Dagur - Tíminn Akureyri - 24.05.1997, Side 18

Dagur - Tíminn Akureyri - 24.05.1997, Side 18
30 - Laugardagur 24. maí 1997 ;®cUjur-®TOTxraT LIF OG LAND It s>’ii — 11 1 . 1 1 |ái 8 fa i 11 í | OL' JSa fíiM 1 W ->*■. 1 t | ^UPli l Jm iá’isW -'ii • Hm vll TQP.Í áirí Land og þjóð Sigurður Bogi Sævarsson skrifar 1. Spurt er um mannskaða í Keflavík, sem varð um jólin 1935 og olli miklu manntjóni. Hvað er hér átt við? 2. Spurt er um húsið Staðarstað í Reykjavík, Sóleyjargötu 1, þar sem skrifstofa forseta íslands er nú. Iiver byggði húsið, hver var sonur hans og hvaða forseti lýðveldisins bjó þar, eftir að hann lét af embætti? 3. Myndin efst á síðunni er af Viðeyjar- stofu, sem byggð er 1752 til 1755. Hver stóð að byggingu hennar og hver er maðurinn sem síðustu 27 ár hefur ann- ast ferjusiglingar milli Viðeyjar og Sundahafnar? 4. Kirkjuból heitir bær í Hvítársíðu í Borgarfirði. Paðan var skáldið sem um er bókin Skáldið sem sólin kyssti. Hvaða skáld naut þessarar gæfu? 5. Hæsta mannvirki á íslandi er á Snæ- fellsnesi. Hvert er það? 6. Innarlega við Arnarljörð vestra er jörðin Gljúfurá. Á hvern hátt hafði hún þýðingu í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinn- ar? 7. Óvenjulegt framboð ungs fólks kom fram á sjónarsviðið á ísafirði í bæjar- stjórnarkosningum þar fyrir ári. Hvað hét framboðið og hve marga fulltrúa fékk það kjörna í bæjarstjórn? 8. Hver er fréttaritari Útvarpsins á Blönduósi. 9. Þeir Indriði Pálsson, fv. forstjóri, Stefán Friðbjarnarson, blaðamaður, Ól- afur Ragnarsson, bókaútgefandi, og Jón Sæmundur Sigurjónsson, trygg- ingafræðingur, eru allir frá sama staðnum á Norðurlandi vestra. Ilvaðan eru þeir? 10. í Þingvallastræti 4 á Akureyri bjó lengi atkvæðamikill maður í bæjarlíf- inu, sem síðar var valinn heiðursborg- ari. Nafni hans og barnabarn, bjó f húsinu um skeið, en dvelst nú í Bret- landi og fæst þar m.a. við tónlist. Hverjir eru mennirnir? 11. Rætur samvinnuhreyfingarinnar á íslandi liggja í Þingeyjarsýslum. Þrjú kaupfélög í sýslunni hafa hins vegar orðið gjaldþrota á síðustu tíu árum. Hver eru þau? 12. Aðalsteinn Jónsson hefur í áratugi verið stærsti atvinnurekandi á Eski- firði. Hvernig stendur á viðurnefninu Alli ríki? 13. I Hvalsnesskriðum í Lóni var tekið upp atriði í kvikmynd, sem gerð var eftir einni bóka Halldórs Laxness. Stendur leikmyndin þarna enn. Hver er bókin sem kvikmyndað var eftir? 14. Hvar í Rangárvallasýslu eru bæirn- ir Önundarhorn, Ysta-Bæli, Stóra-Borg, Hlíð, Selkot og Seljavellir? 15. Um síðustu helgi var efnt til hátíðar á Eyrarbakka, á tímamótum í sögu byggðarlagsins. Hver voru þau? 16. Myndin neðst á síðunni er af einu sæluhúsa Ferðafélags íslands. Það stendur skammt frá leiðinni yfir Kjöl, og er hús þetta þekkt fyrir reimleika. Hvar er það? PS. I þættinum í síðustu viku var ranglega sagt að það Vörðufell væri fjalliö í landi Kiðjabergs í Grímsnesi. Það er réttilega Hestijall, sem er að stærstum hluta í landi Hests og Gíslastaða, en að nokkru Kiðjabergs og Vatnsness. Böðvari Páls- syni, oddvita Grímsnesinga, þakka ég ábendinguna. -sbs. •IS0UJB}JAH j 9x sdd8jqB5[>[T!q -jTUÁq ijæuijB t;jt! ooi JT;A Tsuuq,\i sj ■ uiri|[(»Ijt;fÁq-jnjsny Jipufj x [ •juiiaqjBSjpBJBj gj uinuiuuBUi jS[Áj ubqjs Jnjaq jjiSujbu ps BJp-1 tiIIV uin jt;(J iqtt|t;j go uunddTjq qia [BJQIA ddn QBP|B>[S JBA uinuBfpAQofq I Zl ■JBJÁ0SQJBq[BAS go ‘T33UIÁ0 -guqj-jnQjofq ‘BguisauguBq gT![0jdnT;>[ xx •jnQnuiojj -juguiuuaui go ijnddod ‘uossnugBjM uut>ui -jj;| qoqnj’ Ji;gaA suiq 3o ‘ijpfjssSBipjdnBif ‘uossuut:uijj.[ qoquf Jiacj nja TTjjoq oi •iQjijn[gis bjj ji[[T3 nj9 juguiuuamjpJj Jipujafq 'f, uosTqsjfj jniuuf) g UJOfjSJT! -fæq j T3UJof>[ uuam oaj qqpj uuijsqquoq / '6281 I!t SF8t !t®s uueq ijjb Jiicj ua ‘jSajngom siguicjjv [ij Qoqunrjj iuof iQjag lUUIQJOf T: QipiBqjBUgia BJ0SJOJ ‘JBUOSSQjn -g[S suof ngia j Qioqs mn jt:a Tunjnf[;) g 'JJpq T3JJ0UI 071 ‘uin|T!>(snjn;j t; qijjstuu qia jjt: ja jpjj g uossjBAQpg jnpunmQn;) -p •ji:Sui[S|sn_fj0j jsb -UU1! UOSSUiaAS UUI0JSJT3[X SO IIJOJSJT!fÁOQI/X nSuiSSÁq qb qojs ijoSoj uossnuSBpj [[ruqs '£ '7861 ‘sjngæpjBupp [ij 0861 fjjæqma jb jp{ uunq qb Jijjs ‘ujBfpia uBfjsua ofq nuisnq j suuq jnuos jba ‘suisippAQÁi [jasjoj ijsjáj ‘uossujofg uuiOAS qbjsjbqbjs Q[snq iQSSÁq m0S IJOfjSJIJ UOSSUOf UJOfíI JBA QBcI Z jsnpuuojq og 8o Qijq suunm 6 iQBjsoq mas ‘suuBfæq isnqnmoqmBS i qjba uias uubcJ Bunjq mn jjnds ja jof[ x ÍJOAg Fluguveiðar að sumri (20) Flugur íyrir byrjendur Félagi og starfsbróðir iiringdi í mig í fyrra- sumar. Var að fara í veiðitúr. Langaði að kasta flugu. Hafði fengið tilsögn í að kasta svo hann taldi sig reiðubúinn að prófa. Var búinn að fá lánaða stöng. Mér leist vel á þetta fram- tak. Ekki fara í fluguveiði án þess að læra undir- stöðuatriði kastsins. Það er mikilvægast af öllu til að komast vel af stað. Þegar ég byrjaði sjálfur fyrir al- vöru hjálparlaust keypti ég bækling í Veiðimanninum, fór með stöng og hjól upp að Elliðavatni og æfði mig. Ég vil ekki kalla þau ár sem ég varði við þessa iðju glötuð, en þau hefðu nýst mun betur ef ég hefði farið á kastnámskeið eða fengið leiðsögn - aðra en af bækl- ingnum. Svo það tók mig nokkurn tíma að venja mig af undirstöðuvillum loksins þegar ég lærði að kasta, og kannski verð ég aldrei góð- ur kastari af því að ég lærði ekki almennilega í byrjun. En vinur minn var sem sagt kominn með und- irstöðuatriðin á hreint. Og kunni að festa hjólið á stöngina. (Ég veiddi heilan dag með manneskju sem setti hjólið á öfugt og skildi ekkert í þessum ósköpum!) Og vinur minn var búinn að fá rétta tauma, og þá létti mér, því öðru sinni veiddi ég heila tvo daga með manneskju sem var með svo lélegan taum að hann hefði aldrei haldið iiski ef hann hefði glæpst til að setja í einn.) Og stöng fékk hann lánaða, sem er gáfulegt, því maður þarf að kynnast stönginni sem maður ætlar að veiða með í framtíðinni - áður en mað- ur kaupir hana. (En það er ekki jafn gáfulegt að fá lán- aða stöng þegar maður brýtur hana fyrir öðrum - eins og ég gerði í fyrsta al- vöru túrnum mínum. En frá því sagði ég vini mínum ekki). En nú vantaði hann fiugur. Hvort ég vildi ekki vera svo vænn að mæla með einhverjum flugum sem hann gæti keypt og haft með sér á silungsveið- ar! Innkaupalista! Ég vissi ekki hvort ég ætti að hlægja eða vera upp með mér. En ég ákvað að láta eins og ekkert væri og láta vin minn ekki finna það á mér að hann hafði spurt mig um innstu rök tilver- unnar. Ræskti mig. Spurði varfærnislega: „Þú ert að biðja mig um að mæla með flugum?" Þegar stórt er spurt. En ég ákvað að blása vini mínum tiltrú í brjóst og láta alls ekki á mér finna að þessari spurningu væri einfaldlega ekki hægt að svara, því maður ætti aldrei nóg af flugum - og aldrei réttu fluguna. Ég lét vera að útskýra að flugur í stærðum og gerðum væru fleiri en stjörnurnar á himihvolflnu. Svo í stað þess að segja honum að hann væri að hefja ferð án enda, sagði ég honum einfaldlega að hinkra, náði mér í kaffi- sopa, settist niður og bað hann að skrifa innkaupa- lista. Innkaupalisti fyrir byrj- endur sem eru á leið í sil- ungsveiði en vita ekki al- mennilega hvað þeir eiga að hafa með sér. Grunn- safn: 1) Zulu. Svört Zulu er frá- bær fluga sem nú virðist ganga í endurnýjun tiltrúar í mínum félagahópi. Gott er að eiga stærðir 10, 12 og 14 og ég vil hafa hana tví- krækju. Sérviska. Þegar ég veit ekkert hvað ég á að gera set ég Zulu undir. Og stundum veit ég alveg hvað ég á að gera: og set Zulu undir! Ég þekki mann sem veiðir bara á eina flugu, á enga aðra - Zulu! 2) Peter Ross. Hrein snilld. Sú besta í hópi teal-flugna (urtandarvængjur). Númer 12 er bráðdrepandi hvar sem hún fer, númer 10 er líka góð. Með Peter Ross ertu alveg örugg(ur) um að þú sért að gera eitthvað rétt. Biðjið líka um púpu- afbrigðið af þessari flugu, og þá númer 14. 3) Watson’s Fancy. Góð sil- ungafluga, en ekki kaupa hana! Kaupið púpuna! Svínvirkar, ekki síst með kúluhaus. Með Peter Ross fluguna, og Watson’s fancy púpuna ertu Atli húnakon- ungur veiðivatnanna. 4) Peacock! Svo einföld, svo brilljant. Púpa sem slær öllu við oftar og lengur en menn átta sig á. Fyrsta lífið á mína stöng á þessu vori kom þegar ég setti Peacock undir. Virkar eins og allar þær flugur sem áður eru taldar á bæði urriða og bleikju. Bleikjan er sérlega veik fyrir henni. 5) Nú vandast málið. Kannski þarftu ekki fleiri ílugur? Tæpast. Og þó. Ekki myndi ég vilja fara í veiðitúr án Pheasant tail púpunnar. Biðjið um Sawy- er’s Pheasant tail, ef heppnin er með er af- greiðslumaðurinn með á nótunum. Stærðir 10,12, og 14 eru stórfenglegar í hvaða flugnabox sem er. 6) Nú erum við komin út í sérviskur. Og þó. Fyrr- greindar púpur og flugur eru smáflugur. Þú þarft straumflugur. Black Ghost er númer eitt á meðal þeirra, og ætti kannski að vera ofar á lista. Láttu ekki plata þig til að kaupa stærra en númer 6. Fín stærð. Og svo virkar hún á lax líka ef heppnin er með! Góð fyrir straumþungar eða vatnsmiklar ár og vötn. Satt að segja alveg dásam- leg. Biddu um hana með frumskógarhanakinn. 7) Staumfluga númer tvö verður að vera dökk. Því þrátt fyrir nafnið er Black Ghost ljós. Svartur nobbler er slíkur fjöldamorðingi að í raun ætti að banna hann. Þú kaupir þér tvo: númer 6 og annan númer 10! Hafðu hann með augum! 8) Þurrflugulaus viltu ekki vera. Black Gnat kemur fyrst og þú notar hana jafnvel þótt fiskurinn sé ekki að taka uppi. Stærðir 12 og 14 eru ósköp góðar. Black Gnat gerir það sama fyrir þig og Zulu: þér líður vel með hana á færinu, en það á nú við um Peter Ross líka. 9) Nú ertu orðin(n) vel birg(ur) og flugurnar orðn- ar fleiri en þú getur notað á einum degi. Skynsamlegt væri að kaupa ekki fleiri. En vegna þess að þú býst fastlega við að fara aftur í veiðitúr og það er alltaf gott að geta valið, þá bætir þú við tveimur flugum: flugunni sem maðurinn í búðinni segir að allir noti þar sem þú ert að fara, eða, Teal and black. Hún er náskyld Peter Ross og það er ekki verra að eiga púpuafbrigðið af henni líka. Jafnvel örsmátt, núm- er 14 eða 16. 10) Engin ástæða er til að fjölga flugum í boxinu. En af því að 10 er falleg tala bætum við einni við. Ertu að fara í væna bleikju eða sjóbirting í straumvatni? Þá er það rauð straum- fluga: Dentist eða appel- sínurauður nobbler. Er það urriði í staumvatni? Þá er það straumfluga með gul- um væng: Þingeyingur eða Micky Finn. Ertu að fara í lítið stöðuvatn? Þá tekur þú killer púpuna (hljómar vel!). Sparnaðarboxið: Kauptu 1-5 og bættu við númer 6. Þú ert í góðum málum með tvær stærðir af hverri, samtals 12 flugur. Þetta er nánast ósigrandi her, flotinn ógurlegi, og þú ert fullsæmd(ur) af því að bjóða fiskum að skoða, og öðrum veiðimönnum að líta í boxið - því valið lýsir fádæma innsæi og snilld. Og ef einhver spyr: Og hvar fékkstu nú þennan lista? Þá svarar þú hinn snjall og vel birgi byrjandi sem átt í vændum góða veiði: „Þetta er valið samkvæmt upplýs- ingum frá virtum fræði- manni." Ps. Reyndar verð ég að viður- kenna að ég myndi ekki vilja sleppa tveimur flugum Marcs Petitjeans af þessum lista, en þar sem þær fást ekki í búð- um á íslandi þá verður þetta að duga. Stefán Jón Hafstein skrifar

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.