Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1981, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1981, Blaðsíða 19
19 DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 1981. Sigurður A. Magnússon MÖSKVAR MORGUNDAGSINS Þetta er sjállstœtt íramhald metsölubókarinnar Undir kalstjprnu. Þegar frásögnin heíst er söguhetjan 9 ára og þegar henni lýkur er hann kominn „í íullorðinna manna tölu." Möskvar morgundagsins er ekki síður en fyrri bókin fallegt og átakanlegt lista- verk og um leið sérstœð aldaríarslýsing aí þeim sviðum Reykjavíkurlíísins á kreppu- og hemámsárum sem lítt hefur fyrr verið hampað í bókum. Jakobína Sigurðardóttir í SAMA KLEFA Aðalpersónur eru miðaldra kona og ung stúlka sem verða af tilviljun samskipa á leið suður. Áþeim rúma sólarhring sem ferðin tekur segir eldri konan þeirriyngri slitur úr œvisögu sinni. Af hversdagslegri írásögn hennar - og ekki síður þvi sem hún lœtur ósagt - nemur lesandinn örlagasögu umkomulausrar manneskju og það hugaríar sem til verður í harðbýlum og aí- skekktum byggðum og skapar henni örlög. Er þá ónefnd lýsing ungu konunn- ar og að hve miklu leyti hennar bíður sams konar hlutskipti þrátt íyrir þá upp- reisn sem henni býr í brjósti. Hér er mikilli sögu þjappað saman á íáar blaðsíður í bók sem enginn bókmennta- unnandi má láta fram hjá sér fara. Einar Kárason ÞETTA ERU ASNAR GUÐJÓN Bráðvel skrifuð íslensk nú- tímasaga. Aðalpersóna er ungur maður sem er í upp- reisn gegn umhveríi sínu. uppreisn sem er hálfáttavillt og steínulaus. Við fylgjum honum eftir í stúdentsprófs- fylliríi sem œtlar engan enda að taka. í kommúnu gamalla skólafélaga sem haía sest að á sveitabœ til að nýta gœði landsins, í misheppnaðri tilraun til háskólanáms og á trillu og togbát þar sem lítið íer fyrir sjómannarómantík í lýsingu höfundar. Vandfundin er jaín hnyttin lýsing á lífi og hugsunar- hœtti ungs fólks nútímans og í þessari bók. Málíarið er ósvikið og sver sig í œttína og sagan er auk þess krydduð með hráslaga- legum gálgahúmor sem hœfir eíninu einkar vel. Vilborg Dagbjartsdóttir UÓÐ Ljóðasafn eins aí allra list- íengustu ljóðskáldum okkar. Hér er að finna allar þœr ljóðabœkur sem Vilborg hefur gelið út, Laulið á trjánum, Dvergliljur og Kyndilmessu. Til viðbótar eru hér prentuð ljóð sem síðar hafa birst í blöðum og tímaritum. Er ekki minnstur fengur að fá þau kvœði öll saman á einum stað því meðal þeirra eru mörg aí merkilegustu ljóðum Vilborgar. Jón Reykdal teiknaði kápu og sá um útlit bókarinnar. Tryggvi Emilsson KONA SJÓMANNSINS og aðrar sögur Æviminningar Tryggva Emilssonar haf a notið mikillar hylli og viður- kenningar. Sögur þessarar bókar eru skáldsögur þó að þœr sœki að einhveiju leyti efnivið sinn til raunveru- leikans. Sögusviði í Konu sjómannsins svipar að tals- verðu leyti til œviminning- anna, þar er lýst lífsbaráttu fólks og byrjandi verkalýðs- baráttu í ungum og vaxandi kaupstað þar sem óbrúan- legt djúp er milli stétta. í bókarlok eru nokkrar smœrri sögur þar sem frá- sagnargáfa höfundar nýtur sín einna best. Mikhaíi Búlgakof MEISTARINN OG MARGARÍTA Söguþráð þessarar mögnuðu og œrslafullu skáldsögu er eríitt að rekja í stuttu máli. Hér er fléttað saman píslarsögunni og frá- sögn aí því er andskotinn og árar hans heimsœkja Moskvu - og setja allt á annan endann. Það íólksem aí því hlýtur uppreisn, örlagasaga þess og ástar- saga. er þungamiðja bókar- innar upp frá því. Mikhaíl Búlgakof (1891- 1940) lauk við þessa skáld- sögu skömmu fyrir andlát sitt og var þá lítil von til þess að sagan kœmist nokkru sinni á prent. Frumprentun var í sovésku tímariti 1966-7. með ýmsum úríellingum. í þýðingu Ingibjargar Haraldsdóttur, sem gerð er beint úr rússnesku, er sagan óstytt. Snorri Hjartarson KVÆÐ11940-1966 Heildarsaln ljóða Snorra Hjartarsonar fram að verð- launabókinni Hauströkkrið yfir mér. Myndskreytingar eftir Jón Reykdal. Bók sem enginn ljóðaunnandi getur án verið. William Heinesen KVENNAGULLIÐ í GRÚTARBRÆÐSLUNNI Fimmta bókin í sagnasafni Heinesens í þýðingu Þorgeirs Þorgeirssonar. Um siðustu bók sögðu gagnrýnendur m.a.: „Er nú ekki að orðlengja það að slíka bók leggja menn frá sér með þakklœti og biðja William Heinesen að liía í hundrað og tuttugu ár. Þorgeir Þorgeirsson lœr ósvikið lof fyrir þýðingu sína sem hinar fyiri í þessu ritsafni - hún er á miklu máli og góðu." ÁB Þjv. „Þessar dýrlegu smásögur Heinesens eiga eflaust eftir að vera öllum unnendum hans kœrkomin upplyíting í annars snautlegu jólabókaílóði." SSHp. „Þegar öðru hverju er verið að rífast út af Norrœna þýðingarsjóðnum. aldrei heyrist þá neínt hvað við eigum sjóðnum að þakka... í mínum huga er enginn vaíi á því að þýðingar Þorgeirs Þorgeirssonar eru það sem við eigum sjóðnum mest að þakka það sem af er." ÓJ Dbl. „Sem bókmenntaverk er „Það á að dansa" með þvi besta aí þýddu efni, sem undirritaður hefur fengið til lestrar mjög lengi." JGTíminn. Maj Sjöwall og PerWahlöö MAÐUR UPPIÁ ÞAKI Sjöunda bókin í hinum vinsœla lögreglusagna- flokki Skáldsaga um glœp. Þessar bœkur haf a komið út í 22 þjóðlöndum og hvarvetna notið mikilla vin- sœlda. Eftir þessari sögu gerði Bo Widerberg kvikmynd sem m.a. hefur verið sýnd hér á landi. Þýðandi er Ólafur Jónsson. Richard Llewellyn GRÆNN VARSTU DALUR Saga námumannaíjölskyldu í Wales skömmu íyrir síðustu aldamót. Sagan er í senn uppvaxtarlýsing, þjóð- íélagsleg skáldsaga og ástarsaga. Engum dylst aö höfundur nauðþekkir það fólk sem hann lýsir og að það á samúð hans óskipta. Saga þess verður heillandi lestur, ljóðrœn, full af hlýju. skaphita, angurvœrð og góðlátlegri kímni. Þessi skáldsaga hefur hvarvetna íarið siguríör. Þýðing Ólafs Jóhanns Sigurðssonar var íyrst prentuð 1949ogseldistupp á tveimur mánuðum en hefur ekki verið endurprent- uð fyrr en nú. Vésteinn Lúövíksson í BORGINNI OKKAR Sögur og ævintýri frá kostulegri tíð. Vésteinn Lúðvíksson er löngu kunnur sem einn fremsti rithöfundur okkar. Með þessu sagnasaíni mun hann þó enn koma lesend- um sínum á óvart. Hann íjallar hér um samtíð okkar frá sjónarhóli framtíðar- innar og birtir hana um leið í nýju og kostulegu ljósi. Lestur þessara sagna er ekki síður skemmtun en opin- berun á þeim veruleika sem við þekkjum best. Það er góður sögumaður sem heldur á penna. Kristján Jóhann Jónsson HAUSTIÐ ER RAUTT Fjölskrúðug nútímasaga sem gerist í íslensku þorpi og sveitinni þar i kring. Þetta þoip er þó ekki allt þar sem það er séð. í rás sögunnar tekur það t.a.m. stökkbreyt- ingu og þenst út í allar áttir. Er ekki að íurða þótt ýmsar aí sögupersónum verði átta- villtar og að háttvirtur höíundur óttist að missa allt útúrhöndumsér. Kristján Jóhann Jónsson er f. 1949. Hannkennirnúvið Menntaskólann á Egils- stöðum. Haustið er rautt er fyrsta skáldsagan sem eítir hann birtist. Mál M og menning

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.