Dagur - Tíminn - 16.11.1996, Page 10
22 - Laugardagur 16. nóvember 1996 jDitgur-®mirrat
Heimsókn
í Hótel Svartaskóg
Svartiskógur. Upp í hugann
koma furðuverur kynjaðar
úr ævintýrum Grimms-
bræðra. Sveipaðar dulúð og æv-
intýraljóma. Enn sem komið er
tengjast þó engin ævintýri Hótel
Svartaskógi, sem í haust tók til
starfa austur á Héraði. Nema ef
vera skyldi ævintýraleg bjart-
sýni og dugnaður eigendanna
Helgu Jónsdóttur og Benedikts
Hrafnkelssonar. Segja má að
hótelið standi í túnjaðrinum hjá
þeim hjónum sem eru búsett á
Hallgeirsstöðum í Hlíðarhreppi.
Bærinn stendur drjúgan spöl
frá þjóðvegi og eru þangað um
30 km frá Egilsstöðum.
Ævintýrið hófst fyrir þremur
árum þegar Ilelga og Benedikt
keyptu vinnuskála Krafttaka
sem notaðir voru sem starfs-
mannaíbúðir við byggingu
Egilsstaðaflugvallar. Skálana
notuðu þau sem tvær gistiálmur
auk þess sem ein álma var tek-
in undir eldhús og aðstöðu fyrir
starfsmenn. Álmurnar þrjár
voru síðan tengdar saman með
tengibyggingu. Hana teiknaði
Björn Kristleifsson arkitekt, eft-
ir hugmyndum þeirra hjóna og
hýsir hún anddyri, matsal, setu-
stofu og bar, en hótelið hefur
vínveitingaleyfi.
Byggingin í heild fellur vel að
landslaginu og er hin snyrtileg-
asta bæði að utan og innan.
Þegar gengið er um gistiálmur
hótelsins minnir fátt á uppruna
húsanna, nema loftin sem eru
öll hvolflaga og máluð í björtum
litum og gefa herbergjunum
skemmtilegan svip.
En hvernig hefur þessu
framtaki verið tekið? Því svarar
Helga Jónsdóttir:
„Þetta hefur gengið ótrúlega
vel. Frá því að við opnuðum hér
í september hefur verið fullt að
gera hjá okkur allar helgar og
þá aðallega í veisluhöldum.
Fólki virðist þykja speimandi að
koma hingað og fá sér að borða
/W\
FRAMHALDSSKÓLINN
Á LAUGUM
Innritun á vorönn 1997
Innritun fyrir vorönn 1997 stendur yfir og lýkur 13.
desember nk.
Umsóknum nýnema skal fylgja afrit af grunnskóla-
skírteini. Ef um flutning á milli framhaldsskóla er að
ræða skal fylgja námsferill frá fyrri skóla.
Nám til stúdentsprófs á félagsfræðibraut og íþrótta-
braut.
Upplýsingar veitir áfangastjóri í síma 464 3330 og
skólameistari í 464 3112.
Framhaldsskólinn á Laugum.
AUGLÝSING UM STARFSLAUN
LISTAMANNA ÁRIÐ 1997
Starfslaun handa
listamönnum
Hér með eru auglýst til umsóknar starfslaun til handa lista-
mönnum árið 1997, í samræmi við ákvæði laga nr. 35/1991.
Starfslaunin eru veitt úr fjórum sjóðum þ.e.:
1. Launasjóði rithöfunda.
2. Launasjóði myndlistarmanna.
3. Tónskáldasjóði.
4. Listasjóði.
Umsóknir skulu hafa borist Stjórn listamannalauna, mennta-
málaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 105 Reykjavík, á þar til
gerðum eyðublöðum fyrir kl. 16.00 miðvikudaginn 15. janúar
1997. Umsóknir skulu auðkenndar „Starfslaun listamanna1'
og tilgreina þann sjóð sem sótt er um laun til. Umsóknar-
eyðublöð fást hjá menntamálaráðuneytinu.
Ath. Hafi umsækjandi áður hlotið starfslaun verður umsókn
hans því aðeins tekin til umfjöllunar að hann hafi skilað
Stjórn listamannalauna skýrslu um störf sín í samræmi við
ákvæði 4. gr. laga um listamannalaun nr. 35/1991.
Umsækjendur um starfslaun listamanna árið 1996 sem hafa
ekki sótt fylgigögn með umsóknum eru beðnir um að sækja
þau fyrir 1. desember nk.
Reykjavík, 15. nóvember 1995.
Stjórn listamannalauna.
Hótel Svartiskógur í Tunguásskógi.
og eiga saman notalega stund í
sveitasælunni. Það hefur t.d.
verið mikið um starfsmanna-
hópa bæði stóra og smáa og
ýmis félög og klúbbar hafa
komið hingað með fundi sína.
Mér sýnist að allt verði á fullu
hjá okkur fram að jólum. Við
getum tekið hér á móti u.þ.b.
20-30 manns í gistingu og mat-
salurinn hjá okkur tekur yfir
100 manns."
Nú er hótelið töluvert langt
frá þjóðvegi 1. Eruð þið ekki
hrædd um að það hafi áhrif á
aðsóknina?
„Sjálfsagt hefur það einhver
áhrif, en við erum samt bjart-
sýn. Við höfum t.d. fengið tölu-
vert af bókunum fyrir næsta
sumar án þess að vera auglýst.
Við höfum líka í hyggju að
koma hér upp fjölbreyttri af-
þreyingu fyrir gesti. A meðal
þess sem er á döfinni er að
koma upp mínígolfvelli og leik-
tækjum á grasflöt hér rétt hjá.
Einnig lumum við á ýmsum
hugmyndum um hvernig megi
laða fólk hingað á vetrum, en
hér er mikið vetrarríki og nóg
af snjó sem býður upp á ýmsa
möguleika. Náttúrufegurðin og
kyrrðin sem hér ríkir hefur líka
sín áhrif og flestir gestirnir okk-
ar tala um að hingað ætli þeir
að koma aftur."
Þar með er Helga þotin. Það
er veisla í kvöld og mikið að
gera í eldhúsinu þar sem hún
og kokkurinn, Alda Hrafnkels-
dóttir, töfra fram hvern veislu-
réttinn af öðrum. AÞ
Helga Jónsdóttir, hótelstýra, og Alda Hrafnkelsdóttir, matreiðslukona, á tröppunum í
Svartaskógi. Myn&.sbb
Sagan bak við nafnið
Einhver lesandi kann að
spyrja, af hverju nafnið
Svartiskógur?
s
bak við það er skemmtileg saga
sem felur í sér sérkenni mannlífs
á Austurlandi. Þar eru menn trú-
ir gömlum siðum og gefa gjarnan grönn-
um sínum viðurnefni. Benedikt bóndi á
Hallgeirsstöðum er einn þeirra sem hlot-
ið hafa þann heiður, en hann er dökkur
á brún og brá og gengur að jafnaði und-
ir nafninu Svarti Bensi, til aðgreiningar
frá öðrum Bensum austur þar. Þegar
hótelbygging hóf að rísa við jaðar
Tunguásskógar voru gárungarnir íljótir
til og nefndu staðinn Svartaskóg. Þegar
þeim Helgu og Benedikt barst nafngiftin
til eyrna, líkaði þeim hún svo vel að þau
ákváðu að halda nafninu.