Dagur - Tíminn Akureyri - 05.04.1997, Blaðsíða 8

Dagur - Tíminn Akureyri - 05.04.1997, Blaðsíða 8
20 - Laugardagur 5. apríl 1997 Jlagur-XEúttimT Auglýsing á Internetinu var kveikjan að því að jjórir íslendingar tóku sig til og gerðust sjálf- boðaliðar í Króatíu. Þar dvöldu þeir í nokkra mánuði við uppbyggingarstarf og tóku m.a. þátt í að endurreisa sjúkrahús á stað sem heitir Oklaj. Þrátt fyrir að hafa fylgst með stríðsfrétt- um frá fyrrum Júgóslavíu var ýmislegt sem kom á óvart og eyðileggingin sláandi. íslendingarnir fjórir sem fóru til Króatíu: Þorsteinn (t.v), Guð- mundur, Hjörtur og Ari Freyr. wMk i Jm ■HHk. \ Jm d | 'ÆdJ egar ég las um ástandið þarna á netinu fannst mór Íietta eitthvað svo sorg- g fann til með þessu fólki og langaði að gera eitthvað. Ég var líka spenntur að fara út og sjá með eigin augum hvernig þetta var,“ segir en tímabundið atvinnuleysi var ein ástæðan fyrir að hann lét verða úr að fara til Króatíu. Það var í febrúar, fyrir rúmu ári síðan, sem formleg beiðni um aðstoð í Króatíu barst til ís- lands frá alþjóðlegum hjálpar- samtökum. börn á barnaheimili og áfram mætti telja. íslendingarnir fjórir lögðu síðan af stað til Króatíu seint á síðasta ári og kom sá síðasti þeirra, sem var Þor- steinn, heim nú fyrir skömmu eftir þriggja mánaða dvöl. Sjálfboðaliðar frá 16 löndum Áfangastaður sjálfboðaliðanna var Drnis í Króatíu. Þar voru samankomnir um 40 sjálfboða- liðar frá 16 löndum en verkefni þeirra var að aðstoða við fram- kvæmdir í Drnis og nálægum byggðum. Efst á verkefna- skránni var að endurreisa sjúkrahúsin í Drnis og Oklaj og unnu íslendingarnir við að end- urbyggja síðarnefnda sjúkra- Þorsteinn Sch. Thorsteinsson, einn fjórmenn- inganna frá ís- landi. Hinir þrír voru þeir Hjört- ur Smárason og Ari Freyr Svein- björnsson, báðir nemar, og Guð- mundur Eyjólfs- son, bifvélavirki. Þorsteinn hef- ur m.a. starfað sem stýrimaður Þegar ég reyndi að tala við þetta fólk brast það oft í grát eða fór í burtu því það vildi helst ekki tala um stríðið. Auk sjálf- boðavinnu Þorsteins og félaga styrktu íjölmörg ís- lensk fyrirtæki verkefnið. Málning hf. gaf t.d. 500 lítra af máln- ingu, Friður 2000 og Rúmfatalagerinn söfn- uðu saman nytjahlutum fyrir „Það sem sjokkeraði mig mest var að sjá öll þessi ónýtu hús,“ segir Þorsteinn m.a. í viðtalinu. húsið. „Þetta stóra sjúkrahús í Oklaj var mjög illa farið og við byrjuðum á því að hreinsa rusl og skrapa málningu af veggj- um. Síðan fórum við í það að fylla upp í götin á veggjunum og taka til í garðinum. Garður- inn hafði ekki verið hreinsaður í ein fjögur ár og þar fundum við allskyns drasl. Þar á meðal serbneskan hermannafrakka og nokkur notuð og ónotuð skot. Við þurftum síðan að pússa með sandpappír, mála gluggana og síðan var sett í þá alla nýtt gfer. Ilurðirnar voru allar tekn- ar í gegn, bæði málaðar og pússaðar með sandpappír,“ segir Þorsteinn, þegar hann er spurður um í hverju vinnan hafi verið fólgin. Öll húsin ónýt Þorsteinn flaug til London, fór með ferju yfir til Frakklands en þaðan keyrði hann ásamt fleiri sjálfboðaliðum í lítilli rútubif- reið aila leið til Drnis í Króat- íu. Ilann segist lítið hafa séð af ónýtum húsum í Zagreb og borginni Karlovac en á síðasta hluta leiðarinnar, frá Karlovac og til Drnis hafi eyðileggingin blasað við. „Það sem sjokkeraði mig mest var að sjá öll þessi ónýtu hús,“ segir Þorsteinn. „Ilúsin voru flest með ónýt þök, ef hægt var að kalla það þök, hurðirnar farnar og gluggakarmarnir brotnir ásamt öllum gluggun- um. Síðast en ekki síst voru veggir í húsum margir hverjir jafn illa farnir að innan sem að utan. Á þessari 258 km leið frá Karlovac til Drnis voru 70-80% húsanna eyðilögð. Þorp og bæir höfðu orðið fyrir barðinu á stríðinu eða bæirnir sprengdir í hefndarskyni en Serbar her- námu þessi landssvæði þann 17. september 1991.“ Að sögn Þorsteins voru Kró- atar algerlega óviðbúnir Serb- um og því hafi ekki tekið nema einn dag fyrir Serba að ná und- ir sig þessu stóra landsvæði. „í um það bil fjögur ár réðu Serb- ar yfir þessum svæðum en fyrir ári síðan voru þeir knúnir til að afhenda Króötum þau aftur. Rétt áður en til þess kom tóku Serbar allt sem þeir gátu með sér yíir og síðan sprengdu þeir húsin eða kveiktu í þeim. Mikið af alls konar llutningabif- reiðum komu yfir landamærin til að hirða úr verslunum og heimilum Kró- ata.“ Of sárt að tala um Þorsteinn segist ekki hafa kom- ist hjá því að finna til með því fólki sein þarna bjó. Ekki nóg með að húsin væru ónýt, marg- ir hefðu enga vinnu, hefðu misst ættingja og vini og vissu ekkert livað væri framundan. „Þegar ég reyndi að tala við þetta fólk brast það oft í grát eða fór í burtu því það vildi helst ekki tala um stríðið. Það Það var líka alltaf ver- ið að vara okkur við að ganga bara á veg- inum, ekki fara út af honum því þá var hœtta á að við lentum á jarðsprengju.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.