Dagur - Tíminn Akureyri - 24.05.1997, Síða 12

Dagur - Tíminn Akureyri - 24.05.1997, Síða 12
24 - Laugardagur 24. maí 1997 ^Ð^UV-WíxtÚXXXl |Dagrtr-®tmtra Fylling: 4 bollar jaröarber (skorin í þykkar sneiðar) 2 bollar rabarbari (skorinn í bita) '/ bolli sykur 1 msk. maíssterkja % tsk. kanill '/ tsk. engifer Vs tsk. múskat Baka: l'/ bolli hveiti % bolli + 1 msk. sykur l’/ tsk. lyftiduft V tsk. natron Z tsk. salt ’á tsk. kanill V tsk. engifer 'U tsk. múskat 2 msk. kalt smjör, skorið í bita 1 bolli súrmjólk Fylling: Blandið öllu saman í djúpt bökuform og látið standa í 20 mínútur. Bakan: Stillið ofn á 200°C. Blandið saman hveiti, 14 bolla sykri, lyftidufti, natron, salti, kanil, engiferi og múskati. Not- ið gaffla og flngurnar til að blanda smjörbitunum saman við þurrefnin. Hrærið súrmjólk- inni saman við með gaffli. Notið skeið til að setja deig yfir fyllingu. Sáldrið 1 msk. af sykri yfir og bakið í 40-50 mín- útur eða þar til gufiinbrúnt. Ath! Ef efsta lagið brúnast áður en bakan er orðin heit í gegn er ráð að setja álpappír yflr. Berið bökuna fram volga. ‘TVLátíxrkróImr Matkrákan að þessu sinni er úr Keflavík og heitir Steinunn Guðbrands- dóttir. Steinunn er tæplega 45 ára og vinnur hjá varnarliðinu. Lesendum Dags-Tímans býður hún uppskriftir að rækjurétti, súrsætum pottrétti og ís. Rækjuréttinn segir hún góðan sem forrétt og heima hjá henni hafi skapast sú hefð að hafa hann alltaf í forrétt á gamlárs- kvöld. Um eftirréttinn segir Steinunn: „Þetta er eldgömul ís- uppskrift sem mamma hefur verið með síðan ég var krakki.“ Steinunn skorar á systur sína, Ásdísi Guðbrandsdóttur, í Matarkrók að viku liðinni. Rœkjuréttur 400 g rœkjur 300 g majones 1 msk. County Mix (frá Knorr) 2 tsk. karrý hvítlaukduft (má sleppa) 1 grœn paprika 1 rauð paprika 2 bollar soðin hrísgrjón Sinnepsósa: 2 msk. hunang 250 g majones sósulitur salt og pipar 4 msk. sinnep dill Sker niður paprikur og rækjur. Blanda öllu saman. Læt hrís- grjónin aðeins kólna áður en ég set þau saman við. Síðan er sósan búin tif með því að blanda majonesi, hunangi, sinnepi, sósulit og kryddi sam- an. Gott að láta réttinn standa í klukkutíma áður en hann er borinn fram. Berið fram með ristuðu brauði. Súrsœtur poppréttur 2 kg lambalœri (má nota annað kjöt) 50 g smjörlíki 3-4 tsk. karrý 2 laukar (smátt saxaðir) Z krukka Mango Chutney / krukka Sweet Relish ■1 lítil dós sveppir + safi (má sleppa) 1 dós uxahalasúpa Sker lambalærið í, bita (muna að skera fítu frá). Einnig hægt að kaupa gúllas. Bræðið smjör- líki og setjið karrýið útí. Steikið laukinn. Setjið kjötið á pönnuna og brúnið. Færið yfir í pott, og bætið sveppum, Mango Chutn- ey, Sweet Relish og uxahala- súpu. Bætið vatni útí ef blandan er of þykk. Sjóðið í klukkutíma. Má gjarnan krauma lengur (2-3 tíma). Þennan rétt er tilvalið að útbúa daginn áður og þá þarf ekkert að gera daginn sem á að borða hann annað en setja í pott og láta malla í 2-3 tíma. Gott með hrísgrjónum, hrá- salati og snittubrauði. Vanilluís '/1 rjómi 5 egg 8 msk. sykur 3 tsk. vanilludropar Skiljið að hvítur og rauður. Hrærið rauður með sykri þar til komin er þétt froða. Setjið van- illudropa útí. Þeytið eggjahvítur varlega. Þeytið rjóma. Setjið rjómann út í eggjarauður og að síðustu er eggjahvítum blandað varlega saman við. Stundum settir súkkulaðispænir útí til til- breytingar. Sett í form og fryst.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.