Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1982, Page 32
32
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1982.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Dómari nokkur i New York hefur
dæmt kvikmyndaleikkonuna Jessicu
Lange skylda til að greiða eiginmanni
sínunt, Paco Grande, 300 Bandaríkja-
dali á viku í framfærslueyri. Grande er
hlindur og lifir sem stendur á fram-
færslu hins opinbera. Þar sem það er
ekki eins stöndugt og'Jessica ber því
aðeins skylda til að greiða Grande 85
dali á viku og lifir hann því við sult og
seyru í fátækrahverfi í New York.
Greiðslan er afturvirk og samkvæmt
dómnunt skuldar Jessica þvi ntanni
sínum 5000 dali. Þetta er líka aðeins
bráðabirgðadómur í málinu, en Grande
fer fram á að Jessica greiði sér 2000—
3000 dali á mánuði um aldur og ævi
eftir skilnað þeirra.
Jessica og Paco Grande gengu i
hjónaband árið 1971, en þau stunduðu
þá bæði nám við háskólann í Minne-
sota. ^lann segir að hún hafi farið frá
sér 1975, eftir að hún konist að því að
hann var að verða blindur. Jessica
heldur því aftur á móti frant að léiðir
þeirra hafi skilizt árið 1972. Þau sóttu
þó ekki um lögskilnað fyrr en seint á
árinu 1980 en bá hafði Jessica eignazt
barn með ball '«-tj órnunn. Mikhail
Barishnikov.
Jessica Lange þarf
að sjá fyrir fyrr-
verandi eiginmanni
Jessica Lange: Mun betur stæð en það opinbera.
Eins gott að drífa s/g bara strax i h/ónabantHðl
Reynslusambúð
er ekki
Samkvæmt nýrri, bandarískri'
könnun er það aðeins hégilja að þeir
sem ganga í hjónaband eftir að hafa
áður lifaðsaman í sambúð skilji síður
en hinir.
— Margt ungt fólk álítur að
reynslusambúð tryggi það að hjóna-
bandið gangi betur, en svo er ekki,
segir dr. Michael Newcomb sem
staðið hefur að könnuninni.
— Skilnaðartíðni á meðal þeirra
hjóna sem búa saman fyrir hjóna-
band og hinna, sem steypa sér beint í
það heilaga, er nokkurn veginn sú
sama.
Dr. Newcomb fylgdist með örlög-
um 68 hjóna. Hafði helmingurinn
búið santan fyrir hjónaband en hinn
helmingurinn ekki. Fjórum árum
til bóta
eftir brúðkaupið var 31% af hjónun-
um skilið, en það er einmitt meðaltal
skilnaða í Bandaríkjunum eftir fjög-
urra ára hjónaband.
— Könnunin sýnir líka að þau
hjón sem höfðu búið saman áður áttu
í nteiri vandamálum í sambandi við
fíkniefnaneyzlu og framhjáhald en
hin, segir dr. Newcontb.
Ray Short, prófessor í félagsfræði
við háskólann í Wisconsin, er dr.
Newcomb sammála:
— Reynslusantbúð ntinnkar ekki
hættuna á því að lil skilnaðar komi
eftir hjónaband, segir hann. — Þvert
á móti bendir allt til þess að reynslu-
sambúð sé allt annað en heppilegur
undirbúningur fyrir hjónabandið.
Sue Eiien og J.R.: Hugarfóstur vinstrisinnaðra áróðursmanna.
DaNas er argasti
rógur um Bandaríkin
- segir danski þingmaðurinn Erhard Jacobsen og tók málið fyrir á þingi
Danski þingmaðurinn
Erhard Jacobsen kom
nýlega fram með harða
gagnrýni á framhalds-
þátt sjónvarpsins, Dall-
as, bæði á sjálfu þing-
inu og svo í TV-avi-
sen. Ekki voru það þó
hin forheimskandi áhrif
sem sumir telja þættina
hafa á hinn almenna
sjónvarpsáhorfenda sem
lágu þingmanninum
þungt á hjarta heldur
það að hann álítur þætt-
ina hinn argasta róg um
Bandaríkin.
— Ég get vel ímyndað
mér að Dallas-þættirnir
séu framleiddir af
vinstrisinnuðum lista-
mönnum, segir þing-
maðurinn. — Það eru jú
ær og kýr allra sósíalista
og menningarpostula að
nota hvert tækifæri til
Erhard Jacobsen: DaHas ar ein-
tómtsvinarí.
að draga kapítalísk
þjóðfélög niður í skít-
inn. Og þeir hafa fundið
gullið tækifæri í Dallas
sem gefur alranga og
skrumskælda mynd af
Bandaríkjunum.
Dallas-þættirnir hafa
notið gífurlegra vin-
sælda í Danmörku og
sýna skoðanakannanir
að 2,6 — 2,9 milljónir
Dana hafa fylgzt með
þeim. Engum hefur þó
fyrr dottið í hug að taka
þættina sem árás vinstri-
sinna á kapítalismann
fyrr en Erhard upplýsti
undrandi þingheim um
málið í þrumandi ræðu
er fjallað var um dag-
skrárval útvarps og sjón-
varps á danska þinginu.
Nefi Mið ættum að nota það betur en viðgerum.
VIÐ ERUM ÞEFNÆMARIEN VIÐ HÖLDUM
Nýjar kannanir sýna svo ckki verður
um vfllzt að mannskepnan vanmetur
eigin skilningarvit. T.d. er lyktarskyn
‘okkar riiun þróaðra en við höfum hing-
að til viáurkennt.
Tveir bandarískir vísindamenn við
VanderbiU-háskólann hafa unnið að
rannsóknuim á lyktarskyni manna og
hefur þeim tekizt að sanna að systkini
geta þekklt hvort annað á lyktinni.
Sömuleiðis geta foreldrar greint á milli
barna sinpa eingöngu með þvi að nota
þefskynið-
Tilrautiir þeirra fóru þannig fram að
þeir fengu 12 tvibura (16 drengi og 8
telpur) til að sofa í eins treyjum, sem
voru hvítar að lit, í þrjár nætur í röð.
Voru treyjurnar siðan settar í lokaðar
plastkrúsir með smágati á lokinu og
áttu börnin síðan að þekkja systkini sitt
með því að þefa gegnum gatið. 19 börn
af þeim 24 sem þátt tóku í tilrauninni
gátu strax sagt til um hvaða treyja til-
heyrði bróður þess eða systur.
Þeir gerðu síðan söntu tilraun á for-
eldrum og gátu 16 þeirra strax greint
lykt barna sinna og jafnvel sagt til um
hvaða lykt tilheyrði hvoru barninu.
Og sé einhver svo vantrúaður að
rengja þessar niðurstöður vísinda-
mannanna eru honum hæg heimatökin
að gera bara svipaða tilraun sjálfur!