Dagur - Tíminn Akureyri - 05.04.1997, Síða 19

Dagur - Tíminn Akureyri - 05.04.1997, Síða 19
íOagur-ÍEímmn Laugardagur 5. apríl 1997 - 31 Umsjonarmaður Magnús Geir Guðmundsson „Piparsplata“ í bígerð Black, Grahl - Bowie, Reeves Gítarleikarinn Reeves Ga- briels hefur verið innan- búðarmaður hjá goðinu David Bowie í hátt í áratug, eða frá dögum Tin Machine rokk- sveitinni sem sendi frá sér tvær hljóðversplötur og eina tón- leikaplötu, hefur að undanförnu samhliða því að vinna með Bowie, verið að vinna sína fyrstu einherjaplötu. Með hon- um í því verki hefur fyrrum Pixiessöngvarinn og gítarleikar- inn Black Francis/frank Black, en einnig hafa þar líka komið við sögu Dave Grohl fyrrum Nirvanatrommari og nú söngv- ari og gítarleikari í Foo Fight- ers og Bowie karlinn sjálfur. Meðal annars semja þeir þrír lag saman fyrir Reeves, sem svo Grohl og Bowie syngja saman. Platan mun vera væntanleg í sumar og mun Gabriels, sem auk verunnar með Bowie var um skeið í þungavigtarsveitinni Anthrax, reyna að fylgja henni eftir þegar um hægist á tón- leikahaldi með Bowie. Af Davo Grohl og félögum hans er það annars að segja, að nýja platan, sú önnur í röðinni kemur út 12. mai og ber heitið, The colour & the shape. Eins og svo fram hefur komið, hætti trommarinn Williami Goldsmith skyndilega í Foo Fighters og hefur leit staðið að eftirmanni að undanförnu. Trommari Sweet 75, Adam Wa- de, sveitarinnar sem fyrrum fé- lagi Grohls í Nirvana, Krist No- voselic stofnsetti, virtist fyrst ætla að verða fyrir valinu, en nú virðist trommari Faith no more, Mike Bordin, hafa hreppt hnossið. Það hefur löngum staðið styrr um fönkrokksveitina Red hot chili peppers frá Los Angeles. Mannabreytingar, þá nær eingöngu hvað varðar gítarleikara hafa verið tíðar í gegnum árin og oftar en ekki hefur Anthony Kiedis söngvara og hans kumpánum á hverjum tíma í sveitinni, verið spáð ris- litlum endalokum. En þrátt fyr- ir það hafa þeir alltaf skrön- glast áfram og það gera þeir enn. Og ef til vill ekki að undra, þar sem í það minnsta þrjár sfðustu plöturnar, Morthers milk, Blood, sugar, sex, majik og One hot minute, sem kom út 1995, hafa allar gengið mjög vel og selst hver annarri betur. Sögusagnir um að sveitin væri senn öll hafa nú síðast gengið vegna þess að hún hefur nánast ekkert komið fram í meira en ár. Hefur það m.a. verið vegna þess að Kiedis hefur verið síð- ustu fjóra mánuði í fjöllum Al- aska að leita sér andlegrar upplífgunnar. Hefur þetta óneit- anlega sett strik í reikninginn að sögn gítarleikarans Dave Navarro, en nú er söngvarinn víst snúinn aftur og fregnir af andláti hljómsveitarinnar því ótímabærar. Það sem svo meira er, ný plata er að fara í vinnslu hjá þeim félögunum nú í apríl. Þeir ætla hins vegar að taka sér gíðan tíma við gerð hennar, þannig að útgáfa verður víst varla fyrr en í fyrsta lagi í lok ársins. En ótti aðdáenda um að Red hot chili peppers sé að líða undir lok, er sem sagt ástæðu- laus í bili að minnsta kosti. Red hot chili peppers eru ekki að hætta, heldur byrjaðir á nýrri plötu. Dave Grohl ásamt David Bowie á afmæiistónleikum þess síðarnefnda í Madison Square Garden í New York fyrr á árinu. Áfram með gæðastimpli bæði þær eldri og yngri, átt það sameiginlegt auk stílbragðsins að bera með sér ótvíræð gæði í verkum sínum, góðar og gríp- andi lagasmíðar, sem náð hafa í mörgum tilfellum að endurnýj- ast og þróast frá plötu til plötu. Collective Soul, sem upprunnin er frá Georgiufylki, hefur tekist sérdeilis vel upp með fyrstu tveimur plötunum sínum, Hint, allegations and things left uns- aid frá 1993 og Collective Soul frá 1995 og hafa þær selst í um sex milljónum eintaka. Þriðja plata Collective Soul, með bræðurna Ed og Dean Roland í fararbroddi, nú sem áður, nefn- ist Disciplined breakdown og kom út nú fyrir skömmu. Sem fyrr eru melódískar laglínur í öndvegi og það vel svo saman- settar. Poppaðari áferð er þó öllu meiri nú en áður, en það kemur ekki svo nokkru nemi niður á lagasmíðunum. Maybe, In beetween, Listen, Forgiven og Crowded heads, eru allt dá- góðar smíðar sem allar geta náð vinsældum. Frumleiki er reyndar ekki ýkja mikill við Collective Soul kenndur frekar en aðrar sveitar af sama tagi, en gæðastimpillinn er nú sem fyrr á sköpun sveitarinnar. Vin- sældirnar hafa hingað til að mestu verið bundnar við heimalandið, en nú er ekki að vita nema að breyting í átt til batnaðar verði á því. Collective Soul tekst að halda sínu striki með þriðju plötunni, Disciplined breakdown. Eitt af því bitastæðara sem amerískt rokk hefur fætt af sér á síðustu árum er bylgja af góðum rokksveitum sem blandað hafa þjóðlagahefð með ýmsum hætti saman við rokkið auk fleiri blæbrigða. Þetta eru hljómsveitir á borð við Counting Crows, Ilootie and the Blowíish, Live, Gin Bloss- oms, Seven Mary three og Collective Soul, svo nokkrar af þeim helstu og farsælustu séu nefndar. Hafa þær siglt í kjölfar og fylgt eftir þeirri slóð sem Rem, Green on red, Jason and the Scorsers og íleiri ruddu fyrst í enda sjöunda áratugar- ins og í upphafí þess áttunda. Hafa allar þessar hljómsveitir, • Dinosaur jr., sú frábæra rokksveit og áhrifamikla með hugsuðinn J Mascis sem bak- hjarl, sem m.a. átti stóran þátt í mótun rymrokksins, hefur nú sent frá sér nýja plötu. Nefnist hún Hand it ov- er og hefur verið að fá glimr- andi góða dóma hjá plötu- gagnrýnendum. • Polarverðlaunin eru verð- laun sem veitt eru reyndum tónlistarmönnum í viður- kenningarskyni fyrir framlag þeirra til rokk og poppheimsinsm, hafa nú verið til- nefnd í þriðja sinn. Quincy Jo- nes, tónlistar- og upptökumaður með meiru og sjálfur „Sörinn" Paul McCartney, voru þeir sem þau hlutu í fyrstu tvö skipt- in, en nú hlýtur þau „Bossinn" Bruce Springs- teen. Þarf ekki að eyða mörgum orðurn um þann heiðursmann, svo mörg eru afrek hans, en þess má geta að hann er nú að fara innan tíðar í tónleikaferð um Bandartkin. • Fyrir gamla þungarokksað- dáendur og fleiri sem kunna að hafa áhuga, má segja frá því að Glenn Tipton fyrrum annar gítarleikara hinnar fornfrægu bárujárnsgoða, Judas Priest, hefur nýverið sent frá sér sína fyrstu plötu undir eigin nafni og kallast hún. Baptism of fire. Eru honum til aðstoðar á plötunni m.a. tveir aðrir þekktir rokk- boltar, trommarinn Cozy Po- well og bassaleikarinn Billy Sheehan. • Fyrrum Boomtown Rats söngvarinn og alheimshetjan fyrir Live Aid ævintýrið, Bob Geldof, má nú aldeilis muna sinn fífil fegri. Lítið sem ekk- ert hefur gengið hjá honum í tónlistinni hin seinni ár og það sama er víst að segja um einkalífið. Nú á greyið Geldof víst að vera í vondum málum vegna meintrar líkamsárásar á fyrrum eiginkonu sína, feg- urðadrottninguna Paulu Yat- es og það fyrir framan börn þeirra þrjú. Átti þetta sér að sögn stað í íbúð Yates, sem nú býr með öðrum þekktum söngvara, Michael Ilutchens í hinni áströlsku INXS. Á Geld- of yfir höfði sér kæru, ef hún er þá ekki þegar orðin, frá hendi eiginkonunnar fyrrver- andi. Hið versta mál. Bruce Springsteen heiðraður fyrir framlag sitt til rokksins.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.