Dagur - Tíminn - 16.11.1996, Blaðsíða 7

Dagur - Tíminn - 16.11.1996, Blaðsíða 7
©agitr-Œmtmrt Laugardagur 16. nóvember 1996 -19 fangi á síðustu áifum í íslenskri heilbrigðisþjónustu. Það skal ósagt látið hvort það hefur stuðlað að bættri jmeðferð sjúk- dóma. En hjúkrunarfræðingar teygja sig reglulega yfir á svið lækna. Ég tel að verulega skorti á að það séu læknar í forystu í heilbrigðismálum og í þungum stjórnunarstöðum.“ Launin lág Einn vandinn í uppbyggingu sjúkrahúsanna hér á landi segir Stefán vera lág laun sjúkrahús- lækna, sem eru þau lægstu meðal lækna. Grunntaxti sjúkrahúslækna með sérmennt- un er um 160.000 kr. „Það hljómar kannski imdarlega í eyrum láglaunafÓlks en laun sjúkrahúslækna eru stórt vandamál. Ríkið hefur haldið fastalaunum lækúa alltof lágum þannig að læknalr taka hluta- störf á spítölunum, sinna þeim í hálfgerðu rassvasaformi en eru síðan með praxis 'úti í bæ. Með- an þessu verður ekki breytt verður ástundun lækna til að byggja upp starfið á sjúkrahús- unum ekki svipur hjá sjón.“ Svíaríki Jónína og Stefán eiga þrjú börn og Tómas sá yngsti var fimm sjónvarpsstöð í borginni og fyrir nokkrum árum tók hún við lík- amsræktarstöð sem var á ieið í gjaldþrot. Nú er stöðin að flytja í nýtt 2000 fermetra húsnæði, um 5% íbúa Helsingborgar eru „Við kynntumst á flugvell- inum í Keflavík. Hann var að fara til Bandaríkjanna að læra og ég til Kanada. Við spjölluðum bara eitt- hvað saman en mér fannst þetta náttúrulega stórglæsilegur maður. Svo skrifuðumst við eitthvað á, svona sem kunningjar. Fjórum árum seinna var ég kennari í Reykjaskóla og sé þá bróður hans í bankanum á Hvamms- tanga, rýk á hann og slengi á hann kossi, hélt að þetta væri Stefán. Ég er mjög mannglögg. En svo hringdi hann seinna og sagði Stefáni að ég væri flutt til landsins.“ þjálfunarskóla, næringarráðgjöf og gefur út blað fyrir leiðbein- endur fjórum sinnum á ári sem dreifist á allar stöðvar í Svíþjóð. Þá ferðast hún víða, heldur fyr- irlestra og kennir á erlendum heilsuræktarstöðvum. Nú síðast fór hún til Indlands þar sem hún setti handlóð í hendur fín- legra indverskra yfirstéttar- kvenna sem þóttu tækin víst heldur karlmannleg. Elítuklúbbur Komin með svo umfangsmikinn rekstur og stóran hóp starfs- fólks gat Jóm'na hætt í þolfimi- kennslunni. „Ég fór að gera það sem mig langaði alltaf að gera, kenna anatómíu og þess háttar. Ég var orðin svolítið þreytt á þolfiminni." Jónína mun halda rekstrinum áfram í Svíþjóð en hyggst færa út kvíarnar hér á landi í samvinnu við Flugleiðir. íslenska stöðin verður þó með öðru sniði þvi kúnnarnir í einkaklúbbnum sem hún mun opna á Hótel Esju í vor munu að öllu jöfnu ganga um með bólgnari seðlaveski en sænsku meðlimirnir. Á Hótel Esju mun hver kúnni hafa sinn einka- þjálfara. „Petta verður ekkert dropp-inn. Þú ert með þinn fasta tíma, eins og þegar þú ferð til tannlæknis." Stefán og Jónína hafa komið sér vel fyrir ásamt börnum sinum þremur í uppgerðu húsi í Þingholtunum. Jóhanna Klara, 12 ára, og Matthías, 9 ára, voru fjarri góðu gamni en Tómas Helgi 7 ára spratt upp þegar myndavélin var munduð. daga gamall þegar hann fluttist út. Jónína segir yndislegt að ala upp börn í Svíþjólð. Fyrstu árin hafi hins vegar reynst henni erfið og segir það að vera maki læknis ekki ósviþað hlutverki lífi sjómannskonunnar. „Maður er alltaf meira og minna einn. Mér hundleiddist þarna enda sá ég Stefán aldreí og skildi í rauninni ekki til hvers ég hafði flutt. Við höfum stundum sagt að það er varla á sömu mann- eskjuna leggjandi að vera gift læknastúdent og flytja svo til útlanda þar sem þeir gjörsam- lega hverfa út af heimilinu. Það þarf rosalega sterkt samband til að þola svona.“ Læknisfrúin Jónína var athafnakona áður en hún fór út og þótt leiðitöm væri eiginmanninum settist hún ekki í helgan stein í Svíþjóð heldur fór að kenna, lærði á tímabili kvikmyndatöku hjá meðlimir og Jónína var valin atvinnurekandi ársins í Hels- ingborg á þessu ári. Hver var galdurinn? Stefán: „Vel gift.“ „Ég má sennilega þakka þér ýmislegt en ekki þetta,“ sagði Jónína og skellti upp úr. „Ég hugsa að galdurinn hafi verið trú á þessa hugmynd að heilsu- rækt sé fyrir alla og að mark- miðið sé að láta sér líða vel. Svo valdi ég bara svona venjulegt, duglegt íþróttafólk í kennsluna. Mér tókst að fá almenning með mér og reyndi að gera þetta að raunhæfum atvinnurekstri. Mér fannst heilsuræktin farin að snúast upp í heldur hjákátlega sjálfsdýrkun." En Jónína gerði fleira en að reisa við heilsuræktarstöðina og setja heimsmet í fjölda þolfimi- tíma á viku. Hún opnaði leið- beinandaskóla fyrir öll Norður- löndin og útskrifar þaðan um 150 nemendur þrisvar á ári. Hún setti á laggirnar einka- Blekkti Volvo? - Nú hafið þið verið heima í nokkra mánuði. Sjáið þið eftir því að hafa látið Volvo laða ykk- ur heim? Stefán (óviss á svip): „Spurðu mig eftir hálft ár.“ Jónína (efins): „Ég er búin að eiga svolítið erfitt hérna. Mér leiðist minn bransi hér á ís- landi. Það er lítil samstaða í honum. Þetta eru eilíf stríð um verð og allir að gera það sama. Mér finnst allir traðkandi hver á öðrum. Það hafa að vísu nokkrir góðir staðir sprottið upp en ég bjóst við að einhver þróun hefði átt sér stað og það væri meiri metnaður fyrir greininni. Mér finnst að hórna bíði mín visst hlutverk. Ég átti ýmislegt ógert áður en ég flutti út. Hér er fullt af duglegu fólki sem ég ætla að vinna með. Þá er bara að bretta upp ermar og taka til hendi.“ LÓA íbúð óskast Kælismiðjan Frost óskast eftir 3 til 4na her- bengja íbúð á Akureyri til leigu sem fyrst. Uppl. í síma 461 1700. H F. KÆLISMIÐJAN FROST Framsókn í 80 ár FRAMSÓKNARFLOKKURINN 1916-1996 24. flokksþing Framsóknarmanna Hótel Sögu 22.-24. nóvember 1996 Dagskrá: Föstudagurinn 22. nóvember 1996 Kl. 9.15 Kl. 10.00 Kl. 10.10 Kl. 10.30 Kl. 10.45 Kl. 11.00 Kl. 12.00 Kl. 13.15 Kl. 14.15 Kl. 16.30 Afhending þinggagna Þingsetning Kórsöngur Félagar úr Karlakórnum Fóstbræðrum Kosning þingforseta (6) Kosning þingritara (6) Kosning kjörbréfanefndar (5) Kosning dagskrámefndar (3) Kosning kjömefndar (8) Kosning kjörstjómar (8) Skýrsla ritara Skýrsla gjaldkera Mál lögð fyrir þingið Skipan í málefnahópa v/ nefndarstarfa Umræður um skýrslur og afgreiðsla þeirra Matarhlé Yfirlitsræða formanns Almennar umræðu Nefndarstörf-starfshópar-undimefndir Laugardagurinn 23. nóvember 1996 Kl. 09.00 Kl. 11.00 Kl. 12.00 Kl. 13.15 Kl. 13.45 Kl. 16.15 Kl. 19.30 Almennar umræður, framhald Afgreiðsla mála - umræður Matarhlé Kosningar: Fulltrúar í miðstjóm samkv. lögum Opin afmælisdagskrá í Háskólabíói Nefndarstörf - starfshópar - undimefndir Kvöldverðarhóf í Súlnasal Sunnudagurinn 24. nóvember 1996 Kl. 10.00 Kl. 12.00 Kl. 13.20 Kl. 14.00 Afgreiðsla mála - umræður Matarhlé Kosningar: Formanns Varaformanns Ritara Gjaldkera Vararitara Varagjaldkera Afgreiðsla mála og þingslit að dagskrá tæmdri Tímasetning dagskráliða kann að taka breytingum fram að flokksþingi.

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.