Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1981, Qupperneq 39
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1981.
39
Sjónvarp
Veðrið
ÁBÖKKUM
RÍNAR
—útvarpíkvöld
kl. 22,35:
„Þetta eru fimm tæplega hálftíma
þættir sem ég flyt að þessu sinni, viku-
lega. Og ég hygg að bókasafnsfræðing-
ar myndu fella þá undir ferðaþætti
innan um frásagnir manna sem fara á
barnakennara þing í Noregi eða í kór-
söngsierðalög til Irlands en mikið er til
af svoleiðis litteratúr, en það er svo til
eini allsgáði ferðamátinn sem til er í
þessu landi nú orðið,” sagði Jónas
Guðmundsson stýrimaður, myndlistar-
maður, blaðamaður og rithöfundur
með meiru þegar hann var spurður um
útvarpsþættina Á bökkum Rinar.
Fyrsti þátturinn með því nafni verður
fluttur í kvöld eftir tíufréttir'nar.
„Þetta eru annars ömurlegir þættir
sem þó hanga annað slagið uppi á ein-
hverjum lýrískum snögum og hið mikla
fljót, Rín, er í bakgrunni, eða á öllu
heldur að vera það. Kannski má segja
eins og Kjarval sagði þegar einn af
snillingunum ritaði um hann bók:
„Merkilegt að honum skyldi takast að
nefna nafnið mitt tvisvar eða þrisvar.”
Annars nær þessi ferðasaga frá
Amsterdam í Hollandi til Bellizona í
Sviss en borgin liggur við Targa vatnið
og þar eru aðstæður svo haganlegar að
maður býr í Sviss en borðar á Ítalíu sem
er nánast það sama og að borða á
Hótel Vík en stanga úr tönnunum á
Hótel Borg en það gjörðu ýmsir merkir
íslendingar á kreppuárunum.
Það er annars hálfeinkenniiegt bland
í þessari ferð. Ferðalagið byrjar nefni-
lega á sjávarbotni eða það hefst fyrir
neðan sjávarmál á Schiphol flugvelli
við Amsterdam sem er tvo metra undir
sjávarmáli en þar var áður dálítið inn-
ÞAR ER SAGAN EKKI
SETT í LÍKHÚSIÐ
haf sem flugvöllurinn er núna. Harlem
vatnið nefndu menn þann stað og þar
voru meira að segja haldnar merkilegar
sjóorrustur í eina tið. Vilhjálmur þögli,
prins af Orange sem Frakkar gerðu að
landstjóra í Niðurlöndum barðist þar
við sænska flotann en hann vikii sam-
eina Niðurlönd og hefur það sjálfsagt
ekki gengið hávaðalaust fyrir sig hjá
þessum annars þögla manni því hundr-
uð skipsflaka komu í ljós með hvítum
beinagrindum þegar byrjað var að dæla
vatninu yfir akra og til sjávar um miðja
síðustu öld. Nú ferðin hefst sumsé á
hafsbotni og hún endar í ölpunum í
nánd við upptök Rínar.
Við erum á ferð með fjögur börn á
aldrinum frá 6 mánaða til 9 ára með til-
heyrandi bleyjuþvotti, barnavagna- og
kerruakstri og mestan part var gist á
tjaldstæðum sem eru yndislegir staðir
fyrir börn og fullorðna þótt þau séu
talin fátækra bæli á íslandi.
Segja má að ferðazt sé frá einu
þvottahúsinu til annars fremur en milli
frægra borga og undir þungum niði
Rínar grátum við okkur í svefn hverja
nótt.
Inn í þetta blandast svo ýmsar minn-
ingar frá fyrri dögum því maður hugsar
mikið á 5 þúsund kílómetra Ieið sem
liggur yfir þögla vígvelii, múra, yfir
akra og svarta mold.
Það er munurinn á íslenzkri sögu og
evrópskri að hún er yfirleitt grafin upp
með teskeiðum og flutt í líkhús hjá
Þjóðminjasafninu. Á meginlandinu
stendurðu hins vegar andspænis sög-
unni hvern dag, ekur á eftir herbílum
og skriðdrekum eða horfist í augu við
þjáninguna í aldagömlum kirkjum,
turnum og múrum, sem með einkenni-
legum hætti hafa lifaðþað af að menn
fundu upp deiliskipulagið og púðrið,”
sagði Jónas Guðmundsson.
-DS.
TIMAMOT - útvarp í dag kl. 15,10:
HEIMUR HÁSKÓLA-
KONUNNAR TEKUR
STAKKASKIPTUM
—saga eftir Simone de Beauvoir
„Þessi saga fjallar um konu sem
komin er yfir sextugt. Eins og nafnið
bendir til verða nokkur tímamót í lífi
hennar,” sagði Jórunn Tómasdóttir
umsögunaTímamót sem hún byrjaði
að lesa í útvarpinu í gær sem miðdeg-
issögu. Annar lestur er í dag. Sagan
er eftir Simone de Beauvoir og er
Jórunn þýðandi.
Sagan Tímamót er eiginlega löng
smásaga sem birtist i bókinni La
femme rontue ásamt tveim sögum
öðrum fyrir nokkuð mörgum árum.
„Konan sem sagt er frá hefur eytt
ævi sinni í að kenna. Fyrst við
menntaskóla og síðan við Sorbonne
háskóla. Einnig hefur hún skrifað
greinar um þá gömlu frönsku heim-
spekinga, Rousseau og Montesque.
Um það leyti sem sagan hefst hefur
hún skrifað bók sem fær afskaplega
slæma dóma. Hún er einnig að slitna
úr tengslum við son sipn. Hann giftist
stúlku sem er móðurinni ekki að
skapi og hættir háskólanámi sem hún
hafði lagt allt í sölurnar til að hann
gæti stundað.
Aldurinn er einnig tekinn að færast
yfir og verður konan að gera lif sitt
upp,” sagði Jórunn.
Höfundur sögunnar, Simone de
Beauvoir, er einn af mest metnu
frönsku rithöfundum þessarar kyn-
Simone de Beauvoir er komin á efri
ár. Hún er að skrifa um þessar mund-
ir ýmislegt um samlif sitt og Jean-
Paul Sartre.
slóðar. Hún er nú komin á áttræðis-
aldur og skrifar enn. Núna er hún
að skrifa ýmislegt um Jean-Paul
Sartre, sem ekki var síður frægur rit-
höfundur, en þau áttu í frægu ástar-
sambandi í áratugi. Aldrei bjuggu
þau þó saman nema á ferðalögum en
voru Iíkamlegir og andlegir félagar.
Á þeim tímum sem sambandið hófst
vakti það mikla athygli og leikur
fólki enn hugur á að vita allt um þetta
sérstæðasamband.
-DS.
Jónas Guðmundsson og kona hans Jónina Jónsdóttir með eitt af börnum sinum
fjórum sem i ferðina fóru. Barnið er reyndar orðið ögn stærra núna en þegar myndin
var tekin.
NÝTT!
r
l
Kajfivagninum
%ínve
kvöld
í kvöW
og
ö« pf1
lcvölö
i<j M tírfr II
KAFFIVAGNINN
VIÐ GRANDAGARÐ - SÍMI 15932
Veðurspá
dagsins
Búisi er við stormi á suðvestur-
miðum, suðausturmiðum og
Færeyjadiúpi, suðausturdjúpi og
suðurdjúpi. Skammt suðvestur af j
Vestmannaeyjum er 978 mb. lægð á
hægri hreyfíngu austur. Hiti verður
víðast um frostmark á láglendi.
Suðurland og Faxaflói: Stytt upp
með norðaustan stinningskalda eða
allhvössum vindi.
Breiðafjörður: Austan og síðan
norðaustan stinningskaldi eða
allhvasst. Skýjað og sumstaðar él í
nótt.
Vestfirðir: Austan og norðaustan
stinningskaldi eða allhvasst. Víða |
bjart veður til landsins fram eftir
degi en síðan él, einkum
norðanlands.
Strandir, Norðvesturland og |
Norðurland eystra: Austan
stinningskaldi á miðum en hægara
til landsins og él austan til í dag.
Norðaustan stinningskaldi eða
allhvasst og kalt og él eða snjókoma
í nótt.
Austurland að Glettingi:
Suðaustan og siðan austan
stinningskaldi eða allhvasst.
Snjókoma.
Austfirðir: Austan stinningskaldi
eða allhvasst. Snjókoma.
Suðausturland: Austan hvassviðri
og sumstaðar stormur á miðum og
slydda. Víðast rigning.
Veðrið
hér og þar
Akureyri snjóél -3, Bergen
léttskýjaðO, Helsinki snjókoma-3,
Kaupmannahöfn léttskýjað 2, Osló
léttskýjað -4, Reykjavík skýjað 2,
Stokkhólmur skýjað -3, Þórshöfn
snjókoma 2.
Kl. 6 i gær:
Aþena skýjað 6, Berlín snjóél,
Chicago mistur 3, Feneyjar
þokumóða7, Frankfurt hálfskýjað
7, Nuuk léttskýjað -7, London
skýjað 3, Las Palmas skýjað 21,
Mallorka hálfskýjað, Montreal
alskýjað -4, New York heiðskirt 4,
París skýjað 2, Róm þokumóða 11,
Maiaga mistur 16, Vín heiðskírt 3,
Winnipeg alskýjað -1.
Bella
Hvar lét ég bikiniö?
Athugaöu undir billyklun-
um.