Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1981, Qupperneq 18
■W?'
.18
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1981.
Ljósin í lagi
- lundin góð
Slík áhrif hafa
rétt stillt Ijós
í umferóinni.
yUMFERÐAR
RÁÐ
SIMI
ír ☆☆☆ ☆☆ ☆
«•
«■
«■
«■
«■
»■
«■
«■
«■
Jí-
«-
«■
«■
«■
«■
«■
3-
18936
Frumsýnir í dag
hryllingsmyndina
Bannhelgin
íslenskur texti
-tr
-tt
-ts
■ts
-t!
-Ct
-tt
-tt
-ít
-tt
-tt
-tt
-tt
-tt
-tt
-tt
-tt
-tt
-tt
-tt
-tt
-tt
-tt
-tt
-ti
-tt
-tt
-tt
-tt
-tt
-tt
-ti
-ít
-tt
-tt
-tt
-tt
-tt
-tt
-ti
-tt
-tt
-tt
-ít
-Ct
-tt
-íi
-ti
-tt
-tt
-tt
-ti
-tt
-tt
-tt
Æsispennandi og dularfull amerfsk hryllings-
mynd í litum
Leikstjóri Alfredo Zacharias.
Aðalhlutverk: Samantha Eggar, Stuart Whit-
man, Roy Cameron Jenson.
Sýnd kl. 5, 9.10 og 11
Bönnuð börnum innan 16 ára
Útlönd Útlönd
Vilja skylda fram-
leiðendur tíl að
hafa öryggispúða
i öllum bfíum
Bandarísk tryggingarfélög freista
þess núna að fá dómstóla til þess að
skylda bílaverksmiðjur til að búa nýj-
ustu bílana út með sjálfgirtum öryggis-
beltum og loftpúðum í stýri.
Því er haldið fram að þessi útbún-
aður leiði ekki af sér nema 200 dollara
kostnaðarauka í framleiðslunni en
mundi fækka dauðaslysum í umferð-
ihni árlega um 10 þúsund.
Að þessu standa samtök óháðra
tryggingarfélaga en þau taka til um 500
tryggingarfyrirtækja. Liggja þau
Reaganstjórninni á hálsi fyrir að hafa í
síðasta mánuði fallið frá setningu
reglugerðar sem fól í sér að skylda
framleiðendur til þess að koma slíkum
öryggisútbúnaði fyrir í bílum. Var
ætlunin að allir bílar sem rynnu út úr
verksmiðjum árið 1983 væru þannig út-
búnir, en fyrsti áfangi reglugerðarinnar
átti að taka gildi i ár.
Washingtonstjórnin féll frá reglu-
gerðinni vegna barlóms bílaframleið-
enda en bílaframleiðsla í Bandaríkjun-
um hefur verið í mikilli kreppu síðustu
árin. Töldu framleiðendur þennan
öryggisbúnað ekki svara kostnaði.
Tryggingaraðilar telja að útbúnaður-
inn gæti leitt af sér 30% lækkun trygg-
ingariðgjalda og milljarða sparnað í
sjúkrahjálp vegna slasaðra í umferð-
inni.
USA:
TIMOLOL -
HJARTALYF
GEFIÐ FRJÁLST
Leyft hefur verið í Bandarikjunum
að selja lyf sem þykir draga úr hættu á
að hjartasjúklingar verði bráðkvaddir
og það þótt þeir hafi áður fengið
hjartaáfall.
Lyfjaskrárnefnd þeirra í USA hefur
gefið frjálst, að lyfið timolol verði sett
á markað en það þykir hafa lengt aldur
þeirra sem lifað hafa af hjartaslag um
fjórðung. En skýrslur sýna að það er
altítt að slíkir sjúklingar deyi innan
tveggjaára.
Timolol er úr lyfjaflokki sem kall-
aður er „beta blockers” en það verkar
á hjartsláttinn svo að hann verði
hægari. Er timoloi talið auðvelda las-
burða hjartavöðva erfiðið. — Þó geta
asma-sjúklingar ekki notað timoiol við
hjartakrankleika.
Slíkir loftpúðar eiga að verða skylda,
að kröfu tryggingafélaga.
Tilræðismaðurinn fær
geðlæknisaðstoð
Dómarinn í máli John Hinckleys,
tilræðismanns Reagans Bandaríkjafor-
seta, hefur leyft að hinn ákærði fái
aðstoð geðlæknis, í von um að
Hinckley reyni ekki í þriðja sinn að
ráðasigaf dögum.
Sálfræðingar verjandans segja að
miklir möguleikar séu á að hinn 26 ára
gamli Hinckley reyni enn og aftur að
fyrirfara sér. — Núna síðast þann 15.
nóvember reyndi hann að hengja sig i
fangaklefa sínum og hafði áður
skorðað af dyrnar innan frá, svo að
litiu munaði að verðirnir næðu ekki til
hans i tæka tið. í maí í vor tók hann inn
of stóran skammt lyfja meðan hann
gekk undir geðrannsókn.
Dómarinn veitti leyfið en tók fram
að geðlæknishjálpin lyti ekki að því að
endurmeta geðheilbrigði sakbornings-
ins. Það mun bíða réttarhaldsins.
Verjendur Hinckleys hyggjast byggja
vörnina á kröfu um, að hann verði
úrskurðaður ósakhæfur vegna geð-
veiki.
Hinckley leiddur álciðis i fangelsi, þar
sem hann hefur tvivegis gert tilraun til
þess að fyrirfara scr.