Dagur - 14.02.2001, Blaðsíða 8

Dagur - 14.02.2001, Blaðsíða 8
8- MIÐVIKUDAGUR 14. F E I! R Ú A II 2001 SMÁTT OG STÓRT UMSJÓN: Birgir Guömundsson biggi@dagur.is „Verstar eru greinar „þjóð- kunnra manna" um „þjóðkunna menn“. Þar hafa formúlurnar minnsta merk- ingu. Þær segja lítið um hinn Iátna en heilmikið um hirðsiði sam- félagsins, kureis- isleg látalæti þar seni eltkert er eins og það sýn- ist“. kveðið Þaö er alltaf gaman að heyra dýrt kveðnar vísur en sífellt sjaldgæfara er nú að heyra vel orta vísu t.d. sléttubönd. Þessi kúnst er þó sfður en svo útdauð eins og Skarphéðinn As- björnsson hjá Rarik í Húnaþingi hefur sann- að mjög eftirminnilega en hann samdi á dög- unurn gátu undir yfirskriftinni: Hver er mað- urinn? Gátan/vísan er svona: Svanna heillar, aldrei á amorsbrögðum klikkar. Manna beslur, sjaldan sá sætir vafa ykkar. Maðurinn sem ort er uni er Guðmundur Eiríksson í Bröttuhlíð í Svartár- dal, sem margir þekkja af merkilegum hatti sem hann gengur iðulega með. Og eins og vísan ber með sér er Guðmundur mikill gleðimaður og sjarmör. Ahugamenn um góðar vfsur og sléttubönd eru eflaust þegar búnir að lesa vís- una aftur á bak líka, en fyrir hina sem óvanir eru má líka skrifa upp vísuna þannig: Sætir vafa ykltar sá sjaldan, bestur manna. Klikkar amorsbrögðum á aldrei, heillar svanna. Sigurður Þór Guðjónsson, rit- höfundur í grein um minningar- greinar í Morgun- blaðinu í gær. Skilaboð imgliðaraia Því hefur oft verið haldið fram að ungliðar stjórnmálaflokkanna séu óragari en aðrir við að segja opinberlega það sem hinir eldri í flokkunum eru að hugsa. I Ijósi slíkra kenninga, og raunar í Ijósi þess að mörgum framsóknar- mönnum á Alþingi leið illa undir umræðum um útboð á grunnskólakennslu í f\'rradag, er fróðlegt að lesa hvað ungir framsóknarmenn segja um þessi mál á vefsíðu sinni, Maddömunni: „En þegar farið er að ræða um útboð á kcnnslu grunnskólanemenda finnst Maddömunni of langt gengið og að framsóknarmenn séu farnir að gefa fullmikið eftir í samstarfi sínu við sjálf- stæðismenn. Góð sátt hefur verið um það hingað til að áður ríki og nú sveit- arfélög sjái um rekstur og starfsemi grunnskólanna í landinu. Ef fara á að brjóta á þessari sátt er kominn tími til fyrir framsóknarmenn að staldra við og spyrja sig þeirrar spurningar hvort þetta stjórnarsamstarf sé þess virði að halda því við.“ ■ fína og fræga fólkið John Travolta kemur sterkur inn í „Prampid66 Það er mál manna að það kunni að verða talsverð keppni um það hver hlýtur Osk- arsverðlaunin í ár, en hins vegnar virðist það ekki ætla að verða nein spurning um hver muni hreppa „Prumpið" - verðlaunin um verstu myndina í ár. Þar hefur myndin „Battle- field Earth" eða „Orrustuvöll- urinn jörðin", sem er vísinda- drama, fengið átta tilnefning- ar, og ber höfuð og herðar yfir allar aðrar myndir. Meðal „Prump - tilnefninga" myndar- innar má nefna að John Travolta er tilnefndur sem ver- sti leikarinn, eiginkona Tra- volta, Kelly Preston er tilnefnd sem versta leikkona í auka- hlutverki, og myndin skartar auk þess tilnefningu sem myndin með versta handritið og verstu leikstjórnina. Gullnu prumpverðlaunin, eða „The Golden Raspberry Awards“ sem veitt hafa verið í Hollywood í um 20 ár fyrir - verstu frammistöðuna í kvik- myndaheiminum verða afhent þann 24. mars, daginn fyrir Oskarsverðlaunaafhending- una. Aðrar kvikmyndir sem fengið hafa margvíslegar tilnefningar til Prumpverðlauna eru: „Book of Shadows: Blair Witch 2“, „Flintstones í Viva Rock Veg- as”, „LittJe Nicky", og „The Next Best Thing”. Madonna sem í fyrra var út- nefnd sem versta Ieikkona ald- arinnar kemur nú sterk inn í Prumpið aftur fyrir túlkun sína á einstæðri móður í myndinni „The Next Best Thing.” Sylvester Stallone, sem líka er góðkunningi Prumpverð- launa er einnig tilnefndur fyrir endurgerðina á myndinni „Get Carter." Stallone var jú í fyrra valinn versti leikari aldarinnar. En það eru þó miklu fleiri sem koma við sögu Prump- verðlaunanna að þessu sinni og á þeim lista eru m.a. Mel- anie Griffith lyrir leik sinn í „Cecil B. Demented", Demi Moore fyrir leik sinn í „Passion og Mind“, Kim Basinger fyrir leik sinn í bæði „I Dreamed of Africa“ og „Bless the Child". Þeir sem vinna til Prumverð- launa fá sérstaklega sprautu- málaðan gullbikar, en þetta eru yfirleitt talin minnst eftir- sóknarverðu verðlaun, sem kvikmyndaleikari getur fengið! John Travolta er tilnefndur sem versti leikarinn og kona hans Keiiy Preston sem versta leikkona í aukahiutverki. Hér má sjá þau hjóna- korn í frumsýningarsamkvæmi myndarinnar en á milli þeirra stendur Quentin Tarantino. ÍÞRÓTTIR Petersons níu sÍTimun valiim í Dagsliðið Þegar fjórtán umferðum er lokið í Nissandeild karla í handknattleik, hefur Lettinn Alexander Peter- sons, örvhenta skyttan í frábæru liði Gróttu/KR, níu sinnum verið valinn í Dagsliðið og hefur nú tveggja stiga forskot á Litháann Savukynas Gintaras, leikstjórn- anda Aftureldingar, á toppi Dags- listans. Næstur á Dagslistanum, í þriðja sæti, er Einar Örn Jónsson, horna- maðurinn knái úr Haukum og hef- ur hann verið valinn fimm sinnum í liðið, einu sinni oftar en þeir Andreas Stelmokas, KA, Guðjón Valur Sigurðsson, KA og Róbert Gunnarsson, Fram. Þar sem aðeins fjórum umferð- um er ólokið í Nissandeildinni, eru þeir Petersons og Gintaras, einu leikmennirnir sem eiga raun- hæfa möguleika á að vinna Dags- bikarinn, sem gefinn er af fyrir- tækinu Markómerki í Hafnarfirði, þar sem Einar Örn getur aðeins jafnað muninn við Petersons. Verður Petersons að teljast líkleg- ur sigurvegari með sama áfram- haldi, en hann átti frábæran leik, bæði í vörn og sókn í stórsigrinum gegn FH um helgina og skoraði þar sjö mörk í öllum regnbogans litum. Alls fimmtíu og tveir leikmenn hafa til þessa verið valdir í Dagsliðið og eru flestir frá Hauk- um, eða alls sjö, en oftast hafa leikmenn Aftureklingar verið vald- ir í liðið, eða alls fímmtán sinnum, einu sinni oftar en leikmenn Hauka, sem eru í öðru sætinu. Staðan á Dagslistanran: o----------------------- Alexander Petersons, Gr./KR O----------------------- Savukynas Gintaras, UMFA o—---------------------- Einar Örn Jónsson, Haukum O----------------------- Andreas Stelmokas, KA Guðjón Valur Sigurðss., KA Róbert Gunnarsson, Fram O----------------------- Bjarki Sigurðsson, UMFA Gunnar Berg Viktorss., Fram Roland Eradze, Val Þorv. Tjörvi ÓJafsson, Hauk. 0----------------------- Bergsveinn Bergsveinss., FH Birkir Ivar Guðmundss., Stj. Eduard Moskalenko, Stjörn. Gintas Galkauskas , UMFA Halldór Ingólfsson, Haukum Heimir Örn Arnason, KA Hilmar Þórlindsson, Gr./KR Hörður Flóki Ólafsson, KA Maxim Fedioukine, Fram Páll Þórólfsson, UMFA Valdimar Grímsson, Val O----------------------- Alexander Arnarson, HK Aliaksandr Shamcuts, Hauk. Arnar Pétursson, Stjörnunni Bjarki Sigurðsson, Val Bjarni Fritzson, IR Bjarni Frostason, Haukum Bjami Gunnarsson, Stjörn. O—-------------------- Davíð Ólafsson, Gróttu/KR Einar Gunnarsson, Haukum Erlendur Stefánsson, IR Gísli Guðmundsson, IBV Guðmundur Pedersen, FH Hálfdán Þórðarson, FH Héðinn Gilsson, FH Hlynur Morthens, Gró./KR Hrafn Margeirsson, IR lngimundur Ingimundars., ÍR Jóhann G. Jóhannsson, KA Jón Andri Finnsson, IBV Konráð Olavson, Stjörnunni Magnús M. Þórðars., UMFA Njörður Arnason, Fram Ólafur Sigurjónsson, IR Óskar Armannsson, Haukum Sebastían Alexanderss. Fram Snorri Guðjónsson, Val Sverrir Björnsson, HK Valgarð Thoroddsen, Val Valur Arnarson, FH Viktor Guðmundsson, FH Zoltan Belányi. Breiðablik Staðan eftir félögum: Afturelding........... 15 Haukar................ 14 Grótta/KR ............ 13 KA.................... 13 Fram.................. 11 Valur.................. 8 FH..................... 7 Stjarnan .............. 7 ÍR .................... 5 ÍBV ................... 2 HK..................... 2 Breiðablik............. 1 Dagsliðið 14. iimferð Alexander Petersons Gróttu/KR Savukynas Gintaras UMFA ▼ Eduard Moskalenko Stiörnunni ^ Nissandeild karla Gunnar Berg Viktorsson Fram Jóhann G. Jóhannsson KA Konráð Olavson Stjörnunni

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.