Dagur - Tíminn Akureyri - 24.05.1997, Síða 3

Dagur - Tíminn Akureyri - 24.05.1997, Síða 3
íkgu^mmm Laugardagur 24. maí 1997 - 15 MENNING OG LISTIR Jean Guillou spinnur á orgelið í Hallgrímskirkju í dag. Höfðingmn Jón Loftsson Oddafélagið heldur árlega Oddastefnu á sunnudag- inn að Laugalandi í Holt- um, Rangárþingi. Ráðstefnan er helguð minningu Jóns Loftssonar sem fœddist árið 1124 og dó 1197 og því er 800 ára ártíð hans á þessu ári. Erindi ílytja dr. Helgi Þorláksson, Auður G. Magnúsdóttir, Sverrir Tómasson, Ásdís Egilsdóttir og Ár- mann Jakobsson. Þá mun Benen- dikt Árnason, leikstjóri, lesa kafla úr Gullna hliðinu í hléi. Oddafélagið var stofnað fyrir sjö árum til að vekja áhuga á Odda á Rangárvöllum, sem gæti að sögn Þórs Jakobssonar, formanns félags- ins, orðið góður staður fyrir nátt- úrufræði og önnur fræði. „Þetta snýst um samspil manns og náttúru og að félaginu standa menn sem hafa áhuga á sögu og náttúru.“ Jón Loftsson sem var eitt sinn mestur höfðingja á íslandi var son- arsonur Sæmundar fróða, fóstri Snorra Sturlusonar og að mörgu leyti mjög merkur maður. Ráðstefnan hefst klukkan 13:00 og eru allir hvattir til þess að mæta og hlýða á erindi um Jón Loftsson og samtíma hans, 12. öldina á íslandi. -mar er... . Spinnur Hvað er kirkjulist? er yfirskrift ® Ofgel- málþings á Kirkjulistahátíð, sem íð haldið verður í stofu 101 í Odda í Jean Gu- dag kl. 14. Þingið er haldið í tengsl- illou kemur um við myndlistarsýningu hátíðar- sem gestur innar, þar sem sýndar eru hug- á Kirkju- myndir að myndverkum í nýjar listahátíð kirkjur. Fimm spekingar af ýmsum og leikur á sviðum sem ekki hafa haft bein tónleikum í tengsl við kirkjuna voru fengnir til Hallgríms- að velta þessari spurningu fyrir sér kirkju í dag og taka þátt í pallborðsumræðum; kl. 17. arkítektarnir Pétur H. Ármannsson Hann ieik- og Hjörleifur Stefánsson, heimspek- ur þar verk ingurinn Gunnar J. Árnason, guð- eftir Bach, fræðingurinn Anna S. Pálsdóttir og Vivaldi, myndlistarmaðurinn Hannes Lárus- Mendel- son. sohn og Gunnar Harðarson, heimspek- Liszt. í lok ingur, sem stýrir umræðunum segir tónleik- flestar listgreinar koma kirkjunni anna kveð- við. „Þetta er svona spurning um ur svo við stöðu listarinnar gagnvart kirkj- nýjan tón unni. Hvernig lítur kirkjan á list- þegar Gu- ina? Á kirkjan að vera gerandi í illou ætlar menningunni? Brýtur það í bága að spinna í við sjálfsmynd listamannsins að kringum starfa fyrir kirkjuna? Er listin trú- stef sem arbrögð? Gunnar Árnason ætlar áheyrendur t.d. að taka að einhverju leyti fyrir láta honum trúarbrögðin sem eins konar fagur- í té en fræði. Það að fara inn í kirkju og hann er Þessi skemmtilega hugmynd Magnúsar Tómassonar er hugsuð inn í Grafarvogskirkju. Þarna hefur hann hugsað sér hangandi skírnar- font úr hellusteini með fisklaga sári, en fiskurinn er tákn kristninn- ar. Járnveggurin aftan við fontinn sýnir svo lifandi trú, því inni í krossinum eru lifandi skrautfiskar. Magnús Scheving. Óttar Sveinsson. Helgarpotturinn Lítið hefur farið fyrir Magnúsi Scheving að undanförnu en hann hefur þó ekki setið auðum höndum - það er hreint ekki hans stíll. Magnús er um þessar mundir að láta búa til teiknimyndir um Latabæ og ætlar að selja myndirnar á Bretlandsmarkað og jafn- vel alla leið til Japans. Börn á Norðurlönd- um fá líka vonandi fljótlega að kynnast Latabæ því að markaðssetning er þar í full- um gangi. Boðskapurinn hæfir jú vissulega börnum í öllum löndum. Og það er alltaf nóg að frétta af Magnúsi. Hann er að fara að gefa út á ensku fyrstu „fitness biblíuna" en það er yfirlit yfir 200 bestu kennarana í líkamsrækt í heiminum. Magnús heldur sér að sjálfsögðu við í líkamsræktinni og er nýkominn frá Ítalíu en hann fer utan tvisvar í mánuði til að kenna. Ekki fylgir sögunni hvort hann er sjálfur í bókinni en það má þó búast við því... Gömlu blaðakempurnar Atli Steinarsson og Anna Bjarnadóttir hafa búið í Flórída, Bandaríkjunum undanfarin ár og gert það gott þar, meðal annars í gistirekstri. Þau eru nú flutt heim til íslands og hafa fjárfest í íbúðarhúsnæði á Flúðum. Þau vilja ekkert láta opinskátt hvað stendur til en eitthvað hlýtur það að vera spennandi... m Ihaust er von á fjórðu bókinni frá metsöluhöfundinum Óttari Sveinssyni og verður hún á svip- uðum nótum og hinar fyrri þó að áherslurnar verði eitthvað breyttar. Á næstunni verður sendur kafli til útgefenda í Evrópu og Bandaríkj- unum þar sem fjallað er um björg- un sex skipverja af Goðanum í Vöðlavík en það er sú flugbjörgun sem hefur mest verið heiðruð fyrir afrek í 50 ára sögu flughers Bandaríkjanna. Kaflinn birtist í bókinni Útkall - íslenska neyðarlín- an. Hallgrímur Helga son. Aþjóðhátíðardaginn þann 17. júní er væntanlegt á markað- inn nýtt menningartímarit, Fjölnir, í höfuðið á forvera sínum á 19. öld, sem Gunnar Smári Egilsson og fleiri kónar eru nú að skipuleggja á fullu. Tilvísunin í þá Fjölnismenn og Jónas verður ekki nafnið tómt því heyrst hefur að Hallgrímur Helgason og Megas sitji sveittir við að yrkja uþp að nýju sjálfstæðisljóðið ís- lands farsælda frón og má ætla að gullöldin glæsta missi nokkurt glit eftir viðkomu í lúk- unum á þeim... Fyrrverandi ritstjóri Heimsmyndar og Helgarpósts/Eintaks (eða hvaðaétnú) Karl Th. Birgisson er svona séntilmanns- legur slaufunáungi sem við fyrstu sýn hefur aldrei dýft hendi í kalt vatn. Karl hefur ekki sést mikið á malbikuðum götum borgarinn- ar að undanförnu og mun skýringin sú að þessi fínlegi maður skellti sér austur í slorið. Og hefur nú gaman af að sjá skilningssljóan svip borgarbúa þegar hann slær um sig með sögninni að seyla... Rökrætt um kirkjulist A Kirkjulistahátíð í dag spilar einn vin- sælasti orgelleikari Frakka, m. a. af fingr- um fram, og íslenskir spekingar rökrœða um það hvað kirkjulist framkvæma einhverjar athafnir fel- ur í sér ákveðna fagúrfræði. „ Þá verður m.a. rætt um hvort ekki sé eðlilegt að einhver listmennt- un sé fólgin í námi við guðfræði- deild Há- skólans. mjög þekktur fyrir leik sinn af fingrum fram og þykir hann mjög frumlegur orgelleikari. lóa

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.