Dagur - Tíminn - 16.11.1996, Blaðsíða 3

Dagur - Tíminn - 16.11.1996, Blaðsíða 3
|jagur-®ínttrat Laugardagur 16. nóvember 1996 - 15 Sterk samstaða í sveitinni Fjölskyldan á Krossi í Lundarreykja- dal er búin að vera aðskilin í rúmt ár, en þrátt fyrir langar og án efa erfiðar ijarvistir hefur aðskilnaðurinn verið blandinn gleði og vaxandi bjartsýni síðasta mánuðinn. í sveitinni og það eru ekki síst börnin sem standa með Halldóri Bjarna, sum eru skólasystkin hans úr Kleppjárns- reykjaskóla en önnur þekkja hann að- eins af afspurn. Börnin í Andakflsskóla á Hvanneyri gerðu um 2.000 jólakort sem Ánægðir bræður, Halldór Bjarni farinn að hressast eftir aðgerðina og Siggi, litli bróðir, (t.v.) að sjálfsögðu ánægður að hitta bróður sinn heilan á húfi. Ástæðan fyrir þessum aðskilnaði er sú að elsti sonurinn, Halldór Bjarni Óskars- son, hefur verið í Gautaborg í Svíþjóð frá því í byrjun nóvember í fyrra og beðið þar eftir nýju hjarta og lungum. Loksins, 10. október síðastliðinn kom að stóru stundinni. Rétt líffæri voru til staðar og aðgerðin var gerð. Allt bendir til þess að hún hafi tekist vel og Halldór Bjarni er á miklum batavegi með nýtt lijarta og ný lungu. Það er ekki aðeins ijölskyldan á Krossi sem gieðst, íbúar byggðarlagsins gfeðjast með henni og vilja eiga sína hlutdeild í hamingjtmni á sama hátt og þeir hafa sýnt hluttekningu sína í barátt- unni og biðinni. Margir lagt hönd á plóginn Óhætt er að segja að samstaðan sé sterk þau teiknuðu sjálf og ætla að selja tii styrktar fjölskyldunni á Krossi. Þau gerðu það sama fyrir jólin í fyrra. Börnin í Kleppjárnsreykjaskóla fóru í 18 tíma áheitamaraþon á fimmtudaginn var. Til- gangurinn var að safna til styrktar fjöl- skyldunni á Krossi. Fjölskyfdan er að sjálfsögðu þakklát fyrir styrkinn, en Ósk- ar Halldörsson bóndi á Krossi og pabbi Halldórs Bjarna segir að söfnun af þessu tagi sé ekki síður mikill andlegur styrk- ur. „Þegar það var safnað fyrir okkur í fyrra þá var þetta alveg óskaplegur styrkur að vita hvað það voru margir sem hugsuðu til okkar. Eins núna líka eftir að þetta er búið hvað margir tala við mann og eru ánægðir með manni með það hvernig gengur.“ Óskar Halldórsson bóndi á Krossi hefur beðið heima og mjólkað kýrnar í heilt ár á meðan frumburðurinn hefur beðið eftir hjarta og lungum í Svíþjóð. Efinn hefur verið voðalega erfiður, „en nú er þetta orðið allt ann- að,“ segir Óskar. Mynd: ohr Óskar hefur verið heima og séð um búið ásamt yngri börn- unum Eygló 16 ára og Sigurði sem er 7 ára. „Það er búið að vera ansi erfitt," segir Óskar um biðina. „ Alltaf að bíða eftir því hvort eitthvað gerist. Eflnn er voðalega erfiður." Sigrún Sigurðardóttir, móðir Halldórs Bjarna, hefur verið hjá honum nánast allan tímann. Þau hjón- in skiptu í aprfl í fyrra, þá kom Sigrún heim en Öskar fór út. Næsta vor er loksins von til að íjölskyldan sameinist heima á íslandi. „Ég geri nú ráð fyrir að þau þurfi ekki að vera leng- ur en það úti,“ segir Óskar Meðfæddur hjartagalli Halldór Bjarni fæddist með hjartagaila. Hann var með tví- skiptar æðar þannig að það fór sama blóð út í lungun og lík- amann, en blandaðist ekki og súrefnisflæðið var því tak- markað. Tveggja daga gamall fór Halldór til London í aðgerð og svo aftur þegar hann var orðinn ársgamall. Umræðan innan heil- brigðiskerfisins íslenska kemur víða við og fjölskyldan fór ekki varhluta af henni. Við lá að Halldór Bjarni missti af líffær- Halldór Bjarni í gjörgæslu eftir líffæraskiptin. unum um tíma. „Það voru miklar um- ræður um að hætta að vera í Gautaborg og færa þetta allt til Danmerkur, en það voru bara íslensku læknarnir þarna úti, bæði Kristján og Felix, sem gengu í það að því var alltaf frestað, þannig að það bjargaði okkur. Ef þessu hefði ekki verið frestað þarna síðast um hálfan mánuð þegar voru ekki eftir nema bara fjórir dagar af samningnum þá hefði það verið Svíi sem hefði fengið þetta en ekki við.“ Óskar segir að mæðginin séu hin kát- ustu úti í Svíþjóð núna eftir aðgerðina. „Þetta er allt annað núna,“ segir hann og það er greinilegt að langvarandi þunga er af honum létt. Dagur-Tíminn samgleðst að sjálfsögðu fjölskyldunni á Krossi og sendir Halldóri Bjarna bestu bata- og baráttukveðjur til Svíþjóðar. -ohr Átján tíma maraþon Maraþondanshópurinn kominn á fulla ferð og allir í hörkustuði þó dagur- inn sé nýbyrjaður. Myndir: ohr Bæði í barnaskólanum á Ilvanneyri, Andakflsskóla, og Kieppjárnsreykjaskóla hafa krakkarnir lagt sig hart fram í stuðningi við annan ungan Borgfirðing, Halldór Bjarna Óskarsson, sem fékk nýtt hjarta og ný fungu í Svíþjóð fyrir rúm- verið að búa til jólakort í þús- undatali sem þau ætla að selja til styrktar Halldóri og íjöl- skyldu hans. Þetta hafa þau verið að dunda sér við á kvöldin eftir skóla og fengið til þess að- stoð hjá foreldrafélaginu ásamt kennurum skólans. Sælla er að gefa en þiggja,“ stendur skrifað. Það gætu verið einkunnarorð barnanna í Borgarfirði norðan Skarðsheiðar þessa dagana. um mánuði eftir tæplega árs- bið. Nemendurnir í Andakflsskóla sem eru 24 á aldrinum sex til tólf ára hafa undanfarnar vikur Nemendur í Kleppjárns- reykjaskóla sem eru á aldrinum sex til sextán ára tóku síðasta fimmtudag undir áheitamara- þon. Þau létu sér ekki nægja eina tegund maraþons, heldur stunduðu íjölbreytta iðju í átján tíma. Sum þeirra dönsuðu á meðan önnur léku körfubolta eða stunduðu stöðvaleikfimi á milli þess sem þau lásu. Lestur- inn var jafnframt því að vera maraþon liður í norrænni lestr- arkeppni sem kennd er við Mími. Yngstu börnin tóku það svolítið rólegar en þau eldri og Félagarnir Benedikt og Sigfús létu ekki sitt eftir liggja í maraþonlestrinum. . Þau voru meðal þeirra 24 A barna í Andakílsskóla á Hvanneyri sem bjuggu til jólakort í þúsundatali. Jólakortin ætla þau að selja til styrktar Halldóri Bjarna, hjarta- og lungnaþega: Anna Dís Þórarinsdóttir, Ágústa Hrund Þor- geirsdóttir, Álfheiður Sverrisdóttir og Haraldur Yngvi Júlíusson. fengu að fara heim um kl. 15:00. Þau eldri, krakkarnir í 8.-10. bekk héldu hins vegar ótrauð áfram fram á nótt. Upp- hafleg hugmynd var að krakk- arnir í skólanum sendu Halldóri Bjarna kveðju í tilefni af tíma- mótunum. Sú hugmynd vatt síð- an greinilega upp á sig. -ohr

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.