Dagur - 14.02.2001, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGU R 14. FEBRÚAR 2001 - 11
ERLENDAR FRETTIR
Clinton er besti banda-
maður Bush forseta
Háttemi fráfarandi
forseta og samstarfs-
inaiiiia hans auðvelda
Bush mjög að festa
sig í sessi sem lands-
föður.
Bill Clinton hefur revnst Bush
forseta haukur í horni á fyrstu
vikum v'aldaferils hans.
Eftir mikinn vandræða-
gang og vafasöm úrslit
forsetakosninganna var
almennt litið svo á, að
Bush væri illa að sigrinum
kominn og vafasamt að
hann ætti nokkurn rétt á
að setjast að í Hvita hús-
inu. Vafalítið dró það
mjög úr sjálfstrausti for-
setans og gerði honum
erfitt fyrir að fóta sig í
valdamesta embætti sem
veröldin hefur upp á að
bjóða. En fráfarandi for-
seti kom honum til hjálp-
ar.
Síðan hann lét af emb-
ætti hefur Clinton gert
hvert glappaskotið af öðru
með góðri aðstoð eigin-
konu og samstarfsmanna. Oilug
dagblöð, eins og NewYorkTimes
og Washington Post, sem ávallt
hafa stutt við bakið á Clinton,
hafa nú snúist gegn honum og
saka hann um að skaða flokk
sinn og orðstfr með vafasömu
framferði.
A meðan á embættistöku Bush
stóð fyrir framan þinghúsið létu
aðstoðarmenn Clintons eins og
götustrákar og unnu skemmdar-
verk á tölvukerfi Hvíta hússins,
sprautuðu lími í læsingar að
skjalahirslum og skemmtu sér
við fleira í þeirn dúr. Eftir emb-
ættistöku Bush flutti fráfarandi
forseti hápólitíska ræðu á
Andrewsflugvelli og sagðist
koma aftur og skipaði áhöfn for-
setaflugvélarinnar, seni hann
hafði ekki ráð yfir lengur, að fljú-
ga til NewYork. Fylgdarlið Clint-
ons lét greipar sópa um alla þá
muni sem ekki voru naglfastir í
flugvélinni. Það var ekki eftir
teppi né koddi, borðbúnaður og
ekki einu sinni hreinlætisvörur í
flugvélinni eftir að liðið yfirgaf
liana í New York. Það sem ekki
var naglfast var horfið.
Á síðustu stundum forsetafer-
ilsins gaf Clinton hátt á annað
hundrað sakamönnum upp sakir
og hreinsaði mannorð þeirra.
Komu þá upp hagsmunatengsl
sem vart þola dagsbirtuna.
Síðan kom í ljós að Clinton-
hjónin höfðu á brott með sér
rándýrar gjafir sem Hvíta hús-
inu bárust á valdaskeiðinu. Þar
var húsbúnaður af öllu tagi. Þeg-
Clintonhjónin yfirgefa Hvíta húsið. „Afsakið“ segir
rummungurinn þegar hann yfirgefur sviðið með feng
sinn. „Orðstír Clintonfólksins er pottþéttur" segir
önnur smáfígúran neðst tl vinstri. Hin svarar „Svo að
þau komi örugglega aidrei tii baka“.
ar að var f’undið skiluðu þau ein-
hverju aftur, annað var greitt fyr-
ir og einhverjar mublur og teppi
hirtu þau rétt sisvona.
Sem geta má nærri hafa póli-
tískir andstæðingar gert sér mik-
inn mat úr öllu þessu. Þótt sögu-
sagnirnar af framkomunni séu ef
til vill ýktar eru þær ekki bornar
til baka og enginn biðst afsök-
unnar.
Hið síðasta er, að Clinton
leigði 770 fermetra skrifstofu-
húsnæði á 56. hæð í Canergie
Hall Tower, sem er á dýrasta
hluta Manhattan. Ríkið átti að
borga leiguna. Þegar að var
fundið, að ársleigan var 800 þús-
und dollarar, eða um 68 millj.
ísl. kr, bauðst Clinton til að
greiða helminginn úr eigin sjóð-
um. En í gær snérist honum
hugur og er nú að skoða hús-
næði í blökkumannahverfinu
Harlcm, sem kostar ekki nema
brot af því sem flottheitin við
Central Park eru verðlögð á.
Stanley Greenberg heitir mað-
ur sem sá um skoðanakannanir
fyrir Clinton á sínurn tíma og
vann fltyrir Gore meðan á kosn-
ingabaráttunni stóð á síðasta ári.
Hann dregur ekki dul á það, að
Gore gerði mistök þegar mikið lá
við, svo sem í sjónvarpseinvígun-
um við Bush. En hann naut eigi
að síður mikillar tiltrúar kjós-
enda, eins og kom á daginn þeg-
ar talið var upp úr kjörkössun-
um. Greenberg fygldi Bush í
kosningaleiðöngrum um öll
Bandaríkin. Hann segir nú, að í
öllum fylkjum hafi hann
hitt fólk sem sagðist gjarn-
an vilja kjósa Gore, en
gæti það ekki vegna fram-
komu Clintons i embætti.
Á sínum tíma héldu
nokkir fréttaskýrendur því
fram að Clinton væri Gore
fjötur um fót, en lítið var á
þá hlustað. Fréttir berast
af því, að eftir kosningarn-
ar hafi þeir félagar rifist
heiftarlega og kennt hvor
öðrum um hrakfarirnar.
En víst er að eftir Moniku-
hneykslið og vafasama
svardaga forsetans, kóln-
aði mjög á milli samherj-
anna. Þá laug Clinton að
varaforseta sínum eins og
öllum öðrum.
Fréttaritari breska
blaðsins Guardian í Washington
heldur því fram, að í Evrópu
njóti Clinton trausts og aðdáun-
ar, en litið sé á Bush sem van-
hæfan kjána. I Bandaríkjunum
er þcssu öðruvísi farið, eins og
sjá má á úrslitum kosninganna,
þar sem sáralítill munur var á
lý'lgi frambjóðendanna.
Háttsemi Clintons við lok for-
setaferilsins og eftir að bann lét
af embætti hcfur vakið upp
andúð, sem kemur Bush mjög til
góða. Ohjákvæmilega er hann
borinn saman við forvera sinn,
sem á farsælan stjórnmálaferil
að baki og er síbrosandi glæsi-
menni. Bush er nú sá ráðsetti
landsfaðir sem hvorki skrökvar
né stelur húsgögnum. Hann er
maðurinn sem hægt er að
treysta, en Clinton er útmálaður
sem ótíndur götustrákur.
Eftir átta ára leiðsögn Clint-
ons hafa repúblikanar meiri-
hluta í báðum þingdeildum og
ráða Hvíta húsinu þar að auki í
fvrsta sinn í hálfa öld. Það er
ekld nerna von að demókratar
séu hugsi. - OÓ
Skylmingaþrælliim sigurstranglegur
BEVERLY HILLsf - Kvik-
myndin um rómverska skylm-
ingaþrælinn - „Gladiator" -
kemur langsterkust út úr til-
nefningum til Óskarsverðlauna
í ár, en myndin fær allt í allt 12
útnefningar. Meðal þeirra
flokka sem tilnefningar koma í
eru að Russell Crowe sé besti
leikarinn og að Ridley Scott sé
besti leikstjórinn. Aðrar mynd-
ir sem tilnefndar eru í flokkn-
um „besta rnyndin" eru mynd
kfnverska leikstjórans Ang Lee
„Crouching Tiger, Hidden
Dragon,“ en sú mynd fær allt í
allt 10 tilnefningar í hinum
ýmsu flokkum. I þessum
flokki, þ.e. besta myndin eru einnig tilnefndar myndirnar
„Chocolat,“ „Erin Brockovich", og „Traffic".
Tilnefningar sem besti leikarinn fengu auk Crowe, þeir Tom Hanks
fyrir „Cast Away“, Javier Bardcm fyrir „Before Night Falls“, Ed Harr-
is fyrir „Pollock" og Geoffrey Rush fyrir „Quills".
Tilnefningar sem besta leikkonan blutu m.a. Julia Roberts fyrir
„Erin Bronkovich“, Laura Linney fyrir „You Can Count on me“,
Ellen Burstyn fyrir „Requien for a Dream", Juliett Binoche fyrir
„Chocolat“, ogjoan Allen fyrir „The Contender". Óskarsverðlaunin
verða veitt þann 25 mars. Englar alheimsins, íslenska myndin sem
send var í forvalið var ekki tilnefnd sem ein af bestu erlendu mynd-
Russell Crowe í hlutverki sínu sem
skyimingaþræii.
Hyimdai skilar methagnaði
Samkvæmt ársreikningum Hyundai Motor Company, sem birtir voru
í vikunni, nam velta kóreska bifreiðaframleiðandans 14,5 milljörðum
dollara á síðasta ári, eða um 1.160 milljörðum íslenskra króna og
hefur velta fý'rirtækisins því aukist um 28% á milli ára. Þar af voru
bifreiðar fluttar út á erlenda markaði fyrir um 6,2 milljarða dollara,
sem er um 26% aukning frá árinu áður. Sala á innlandsmarkaði, sem
nam 8,3 milljörðum dollara, jókst á sama tíma um 29%. Samtals
jókst heildarsala Hyndai MC um 23% frá árinu 1999, eða úr rúmlega
1.230 þúsund í 1.513 þúsund bifreiðar. Hagnaður fý rir skatta jókst
um 58% eða úr 393 milljónum í 619 milljónir dollara. Að sögn
Chung Mong-Koo, stjórnarformanns HMC, leiðir uppgjör ársins
2000 í ljós enn eitt metárið hjá Hyndai, sem sýnt hefur stöðuga
veltu-aukningu á síðastliðnum árum. Hann segir að árangri síðasta
árs verði, þrátt fyrir ýmis samdráttareinkenni á hclstu mörkuðum,
fvlgt eftir með metnaðarfullum áætlunum fyrir yfirstandandi ár, enda
hafi fyrirtækið margsinnis sýnt fram á að sem bifreiðaframleiðandi
búi það yfir nauðsynlegum sveigjanleika til að laga sig að breyttum
markaðsaðstæðum hverju sinni.
126 tilnefiimgar til friðarverðlauna
Nobels
OSLO - Samkvæmt bráðabirgðatölum norsku Nobelsnefndarinnar
hafa 126 tilnefningar um friðarverðlaun borist nefndinni, en frestur
til að skila inn tilnefningum rann út á dögunum. Meðal þeirra sem
tilnefndir eru eru Rauði krossinn, sem raunar vann fyrstu friðarverð-
launin fyrir 100 árum, hin bannaða Falun Gong hreyfing í Kína,
Mannréttindadómstóll Evrópu og aðalritari Sameinuðu þjóðanna
Kofi Annan. Að sögn talsmanns Nobelsnefndarinnar eru tilnefning-
arnar nú orðnar 126 og þar af eru 28 þeirra stofnanir.
■ FRÁ DEGI TIL DflGS
MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR
45. dagur ársins, 320 dagar eftir.
Sólris kl. 9.26, sólarlag kl. 17.59.
Þau fæddust 14. feb.
• 1404 Leon Battista Alberti, ítalskur
arkitekt og Endurreisnarmaður.
•1819 Christopher Latham Sholes,
bandarfskur u ppfi n n i ngam a ð u r.
• 1867 Þórarinn B. Þorláksson listmálari.
• 1869 Nadezhda Konstantinovna Ivrup-
skaya, rússnesk byltingarkona, eigin-
kona Leníns.
• 1913 James Riddle Hoffa, bandarískur
verkalýösleiðtogi.
• 1925 Guðni Guðmundsson fyrrverandi
rektor.
• 1927 Tómas Helgason prófessor.
Þetta gerðist 14. feb.
• 1404 Leon Battista Alberti, ítalskur
arkitekt og endurreisnarmaður.
•1819 Christopher Latham Sholes,
bandarískur uppfinningamaður.
• 1867 Þórarinn B. Þorláksson listmálari.
• 1869 Nade/hda Konstantinovna Krup-
skaya, rússnesk byltingarkona, eigin-
kona Leníns.
•1913 James Riddle Hoffa, bandarískur
verkalýðsleiðtogi.
• 1925 Guðni Guðmundsson fyrrverandi
rektor.
• 1927 Tómas Helgason prófessor.
Vísa dagsins
Sól og máni sýnir öld,
sama vitnar manna geð,
allir dagar öðlast kvöld,
inn til þessa so hefur skeð.
Jón Sigurðsson Dalaskákl (um 1685-1720)
Afmælisbam dagsius
Enski kvikmyndaleikstjórinn Alan Park-
er hefur gert tjöldann allan af bíómynd-
um sem eru afar ólíkar innbyrðis, allt
frá Bugsy Malone sem hann gerði árið
1976 til Ösku Angelu fyrir rúmu ári. Af
öðrum myndum má nefna Midnight
Express, Fame, The Wall, Birdy, Angel
Heart, Mississippi Burning, Commit-
ments og Evita, og finnst ýmsum erfitt
aö koma auga á eittnvað sameiginlegt
með öllum þessum mvndum. Alan
Parker er fæddur í London þann 14.
febrúar árið 1944.
Daúðinn er ekki svo skemmtilegur að
maður eigi að sitja heima og bíða eftir
bonum.
Fríður Guðmundsdóttir
Heilabrot
Hvað er allt í kringum mann en sést þó
ekki; hefur engan munn en lætur þó stund-
um í sér heyra svo um munar; engin leið er
að grípa í það, en þó getur maður fundið
greinilega fyrir snertingu þess?
Síðasta gáta: Hvers vegna er eftirfarandi
þrentur orðum raðað með þessum hætti:
súkkulaðiverksmiðja, pappakassar, íþróttaf-
réttamenn?
Lausn: Orðunum cr raðað eftir fjölda
tvöfaldra samhljóða, þ.e. súKKulaðiverk-
smiðja, paPPakaSSar, íþróTTafréTTa-
meNN.
Vefiir dagsins
Á heimasíðu Manneldisráðs er meðal ann-
ars hægt að meta hollustu eigin mataræðis:
wvvw. ma n ne Idi. i s