Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1982, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1982.
3
Gerviefni frá Japan í stað venjulegs blóðs:
Einn úr söfnuði Votta jehóva
i mikla hjartaaðgerð í Þýzka-
landi án þess að fá blóðgjöf
„Þetta gekk mjög vel og ég var til-
tölulega fljótur að jafna mig eftir að-
gerðirnar. Það þakka ég meðal annars
að ég fékk aldrei neina blóðgjöf á
meðan á þeim stóð,” sagði Hinrik
Kracher i viðtali við DV.
Hinrik er einn af öldungunum í söfn-
uði Votta jehóva og sem slíkur leyfir
hann ekki að sér sé undir nokkrum
kringumstæðum gefið blóð eða efni
sem eru unnin úr blóði.
Vottar jehóva hafa löngum legið
undir ámæli annarra fyrir þessa
afstöðu sína til blóðgjafa og hefur þessi
sterka trúarsannfæring þeirra oft verið
notuð til hreinna árása gegn þeim víða
um heim. Hafa þeir marg-oft lent í
hinum erfiðustu málum vegna þessar-
ar afstöðu sinnar til blóðgjafa og þá
ekki síður hér á íslandi en annars stað-
ar.
Hinrik, sem kom hingaðsem trúboði
fyrir liðlega 20 árum og er nú íslenzkur
ríkisborgari, hefur ekki farið varhluta
af því frekar en aðrir Vottar. Hann
þurfti nýlega að ganga sjálfur undir
mikla hjartaaðgerð og varð að láta
framkvæma hana í Þýzkalandi.
„Ég valdi Þýzkaland þar sem hér á
íslandi hefði þessi aðgerð verið ófram-
kvæmanleg nema með blóðgjöf. Ég
tala líka málið og átti því betur með að
gera mig skiljanlegan þar en annars-
staðar,” sagði Hinrik I viðtalinu.
,,Ég hafði nöfn á einum 30 læknum
víðs vegar um heim sem skorið hafa
Votta án þess að þurfa að beita blóð-
gjöf. Ég valdi sjúkrahús í Erlangen í
Suður-Þýzkalandi en þar voru, þegar
ég var skorinn upp, fjórir aðrir Vottar
frá Danmörku, Júgóslavíu, Spáni og
Ítalíu.”
Ódýrara en á sjúkrahúsi hór
Við aðgerðir eins og þær sem Hinrik
fór í, en hann þurfti að fara í tvo upp-
skurði þar sem í Ijós kom blóðtappi
eftir fyrri aðgerðina, eru að jafnaði
notaðir 10 til 14 lítrar af blóði. Þar sem
hann neitaði að taka við því varð að
nota gerviblóð sem m.a. er súrefnis-
bindandi. Er það japönsk uppfinning
sem læknar viða um heim eru farnir að
nota við ýmsar stórar aðgerðir.
,,Ég var mjög fljótur að jafna mig og
þetta hefur ekki haft neinar aukaverk-
anir,” sagði Hinrik. Hann sagðist hafa
fyrst á eftir verið í gjörgæzlu og ein-
ENGA BLÓÐGJÖF
Enga blóðgjöf!
I’ar sem ég er einn af vottum Jehóva og hefi sterka
trúarsannfæringu lýsi ég yfir að ég heimila ekki aft
mér sé undir nokkrum kringumstæðum gefið blóð eða
efni unnin úr blóði. Mér er fullkomlega ljóst hvaða
afleiðingar afstaða mín getur haft en ég hefi einsett
mér að hlýða boði Biblíunnar: „Haldið yður . . . frá
blóði.“ (Postulasagan 15:28, 29) Hins vegar mælir trú
mín ekki gegn notkun annarra efna sem ekki eru úr
blóði, eins og t.d. dextrans, haemaccaels, PVP, Ringers
laktats eða saltvatns.
Vagttárnet . Viruin
Skírtcini eins og þetta ganga Vottar jehóva hér með á sér en á þrf stendur
þetta:
„Þar sem ég er einn af vottum jehóva og hefí sterka trúarsannfæringu lýsi
ég yfir að ég heimila ekki að mér sé undir nokkrum kringumstæðum gefíð
blóð eða efni unnin úr blóði. Mér er fullkomlcga Ijóst hvaða afíeiðingar þessi
afstaða mín getur haft en ég hefi einsett mér að hlýða boði Bibliunnan
„Haldið yður... frá blóði” (Postulasagan 15:28,29). Hins vegar mælir trú mfn
ekki gegn notkun annarra efna sem ekki eru úr blóði eins og t.d. dextransm
haemaccaels, PVP, Ringers laktas eða saltvatns.
Halda Akureyr-
ingar hátíðina
i Reykjavík?
öll stærri félög og fyrirtæki á Akur-
eyri hafa átt í hinum mestu vandræðum
í vetur með að halda skemmtanir og
árshátíðar fyrir félaga og starfsfólk
sitt. Er ekkert nægilega stórt veitinga-
hús til á Akureyri fyrir slíkar sam-
komur eftir að Sjálfstæðishúsið brann í
vetur.
Starfsmenn Slippstöðvarinnar á
Akureyri eru þó ekki á þeim buxunum
að láta húsnæðisvandræðin á Akureyri
stöðva skemmtanahaldið hjá sér. íhuga
þeir að halda árshátíð sína í Reykjavík I
byrjun marz og virðist vera mikill
áhugi meðal þeirra fyrir því.
í fyrra tóku um 500 manns þátt i árs-
hátíð Slippstöðvarinnar. Er ekki búizt
við slíkum fjölda ef hún verður haldin í
Reykjavík en samkvæmt skoðana-
könnun sem gerð var hjá Slippstöðinni
á dögunum má búast við þátttöku á
milli 200 og 300 manns í slíka ferö.
-klp-
angrun en síðan farið á endurhæfingar-
deild. Hefði verið á milli 700 og 800
krónur ódýrara á sólarhring að vera á
þessu sjúkrahúsi en á sjúkrahúsi á ís-
landi og hefði það komið sér mjög á
óvart.
Við spurðum Hinrik að því í lokin
hvort hann hefði örugga vissu fyrir þvi
að honum hefði ekki verið gefíð blóð á
meðan á aðgerðinni stóð.
„Já, ég er alveg viss um það. Ég varð
aldrei var við neina hleypidóma á þessu
sjúkrahúsi. Það virtu allir skoðun mína
og meðbræðra minna og ég treysti þvi
öllu i hvivetna. Þar fyrir utan var yfír-
hjúkrunarkonan á skurðdeildinni við-
stödd aðgerðirnar á mér. Hún er úr
söfnuði Votta jehóva og vissi um fyrir-
mæli mín og óskir í sambandi við
þetta.”
-klp-
Hinrik Kracher einn af öidungunum /
söfnuði Votta jehóva hér er eldhress
eftír aðgerðina mikiu þótt hann hafi
ekki fengið dropa afblóði. DV-mynd
Bj.Bj.
Vorum að fá þessi
GÓLFTEPPI
á ótrúlega lágu verði
3
fítír — Aðeins
90
kr. fermetri
JIEf
'A A A A. A A
Jón Loftsson hf
Hringbraut 121
TEPPADEILD -
m m m tn m m
lbcccu
II in [U UUDDJ'I
unDiaiiuiiuiiÍ!|liiil
Síml 10600
SÍMI 28603.
IddlL