Dagur - Tíminn Akureyri - 24.05.1997, Qupperneq 4

Dagur - Tíminn Akureyri - 24.05.1997, Qupperneq 4
16 - Laugardagur 24. maí 1997 iDítgitr-'QImtmn MENNING OG LISTIR „Ég hef ekki annan mœlikvarða á Ijóð en hvaða áhrifþað hefur á mig. Eða hvort það hefur einhver áhrif. Ljóð verða hvorki mæld í metrum né lítrum, “ segir Stefán Þorláks- son, formaður dóm- nefndar í Ijóðasam- keppni Dags-Menor. Alls bárust um 90 Ijóð í keppnina frá 50 höf- undum og viðurkennir Stefán að valið hafi verið töluvert erfitt. Á endanum urðu þó allir í dómnefnd sammála um að verðlauna þrjú Ijóð. Tvö þeirra eru eft- ir Erling Sigurðarson og eitt eftir Önnu Mar- íu Þórisdóttur. Dagur- Tíminn birtir verð- launaljóðin og nokkur í viðbót lesendum til ánœgju og yndisauka. Verðlaunaljóðin birtast undir nafni en hin undir dulnefni. /fíllUIW" a<S'rt/!lk Erlingur Sigurð- arson, kennari á Akureyri, átti Ijóðið ífyrsta sæti og einnig annað Ijóðið sem hafnaði í öðru sœti. „Ég hef átt við þetta síðustu árin, “ segir Erlingur. Hann var í Þýskalandi 1991-2 og fór þá að þýða þýsk Ijóð. Ljóðaþýð- ingarnar urðu síðan hvati til að hann fór að prófa sjálfur. Mynd: GS 1. verðlaun, Erlingur Sigurðarson, Við Brúará Við steinbogabrotin hann bíður, feiminn og hljóður, að biskupsmenn leiðina opni: Kominn af fjalli, kenndur til fá tœkrar móður, með kœrleik sinn einan að vopni. En staðarmenn sitja í kirkju að kvöldverðarborði. Við kaleik og hleifa sína reyta þeir hár sitt og rífa sín klœði í orði, og raust sér til dásemdar brýna: „Vér þökkum þér, Drotlinn, að hafa útvalið okkur til eflingar ríkinu og trúnni! En handan árinnar reikar sá fjölmenni flokkur sem fór ekki yfir á brúnni. Á postulahestana leggur hann leit að vaði en langsótt er gangan og dagur að kveldi liðinn, er loksins í staðarins hlaði hann litast um, svangur og magur. Svo snýr hann á brott með bók sína, snjáða og lasna því búið er kirkjunni að loka. -Höggva skal þann sem í héraðið ríður á asna og höfuð hans setja í poka. 2. verðlaun: Erlingur Sigurðsson. Sama staðar Lognskœr haustbirta: Hundgá, fjárjarmur, sóngur, hófadynur, fleygur á loft..! Og drengur sofnar að kvöldi fullorðinn: Fyrstu göngur. Framtíðin brosir: Engu að kvíða lengur. Vindsvalt nátthúm: íJlóanum bœrist brokið og blástörin viknar, titrandi af vetrarkvíða. Svefnausar nœtur: Síðustu göngum lokið. Söngurinn hljóðnaður: Einskis lengur að bíða. 2. verðlaun, Anna María Þórisdóttir. Merenda Undarlegur hlutur hefur gerst: ég er ástfangin af orði, gómlu, ítölsku, gullingrœnu: MERENDA. Mér er sagt að það þýði miðdagshressing, nesti.... Allt í einu stend ég átta ára gömul á sólbakaðri leirtröðinni milli bœjar og ár með brauðdisk bundinn í hvítan klút í annarri hendi og kaffiflösku í sokkbol í hinni. Eg feta varlega yfir handriðslausa brúna og horfi með gát ofan í lygna, djúpa ána á gullna silunga innan um grœnt slý og fœri fólkinu á hinum bakk- anum ENGJAKAFFl. Skorputíð Dauður hrafn verður aldrei svartari en sál þeirra manna sem drepa hann drápsins vegna. Rautt blóð hvítur snjór. Svört jjöður berst með vindinum í átt til hafs. Höf: Lupus Silkibogi dansar í nœturhimni Tunglið laumar himninum undir augu þín Blár Höf: Álfur. í litlu þorpi / litlu þorpi hanga lánsfót af Elvis í stofuglugga parið sem ber inn úr bílnum hlœr í nóttinni í litlu þorpi skína stjörnur og norðurljós í portinu bak við frystihúsið lœðist minkur neðan gilsins er einskismannsland Jleinn í hjarta bæjarins þar standa auð hús bifreiðastöður bannaðar á bryggjunni svo jepparnir mala í lausa- gangi meðan skroppið er í heimsókn um borð í litlu þorpi lokar barinn klukkan níu eða hvœnœr sem htentar börnin rata ein heim í myrkrinu sem glóir af sjónvörpum í Jjörukambinum hímir rislágt hús með saltbarða veggi hér búa draugar Höf: pappírshvítt myrkur Áðan Áðan hafðirðu snert þœr taugar sem ég taldi mínar áðan þegar dagur mœtti lausu myrkri og mér svipaði til manns með drauma í augum áðan þœr taugar þegar svefninn sökkti þyngstu fingrum innum sœng. Höf: Garri Andvaka í seinni tíð kemur það æ oftar fyrir að ég hrekk upp úr svefni skelíingu lostinn. A meðan ég þerra svitann og hugleiði ótta minn í kyrrð næturinnar verður mér það ljóst að ég er hræddur við sjálfan mig. Að ég muni einn góðan veðurdag missa stjórn á mér, hlaupa út úr hús- inu allsnakinn og hrópa helvítis fíflin ykkar ykkur er ekki við bjargandi að ég taki upp á því í vinminni einn daginn að læðast aftan að ljóshærðu stelpunni í ábyrgðardeildinni þegar hún fer í skjalaskápinn þrýsta mér að henni og grfpa báðum hönd- um um brjóstin að ég muni standa á fætur á miðjum fundi og segja settlega haldið þér kjafti herra forstjóri að ég muni fara að syngja eldgamla ísafold í strætó að ég muni byrja á því að kíkja inn um gluggana á ókunnugum húsum að kvöldlagi að ég muni skrifa ástarbréf til konunnar sem ég hjálpa með skattskýrsluna en skelfilegust af öllu er þó sú tilhugsun að ég muni aldrei gera neitt af þessu. Höf: Gestur Anna María Þórisdóttir, búsett í Reykjavík, átti annað Ijóðið í öðru sæti. Ljóð og sögur eftir hana hafa birst í Lesbók Morgunblaðsins. Hún segist þó ekki hafa átt von á viðurkenningu og því komu verð- launin ánægjulega á óvart. Hún segist ekki setja sig í ákveðnar stellingar þegar hún skrifi Ijóð. „Ég skrifa aldrei Ijóð nema þau komi til mín,“ segir hún. uy„d: wimar

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.