Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1982, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1982, Síða 4
4 DAGBLAÐIÐ & VlSIR. ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1982. Vigdis Finnbogadóttir kynnir stofnun sjóðsins i ræðu sinni á þorrablótinu. Við hlið hennar situr formaður tslendingafélagsins i Englandi. (Ljósm. G V A) Forsetinn stofnar menningarsjóð Stofnun styrktarsjóðs til kynningar islenzkri menningu í Bretlandi var til- kynnt í samkvæmi íslendingafélagsins í London á laugardaginn var. í ræðu, sem forseti islands hélt á þorrablóti íslendingafélagsins þar sem hún var heiðursgestur, kom fram aðað frumkvæði forsetans hefur verið undir- ritað stofnskjal um nýjan sjóð sem stuðla skal að auknum menningar- tengslum íslands og Bretlands. Undir stofnskjalið skrifuðu auk forsetans stjórn íslendingafélagsins í Englandi og sendiherra íslands í London, Sigurður Bjarnason frá Vigur. Að sögn forsetans verður sett reglu- gerð um þennan sjóð innan skamms. Er honum ætlað að vinna markvisst að kynningu íslands ytra, ekki sízt með þvi að auðvelda námsfólki í norrænum og íslenzkum fræðum að heimsækja landið og til að auka þýðingar á íslenzkum bókmenntum yfir á enska tungu. Ekki liggur enn fyrir hvernig framkvæmdin verður en þó er vist að ekki verður eingöngu um fjárstyrki að ræða heldur einnig stuðning með öðru móti. Ms Verður krafizt lögreglurannsókn■ ar á rýrnuninni? Starfsmennimir telja hana óeðlilega mikla á síðasta ári — Tollverðir vilja líka rannsókn vegna orða fulltrua starfsmanna Fríhafnarinnar Starfsmenn Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli munu ætla að óska eftir því við lögfræðing Starfs- mannafélags ríkisstofnana að hann kanni með hvaða hætti þeir geti farið fram á rannsókn á málefnum Fríhafnarinnar. Starfsmennirnir eru sagðir vilja opinbera rannsókn, og jafnvel lög- reglurannsókn ef með þarf, á hinni óeðlilegu rýrnun sem þeir segja að hafi orðið á siðasta ári. „Þetta mál er enn ekki komið til okkar kasta en kemur sjálfsagt áður en langt um líður,” sagði Gunnar Gunnarsson hjá Starfsmannafélagi ríkisstofnana í viðtali við DV. Rýrnunin í Fríhöfninni á síðasta ári nam um 700 þúsund krónum. Það þýðir að hver starfsmaður verður að greiða um 20 þúsund úr sínum vasa vegna bónuskerfisins sem þá var notað í Fríhöfninni. Inn í þessa rannsókn munu eflaust spinnast fullyrðingar sumra starfs- manna um að tveir af verkstjórum Fríhafnarinnar skammti sjálfum sér óeðlilega mikla eftirvinnu. Hafi ann- ar þeirra t.d. haft um 500 tíma í eftir- vinnu frá 1. júlí til áramóta á meðan aðrir starfsmenn hafi ekki náð 200 tímum allt árið. Búast má við að enn fleiri rann- sóknir fari í gang vegna þessa máls á næstunni. Má þar nefna tollverði á Keflavíkurflugvelli sem eru sagðir allt annað en hrifnir af ummælum full- trúa starfsmanna Fríhafnarinnar í Tímanum nýlega. Fulltrúinn segir þar að ekki hafi verið haft nægilegt eftirlit með skilum á vörum sem fluttar hafi verið á milli lagers og verzlunarinnar á Keflavíkurflugvelli. Sé það m.a. or- sök aukinnar rýrnunar. Telja tollararnir að þarna sé að þeim vegið því þeir sjá um að innsigla vöruna og eru jafnan í bílunum sem flytja hana á milli þessara staða. -klp- Stjóm Fríhaf narinnar gerir athugasemdir: „MIKLAR BREYTINGAR TIL BATNAÐAR Á REKSTRINUM” Akureyri: Framleiðsla á límtrjám hefst eftir páska í undirbúningi er framleiðsla á Hm- trjám á vegum Byggingavöruverzlunar Tómasar Björnssonar á Akureyri. Að sögn Árna Árnasonar, framkvæmda- stjóra verzlunarinnar, er verið að setja upp þurrkara og flestar vélarnar eru komnar inn á gólf, að pressunni undan- skilinni. Sagðist Árni gera sér vonir um að framleiðsla gæti hafizt um páska. Ýmiss konar límtré hafa átt vaxandi vinsældum að fagna hérlendis á undanförnum árum, til að mynda sem burðarbitar í þök. Hafa límtrén þann kost að vera eldþolnari en t.d. stálbitar, auk þess að gefa ýmsa möguleika fyrir augað við innréttingu. Þá er einnig notað mikið af límtrjám i borðplötur, hillur og þess háttar. GS/Akureytri Stjórnarnefnd Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli hefur sent frá sér athugasemdir vegna ummæla eins af starfsmönnum fyrirtækisins í blaða- viðtali fyrir skömmu. í tilkynningu stjórnarinnar kemur fram að afkoma fyrirtækisins og starfsmanna hafi verið mun betri á síðasta ári en gert hafi verið ráð fyrir. Þrátt fyrir að rýrnun hafi aukizt úr 0.97% í 1.1% af veltu, sé það næst- bezti árangur sem náðst hafi síðustu tíu árin. Algjörlega er vísað á bug fullyrðingum um að lélegt eftirlit með vöruflutningum milli lagers og verzlunar sé orsök aukinnar rýrnunar. Þessir flutningar fari allir fram undir tollaeftirliti eða innsigli og því séu slíkar fullyrðingar aðeins aðdróttanir í garð tollvarða og starfs- fólks Fríhafnarinnar. Þá er hafnað fullyrðingum um að þröngvað hafi verið upp á starfsfólk verkstjórum sem teljist óhæfir til starfsins. Batnandi afkomu fyrir- tækisins megi að stórum hluta rekja til bættrar stjórnunar og skipulagn- ingar. Einnig er því vísað á bug að bókhald Frihafnarinnar sé í ólagi og dregið í efa að viðkomandi starfs- maður hafi nokkra vitneskju um þann þátt í starfseminni. Að lokum segir í bréfi stjórnarinn- ar: Á síðustu þremur árum hafa orðið miklar breytingar til batnaðar á rekstri Fríhafnarinnar. Breytingar þær sem þurfti að gera voru ekki allar vinsælar. Almennt sættu starfs- menn sig við breytingarnar, einkum þegar þeir sáu árangur þeirra. Einstaka starfsmenn hafa þó ekki sætt sig við þessar breytingar og hafa unnið gegn þeim af aleffi sem skapað hefur úlfúð og leiðindi á vinnustað. Stjórn fyrirtækisins vonar að hlutað- eigandi starfsmönnum verði brátt ljóst að ekki verður horfið aftur til fyrri starfsaðferða í Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli. heldur verði haldið áfram á þeirri braut til bættra vinnubragða sem farin hefur verið.” -JB Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Utvegsbankinn keyrir aftur Kftir að Útvegsbankinn hafði í áraraðir horið hitann og þungann af lánum lil sjávarútvegsins var svo komið um áramótin 1980-81 að hagnaður bankans nam aðeins 780 þúsund krónum. Þá hafði lengi verið hafl á orði að fyrirhugað væri að sameina Útvegsbankann öðrum hanka og byggja þannig stærri og sterkari heild. Erfið staða bankans, að viðbættum sífelldum orðrómi um sameinjngu, gerði stofnuninni ekki léltara fyrir út á við og auðveldaði síður en svo að rétta stöðuna við. Bankinn þurfti að fjármagna stór og umsvifamikil fyrirtæki 1 sjávarútvegi sem tóku til sín stóran hluta af reiðu- fé bankans hverju sinni en fyrir þessa fyrirgreiðslu þurfti bankinn siðan að greiða refsivexti til Seðlabankans þegar veita þurfti sívaxandi fjármuni til fyrirtækjanna. Allt þetta sagði óneitanlega til sin enda mátti segja að Útvegsbankinn yrði að fjármagna heilu sjávarplássin þar sem hann hafði útibú. úm áramótin 1980-81 var orðið Ijóst að staða bankans var mjög erfið, einkum vegna viðskiptanna við Seðlabankann sem beitti bindi- vöxtum sínum alveg án tillits til þess að Útvegsbankinn fjármagnaði aðila í útveginum sem greiddu lága vexti samkvæmt tilskipunum. Rikisvaldið bar því með vissuin hætli ábyrgð á stöðu bankans en fyrir utan að vera ríkisbanki hafði hann ekki fengið tækifæri til að starfa með eðlilegum hætti. Á síðasta ári varð Albert Guðmundsson formaður bankaráðs. Hann gerði strax kröfur til að ná til baka þvi fé hankans sem af honum hafði verið dregið í bindivöxtum í Seðlabankanum. Stæstur hluti þess fjár kom til baka á árinu í mynd láns ,frá Seðlabankanum sem ríkissjóður greiðir á tólf árum. Á sama tima voru útlán til sjávarútvegs dregin saman um 13%. Útibú bankans á Seyðis- firði var yfirtekið af iiðrum og stór fyrirtæki á Akranesi og Akureyri beindu viðskiptum sínum (il annarra banka, einnig tvöihraðfrystihús I Grindavik. Aukning heildarútlána hankans á liðnu ári hélst nokkuð i hendur við vísitölu en heildarinnlán urðu um 11% hærri en útlánin. Staðan hefur þvi batnað stórlega og í raun hægt að tala um algjör um- skipti. Eiginfjárhlutfall nemur nú 10,3% sem verður að teljast gott. Hagnaður bankans á árinu nam 24,2 milljónum og er þá búið að afskrifa 2,3 milljónir af eignum hankans. Þá jókst eigið fé um 91,8 milljónir og eru þar innifaldar þær 50 milljónir sem Seðlabankinn lánaði og ríkissjóður greiðir. Þessar tölur sýna að bankínn hefur verið æði stór- ár ► á fullu stígur á einu ári, eða frá því að hagnaðurinn nam aðeins 780 þúsundum. Verður ekki annað séð en bankaráðsformaðurinn hafi séð vel fyrir málefnum bankans á Alþingi og i ríkisstjórn og bankastjórn að öðru leyti beitt sér vel í endurreisnar- starfinu. í auglýsingum leggur bankinn nú áherslu á skammtímalán til einstakl- inga. llonum eru það auðveldari og léttari viðskipti en sú þunga og fjár- freka lánastarfsemi sem tíðkast í sjávarútvegi. Með nýju stefnunni er einnig auðveldara að svara til um þær breytingar sem Seðlabankinn vill gera á útlánastarfseminni hverju sinni. Engu að siður heldur Útvegs- bankinn áfram að lána hátt í helming útlána til sjávarútvegs. Sagt hefur verið að Hilmar Stefánsson, bankastjóri Búnaðar- bankans, hafi eflt banka sinn mjög með því að lána smáfólkinu í þjóð- félaginu. Útvegsbankinn virðist ætla að rétta við að fullu á skömmum tima með þvi að fara líkar leiðir i upp- byggingunni og er það vel. Auðvitað hefur fjöldi manns komið hér við sögu og beitt áhrifum sinum til hags- bóta fyrir bankann en það er Ijóst að endurreisn hans hófst ekki fyrr en Albert Guðmundsson varð formaður bankaráðs. Þar kom maður sem dugði. Svarthöfði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.