viðureignar verði næsti „heims-
meistari".
Héðan og þaðan
Stefán Kristjánsson tryggði sér
mat fyrir tvo á Pizza Hut með
því að sigra á Atkvöldi hjá Tafl-
félaginu Helli sl. mánudags-
kvöld en Stefán hlaut 5/ vinn-
ing af 6 mögulegum. I öðru til
þri'ðja sæti komu svo þeir Jón
Friðjónsson og Lárus Knútsson
með 414. Þátttaka var nokkuð
góð. Olafur Kristjánsson og Þór
Valtýsson eru efstir og jafnir
með fullt hús vinninga að Iokn-
um þrem umferðum í Bikar-
móti Skákfélags Akureyrar sem
hófst sl. fimmtudagskvöld og er
framhaldið á sunnudaginn.
Gylfi Þórhallsson fylgir jrcim
fast á eftir með 214 vinning. Það
voru Réttarholtsskóli og Haga-
skóli sem börðust hatrammlega
um sigurinn í jólamóti grunn-
skólanna í Reykjavík en báðar
sveitir fengu 21 / vinning. Það
voru þá Réttarholtskælingár
sem tóku dolluna heim því að
þeir sigruðu Hagaskóla í inn-
byrðis viðureign liðann með
minnsta mun.
Að lokum er hér staða sem
kom upp í skák þeirra Boris
Gelfands og Jeroen Piket í
þriðju umferð heimsmeistara-
mótssins. Skákin sannar að
meistararnir gera líka mistök því
að Piket átti leik og lék :
31. Rd4??
32. Dxd4!
' B&e
i# i
1 4 1 1
ix • -a
ÍL
& : Bi
ÍÍ. '
' "m 'g.
og Piket
gafst upp
enda tapar
hann
manni eftir
32.Hxd4
Rxe6+
Allar upipástungur vel þegnar
á vost@centrum.is
FINA OG FRÆGA FOLKIÐ
Dornoch cathederal í
Skotlandi þar sem Guy
Ritchy og Madonna ætla
að gifta sig.
„McDonna" giftir
sig í Skotlandi
Þá helur Madonna náð að stela senunni meðal
fína og fræga fólksins í Bretlandi yfir þessa jólahá-
tíð, því hún hefur loksins gefið út að hún sé að
fara að giftast heitmanni sínum, Guy Ritchie.
Brúðkaupið á að fara fram í skosku hálöndunum
þann 22. désember, rétt fyrir jólin og eru menn
þegar farnir að tala um brúðkaup ársins. Brúð-
kaupið verður glæsilegur lokapunktur á viðburða-
ríku ári hjá poppstjörnunni sem nú er aftur komin
með lög inn á vinsældalista cftir barnsburðarhlé.
Madonna á soninn Rocco með heitmanni sínum.
Eftir að tilkynnt var uin hvar þau skötuhjúin ætl-
uðu að halda brúðkaupið hafa bresku dagblöðin
að sjálfsögðu kallað Madonnu, „McDonnu".
BARNAHORNIfl
Aðeins
tveir eins
Þó allir þessir birnir virðist í fljótu bragði
vera eins þá eru aðeins tveir þeirra alveg
eins. Getur þú fundið út hverjir það eru?
Sfðan er tilvalið að lita birnina hvern
með sínum hætti.
Leiðin að eplunum
Þessa litlu stúlku langar óskáplega mikið í epli en kemst
ekki upp í tréð til að ná sér í eitt. Getur þú hjálpað
henni að finna réttu leiðina?
Brandarar
Stefán læknir: „Ég á ekki til eitt einasta orð. Ég
er búinn að gera allt sem ég get í tvo rnánuði til
þess að lækna þig af gulu og nú ertu fyrst að
segja mér að þú sért Kínverji!"
„Pabbi! Eru mannætur i Borgarnesi"
„Nei, af hverju spyrðu?"
,/Ei, fréttamaðurinn í útvarpinu var að segja
að stór hluti Borgnesinga lifði á ferðamönnum."
STJORNUSPA
s,
■
%
/T
Vatnsberinn
Þú ferð í búðir um
helgina og kaupir
alltof dýrar jóla-
gjafir. Það þarf
ekki mikla spá-
dómsgáfu til að sjá
það fyrir.
Fiskarnir
Lúðvík Fikja verður
kosinn knatt-
spyrnumaður árs-
ins í heiminum. Þú
lest það í Fíkju-
blaðinu eftir helg-
ina.
Hrúturinn
Þú lest ekki raf-
rænu jólabækurnar
nema innstungan
sé í lagi. Og ekki
fara þær heldur vel
í rúmi. En það á
við um fleiri.
Nautið
Gore verður ekki á
Klúbb Clinton í
kvöld til að drekkja
sorgum sínum. En
þú verður þar í
sömu erindagjörð-
um.
Tvíburarnir
Þú verður að kafa
djúpt til að kom-
ast að niðurstöðu.
Það gerir píku-
torfukafarinn. k
Krabbinn
Skárra er að
hanga á herðatré
úti á snúru en á
forvarnatré inni á
þurrkvíabryggju
heimilisins. wj
Ljónið
Þú hittir mann-
eskju í strætó sem
þú hefur ekki séð
lengi og aðra sem
þú hefur aldrei
séð og ferð heim
með hvorugri.
Meyjan
Jólasveinninn
þinn, jólaveinninn
þinn ætlar að
koma í kvöld.
Hann er að hand-
rukka opinber
gjöld.
Vogin
Trommuleikarinn
lætur ekki slá sig
úr af laginu fyrr en
í fulla kjuðana.
Sporðdrekinn
Þú semur fer- f
skeytlu sem fer
sigurför um heim-
inn þrátt fyrir
nokkurt hnoð í
þriðju hendingu.
Bogmaðurinn
Notaðu fiskimjöl í
jólabaksturinn.
Það ku vera skað-
laust svínum og
furðufuglum. x-é
++
Steingeitin
Þú færð tilboð
sem þú getur ekki
hafnað í pipar-
kökuhúsið þitt, en
kýst að selja hitt.
Þú ert átvagl.
\