Dagur - Tíminn Akureyri - 24.05.1997, Side 16

Dagur - Tíminn Akureyri - 24.05.1997, Side 16
28 - Laugardagur 24. maí 1997 jOagur-CÍImTOm JOHANNESARSPJALL Dvöl á óamerískri sjúkrastofiiun Jóhannes Sigurjónsson skrifar Pistlahöíundur upplifði það í fyrsta skipti á æfínni á dögunum að þurfa að leggjast inn á sjúkrahús. Og þar sem ég hef einfaldan smekk og vel aðeins það næst besta, þá varð Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri fyrir valinu en ekki Sjúkrahús Þingeyinga. Ekkert stóðlíf ganga- stúlkna og ræsti- tækna! Að sjálfsögðu var ég í meira lagi eftirvæntingarfullur að fá að kynnast heimi sjúkrahússins, ekki síst eftir að hafa horft á svona 7123 bandaríska sjón- varpsþætti um ástir og örlög, líf og dauða í heilsugæslugeiranum þar vestra. Ég átti sem sé von á skrautlegu mannlífi á ystu nöf, morðum, framhjáhöldum, líkn- armorðum, læknamistökum, frjálsum ástum sjúklinga og sér- fræðinga. stóðlífí gangastúlkna og ræstitækna, endalausum ruglingi á þvagprufum með geigvænlegum alleiðingum, osfrv. osfrv. En raunveruleikinn á Fjórðungssjúkrahúsinu var annar en á sambærilegum sjón- varpsstofnunum í USA. Þarna upplifði ég ekkert nema yndis- legt starfsfólk sem allt vildi fyrir mann gera og annaðist mig og aðra kranka af einstakri alúð og velvild. Nú skil ég allar gömlu kveðj- urnar í óskalögum sjúklinga til starfsfólks sjúkrahúsanna og sendi hér með starfsfólki á minni deild mínar kærustu kveðjur. Og héðan í frá mun ég styðja allar kaupkröfur starfs- fólks á sjúkrastofnunum - það á allt gott skilið og meira til. Af geðdeild eða Húsvíkingur? Eins og gefur að skilja þegar maður er nýgræðingur á einhverju sviði, þá er maður ekki alveg öllum hnútum kunn- ugur. Ég t.d. hafði ekki liug- mynd um að maður ætti að mæta með inniskó og slopp til innlagnar á sjúkrahús. Og raun- ar áttaði mig ekki á því fyrr en fólk fór að gefa mér undirfurðu- legt hornauga á rölti mínu um ganga stofnunarinnar. Þá tók ég sem sé eftir því að Ilestir sam- sjúklingar mínir voru í slopp og inniskóm. Ég aftur á móti gekk um á hvítri langbrók með víð- áttumikilli buxnaklauf að fram- an, á svörtu spariskónum mín- um og í grárri og þykkri hettu- peysu yfir sjúkraskyrtunni. Seinna frétti ég að það hafi almennt verið álit ókunnugra að þarna færi annað hvort sjúk- lingur af geðdeild ellegar þá Húsvíkingur, nema hvortveggja væri - og var auðvitað ekki íjarri sanni. Táknfræði í risalunga Flest sem ég kynntist þarna á stofnuninni var til fyrirmyndar. Starfsfólkið náttúrlega fór fremst í flokki, tækjabúnaður var ekki lakari en á Bráðavakí- inni ef mér skjöplast ekki þvf meir og súpurnar runnu ljúílega niður næringarveginn. En það sem mér þótti þó mest til koma var hin útspegúleraða sýkóló- gíska hönnum á reykingaher- berginu í kjallaranun. Reykingar eru náttúrlega ekki vel séðar á sjúkrahúsum og skylda starfsfólksins auðvitað sú að letja menn í smóknum svo sem helst er kostur. Og reyk- ingaklefínn, afdrep okkar lungnasóðanna, virtist sérhann- aður í því skyni. Veggirnir voru tóbaksgulir og skellóttir og manni leið eins og maður væri staddur í risastóru sýktu reyk- ingalunga. Á veggnum voru þrjár samstæðar myndir. Á þeim öllum vorum tveir blóma- vasar með blóm í öðrum vasa en hinum tómum. Táknrænt og þurfti engan Umberto Eco til að túlka að blómalausu og líflausu vasarnir stóðu fyrir reykinga- menn en þeir með lifandi blóm- unum í fyrir þá reykiausu. Gólfdúkurinn kórónaði sköp- unarverkið. Annað hvort hefur hann verið not.aður í 40 ár á einhverri hafnarkránni i Ham- borg, ellegar að sjúkrahús- starfsfólk hefur vísvitandi slökkt í svona 347 sfgarettum á dúkn- um til að gera hann sem ókræsilegastan. Eftir dvöl í þessu herbergi var varla hægt annað en að taka ákvörðun um að að hætta að reykja og eru áform um slíkt komin vel á veg hjá mér og í stöðugri framþróun.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.