Dagur - 14.02.2001, Blaðsíða 2
2 - MIÐVIKUDAGU R 14. FEBRÚAR 2001
. FRÉTTIR
milljóna val
Vatnsmvrina
Þann 17. mars verður kosið um flugvöllinn í Reykajvík.
um
Vilt þú að íliigvöllur
veröi í Vatnsmýrinni
eftir 2016 eöa að
flugvöllurmn fari eru
spumingamar sem
lagðar verða fyrir
borgarbúar í uin 30
milljóna kosningum
17. mars.
Borgarráð Rcykjavíkur hefur
ákveðið að gefa Reykvíkingum
kost á að kjósa um framtíð
Vatnsmýrarinnar þann 17. mars
nk. Að tillögu stýrihóps sem ann-
ast útfærsluna kjósa borgarbúar
um þessa tvo kosti: „Vilt þú að
flugvöllur verði í Vatnsmýrinni
eftir árið 2016?“ eða „Flugvöll-
urinn fari úr Vatnsmýrinni eftir
2016.“ Velji fólk fyrri kostinn
getur hann átt við um núverandi
eða breyttan flugvöll að öllu eða
einhverju leyti í Vatnsmýrinni.
En verði síðari kosturinn ofan á
hafa kjósendur ekkert um það að
segja hvert völlurinn verður
fluttur. Borgarráð ákvað í gær að
niðurstaða kosninganna verði
bindandi ef annað þessara skil-
yrða verður uppíýllt: A.m.k. 3/4
hlutar atkvæðisbærra manna
taka þátt í henni, eða a.m.k. 50%
þeirra greiða atkvæði á sama veg.
Áætlað er að kosningarnar kosti
borgina a.m.k. 30-32 milljónir
króna.
Rafræn kosning
Kosningin verður rafræn og
borgarbúar geta kosið á hverjum
hinna 5 kjörstaða sem þeim
finnst þægilegast: Ráðhúsinu
þar sem verða 10 kjördeildir,
Kringlunni með 6 kjördeildir og
Laugarnes-, Selja- og Engjaskóla
þar sem 3-4 kjördeildir verða í
hverjum skóla.
Til að upplýsa borgarbúa sem
best fyrir valið hafa borgaryfir-
völd opnað vefsíðu (flugvollur.is)
um flugvallarmálið, sem jafn-
framt er hugsaður sem vettvang-
ur til skoðanaskipta um Reykja-
víkurHugvölI. Auk þess sem þar
er að finna margvíslegar skýrslur
og gögn sem málið varða gefst
hagsmunaaðilum kostur á að
kynna viöhorf sín á vefnum og
einstaklingum að senda fyrir-
spurnir og fá þeim svarað. Auk
þess verður 4 síðna kynningar-
bæklingi dreift inn á öll heimili í
borginni. Og síðast en ekki síst
verður opinn fundur í Ráðhús-
inu sunnudaginn 18. febrúar kl.
14 sem sjónvarpað verður um
allt Iand. Áætlað er að sjálfar
kosningarnar muni kosta um 18
milljónir króna en upplýsinga-
starfsemin um 12-14 milljónir.
- HEI
Björk
timefnd
Björk Guð-
mundsdóttir var
ckki tilnefnd til
Óskarsverðlaun-
anna fyrir leik
sinn í hinni um-
deildu kvikmynd
Myrkradansarinn,
eins og ýmsir
höfðu spáð, en
hins vegar fyrir lag sem hún
samdi fyrir myndina. Það heitir
„I’ve seen it all“ og er tilnefnt
sem eitt af fimm bestu lögunum
í kvikmynd á síðasta ári. Texta-
höfundurinn, Sjón, er líka til-
nefndur.
Englar Alheimsins var heldur
ekki tilnefnd til Óskarsverð-
Iauna.
Nafii piltsins
sem lést
Maðurinn sem lést eftir umferð-
arslys á mótum Drottningar-
brautar og Þórunnarstrætis á Ak-
ureyri sl. sunnudag hét Magnús
Brynjar Guðjónsson. Hann var
tvítugur að aldri, til heimilis að
Móasíðu 6a á Akureyri og lætur
eftir sig unnustu. Slysið varð um
miðjan dag á sunnudag og lést
maðurinn á sjúkrahúsi í Reykja-
vík aðfaranótt mánudags af völd-
um áverka sem hann hlaut. - SBS.
Björk Guð-
mundsdóttir.
Átta prósent mun-
ur er oí mikið
Hart er nú deilt um hvort taka beri innlendum eða erlendum tiiboðum í
skipasmíðaiðnaði.
Forstjóri Ríkiskaupa
harðorður í garð Fé-
lags jámiðnaðar-
manna en segir að fé-
laginu verði svarað
málefnalega.
Forstjóri Ríkiskaupa, júlíus Sæ-
berg Olafsson, segist vera
hneykslaður á orðum Hjálmars
W. Arnasonar, alþingismanns og
formanns iðnaðarnefndar Al-
þingis í Dcgi í gær þar sem hann
segir m.a. að útboðið á hreyting-
um á varðskipunum Ægi og Tý sé
algjört klúður og óskiljanlegt af
hverju ekki var farið að dæmi
margra annarra Evrópuþjóða og
láta útboðsgögnin vera á móður-
málinu, þ.e. fslensku. Júlíus seg-
ir augljóst að leiða verði formann
iðnaðarnefndar Alþingis í allan
sannleika um eftir hvaða reglum
sé unnið á Ríkiskaupum.
„Við erum að vinna í því að
svara fyrirspurn frá Félagi járn-
iðnaðarmanna vegna ákvörðunar
Ríkiskaupa að ganga til samn-
inga við pólska skipasmíðastöð
um viðgerðir á varðskipunum, og
sú tilkynning kemur til fjölmiðla
jafnsnemma og til Félags járn-
iðnaðarmanna. Það er ekki langt
í það. Við munum svara því mál-
efnalega. Járniðnaðarmennirnir
sendu sína fyrirspurn þar sem
spurt var m.a. hvort Ríkiskaup
væru að taka hagstæðasta tilboð-
inu um leið til Ijölmiðla og til
okkar, og það er alveg nýtt að
upplifa það að opinber bréf séu
svo mjög opinber eins og þarna
varð raunin á.“
- En voru möguleikar á því að
taka innlendum tilboðum fremur
en því pólska fyrst munurinn var
ekki meiri en raun ber vitni?
„Munurinn var rúmar 7 millj-
ónir króna og það er heilmikill
munur ef litið er á heildartöluna,
eða 8% munur. Út frá þeim fræð-
um sem okkur ber að vinna eftir
er 1% munur kannski eitthvað
sem menn geta horft fram hjá,
alls ekki rneira," segir júlíus Sæ-
berg Ólafsson, forstjóri Ríkis-
kaupa. - GG
Þjóðarskönmi verði útrýmt
„Jafnréttisráð fagnar því frum-
kvæði sem felst í launakönnun
Verzlunarmannafélags Reykja-
víkur og úrvinnslu gagna til að
meta kynhundinn launamun.
Ráðið beinír því til annarra stétt-
arfélaga að athuga möguleika á
að framkvæma svipaðar athugan-
ir innan sinna véhanda. Jafn-
framt vekur Jafnréttisráð athygli
á þvf að allt frá útgáfu rannsókn-
ar Jafnréttisráðs „Launamyndun
og kynbundinn Iaunamunur"
árið 1995 hafa athuganir sýnt
mjög svipaðan launamun kynja,“
segir í ályktun frá ráðinu.
Ennfremur segír að Iaunamun-
ur sem ekki verði skýrður með
öðru en mismunandi kynferði fái
ekki staðist lög. „I þessu ljósi er
full ástæða til að skoða enn og
aftur hvað unnt er að gera til að
útrýma þeirri skömm sem felst í
því að konum eru greidd lægri
laun en körlum fyrir sambærileg
störf." Ráðið skorar á aðila
vinnumarkaðarins og stjórnvöld
að leita allra ráða til að finna
lausn á þessum vanda. - BÞ
Dómui' kiósenda ekki lýðskrum
„Rosalega eru borgarbúar vit-
lausir, samkvæmt þessari
ályktun minnihlutans," segir
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri, aðspurð um þá
gagnrýni minnihluta D-listans
í borgarstjórn að Reykjavíkur-
listinn sé „að slá ryki í augu
borgarbúa” með fyrirhugaðri
atkvæðagreiðslu um framtíð
Reykj avíku rfl u gval I a r.
D-listinn kallar atkvæða-
greiðsluna lýðskrum og segir
borgarstjóri það eldd koma á
óvart að minnihlutinn skuli
taka þennan pól í hæðina.
„Þessi mál hafa verið til um-
ræðu frá því haustið 1999,
þegar ákvörðun var tekin um
að fara út í atkvæðagreiðsluna.
Eg get ekki litið á það sem lýð-
skrum þegar mál eru lögð í
dóm kjósenda, ekki síst í ljósi þess mikla áhuga sem er á málinu og
á því að taka þátt í þessari ákvörðun.”
Borgarstjóri hafnar þeirri gagnrýni sem réttmætri að atkvæða-
greiðslan verði dýr, en hún á að kosta um 30 milljónir kióna.
„Ég verð ekki vör við að minnihlutinn sjái eftir þeim peningum
sem fóru í kosninguna um sameiningu Reykjavíkur og Kjalarness.
Var þó þátttaka af hálfu horgarbúa lítil. Áhuginn á flugvalíarmálinu
er hins vegar mikill og búist við mikilli þátttöku. Almennt má segja
um málið að llugvöllurinn hefur verið deiluefni allt frá upphafi. Það
hefur háð uppbyggingu og þróun flugvallarins að það hefur aldrei
verið ákveðið með afgerandi hætti hvort hann eigi að fara eða vera,“
segir horgarstjóri. - FÞG
Dregið saman hjá Frjálsa
Ákveðið hefur verið að hætta starfsemi markaðssviðskiptasviðs
Frjálsa fjárfestingarbankans í framhaldi af kaupum Kaupþingis hf. á
meirihluta hlutafjár í bankanum. Frá og með deginum í dag, 14.
febrúar, mun Frjálsi fjárfestingarbankinn hætta miðlun markaðs-
verðbréfa.svo og eigin viðskiptum með skráð verðbréf. Þá hafa þrfr
starfsmenn markaðsviðskiptasviðs Frjálsa nú hætt störfum fyrir
bankann og eru komnir í störf á svi|)uðu sviði hjá Kaupþingi hf.
- SBS.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri.