Dagur - 14.02.2001, Blaðsíða 1

Dagur - 14.02.2001, Blaðsíða 1
Verð í /ausasölu 150 kr. 84. og 85. árgangur -31. tölublað Sala Kísilidjuimar mikilvæg tímamót Tveggja ára söluferli lokið. Kísilduftverk- smiðja imin rísa á gniniii úreltrar Kísil- iðju. Sveitarstjóriuu segir söluna vera mjög merkilegt og jákvætt skref fyrir laudsbyggð- ina. Greina mátti mikla eftirvæntingu hjá starfsmönnum Kísiliðjunnar í gær þegar þeir voru boðaðir til starfsmannafundar með ýmsuni ráðamönnum og þ.á.m. viðskipta- ráðherra. Tilefni fundarins var sala Kísiliðjunnar til AUied EFA. Er- lenda fyrirtækið hyggst reisa kísil- duftverksmiðju á næstu fjórum árum í stað hefðbundinnar vinnslu og má fullyrða að starfsmönnum hafi létt verulega þegar tíðindin voru túlkuð sem svo að mcð þessu skrefi væri í raun verið að tryggja framtíð starfsmannanna fremur en stefna í tvísýnu. Eins og Dagur hefur áður greint frá, virtist sem fullsnemmt væri fyrir fylgjendur verksmiðjunnar að fagna framlengdu \dnnsluleyfi á nýjum svæðum í Mývatni. I ljós kom nefnilega að tap hafði verið á verksmiðjunni um hríð og hafði endurnýjun og viðhald setið á hak- anum í ljósi þeirrar óvissu sem fyr- irtækið hefur búið við. Nú liggur fyrir að Celite Corporation sem á 48,56% í fyrirtækinu telur fjár- munum sínum best varið með sölu. Framtíðarhorfur í kísilgúr- framleiðslu í óbreyttri mynd eru Spenna var í Kísiliðjunni í gær þegar boðað var til starfsmannafundar með iðnaðarráðherra og fleirum. Valgerður Bjarnadóttir segir aö heimamenn hafi ekkert að óttast heldur sé sala Kísiliðjunnar jákvætt skref. - mynd: brink taldar tvísýnar og selur Celite allan hlut sinn ásamt ríkinu sem átti 51% í fyrirtækinu. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að andvirði eignar- hluta ríkisins renni til uppbygging- ar á svæðinu en það munu vera um 60-70 milljónir. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- ráðherra fagnaði áfanganum í gær og sagðist fullviss um að stigið væri heilladrjúgt skref. I sama streng tók Sigbjörn Gunnarsson, sveitarstjóri í Mývatnssveit. Hann sagðist ekki óttast að framtíð fyrirtækisins yrði tvísýnni nú þegar kjölfestan sem fylgir ríkiseignum væri úr sögunni. Viðuikeiming fyrir starfsfólk „Þetta er merkilegt skref, enda hafa fyrirtæki ekki verið þekkt fyr- ir að fjárfesta úti á landi. I hveiju er verið að íjárfesta í Mývatns- sveit? Það er verið að fjárfesta í þekkingu sem liggur fyrir og það er mikil upphefð og viðurkenning fyr- ir það starfsfólk sem hér starfar," sagði Sigbjörn. Athygli vekur að vinnan við þessa íyrirætlun hefur staðið yfir í tvö ár þótt lágt hafi farið og að þeirri vinnu hefur sveitarstjórinn komið líkt og ráðuneytismenn. fjárfestar og forkólfar Kísiliðjunn- ar. Aðspurður hvort ekki sé hætta á að fyrirtækið standi pólitískt veik- ara nú þegar ríkið hefur dregið sig út, bendir Sigbjörn á að ríkið eigi ekki að vera og sé engin félags- málastofnun sem eigi að búa til at- vinnu. Hann telur að sóknarfæri fyrirtækisins eflist til muna við breytinguna, enda hafi fyrrverandi eignaraðild verið flókin og að sumu leyti gert mönnum erfitt fyr- ir. - BÞ Sjá meira á bls. 5 Nær Samkvæmt svari Sólveigar Péturs- dóttur dómsmálaráðherra við fyrir- spurn Péturs Blöndals hafa 22 ör- yggislyrirtæki fengið leyfi til starf- semi sbr. reglugerð frá 1997 um öryggisþjónustu. Talið er að á milli 180 og 190 öryggisverðir starfi um þessar mundir á landinu öllu, að ótöldu öðru starfsfólki hjá öryggis- fyrirtækjum. 200 öryggisverdir Securitas hf. er stærsta öryggisþjónustufyrirtækið á Islandi með 130 öryggis- verði. Starfa auk þess 25- 27 manns að jafnaði í tæknideild og 15-20 manns við skrifstofustörf. Hjá Oryggismíðstöð Is- lands hf. starfa 52 einstak- lingar, þar af 22 öryggis- Sólveig Pétursdóttir. verðir, en 30 manns starfa við skrifstofu- og tækni- störf. Hjá Vara ehf. eru 20 starfsmenn. Önnur öry'gg- isþjónustufyrirtæki eru rninni og sum hver einung- is með tvo til þrjá starfs- menn. Miðað við þessar upplýsingar þykir óhætt að segja að um 300 manns starfi í þessum atvinnugeira. Arið 2000 voru heimiluð stöðu- gildi lögreglumanna yfir landið allt 666. Við þessa tölu iná svo bæta 26 stöðum lögreglustjóra. Að með- töldum öðrum störfum hjá lög- regluembættum telur ráðherra óhætt er að segja að um 800 manns séu í störfum tengdum lög- gæslu í landinu. - PÞG Bogi Ágústsson fær á baukinn. „Klapp, klapp. Afram, áfram66 Gissur Pétursson varaformaður Utvarpsráðs lét bóka óvenjulega bókun á fundi ráðsins í gær varð- andi fréttastofnu Sjónvarps. 1 bókun Gissurar segir orðrétt: „Vegna samræðna á síðasta út- varpsráðsfundi við fréttastjóra Sjónvarpsins um fagmennsku í vinnubrögðum fréttastofunnar, eftirf\lgni, snerpu og frumleika í efnistökum, vil ég óska frétta- stofunni til hamingju með að hafa brugðist skjótt við. I síðustu viku flutti fréttastofan ítarlega frétt í aðalfréttatíma um hjóna- skilnað bandarísku kvikmynda- Ieikaranna Tom Cruise og Nicole Kidman. Takk fyrir. Klapp, klapp. Afram, áfram." Tengsl við Sjálfstæðisflokk Hins vegar var fréttastofan áfram til urnræðu á umræddum fundi Utvarpsráðs, og sérstak- lega það sem Bogi Agústsson fréttastjóri sagði í þættinum Silf- ur Egils þann 4. febrúar sl. þar sem umræðuefnið var tengsl fréttastofunnar og Sjálfstæðis- flokksins. I bókun sem Mörður Arnason, einn ráðsmanna Iét gera á lundinum segir m.a.: „Mér þykir óviðkunnanlegt að fréttastjórinn skuli af því tilefni nefna átta starfsmenn á Sjón- varpi og Utvarpi og draga þá í pólitíska dilka. Þegar um þessa hluti er rætt manna á meðal er raunar algengt að tengja einstak- linga við pólitíska flokka og við- horf. Reyndur sjónvarpsmaður hlýtur þó að vita að spurningin varðar fyrst og frcmst frétta- stefnu, sjálfsmynd fréttastofunn- ar og hver forysta henni er veitt. Eg fer fram á að fréttastjórinn Iáti af því að benda á vinnufélaga sína sem pólitíska fjarvistarsönn- un en skoði þess í stað eigin vinnubrögð." og fullkomið stereo myndbandsfæki ^SAWISUNC

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.