Dagur - Tíminn - 26.10.1996, Blaðsíða 11

Dagur - Tíminn - 26.10.1996, Blaðsíða 11
©agur-CQmhm Laugardagur 26. október 1996 - 23 Einhver mesti sparimatur íslendinga er góð og vegleg nautasteik. Það er ekkert voðalega langt síðan við byrjum að borða nautakjöt að einhverju ráði. Það má eiginlega segja að þetta Jylgi „hamborgaramenningunni" og amerískum áhrifum í íslenskri matargerð. Fyrir mörgum, mörgum ár- um, þegar ég var ungur maður að læra úti á Sögu, þá var ekki mikið um nautakjöt á boðstólum - en það var samt mikið um það á mat- seðlinum. Þetta kemur nokkuð spánskt fyrir sjónir, en út- skýringin er ósköp ein- föld. Meyrt og gott hrossakjöt var talið jafn boðlegt og nautakjöt. Margir meintu að það væri nú barasta betra! Margar skondnar sögur eru til frá þessum tíma. Ein segir frá útlendingum sem gáfu kokkinum vikulaun í þjórfé, fyr- ir besta „enska buff‘ sem þeir höfðu á ævi sinni fengið - og samt farið víða! (Þau buff hneggjuðu). Önnur er um virðulega ís- lenska athafnamanninn sem ávallt pantaði sér steik (eða buff, eins og það hét alltaf þá). í eldhúsinu var ungur og metn- aðarfullur kokkanemi, sem tók ekki í mál annað en að gera allt í alvöru. Athafnamaðurinn frægi átti sko að fá ekta nauta- lund! Nú, buffið er eldað og ungi, metnaðarfulli kokkastrák- urinn, sem ætlaði sér stóra hluti í faginu, sá heiminn hrynja á þessu augnabliki. At- hafnamaðurinn varð æfur inni í sal, húðskammaði þjóninn og bað hann að skila því til þessa ömurlega kokks, að það þýddi ekkert að leika svona á hann. Þetta væri hestur og ekkert annað, hann þekkti sko gott buff. Athafnaskáldið strunsar síðan út og lýsir því yfir að á þennan veitingastað skuli hann aldrei fara meir. Bæði athafna- maðurinn og kokkaneminn (sem varð að matreiðslumeist- ara) eru mestu mátar í dag og hlæja að þessum viðburði. íslenskir framleiðend- ur vel með á nótunum Þó að það hafi oft verið sagt um okkur íslendinga að við séum á eftir og að hér sé aldrei hægt að fá eins gott og flott og í útlöndum, þá hafa alltaf íslenskir fram- leiðendur, bændur og aðrir, ávallt verið til í að fylgja eftir óskum markaðarins. Við för- um að framleiða paprikur, kryddjurtir, kalkúna og nautakjöt! Og það ekkert smá- vegis nautakjöt. Nú segi ég eins og bæði útlendingarnir og at- hafnamaðurinn í sög- unum hérna fyrir ofan: „Ég hef nú farið víða og þekki kjöt.“ Þegar íslenskir bændur eru upp á sitt besta og hugsa vel um nautin sín - gefa þeim ríku- lega af góðu fóðri - þá fram- leiðum við eitt besta nautakjöt í heimi. Nóg er af kjötinu í dag og hefur kjötvinnslunni farið gífur- lega fram á þessum tíma. Bændurnir eru nú barasta fyrsti liðurinn (samt sá sem mest reynir á), það er vinnslan og verkunin á nautakjötinu sem er einn stærsti þátturinn. Ef hún er ekki í lagi, þá verður vandað og vel alið naut ekki að neinu. Menn greindi á hérna áður fyrr um aðferðir, en það lítur út fyrir að í dag sé þessi munur minni. Alltaf hefur verið sagt að naut eigi að hanga í hálfum skrokkum í 14 daga eða svo. Ofureðlilegt er að það sé gert, því að kjötið verður að brjóta sig og örverurnar að vinna á því til að það meyrni. Þessi að- ferð er í rauninni úrelt í nútíma kjötvinnslu. Af þeim sem ég þekki eru þeir hjá Ferskum kjötvörum lengst komnir í þess- um nútíma aðferðum. Þar eru mjög strangar kröfur gerðar til gæða og kjötið má ekki vera meira en þriggja daga þegar það kemur til þeirra. Samdæg- urs er kjötið hlutað niður og pakkað í sérstakar lofttæmdar umbúðir og þar meyrna vöðv- arnir í eigin safa. Þetta er mjög jákvætt og eykur almenn gæði nautakjötsins. í þessu liggur framtíðin þeg- ar um iðnaðarnautgripafram- leiðslu er að ræða. Persónulegur blœr mikilvœgur En eins og við vitum þá má til- veran ekki birtast okkur á færi- bandinu einu, þó að það sé mjög hagnýtt og virkt. Við verð- um að setja tilfinningarnar í hlutina líka. Einn kjötverkandi hér á landi stendur gjörsamlega upp úr þegar um persónuleg vinnu- brögð er að ræða. Það er hann Jónas Þór, sem rekur kjötversl- un sína við Grensásveg í Reykjavík. Hann er einn mesti hugsjónamaður sem ég þekki þegar við tölum um nautakjöt. Segja má að hann sé með „nautakjötsdellu". Hann er mjög flinkur; örlítið af gamla skólanum, sem er gott. Við vorum ekki alltaf sammála fyrst. Ég vildi sama og enga fitu á nautakjötinu og láta það meyrna í pokum, eins og lýst er hér fyrr. Hann vildi „rétt“ feita gripi með jöfnu lagi af utan- áliggjandi fitu og vel sprengt af innanfitu. Hann vildi láta kjötið hanga í heilu. I dag erum við mjög sam- mála um hvað sé gott nauta- kjöt. Ég verð að viðurkenna að á mig hefur hallað. Þetta með fituna er frumatriðið, en meyrnunin í pokum er það líka. Það er Jónas farinn að viður- kenna, en hann lætur hand- verkið samt tala þegar hann velur vöðva af snilld, sem hang- ið hafa undir nánu og faglegu eftirliti hans. Eins og staðan er í dag, get- um við íslendingar verið montnir þegar við smellum vel valinni og verkaðri T-bone steik á grillið. §IG GI HALL Margar skondnar sögur eru til frá þessum tíma. Ein segir frá útlendingum sem gáfu kokkinum vikulaun íþjórfé, fyrir besta „enska bujf' sem þeir höfðu á œvi sinni fengið - og samt farið víða! (Þau bujf hneggjuðu). Búðu til þitt eigið pasta Með aðstoð þar til gerðs tœkis er lítið mál að búa til sitt eigið pasta. Þeir sem eiga ekki slíkt tól þurfa þó ékki að leggja árar í bát. Gamla góða kökukeflið stendur enn fyrir sínu þó heldur sé sú aðferð seinlegrt Deig 400 g hveiti 2 egg 2 eggjarauður 1 msk. olívuolía 1 msk. vatn / tsk. salt IBlandið saman hveiti, eggj- um, eggjarauðum, vökva og salti í skál. Hnoðið saman í skálinni. 2Sáldrið hveiti á eldhúsbekk- inn, takið deigið úr skálinni, og hnoðið vel þar til það er orð- ið mjúkt og meðfærilegt. 3Skiptið deiginu niður, hnoð- ið hvern hluta í kúlu og pakkið inn í plast. Látið bíða í 20-30 mínútur. ATH! Ekki má sleppa plastinu því þá verður deigið þurrt og stökkt. 4Fletjið deigið út, eins þunnt og mögulegt er, eða notið pastatækið til að fletja deigið (lítinn hluta í einu, sjá mynd). Látið deigið bíða útflatt í 10 mínútur áður en þið skerið. 5Ef pastað er skorið í pasta- tæki þarf að stilla eftir því hve ræmurnar eiga að vera breiðar. Gott er að miða við að hver ræma sé ekki lengri en 25 cm. Annars fara þær að shtna. Ef á að handskera þarf að rúlla pastanu lauslega upp og skera í ræmur 5-20 mm breið- ar. Fyrir lasagne, ravioli eða aðrar pastategundir er hægt að nota bökunarhjól til að skipta deiginu niður í rétthyrninga eða ferhyrninga.

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.