Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1982, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1982, Blaðsíða 3
Síðustu námskeið vetrarins Almenn framkomu- og snyrtinámskeið fyrir dömur hefjast mánudaginn 1. marz. Innritun og upplýsingar í síma 38126 frá kl, 16—20 þessa viku. Hanna Frímannsdóttir <2> Feröasknfbtotð KJARTANS HELGASONAR Gnoóavog 44 104 Reykjavtk Simi 862S5 DAGBLAÐIÐ & VlSIR. Dagmömmum skylt að gefa upp tekjumar —ætti ekki að koma þeim á óvart, segir skattstjórinn íReykjavík „Dagmæður hafa alla tíð verið skyldugar til að skila inn samræmdum efnahags- og rekstrarreikningi með framtölum sínum, svo sem gildir um allan annan atvinnurekstur sagði Gestur Steinþórsson, skattstjóri i Reykjavík, í samtali við DV vegna fréttar i blaðinu um óánægju dag- mæðra í borginni með hókhaldsskyld framtöl. „Þær geta tæpast kvartað yfir of litl- utn fyrirvara þar sem atvinnurekendum ber ekki að skila framtölum fyrr en 15. marz, sagði hann. „Og þetta ætti ekki að koma þeim neitt á óvart þvi allir þeir sem hefja eigin atvinnurekstur hljóta að kynna sér fyrirfram hvaða reglur gildar þar varðandi skatta sem og annað.” Sú hefð virðist hafa skapazt að dag- mæður hafi komizt hjá þvi að gefa all- ar tekjur sínar upp til skatts. Siðastliðið ár varð sú breyting á að í Reykjavík var farið að reikna einstæðum foreldrum Iþróttaf réttir sjónvarpsins: Fjórtán sóttu um Fjórtán menn sóttu um stöðu íþróttafréttamanns sjónvarps en um- sóknarfrestur rann út í gær. Felst við- komandi starf i að sjá um íþróttaþátt annan hvern mánudag á móti Bjarna Felixsyni. Umsækjendur eru Einar Rafnsson, Gestur Kristinsson, Hjálmar Árnason, Jens G. Einarsson, Jón Guðmann Pétursson, Jón Þorvaldsson, Kristján' E. Guðmundsson, Ólafur Ágúst Þorsteinsson, Pétur Brynjarsson, Rún- ar Halldórsson, Samúel Örn Erlings- son, Stefán Friðgeirsson, Steingrímur Jóhann Sigfússon og Valtýr Sigur- bjarnason. Það er framkvæmdastjóri sjónvarps, í samráði við fréttadeildina og Bjarna Felixson, sem sker úr um hver hreppir Utanfarar: Svör fyrir þingslit Siðast liðið haust gerði Matthías Bjarnason fyrirspurn til forsætisráðu- neytisins um hver kostnaður væri af ferðum Jjingmanna og annarra opin- berra starfsmanna til útlanda. Óskað var eftir skriflegu svari til Alþingis. Að sögn Guðmundar Benediktssonar í forsætisráðuneytinu stendur gagna- öflun enn yfir og eru ekki öll kurl tomin til grafar. Kvað hann þær upp- lýsingar, sem farið væri fram á, mjög yfirgripsmiklar og engin leið að ná þeim saman á skömmum tíma. hnossið, en allir umsækjendur munu verða prófaðir alveg á næstu dögum. -KÞ til tekna þær niðurgreiðslur sem þeir fá vegna vistunar barna i heintahúsum. Um leið eru þeir tilneyddir til að gefa upp nafn viðkomandi mömmu og greidd laun til hennar. Kom þetta óvænt og olli mikilli óánægju hjá þess- ari stétt sem nú hefur til umræðu að leggja niður störf 1. maí nk. fáist ekki breyting. Ævar Isberg vararíkisskattstjóri kvað embætti sitt hafa sent skatt- stjórum bréf þar sem kveðið hefði verið á um að foreldrum skyldu ekki reikn- aðar fyrrnefndar niðurgreiðslur til tekna, fremur en aðrar endurgreiðslur. Hitt stæði óbreytt að dagmæðrum bæri eftir sem áður skylda til að gefa þær upp sem laun. Staðan virðist því ekki hvað sizt bitna á einstæðum foreldrum. Þeim er nauðugur sá kostur að gefa upp nafn viðkomandi dagmóður, ella reiknast niðurgreiðslurnar þeim sjálfum til tekna. -jb Ungverja laná Alla föstudaga frá 28: maí — 3. sept. Þotuflug um Kaupmannahöfn — morgun- flug. Gist 2 nætur í Búdapest, síðan vikuferð um Ungverjaland og 1—2—3 vikur við Balatonvatn, stærsta vatn Evrópu, eða beint i nýtízkulegar villur við Balatonvatn, 4 eða 8 manna villur. Hægt að dvelja þar 1—2—3— 4 vikur. Öll hótel og villur 1. flokks, bað, WC, svalir. Fullt fæði á hótelum, en eigin eldamennska í villum eða matarmiðar (hálft fæði) kr. 31.60 á mann pr. dag. Skoðunar- ferðir, möguleiki á vikuferð með fljótabát til Vínar í Austurríki. Verð á gistingu i villum það ódýrasta í dag kr. 7.795,- á mann í 4 vikur, innifalið er gisting, 2 dagar í Búdapest, keyrsla til og frá Balatonvatni og skoðunarferð í Búdapest. Hægt er að stoppa í Kaup- mannahöfn í bakaleið. Pantið tímanlega. Bjóst Guðmundur þó við því að svar myndi berast Alþingi fyrir þingslit í vor. -JB DV-bíó Brautin rudd, vestri i Utum in ís- lenzks texta verður í DVbiói6 morg- un klukkan 13 i Regnboganum. Spáðu í línurnar og drekktu 1 1 _• t>8 i.wii nmcii sykurlaust DIET PEPSI MINNA EN EIN KALÓRÍA í FLÖSKU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.