Dagur - Tíminn Akureyri - 24.05.1997, Blaðsíða 13

Dagur - Tíminn Akureyri - 24.05.1997, Blaðsíða 13
VJS / HN V UJH |Dagur-'2Itttrám Laugardagur 24. maí 1997 - 25 Vs bolli fersk sleinselja 2 msk. ólífuolía 2 msk. vínedik 2 msk. vatn 1 -2 hvítlauksrif '/2 tsk. sinnep ’A tsk. salt / tsk. svartur pipar 120 g ferskt pasta (eða 60 g þurrkað pasta) 1 stór gulrót, skorin í ræmur (ca.3/ bolli) 1 lítil rófa, skorin í ræmur (ca. 3á bolli) 1 zúkíní, skorin í rœmur (ca. 3A bolli) 1 rauð paprika, söxuð ('/2 bolli) '/ bolli frosnar baunir 60 g ostur í teningum, t.d. mozzarella eða fetaostur salatblöð Salatsósa: Blandið saman steinselju, olíu, ediki, vatni, hvítlauksrifum, sinn- epi, salti og pipar í matvinnsluvél. Setjið til hliðar á meðan salat er útbúið. Salat: Sjóðið ferskt pasta, gulrætur og rófu í vatni í 3-4 mínútur eða þar til pastað og grænmetið er orðið mjúkt. Ef þið notið þurrt pasta sjóðið þá eftir leið- beiningum á pakka og bætið gulrótum og rófu við síðustu 3-4 mínúturnar. Sigt- ið vatnið frá. Blandið pastanu, gulrótunum og róf- unum saman við zúkíni, papriku, baunir og ost og setjið allt í stóra skál. Hellið salatsósunni útá. Skreytið með salat- blöðum. I Brosandi barn sem sýgur ávaxtasafa af áfergju. Ánœgjuleg sjón ekki satt? Foreldrar œttu þó að vera vakandi því sé safinn drukk- inn í óhófi getur hann haft óœskilegar afleiðingar. Svo segja í það minnsta nýjustu rannsóknir. Vísindakonan,' Barbara Dennisson, við Mary Imogene Bassett rann- sóknarstofnunina í Cooperstown, New York fylki, komst að því að börn sem drukku tvær eða fleiri fernur af ávaxtasafa voru líklegri að vera undir meðalhæð en hin sem minna drukku. Rannsóknir Dennisson leiddu einnig í ljós að 53% þeirra barna sem drekka tvær eða fleiri fernur á dag eru yfir kjörþyngd en aðeins 32% þeirra sem drekka minna magn. Dennisson telur að hjá sumum börn- um komi ávaxtasafinn í staðinn fyrir annan próteinríkari mat og leiði því til hægari vaxtar. Hjá öðrum börnum er safinn hrein viðbót og því þyngjast þau. Flestum börnum er það meðfætt að sækjast í sætindi og því er það foreldr- anna að stemma stigu við safadrykkj- unni. Annar drykkur er hins vegar til sem bæði börn og fullorðnir ættu að drekka sem mest af: vatn. e i n AST COMPUTI I í AST Bravo • Pentium og Pentium Pro tölvur • Þriggja ára ábyrgð • EJS þjónusta 133 MHz Pentiom. Tilboðsverð fró 124.500 kr., stgr. m/vsk. Grensásvegur 10 • Bréfasími 5 68 7 1 1 5 http://WWW.ejs.is • sala@ejs.i-s

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.