Dagur - Tíminn - 16.11.1996, Side 4
16 - Laugardagur 16. nóvember 1996
iDagnr-Œtmtmt
HhíbJk
MENNING O G LISTIR
Ákveðið hefur verið að fœðingardagur Jónasar Hallgríms-
sonar, 16. nóvember, verðiframvegis Dagur íslenskrar
tungu. Dagurinn er nú haldinn hátíðlegur ífyrsta sinn og
óhœtt að segja dagskráin sé fjölbreytt. Þema dagsins í ár er
líf og list Jónasar Hallgrímssonar og yfirskriftin er einnig
frá Jónasi komin: „Móðurmálið mitt góða".
Frá æfingu hátíðardagskrár Leikfélagins og Tónlistarskólans á Akureyri.
Ég bið að heilsa
Listamenn láta ekki sitt eftir liggja á
Degi íslenskrar tungu. Á Akureyri
munu Leikfélagið og Tónlistarskóli
Akureyrar stilla saman strengi sína í
Samkomuhúsinu klukkan flmm í dag og
flytja dagskrá í tónum og ljóðum.
Dagskráin ber yfirskriftina „Ég bið að
heilsa", sem er tilvísun í alkunna son-
ettu Jónasar Hallgrímssonar en efnið
sem flutt verður er að meginhluta til eft-
ir hann. Það eru leikararnir Arnar Jóns-
son, Marta Nordal og Þráinn Karlsson
sem flytja ljóð og faust mál á sviðinu.
Auk upplesturs gefst gestum tækifæri á
að hlýða á nýjar útsetningar Guðmundar
Óla Gunnarssonar á lögum við ljóð Jón-
astar en tónlistina flytur strengjakvart-
ett félaga úr Sinfómuhljómsveit Norður-
lands. Umsjón með dagskránni í Sam-
komuhúsinu hefur Trausti Ólafsson,
leikhússtjóri. AI
Hvað œtlar Kristján Árnason,
formaður íslenskrar mál-
nefndar, að gera í dag?
s
g á að flytja ræðu á málræktarþingi
llí Islenskrar málnefndar í Háskólabíói
og þar verð ég frá ellefu til tvö. Síðan
hefði ég gaman af því að fara á Árna-
stofnun og hlusta á fyrirlestur um Jónas
Hallgrímsson. Ég verð síðan sjálfsagt í
Listasafninu og fylgist með þegar verð-
laun Jónasar Hallgrímssonar verða veitt.
Þannig að það er ljóst að nóg verður að
gera þennan dag.“
Kristján Árnason flytur fyrirlestur á málrækt-
arþingi íslenskrar málnefndar undir yfirskrift-
inni: „Eru íslendingar tvítyngdir?"
Annasamur dagur
Eg held að óhætt sé að segja að við-
brögðin hafi verið góð,“ segir Jón-
mundur Guðmarsson, verkefnis-
stjóri framkvæmdastjórnar, sem mennta-
málaráðherra skipaði til að undirbúa
daginn. Framkvæmdastjórnin valdi þá
leið að leggja áherslu á frjálsa þátttöku
fyrirtækja, stofnana, samtaka og félaga
og lítur því fremur á sig sem umsjónar-
aðila þessa átaks en stjórnanda. Og
áhuginn á móðurmálinu er greinilega
fyrir hendi hjá landanum því yfir 40 aðil-
ar hafa tilkynnt menntamálaráðuneytinu
um einhverskonar dagskrá á þeirra veg-
um í tilefni dagsins. „Þetta er ekki mið-
stýrður atburður sem ráðuneytið býr til
heldur er um daginn eins konar grasrót-
arumgjörð,“ segir Jónmundur. AI
Hugmyndin er að Dagur íslenskrar
tungu verði hátiðisdagur móður-
málsins og hefur forsætisráðuneytið
beint þeim tilmælum til opinberra
stofnana að flaggað verði í tilefni
dagsins.
Dagskrá
Þetta verður heilmikil dagskrá.
Krakkar í 6. bekk sjá um allan
upplestur en við höfum verið að
vinna að þessu í skólanum í hálfan mán-
uð,“ segir Heimir Kristinsson, kennari
við Dalvíkurskóla.
Halldór Blöndal er
einn margra sem
flytja erindi um Jón-
as Hallgrímsson í
dag. Hann verður á
Dalvík og tekur þátt
í dagskrá þar sem
skólabörn munu
lesa Ijóð og sögur
eftir skáldið.
á Dalvík
Dalvíkurskóli og Bæjarbókasafn Dal-
víkur eru meðal þeirra fjölmörgu sem
standa fyrir dagskrá tileinkaðri Jónasi
Hallgrímssyni í dag og fer hún fram á
bókasafninu klukkan þrjú. Þar munu
ungir nemendur vera með upplestur,
Tjarnarkvartettinn syngur og Halldór
Blöndal, samgöngurráðherra, verður
með erindi um skáldið. En hvernig ætli
11 ára krakkar kunni við ljóðin hans
Jónasar? „Þau skilja auðvitað ekki öll
orð sem eru í þessum textum en þegar
búið er að útskýra ljóðin sýna þau þessu
mikla ræktarsemi og gera þetta vel,“
segir Heimir.
AI
Hvað er á seyði?
Móðurmálið, þetta ástkœra glhgra, er mál málanna í dag.
Um allt land munu bókasöfn, skólar, listafélög, fgrirtœki, stofnanir og
einstaklingar halda Dag íslenskrar tungu hátíðlegan. Of langt mál grði
að telja upp alla viðburði sem auglgstir hafa verið í tengslum við daginn
en hér verður tœpt á nokkrum þeirra.
Höfuðborgarsvæðið
• íslensk málnefnd stendur fyrir mál-
ræktarþingi klukkan 11:00-14:00. Þrír flytja
fyrirlestur og síðar verða pallborðsumræður
undir stjórn Sigmundar Ernis Rúnarssonar.
Björn Bjarnason, menntamálaráðherra,
Árni Ibsen, rithöfundur, Kristrún Heimis-
dóttir, háskólanemi, Stefán Jón Hafstein, rit-
stjóri og Örn Kaldalóns, kerfisfræðingur,
taka þátt í pallborðsumræðunum.
• í Þjóðarbókhlöðunni verður samkoma
sett klukkan 15:00. Auður Laxness mun þar
afhenda handritasafn eiginmanns síns Hall-
dórs Laxness. Ýmis fleiri atriði á dagskrá.
• Klukkan 17:00 hefst samkoma í Lista-
safni íslands á vegum menntamálaráðu-
neytisins. Þar verða Verðlaun Jónasar Hall-
grímssonar veitt í fyrsta sinn fyrir störf í
þágu íslenskrar tungu en verðlaunin eru
500 þúsund krónur.
• Eiginhandarrit Jónasar Hallgrímsson-
ar verður til sýnis á Stofnun Árna Magnús-
sonar frá 14:00-16:00.
•Á bókasafni Kópavogs lesa unglingar
úr verkum Jónasar Hallgrímssonar klukkan
14:00-16:00. Kvæðamenn kveða rímur.
Akureyri
• Á Amtsbókasafninu verður stutt dagskrá
helguð Jónasi Hallgrímssyni sem hefst klukkan
13:00. Skúli Gautason, leikari, les úr ljóðum og
Gísli Jónsson fjallar um skáldið.
• í Akureyrarkirkju kiukkan 17:00 verða
lesnir valdir kaflar úr nýrri þýðingu Gamla
testamentisins og eldri þýðingum til saman-
burðar.
• Háskólinn á Akureyri stendur fyrir fyrir-
lestri um Jónas Hallgrímsson klukkan 14:00 í
Oddfellowhúsinu við Sjafnarstíg. Fyrirlesari er
Tryggvi Gíslason.
Landið
• fbúar Reykjanesbæjar geta skemmt sér á
dagskrá um Jónas Hallgrímsson í göngugötunni
fKjarna, Hafnargötu 57, klukkan 16:15. Leikfé-
lag Keflavíkur verður með upplestur og leik-
lestur og nemendur í söngnámi í Tónlistarskóla
Keflavíkur syngja lög við ljóð skáldsins
• Framhaldsskólinn á Laugum stendur fyrir
dagskrá klukkan 21:20 i matsal skólans. Nem-
endur flytja erindi um Jónas, lesið verður úr
ljóðum o.fl.
• f Grunnskólanum á Fáskrúðsflrði verður
dagskrá klukkan 16:00. Nemendur lesa ljóð
Jónasar og Ijalla um líf hans og list.