Dagur - Tíminn - 26.10.1996, Blaðsíða 16
28 - Laugardagur 28. október 1996
íDagur-'Œhrmtx
ICONUNGLEGA SÍÐAN
Konunglegt búðaráp í London
BÚBBA
segir umbúðalaust
frá verslunarferðum
konunglegra í
London.
Meðal okkar fslendinga
eru nokkrir afburða
búðarfíklar sem hafa
sérhæft sig í verslun-
arleiðöngrum í London. En
prinsessur, hertogaynjur og
hefðarkonur í Bretlandi vita líka
sitthvað um hvar best er að
versla í London. Þær una sér við
það ánægjulega alþjóðlega tóm-
stundagaman að velja sér föt og
tilheyrandi og fá sér góðan há-
degisverð með vinum sínum. Til
þessarar frásagnar eru kallaðar
yngri konur bresku konungsfjöl-
skyldunnar sem hver hefur sinn
stfl. í næstu innkaupaferð geta
lesendur, sem vilja fá nasaþef af
konunglegum smekk, skotist úr
Marks & Spencer og C & A og lit-
ið í þær búðir sem hér eru
nefndar. (Það kostar ekkert að
skoða).
Lafði Helen
Taylor
Lafði Helen Taylor er dóttir
hertogans af Kent. Hún býr í
Knightsbrigde með eiginmanni
sínum Tim Taylor listaverkasala
og ungum syni þeirra, Columbus.
Helen þykir afar smekkleg til
fara og lítur alltaf jafnvel út,
hvort sem hún er í gallabuxum
og baðmullarbol eða Armani
dragt.
Lafði Helen verslar mikið á
sjálfa sig hjá Armani á Bromton
Road og kaupir talsvert af fatn-
aði á soninn í versluninni GAP á
Lafði Helena Taylor búin að versla
á útsölu hjá Nicole Farhi.
Fulham Road. Hún hefur smekk
fyrir fatnaði frá verslununum
Agnés B og Voyage á Fulham Ro-
ad og „In wear“ og Nicole Farhi
á Kings Road. Þegar hún var
barnshafandi verslaði hún tölu-
vert hjá Egg á Kinnerton Street.
Hún sést oft í stórversluninni
Harvey Nichols á Knightsbrigde
og fær sér gjarnan hádegisverð
með vinum sínum á veitinga-
staðnum á 5. hæð.
Serena,
vísigreifa-
frú Linley
Vísigreifafrú Linley, áður Ser-
ena Stanhope, er gift syni
Margrétar drottningarsystur;
Linley vísigreifa. Hún þykir hafa
mjög dýran og góðan fatasmekk
og verslar gjarnan í París eða
New York. Serena hefur einnig
ánægju af því að versla í ná-
grenni húsgagnaverslunar eigin-
manns síns í London. Hún sinnir
sérstaklega versluninni Laura B
á Walton Street, sem sérhæfir sig
í frönskum fatnaði á nokkuð við-
ráðanlegu verði. Uppáhalds hatt-
ari hennar er Philip Tracy á El-
izabeth Street. Þá leggur hún
gjarnan leið sína í barnafata-
verslunina „Young England" til
þess að kaupa gjafir handa
börnum vina sinna en sú verslun
er í eigu Barböru Barns sem áð-
ur var barnfóstra hjá konungs-
fjölskyldunni.
Lafði Sarah Chatto frjálsleg til fara.
Lafði Sarah
Chatto
Lafði Sarah Chatto, dóttir Mar-
grétar drottningarsystur og
mágkona Serenu, hefur nokkra
sérstöðu meðal þeirra kvenna
sem hér eru nefndar. Hún hefur
nefnilega engan áhuga á há-
tískufatnaði og klæðist oftar en
ekki víðum og frjálslegum fatn-
aði í dökkum Iitum. Þá sést hún
HARVEY NICHOLS
NIGHTSBRIDG
Á þessu korti sjást helstu verslunarstaðir þeirra Helenu, Söruh, Serenu, Sophie og Díönu.
ARMANI
NOTTING HILL
kcnsiuciHHÍ
BELGRAVIA
NICHOL FARHI
KENSINGTON
CHELSEA
PULHAM /
AÖNESB
BATTERSEA
FAVOURITE
SHOPS
oft í Levi’s gallabuxum og Timb-
erland skóm. En þegar hún
klæðir sig upp á velur hún gjarn-
an föt frá hönnuðinum Nicole
Farhi.
Drottningin hafði áhyggjur af
því að Sarah myndi velja of
frjálslegan brúðarkjól þegar hún
giftist Daníel Chatto í júlímánuði
1994 en móðursysturinni,
drottningunni, til mikillar
ánægju þá birtist Sarah í ffla-
beinshvítum, klassískum kjól
sem hannaður var af Jasper
Conran.
Þrátt fyrir lítinn áhuga á há-
tískufatnaði þá hefur Söruh tek-
ist að skapa sór sinn eigin sér-
staka stfl sem þykir nokkuð vel
heppnaður.
Díana er vön að skutlast inn og út
úr búðum eins og aðrir - nema
hvað bílstjórinn bíður eftir henni
rétt fyrir utan.
Díana,
prinsessa
að standast fáir Díönu snún-
ing þegar kemur að búða-
rápi. Hún er sögð hafa mjög
gaman af því að
versla og er óspör á
gjafir til vina og
vandamanna. Díana
snæðir oft hádegis-
mat á hinum ýmsu
veitingastöðum. Af
þeim sem eru í sér-
stöku uppáhaldi má
nefna Launceton
Place, og kaupir Dí-
ana gjafir handa
vinum sínum af
yngstu kynslóðinni í
versluninni Frog
Hollow sem er þar
beint á móti. Af öðr-
um uppáhalds veit-
ingastöðum má
nefna San Lorenzo í
Beauchamp Place,
Mimmo D’Ischia
(þar sem sást m.a.
til hennar með auð-
manninum Oliver
Hoare, sem hún var
sögð hafa forpestað
sem símaati!) og
Daphne’s á Walton
Street. Ef hún er í
West End snæðir
hún gjarnan á Mor-
tons eða á Caviar Kaspia rétt hjá
Berkeley Square eða á Le Capr-
ice.
En snúum okkur að fatakaup-
um Díönu. Hún á það til að
kaupa sér gallabuxur frá GAP á
Regent Street, sem margir fs-
lendingar þekkja.
Hún hefur dálæti á Jimmy
Choo skóm sem fást hjá Thom-
asz Starsewski og Manolo Bla-
hnik skóm sem fást í verslun á
Old Church Street í Chelsea. Dí-
ana hefur uppáhald á Ferra-
gamo skóm og handtöskum. Hún
á yfir 30 slíkar!
Hvað hátískufatnað snertir þá
hefur Díana dálæti á Thomasz
Starzewski á Pont Street og Cat-
herine Walker á Fulham Road. í
stað þess að boða hönnuðina til
sín, eins og hún gerði hér áður
fyrr, þá fer hún til þeirra, oft án
þess að gera boð á undan sér,
enda er hún orðin vön því að
fólk stari á hana þegar hún er í
verslunarerindum. Hún skutlast
inn í búðirnar hverja af annarri
og lætur bflstjórann bíða fyrir
utan á meðan.
Sophie
Rhys Jones.
Enda pótt hún sé ekki enn
meðlimur konungsfjölskyld-
unnar þá er hin þrítuga Sophie
Rhys Jones, unnusta Edwards,
yngsta sonar Eh'sabetar drottn-
ingar, orðin konungleg dægur-
hetja sem fylgst er með. Hún er
hundelt af ljósmyndurum og hef-
ur í kjölfar athyglinnar grennt
sig og vandað fatavalið. Sophie
þykir skemmtilegast að versla í
West End og hefur sést til henn-
ar við jólainnkaup í skartgripa-
versluninni Van Peterson.
Sophie hefur ekki sömu aura-
ráð og meðlimir konungsfjöl-
skyldunnar. Hún er af venjulegu
millistéttarfólki og verður því að
sýna dálítil klókindi í fatavali.
Henni tekst ágætlega að blanda
saman fatnaði frá verslanakeðj-
um eins og NEXT og dýrum
klassískum fatnaði. Einnig fær
hún kunningjakonur sínar til að
sauma fyrir sig samkvæmt fyrir-
myndum úr tískublöðum.