Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1981, Qupperneq 14
14
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1981.
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Þarerbyggtódýrt:
80 % BYGGJENDA GÆTU FENGIÐ
VERKAMANNAÍBÚDIR —ínýjasta byggingarflokknum
Fyrir verkfallið greindum við frá
því að Byggingarsamvinnufélag
Kópavogs hefði afhent 36 íbúðir sem
væru mun ódýrari en almennt gerist
og gengur. Okkur langar að fjalla
svolítið nánar um þetta hér á neyt-
endasíðunni því ódýrar íbúðir eru
neytendamál ef eitthvað er það.
íbúðirnar í húsinu við Engihjalla
25 sem verið var að afhenda voru
21—39% ódýrari en sambærilegar
íbúðir eru á föstum markaði. Ástæð-
una telja forsvarsmenn félagsins vera
fyrst ög fremst þá að félagið hefur
getað byggt hratt, skipulagt mikið
fram í tímann í einu og hefur átt
byggingarkrana og flekamót sem
notuð hafa verið í hús eftir hús. Eins
hefur skapazt dýrmæt reynsla við
hvert hús sem notuð hefur verið við
það næsta. Nú er fótunum að nokkru
kippt undan þessu vegna þess að bær-
inn hefur ekki haft undan að úthluta
félaginu lóðum. Því er ekki hægt að
skipuleggja eins langt fram í tímann
nú og verið hefur. En forsvarsmenn
félagsins sögðu á blaðamannafundi
þegar húsið var afhent að þeir treystu
því og tryðu að þeir fengju í framtíð-
inni lóðir eftir þörfum.
Byggingarsamvinnufélagið var
stofnað tveim árum áður en bærinn
sem það er kennt við varð til. Á
þessum 28 árum hefur verið byggt
mikið. Afhentar hafa verið 448
íbúðir og hafa kaupendur þeirra
verið af öllum stéttum þjóðfélagsins.
Greiðslur fyrir íbúðirnar fara fram
á þeim tíma sem tekur að byggja þær.
Þannig er í upphafi greitt stofnfram-
lag. f þau tvö og hálft ár sem tekur að
byggja íbúðirnar fara síðan fram
mánaðargreiðslur. Við birtum hér
með töflu um það hvernig þessar
greiðslur komu út í nýjasta húsinu.
Byggjendur hafa aðeins fengið venju-
leg húsnæðismálalán en nú er verið
að hugleiða aukna lánamöguleika
þannig að lengja megi greiðslutím-
ann. Það hefur vakið athygli að um
Stjórn Byggingarsamvinnufélagsins
og ýmsir starfsmenn þess i eldhúsi
einnar íbúðarinnar. Frá vinstri talið
og byrjað á karlmönnunum. Gisli
Hauksson, Gísli Lárusson, Sigurður
Ingi Ólafsson, Kristján Kristjánsson
formaður stjórnar, Gunnar Sigur-
jónsson, Sigtryggur Jónsson fram-
kvæmdstjóri, Grímur Runólfsson
fyrrverandi framkvæmdastjóri,
Jónas Kjartansson, Sturla Snorrason
og Björn Kristjánsson. Konurnar eru
Halla Jónsdóttir og Herdis Einars-
dóttir. DB-myndir Bj.Bj.
80% þeirra byggjenda sem eru í nýj-
asta flokki félagsins eru undir því
tekjulágmarki sem verkamannabú-
staðir miða úthlutun sína við.
íbúðirnar eru afhentar fullbúnar.
Það þýðir að í þeim eru eldhúsinn-
réttingar, skápar, eldavélar og hrein-
lætistæki. Þær eru einnig fullmálað-
ar og lóð er frágengin með merktum
bílastæðum, grasflötum og leik-
tækjum.
-DS.
BYGGINGASAMVINNUFÉLAG KÖPAVOGS. ENGIHJALLI 25. GREIÐSLUYTIRLIT OG SAMANBURÐARTÖUJR.
Dagsetning Verðbóta 2 2ja h. 58m 2ja h. raun- 3ja h. 74m2 3ja h. raun- 3ja h. 84m2 3ja h. raun- ? 4ra h. 9Qm 4ra h. raun-
greiðslu. stuöull. Greiðslur. gildi greið. Greiðslur. gildi greið. Greiðslur. gildi greið. Greiöslur. gildi greiðslna.
Júl-sep '79 811:309 24. 100 62.990 30.000 78.738 33.600 88.186 36.000 94.485
Okt-des '79 811:355 6.1 00 13.707 7.500 17.134 8.400 19.190 9.000 20.561
Jan-nar '80 811:398 n.no 22.618 13.800 28.120 15.600 31.788 16.800 34.233
Apr-jún '80 811:435 12.0J0 22.372 16.500 30.762 18.900 35.237 20.700 38.592
Júl-sep '80 811:490 12.000 19.861 16.500 27.309 18.900 31.281 20.700 34.261
Okt-des '80 811:539 12.000 18.056 16.500 24.827 19.800 29.792 22.500 33.854
Jan-mar '81 811:626 12.000 15.546 17.250 22.348 21.000 27.206 24.000 31.093
Apr-jún '81 811:682 13.500 16.054 18.750 22.297 22.500 26.756 25.500 30.323
Júl-sep '81 811:739 16.500 18.108 20.250 22.223 24.000 26.338 27.000 29.631
Okt-des '81 811:811 18.000 18.000 . 21.900 21.900 26.100 26.100 29.100 29.100
Jan-nvar '82 811:892 16.500 15.002 15.600 14.183 16.500 15.002 18.000 16.365
Apr '82 811:981 5.500 4.547 5.200 4.299 5.500 4.547 6.000 4.960
Húsn. lán. 811:811 92.000 92.000 118.000 118.000 118.000 118.000 118.000 118.000
Greiðslur
byggjenda 251.000 317.750 348.800 373.300
Raungildi greiðslna 338.861 432.140 479.423 515.458
i nov. 1981 .
Verð samsk. íbúðar samkv. 359.550 451.272 506.305 548.497
byggingavisitölu.
Mismunur á verði vísitölu, 6,1% 4,4% 5,6% 6,4%
og íbúðar hjá Bsf. töp.
/fetlaö markaðsverö. 470.000 560.000 580.000 700.000
Mismunur á markaðsveröi og 39% 30% 21% 36%
rauneildiT ereiðslna.
Kjötbúð-
ingurmeð
sætum
maís
Uppskrift dagsins er að fljótlegum
og þægilegum rétti. Hún er úr bók-
inni Lostæti með lítilli fyrirhöfn.
Kjötbúöingur
í sætum mafs
Efni:
1 knippi perlulaukur
1 dós (340 g) maís
1 dós (340 g) kjötbúðingur
30 g felll
salt og pipar eftir smekk
4 sneiðar franskbrauð eða form-
brauð.
Undirbúningur:
10 minútur
Suðurtimi:
10 minútur
Hreinsaðu og saxaðu laukinn.
Geymdu nokkra til skreytingar.
Láttu renna af maísnum. Skerðu
kjötbúðinginn í teninga og steiktu við
vægan hita þar til hann er orðinn
fallega brúnn. Þá bætir þú maísnum
og saxaða lauknum saman við.
Kryddaðu og bragðbættu eftir
smekk. Láttu hitna og helltu síðan
hrærunni á fat.
Á meðan búðingurinn er að brún-
ast ristarðu brauðið og skerð í fallega
þríhyrninga. Raðaðu brauðsneiðun-
um kring hræruna á fatinu og
skreyttu með perlulauk.
Húsráð:
Brauðþríhyrningar: Skerðu skorp-
ur og hliðar af brauðsneiðinni þar til
hún er sem næst ferhyrnd. Þá deilir
þú henni í fernt með því að skera frá
horni til horns.
P.S. í þessari uppskrift er talað um
perlulauk. Það hygg ég að sé venju-
lega orðið yfir chalottlauk. En á
myndinni og uppskriftinni að dæma
sýnist mér að fremur muni vera átt
við það sem ég hef alltaf heyrt kallað
graslauk. En það ætti ekki að skipta
máli í uppskriftinni hvor gerðin er
notuð og hæglega má nota venjuleg-
an lauk. -DS.