Dagur - Tíminn - 16.11.1996, Page 2
I
14 - Laugardagur 16. nóvember 1996 Jlagur-Cmmtu
Frá leiklistarnámskeiði í Lundarskóla.
Mynd: JHF
Fjölbreytt
tómstundastarf
Leiklist, skartgripagerð,
pappírsvinnsla, leirmót-
un, pasta-, pítu- og
pizzugerð, endur-
vinnslumyndlist og gifs-
mótun. Það er af nógu
að taka í tómstunda-
starfinu í grunnskólum
Akureyrar í vetur.
Iþrótta- og tómstundaráð Ak-
ureyrarbæjar hefur í nokkuð
mörg ár boðið upp á námskeið
fyrir unglinga eftir skóla en í
fyrravetur var tekin upp sú ný-
breytni að bjóða upp á tóm-
stundanámskeið fyrir yngri
krakka, allt niður í 4. og 5.
bekk. Námskeiðin hafa mælst
vel fyrir og í vetur eru það ekki
síst leiklistarnámskeiðin sem
eru vinsæl. Lítið hefur verið um
leiklistarnámskeið fyrir svo
unga krakka áður en ef marka
má fyrstu viðbrögð er þörfln
greinilega fyrir hendi. Aðal-
steinn Bergdal, leikari, er leið-
beinandi á leiklistarnámskeið-
unum bæði hjá yngri börnunum
og unglingunum. Hver er helsti
munurinn á þeim yngri og
eldri? „Aðalmunurinn er sá að
þau eru misjafnlega stillt. Því
eldri því stilltari. Á móti kemur
að þau yngri eru frakkari og
frekar til í hvað sem er,“ segir
Aðalsteinn. AI
Sjómaður
og leikkona
Meðal þeirra sem tekið hafa
þátt í leiklistarnámskeiði á
vegum íþrótta- og tómstunda-
ráðs Akureyrar eru Sara Bene-
diktsdóttir, 9 ára, og Hilmar Þór
Gunnarsson, 10 ára, bæði nem-
endur í Lundarskóla.
Sara segist ekki hafa leikið
áður en hún fór á námskeiðið
en Hilmar Þór er ekki alveg
reynslulaus. „Ég lék í Sex litlir
tindátar, sem var sýnt í afmæli í
íþróttahúsinu. Þar lék ég einn
tindátann og var ekkert feiminn
eða stressaður," segir hann
kokhraustur. En ætla þau að
verða leikarar í framtíðinni?
„Já, ég er löngu búin að
ákveða það,“ segir Sara harð-
ákveðin en Hilmar Þór er með
önnur framtíðarplön. „Ég ætla
að verða sjómaður eins og
pabbi. Er bara í leiklistinni til
að prófa,“ svarar hann, en tek-
ur þó ekki fyrir að verða
kannski leikari í aukavinnu
með sjómennskunni. AI
Hilmar Þór Gunnarsson og Sara Benediktsdóttir. Hún vili verða leikkona, hann ætlar að feta í fótspor föður síns
og fara á sjóinn. M,nd:JHF
Sigríður Eysteinsdóttir, dóttir Sólveigar og Eysteins, opnaði ráðherrastofuna ásamt hr. Olafi Ragnari Grímssyni,
forseta íslands. Mynd: Pjetur Sigurðsson.
Eysteinsstofa opnuð
Ráðherrastofa Eysteins Jónssonar, fyrrum
þingmanns Austfirðinga, var opnuð í
Löngubúð á Djúpavogi sl. miðvikudag, 12.
nóvember. Þann dag hefði Eysteinn orðið m'ræður
hefði hann lifað, en hann lést fyrir tveimur árum.
Ráðherrastofan er til minningar um Eystein og
Sólveigu Eyjólfsdóttur, eiginkonu hans, sem lést á
síðasta ári. Ein af þeirra hinstu óskum var að
munir þeirra yrðu varðveittir eystra - og nú er
svo orðið. Mikil vinna hefur verið í það lögð að
undanförnu að koma safninu á laggirnar. Þá
vinnu hefur Guðrún Kristjánsdóttir, minjavörður
Austurlands, annast. í stofunni eru varðveittir
ýmsir munir sem voru í eigu þeirra hjóna, svo
sem munir sem alla tíð voru á skrifstofu Eysteins.
Á veggjum eru ýmsar myndir sem bregða ljósi á
svipmikinn stjórnmálaferil hans.
Á næsta ári verður safn Ríkharðs heitins Jóns-
sonar myndskera sett upp í Löngubúð, en hann
var fæddur á Djúpavogi - líkt og Eysteinn. Þeir
tveir voru góðir félagar alla tíð - og má segja að
þeir séu að komast aftur á heimslóðir, þótt látnir
séu. -sbs.
Frostrasin á fullu
etta er orðið vandaðara hjá
okkur. Við erum farin að
leggja meira í dagskrárgerð,
tæki og annað,“ segir Davíð
Rúnar Gunnarsson, einn af að-
standendum Frostrásarinnar
sem nú hefur hafið útsendingar
sjöunda árið í röð.
Frostrásin hefur sent út frá
Akureyri í nokkrar vikur í kring
um jólin undanfarin ár og hefur
útsendingartíminn verið að
smálengjast með árunum eftir
því sem útvarpsstöðin hefur
skipað sér fastari sess. í fyrra
var sent út í nóvember og des-
ember og í ár var byrjað tveim-
ur vikum fyrr, eða um miðjan
október. Og nú hafa fleiri hlust-
endur bætist í hópinn: „Við vor-
um að kaupa okkur stóran og
mikinn útvarpssendi og náum
lengra en áður. T.d. náum við út
í' Hrísey, á Árskógsströnd og
fleiri staði. En við náum ekki til
Dalvíkur eins og við ætluðum
okkur. Við erum mest svekktir
yfir því,“ segir Davíð.
Alls vinna um 25 manns við
dagskrárgerð á Frostrásinni og
er sent út frá sjö á morgnana til
klukkan eitt á nóttunni. Og þá
er bara að stilla á rétta tíðni:
FM98.7! AI