Dagur - Tíminn Reykjavík - 27.03.1997, Page 19
Pagur-Œmrám
Fimmtudagur 27. mars 1997 - 31
Umsjonarmadur
Magnus Geir Guflmundsson
• I>eir íslensku rokkunnendur, sem
jafnframt hafa gaman af því að
bregða sér í bíó og sjá nýju myndina
hans Tom Cruise, Jerry MaGuire,
hafa sjálfsagt rekið upp stdr augu í
einni senu myndarinnar. Þar bregð-
ur nofnilega fyrir gítarleikara Alice
in chains, Jerry Cantrell, í einni senu
með Cruise. Leikur rokkarinn skrif-
stofumann, sem Cruise á orðastað
við í um 30 sekúndur.
• Hin ofurþunga rokksveit Machine
IJead frá San Franscisco með söngv-
arann Robb Flynn fremstan meðal
jafningja, er nú eftir langa bið að
koma með sína aðra plötu. Heitir
hún, The more things change og á að
fylgja eftir velgengni fyrstu plötunn-
ar, Burn m eys, sem kom út fyrir um
þremur árum. Auk frumsamins efnis
verður á plötunni m.a. gítarrapp-
samsuða úr smiðju meistarans Ice-T.
• Séu þeir einhverjir til sem efist um
veldi stúlknanna snoppufríðu í Spice
girls í poppinu, þá geta hinir sömu
alveg gleymt því. Nýja smáskífulagið
þeirra, Mama (Who do you think you
are) heldur nefnilega hefðinni uppi
sem þær hafa skapað með fyrri smá-
skífulögunum þremur, að fara rak-
leiðis á toppinn í Bretlandi í fyrstu
viku. Samjöfnuður við þær flnnst
varla nema ef vera skyldi U2.
• Talandi urn U2, þá verður nýja
smáskiTulagið þeirra að líkindum
geysivinsælt á íslandi, Stairing at the
sun. Eins og gengur verður það í
fleiri en einni mynd, í mismunandi
hljóðblöndunum. Fengu U2 Butch
Vig, trommara Garbage, sem áður
gerði garðinn frægan sem upptöku-
stjdri fyrir Nirvana, Smashing
Pumpkins o. m. fl. til að hljóðblanda
lagið m.a. og er sú vinna víst ærið
skrautleg. Mun Vig hafa ásamt sam-
starfsmanni sínum, Danny Saber,
„tætt lagið í sundur“ og byggt það
svo aftur upp frá grunni
með ýmsum hljóðbrellum.
(U2 verða annars í brenni-
depli hér á síðunni eftir
viku)
• Kula Shaker, rokkfjdreyk-
ið bráðskemmtilega frá
Bretlandi, geri nú áfram
stormandi lukku. Nýjasta
smáskífulagið þeirra, Hush,
fór nefnilega beint í fjórða
sæti breska listans á dögun-
um og er orðið býsna vin-
sælt hérlendis líka. Lagið er
auðvitað hið sama og þegar
Deep Purple sldgu fyrst í
gegn með, í Bandaríkjunum,
þar sem það náði í fjórða
sæti vinsældalistans árið
1968. i>á var söngvari f
Purple, Rod Evans, sem Ian
Gillan leysti svo af hólmi
ekki löngu síðar. Lagið
samdi hins vegar tónlistar-
maðurinn og lagasmiðurinn
með moiru, Joe South.
Butch Vig. Hljóðblandar fyrir U2
Soðin fiðla. Sigurvegari í Mússiktilraunum. Mynd: hs„
Enn ræður rnkkið
Músíktilraunir Tónarbæj-
ar voru í 15. sin leiddar
til lykta síðastliðið
föstudagskvöld, að undan-
gengnum þremur undanúrslita-
kvöldum, sem fram fóru fyrr í
marsmánuði. Voru það samtals
11 hljómsveitir sem kepptu til
úrslita, þrjár frá Reykjavík,
tvær frá Hafnarfirði og Húsavík
(Roð og Innvortis) og ein frá
Garðabæ, Keflavík, Mosfells-
sveit og Kópavogi. Eins og áður
voru verðlaun af ýmsu tagi,
m.a. fyrir þrjú efstu sætin, At-
hyglisverðustu hljómsveitina,
Besta söngvarann, Besta gítar-
leikarann o.s.frv. Rokkið hefur
sérstaklega hin síðari ár verið
mest áberandi í Músíktilraun-
um og svo var einnig nú. Ein
rappsveit og ein Drum & base-
sveit komust þó í úrslitin, sem
jók breiddina. Gestahljómsveit
var til staðar að venju og var að
þessu sinni sigurvegararnir
1995, Botnleðja. Spiluðu félag-
arnir þrír í upphafi og í hléi
þegar beðið var eftir úrskurði
dómnefndarinnar og ullu ijöl-
mörgum gestum Tónabæjar
ekki vonbrigðum. í>að gerðu
hljómsveitirnar ellefu ekki
heldur og var um nokkuð jafna
og góða framistöðu að ræða.
Helstu úrslit urðu þau, að Soðin
fiðla (satt best að segja voðalegt
nafn) fimm manna mjög svo
framsækin rokksveit úr Kópa-
vogi sigraði og var býsna vel að
því komin. í öðru sæti varð
rapptríóið, Tríó Óla skans hf úr
Reykjavík og í þriðja sæti, The
Outrage, dúett skipaður tveim-
ur unglingspiltum einnig úr
Reykjavík, sem spiluðu á tölvur,
þ.e. einskonar drum & base í
hörðum stíl. Athyglisverðasta
sveitin var svo rós í hnappagat
landsbyggðarinnar, pönkrokk-
sveitin Innvortis frá Húsavík.
Auk sigursins í keppninni voru
einstakir liðsmenn Soðinnar
fiðlu líka verðlaunaðir í bak og
fyrir. Illutu trommari, bassa-
leikari og gítarleikari sveitar-
innar verðlaun í sínum flokki.
Kvæði vent f kross
- og komsst upp með það
IXiýjasta
stórsveitin?
Eftir einn af merkari þrí-
leikjum poppsins, Modern
live is rubbish, Parklife og
The great escape, þótti einum
helsta höfðingja Britpoppsins,
Damon Albarn og félögum hans
í stórsveitinni Blur víst nóg
komið af svo góðu, léttvægu gít-
arpoppi með furðufuglatextum
til skreytingar (sem margir
hverjir eru reyndar bráð-
skemmtilegir hjá Damon) en
þess í stað væri allt annað og
öðruvísi á dagskránni næst. Nú
allir vita hver hlutur íslands
hefur verið í breyttum áhersl-
um Blur og þá sérstaklega
Damons og því ekki ástæða að
rekja það neitt frekar. Nema
hvað, að hingað kom Blur m.a. í
fyrrasumar og tók upp hluta af
nýju samnefndu plötunni í
stúdió Sýrlandi, þar sem kvæð-
inu var algjörlega vent í kross.
Hávært og hrátt gítarrokk að
nokkru í anda þess sem hljóm-
sveitin var að fást við á sínum
bernskuárum, á fyrstu plötunni,
Leisur, 1991, komið í staðinn
fyrir laglínumjúka gítarpoppið.
Hefur Damon m.a. sagt í viðtöl-
umn um plötuna, að hún sé
undir áhrifum frá framsæknis-
rokksveitinni Pavement frá
New York, sem svo aftur hefur
dregið dám af m.a. samborgur-
um sínum í Sonic Youth, Iggy
Pop og fleirum. Má vissulega
taka undir það, en áhrif frá
breskri nýbylgju og pönki má
alveg eins greina, t.d. frá Clash
og Stranglers. En svo er það
spurningin. Gengur umsnún-
ingurinn upp? Að mörgu leyti
gerir hann það og þótt laga-
smíðarnar séu margar hverjar
ekki frumlegar, þá sannast það
enn eina ferðina, að hið gamal-
kunna getur hljómað ferskt ef
ílutningurinn kemur á ein-
hvern hátt á óvart og er frísk-
legur. Það er einmitt tilfellið,
þó tilraunastarfsemin sum-
staðar, sem jafnvel gætti
minnt á sýrutímabilið um og
eftir 1970 (á Pink Floyd og
það allt saman) fari aðeins yf-
ir strikið. Heima í Bretlandi
er svo ekki annað að sjá en
að aðdáendurnir taki þessu
vel, platan fór á toppinn strax
í fyrstu viku í febrúar og selst
enn vel. Svo er bara að sjá
hvort Bandaríkin taki ekki
líka við sér, en þar horfa
Damon og félagar vonaraug-
um á nýju plötuna. Ef hlutirn-
ir fara að gerast þar, er lík-
legt að sveitin láti seinna á
árinu sjá sig öðru sinni á
landi ísa.
Nú þegar margt bendir til
þess að breska popp-
bylgjan svokallaða, Brit-
poppið, sé eitthvað að gefa eftir,
jafnvel að syngja sitt síðasta að
margra mati, höðingjarnir og
helstu boðberar þess, Blur,
meðal annars búnir að snúa við
því baki með nýju plötunni,
(eins og lesa má t.d. um hér
annars staðar á síðunni) velta
menn því óneitanlega fyrir sér
hvort eitthvað svipað, einhvers-
lags gítarpopp, eða hvað það nú
er, komi í staðinn. Á þessum
tímum þegar allt virðist mögu-
legt í poppinu og rokkinu, öllu
er „sullað“ saman til að finna út
eitthvað nýtt, er erfitt að sjá
hvort eitthvað slíkt komi endi-
lega í staðinn fyrir Bripoppið,
en nú þegar það er e.t.v. að
fara úr tísku, kann annað sem
verið hefur að þróast jafnhliða
því, að verða meira áberandi.
Með nokkrum sanni má
t.a.m. segja um Qögura manna
fyrirbærið Mansun frá borginni
Chester á norður- Englandi,
með söngvarann Paul Draper í
fararbroddi, að sveitin hafi
legið í skugga Britpoppsins, en
sé nú í meintu niðurlagi þess að
rísa upp og verða ef að líkum
lætur, næsta stórsveitin í bresku
gítarpoppi. Eftir að hafa starfað
í ein tvö til þrjú ár og gefið út
ljölda EP platna með misjöfnum
árangri, hefur Mansun á síð-
ustu mánuðum verið að vekja
meiri og meiri athygli, vítt og
breitt. Samningur við risann í
Parlaphone, vaxandi og betra
tónleikahald ásamt útgáfunni
auðvitað á EP plötunum, hefur
svo náð að undirbúa jarðveginn
svo vel, að þegar fyrsta plata
Mansun kom út í lok síðasta
mánaðar, fór hún rakleiðis á
toppinn í Bretlandi og velti þar
úr sessi ekki minni mönnum en
Blur.
Pönki í anda Sex Pistols og
Clash og nýrómantíkurpoppi að
hætti Duran Duran og Depeche
Mode, er það sem næst kemst
því e.t.v. til að lýsa tónlist
Mansun á plötunni, Attack of
the grey lantern, eins og hún
nefnist. Skemmtileg blanda,
sem einna helst minnir á það
sem Manic Street Preachers
hafa verið að gera.
Blur tekst þegar á heildina er litið vel upp með nýju plötunni.