Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1981, Blaðsíða 16
Fólk
Fólk
Fólk
Fólk
Gömlu
jaxlamir
— teknirtalií
Vesturbæjar-
sundlauginni
í siðustu viku átti Sundlaug vestur-
bæjar tuttugu ára afmæli. Af því til-
efni brugðu DV-menn sér einn morg-
uninn á staðinn og spjölluðu við
gömlu jaxlana sem mætt hafa í laug-
ina alla morgna síðan hún hóf starf-
semi sfna.
„Við erum svona um tíu talsins,
sem mætt höfum á hverjum morgni
jiessi tuttugu ár, en við erum allir
búnir að stunda þetta í yfir fjörtíu ár,
til að byrja með í Sundhöllinni og
Laugardalnum,” sögðu kapparnir
kampakátir.
„Síðan lá leið okkar saman hérna í
Vesturbæjarlaugina þegar hún var
opnuð og við höfum verið óaðskilj-
anlegir alla morgna siðan.
Að sjálfsögðu höldum við þessu
áfram, svo lengi sem okkur endist
kraftur til að líta hingað inn, en því er
ekki að leyna að við erum náttúru-
lega allir orðnir fjörgamlir. En aldur-
inn skiptir að sjálfsögðu engu máli,
hvað sundið snertir. Það er svo gam-
an að svamla í þessu og svo hefur mað-
ur bara gott af þessu,” sögðu þeir um
leið og þeir skutluðu sér út í kalda
laugina. -SER.
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 1981.
heilbrigö sál I hraustum llkama.
Fyrsti áfangi hins nýja og veglega
Sjálfsbjargarhúss á Akureyri er nú
kominn upp og hefur þegar verið tek-
inn í notkun. Um er að ræða 1800
fermeúa gólfflöt. Alls verður húsið
um 2700 fermetrar að stærð. Áætlað
er að byggingu hússins verði lokið á
næstu mánuðum.
í viðtali við Magnús Ólafsson,
sjúkraþjálfa á Akureyri, sem vinnur
á vegum Sjálfsbjargar, kom fram að
bygging hússins hefði gengið með
ólíkindum vel, framar björtustu von-
um manna. Þar kæmi að sjálfsögðu
inn i dæmið ár fatlaðra og áhrif þess
á skilning almennings og aðstöðu
fatlaðra i landinu.
Magnús sagði að í þeim 900 fer-
metrum sem eftir væri að reisa yrði
m.a. innisundlaug, böð og gufubaðs-
aðstaða. í seinni áfanganum væri
fyrirhugað að yrði aðstaða fyrir fyrir-
byggjandi starfsemi, en vegna þess
hversu brýnn sá þáttur sjúkraþjálfun-
arinnar væri um þessar mundir, væri
afráðið að koma þeirri starfsemi fyrir
til bráðabirgða i því húsnæði sem fyr-
ir lægi.
Magnús tjáði blaðinu að fyrir-
byggjandi aðgerðir væru stór þáttur í
starfsemi Sjálfsbjargar á Akureyri.
Væri áætlað að þessi starfsemi færi
að miklum hluta fram á kvöldin.
Yrði hún þrennskonar. í fyrsta lagi
yrði um slökun að ræða. í öðru lagi
baknámskeið, eða eins og þeir
nefndu það, bakskóla. Og í þriðja
lagi yrði um alhliða líkamsrækt að
ræða.
Þessi starfsemi yrði opin öllum al-
menningi og jafnvel fyrirhugað að fá
starfsmenn stórra fyrirtækja til að
sækja hana og koma þannig í veg
fyrir hina miklu vinnusjúkdóma sem
hrjá landsmenn.
Magnús vildi undirstrika það, að
hvað þessa fyrirbyggjandi starfsemi
snerti, þá yrði einungis um sérfróða
menn að ræða i sjúkraþjálfun og
þeim fræðum semsnertulikamsrækt,
sem myndu leiðbeina fólki á þessum
námskeiðum. -SER.
Magnús Ólafsson, sjúkraþjálfi á Akureyri. Á myndinni sýnir
hann hvernig rétt átak erframkvœmt. En eins og kunnugt er, er
röng beiting baks við vinnu ein af ástœðum þess hve bakveiki er
tíð meðal landsmanna. D V-mynd A RH.
A þessari klippimynd hljómsveitarinnar Bruna BB getur að líta nokkra liðsmenn grúppunnar. Þeir
tjáðu blaðamanni að þeim vœri illa við Ijósmyndir af sér vegna þess illa orðs sem þeir fengu á sig
eftir hænudrápið margum ædda.
Bakskóli á Akureyrí
„Sjálfsagt að lista-
menn drepi hænur”
—segja liðsmenn Bruna BB
Hljómsveitin Bruni BB er ein af
þessum nýju umdeildu hljómsveitum
sem lilið hafa dagsins Ijós á síðustu
mánuðum. Hún vakti töluverða at-
hygli og umtal á dögunum þegar liðs-
menn hennar fórnuðu nokkrum hæn-
um á ei.ium tónleikum sínum og fyrir
Ogsvo...
... er það vlsa dagsins. Þessa sendi
- okkur muöur sem neftiir sig Þröst.
Eins og kemur fram I visukorninu er
' hunn ekki ánœgður með afgreiðslu
íí vídeómálsins I borgarsjórn.
Glapti augu galdra rún
gyllingarnar fínar,
yfír lögbrot lagði hún
liknarh endur sinar.
I
'Á
vikið var nokkrum þeirra vikið úr
Myndlista- og handíðaskóla íslands,
þar sem um helmingur hljómsveitar-
innar stundaði nám í nýlistadeild.
Fólksíðan hitti nokkra liðsmenn
grúppunnar að máli fyrir nokkru síð-
an að Bala í Mosfellssveit, þar sem
þeir eru að taka upp tónlist sína á
snældu. Og fyrsta spurningin var,
hverskonar tónlist þeirspiluðu?
„Ja, ætli hún sé ekki nokkuð eðli-
leg. Hún verður til fyrir tilstilli at-
hafna sem við iðkum samfara henni
og því má með réttu kalla hana t.d.
athafnatónlist.”
Eru þetta þá nokkurs konar
gerningar?
„Það má segja að þetta sé saman-
safn af athöfnum sem við fram-
kvæmum hverju sinni, þá er við höld-
um tónleika. Það sem við erum að
framkvæma er að vissu leyti samruni
leiklistar, tónlistar og sjónlistar. Við
getum kallað þetta „total art.”
Og hvað með umtalið eftir hænu-
drápið?
„Eftir því að dæma, þá mætti
halda að það eina sem við höfum gert
á þessum tónleikum hafi verið að lim-
lesta og pynta hænur. En það var
aðeins hluli og raunar smáatriði tón-
leikanna sem heildar. Hér var aðeins
um að ræða snyrtilega aftöku.
Öítkur finnst ekkert sjálfsagðara
en að listamenn fái að drepa dýr, rétt
eins og sportidjótar eða sláturhús.
Aðferðir hinna síðarnefndu eru í
rauninni mun ískyggilegri en þær að-
ferðir sem við notuðum.”
Og hvað á nafngift grúppunnar að
segja fólki?
„Tjá, BB hljómar miklu betur en
t.d. GH. En þetta vekur að sjálf-
sögðu forvitni hjá almenningi. Og
svo gefur þetta fólki líka kost á því að
hugsa hryllilega. En fólki er náttúr-
lega í sjálfsvald sett hvað það
ímyndar sér út frá þessu nafni. ”