Dagur - Tíminn - 16.11.1996, Qupperneq 18
30 - Laugardagur 16. nóvember 1996
Jbtgur-®œrám
S IC Á K
Systkinin Helgi Áss
og Guðfríður Lilja
Grétarsbörn
skrifa um skák
Vaxandi hraði, tímaskort-
ur og spenna sem ein-
kennir nútímaþjóðfélag
okkar endurspeglast í þróun
skáklistarinnar. Það er tákn
okkar tíma að kappskákmót,
þar sem hver skák tekur að
jafnaði nokkra klukkutíma og
mótshald stendur yfir í nokkrar
vikur, eru á undanhaldi fyrir
bæði hraðskák-, atskák- og
helgarskákmótum. Vönduð
íhugun víkur fyrir æsandi
snerpu.
Þessi hefur ekki alltaf verið
raunin, að minnsta kosti ekki
eftir gömlum ferðabókum og
lýsingum útlendinga á högum
okkar íslendinga að dæma.
Blefken segir þannig í pésa sín-
um um ísland frá 18. öld að „ís-
lendingar liggi í rúminu marga
daga um vetrartímann og tefli
skáktaíl". Þá segir Daninn Peter
Hraðar, hraðar!
Clausson fra því á svipuðum
tíma að „íslendingar séu svo
ágætir skákmenn, að þeir séu
stundum nokkrar vikur með
taflið, þótt þeir tefli á hverjum
degi“. Englendingurinn og
skákunnandinn Howard Staun-
ton, sem árið 1851 stóð fyrir
fyrsta alþjóðlega skákmótinu
sem sögur fara af, barðist af
kappi fyrir því að tímamörk
væru sett á skákir. Þá tíðkuðust
að jafnaði engar slíkar reglur
og ein skák tók fleiri klukku-
tíma, jafnvel marga daga. Sta-
unton reyndi eftir megni að
koma á einhvers konar tíma-
mörkum fyrir fyrsta alþjóðlega
mótið, en þrátt fyrir það ein-
kenndist það af hægri tafl-
mennsku þar sem klukkutímar
flugu fyrir einn einasta leik. í
einvígum eftir um 1850 voru
gerðar ýmsar tilraunir í Eng-
landi til að koma á tímamörk-
um. í einu einvígi var reglan sú
að enginn leikur ætti að taka
meira en 20 mínútur. Þrátt fyrir
það tók ein skákin meira en 15
klukkutíma, og flestar hinna
voru ekki undir 10 klukku-
stundum. f öðru einvígi var
reynt að tefla með stundaglös-
um. Ef meira en klukkutími
hafði gengið á annan hvorn
keppanda áður en hann hafði
leikið tuttugu leikjum átti hann
að játa sig sigraðan. Stundaglös
höfðu hins vegar augljós vand-
kvæði í för með sér, og oftar en
ekki hugsuðu keppendur ráð
sitt langt umfram þann tíma
sem þeim var ætlaður
án þess að vera
refsað. Það var
loks um 1880,
þökk sé ensku
hugviti, að skák-
klukkur í svipuðu
formi og við
þekkjum þær
nú komu til
sögunnar.
Skákmönn-
um, sem
uppi voru
fyrir 150
árum
síðan,
myndi
líklega
hrylla við
ef þeir
sæju
hversu stór
hluti tíma-
mörk eru
orðin í
mennu skáklífi nú á dögum.
Meistaramót í hraðskák, þar
sem hvor keppandi hefur að-
eins 5 mínútna umhugsunar-
tíma, eru nú daglegt brauð.
Yngri kynslóðin virðist ekki síst
veik fyrir hraðskák - því meiri
æsingur og hamagangur, þeim
mun betra!
Atskák verður og vinsælli
með hverjum deginum sem líð-
ur. Nú fyrir stuttu lauk „Evr-
ópinneistaramóti í atskák",
haldið í Frakklandi, þar sem 20
af ýmsu bestu skákmönn-
um heims öttu saman
kappi á styttri um-
hugsunartíma
en þeir eiga
að venjast.
Hver kepp-
andi fékk
hálftíma
fyrir
hverja
skák og
30 sek-
úndur til
viðbótar
fyrir
hvern
leik sem
nn lék. Úr-
slit urðu þau að
Anatoly Karpov vann, Van Wely
frá Hollandi lenti í öðru sæti og
Akopjan frá Armeníu í því
þriðja. Næstir komu Hracek,
Gelfand, Lautier, Smirin, Han-
sen, Adams og Leko.
Hór fylgir skemmtileg sókn-
arskák frá undanúrslitunum:
Hvítt: Akopjan, Armeníu
Svart: N. Short, Englandi
Frönsk vörn
1. d4 e6 2. e4 d5 3. Rd2 Rf6 4.
e5 Rfd7 5. c3 c5 6. Bd3 b6 7.
Rh3 Ba6
8. Bxa6 Rxa6 9. 0-0 b5
10. Dg4 Rb6 11. Rf3 Dd7 12.
dxc5 Rxc5 13. Rf4 g6 14. Be3
Rc4 15. Bxc5
Bxc5 16. b3 Rb6 17. Rd4 a6
18. Hadl 0-0-0 19. Rd3 Dc7
20. Rb4 Kb7 21.
Rdc6 Hc8 22. Ra5+ Ka7 23.
Rbc6+ Ka8 24. a4 bxa4 25.
De2 Rd7 26. Hal
Ba7 27. Hxa4 Rc5 28. Ha3 Db6
29. b4 Re4 30. Rxa7 Kxa7 31.
c4 Dxb4 32.
Hfal Hc7 33. Hb3? Dd2 34.
Dn Rc3? 35. c5 Re2+ 36. Khl
Hxc5 37. Hb7+
Ka8 38. Rb3 Dc2 39. Rxc5
Dxc5 40. Hb2 1-0
Björn
Þorláksson
skrifar
4 KT6
^ÁKG
♦ ÁD62
4 762
N
Þrautin
Norður/enginn á hættu
Sagnir:
Norður Austur Suður Vestur
1 grand pass 4 spaðar pass
pass pass
Útspil tígultía
4 ÁG9875
*8 7
♦ 3
* Á843
FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Umsókn um framlög úr
Framkvæmdasjóði
fatlaðra 1997
Stjórn Framkvæmdasjóðs fatlaðra auglýsir eftir um-
sóknum um framlög úr sjóðnum árið 1997. Um hlutverk
sjóðsins vísast til 40. gr. laga nr. 59/1992 um málefni
fatlaðra og reglugerðar nr. 204/1994 um Stjórnarnefnd
um málefni fatlaðra og Framkvæmdasjóð fatlaðra.
Umsóknum skal skila til hlutaðeigandi Svæðisskrifstofu
málefna fatlaðra sem veita nánari upplýsingar.
Svæðisskrifstofa Reykjavíkur, Nóatúni 17, Reykjavík.
Svæðisskrifstofa Reykjaness, Digranesvegi 5,
Kópavogi.
Svæðisskrifstofa Vesturlands, Bjarnarbraut 8,
Borgarnesi.
Svæðisskrifstofa Vestfjarða, Mjallargötu 1, ísafirði.
Svæðisskrifstofa Norðurlands eystra, Glerárgötu 26,
Akureyri.
Svæðisskrifstofa Norðurlands vestra, Ártorgi 1,
Sauðárkróki.
Svæðisskrifstofa Austurlands, Tjarnarbraut 39e,
Egilsstöðum.
Svæðisskrifstofa Suðurlands, Gagnheiði 40, Selfossi.
Umsóknum skal skila til svæðisskrifstofa fyrir 13. des-
ember1996.
Féiagsmálaráðuneytið, 14. október 1996.
Hvernig er best að
spila (sveitakeppni)
Þetta lítur út fyrir að vera létt
en ýmsir minni spámenn
myndu þó fara niður á spilinu.
Þeir myndu drepa á tígulás og
spila ás og kóngi í spaða. Gæfu
síðan að lokum þrjá slagi á lauf
og einn á spaða, þar sem allt
spilið er svona:
beinlínis eru sett til að villa þér
sýn í stað þess að hjálpa þér.
Nielsenfeðginin
sigursæl
8. nóvember sl. spiluðu 25 pör í
föstudagsbridge BSÍ 10 umferð-
ir og varð meðalskor 270. Efstu
pör:
4 KT6
** ÁKG
♦ ÁD62
* 762
4 D32
VT42
♦ T98
* KG95
N
V A
S
4 4
* D9653
* KG754
* DT
4 ÁG9875
»8 7
♦ 3
* Á843
Áður en sagnhafi snertir spil
á hann að gera sér grein fyrir
eftirfarandi: Það er mögulegur
tapslagur á tromp og til að
halda spilinu á lífi er nauðsyn-
legt að Iauftapslagirnir verði
ekki fleiri en tveir. Ef laufið
brotnar ekki 3-3 er nauðsynlegt
að trompa eitt lauf í blindum.
Sem sagt: Sagnhafi drepur á
tígulás og spilar strax laufi á ás
og meira laufi. Síðan er drepið
(skiptir ekki máli hverju and-
staðan spilar) og laufi spilað
aftur. Fyrst eftir að búið er að
trompa lauf, er tímabært að
snúa sér að spaðanum.
(Það gerir ekkert til þótt
mótstaðan trompi lauf. Til að
spilið fari niður þyrfti laufið að
brotna 0-5 og hvaða líkur eru á
því? Og ekki láta þig dreyma
um slag á hjartagosa eða tígul-
drottningu. Það eru spil sem
NS
1. Anna Guðlaug Nielsen-
Guðlaugur Nielsen 311
2. Vilhjálmur Sigurðsson jr.-
Jón Viðar Jónmundsson 396
3. Birna Stefánsdóttir-
Aðalsteinn Steinþórsson 302
AV
1. Halla Bergþórsdóttir-
Vilhjálmur Sigurðsson 313
2. Eðvarð Hallgrímsson-
Guðlaugur Sveinsson 309
3. María Asmundsdóttir-
Steindór Ingimundarson 306
Að tvímenningnum loknum
var spiluð miðnætursveita-
keppni með útsláttarformi og
varð Anna Nielsen einnig sigur-
vegari þar en með henni og föð-
ur hennar spiluðu Torfi Axels-
son-Geirlaug Magnúsdóttir.
Frá Bridgefélagi
Siglufjarðar
Spilamennska í Bridgefélagi
Sigluíjarðar er gróskumikil sem
fyrr og spila 20 pör að meðal-
tali á mánudagskvöldum, auk
þess sem félagar eru duglegir
að sækja mót innan kjördæmis
og utan. Að loknum 3 kvöldum í
Sigurðarmótinu í tvímenningi
eru Björk Jónsdóttir-Jón Sigu-
björnsson efst með 135 stig,
Anton-Bogi Sigurbjörnssynir
hafa 129 stig og Ólafur Jóns-
son-Jón T. Jökulsson hafa skor-
að 68 stig.
Efstu og neðstu pörin voru
dregin saman í tveggja kvölda
hraðsveitakeppni og varð loka-
staðan þannig að Sveit Önnu
Láru Hertervig varð hlutskörp-
ust með 816 stig. í henni spil-
uðu Anton-Bogi/Anna Lára-
Níels Friðbjarnarson.
Reykjavíkurmótið um
næstu helgi
Reykjavíkurmótið í tvímenningi
verður spilað með svipuðu sniði
og í fyrra. Spiluð verður undan-
keppni 23. nóvember og komast
16 efstu pörin í úrslit sem verða
spiluð á sunnudeginum. Spila-
mennska hefst kl. 11.00 á laug-
ardag og eru áætluð spilalok
um kvöldmat. 16 efstu pörin
taka með sér 15% skor í úrslit-
in. Á sunnudag hefst spila-
mennska kl. 11.00 og eru spila-
lok áætluð um 20.00.
Keppnisgjald er kr. 1500 á
spilara í undankeppnina og
bætast við 500 kr. fyrir þá sem
komast í úrslit. Núverandi
Reykjavíkurmeistarar eru Björn
Eysteinsson-Sverrir Ármanns-
son.
Guðmundarmótið
Sigur Grundfirðinga
Ragnar Haraldsson og Gísli Ól-
afsson frá Grundarfirði sigruðu
á 16. Guðmundarmótinu sem
fór fram á Hvammstanga um
síðustu helgi. Alls kepptu 19
pör. Lokastaða efstu para:
1. Ragnar-Gísli 65 stig
2. Rúnar Einarsson-Skúli
Skúlason 62 stig
3. Jón Ág. Guðmundsson-
Rúnar Ragnarsson 56 stig
4. Bogi Sigurbjörnsson-
Birkir Jónsson 34 stig