Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1982, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1982, Blaðsíða 9
DV.—HELGARBLAÐ. LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1982. 9 Laugardags- pistill SAMKEPPNIN LENGIUFI Ferðaskrifstofurnar eru komnar í hár saman einn ganginn enn. Samvinnuferðir hafa auglýst sama verð á sólarlandaferðum, hvaðan sem ferðafólk kemur af landinu og felst þá í því að flugfargjald innan- lands greiðist ekki. Ingólfur í Útsýn heldur þvi fram að hér sé um óheiðarlega samkeppni að ræða oggefurískyn að Samvinnu- ferðir notfæri sér sjóði verkalýðs- félaganna til lækkunar á fargjöldum. Hann hefur því einnig fram að til- boð Samvinnuferða sé blekking og leiði til þess eins að Reykvíkingar borgi brúsann því kostnaðinum sé jafnað út á þeirra fargjöld. Hér verður enginn dómur lagður á fullyrðingar aðila en á það bent að það er ekki nýtt að ferðaskrifstof- urnar sláist um markaðinn. Þær leitast allar við að bjóða sem hagstæðust kjör, standa í samkeppni hver við aðra, ekki aðeins um verð heldur alla aðra þjónustu. Þannig hefur samkeppnin komið almenningi að góðum notum og skilað sér í hag- stæðari kjörum. Samkeppni tilgóðs Ferðabransinn er glöggt dæmi um gildi eðlilegrar samkeppni. Enginn verðlagslöggjöf, hömlur eða opinber fyrirmæli mundu jafnast á við þau áhrif sem samkeppnin ein hefur i för meðsér. Auðvitað getur slík samkeppni gengið út í öfgar. Um þessar mundir munu um 30 aðilar hafa leyfi til ferðaskrifstofurekstrar og sú hætta er fyrir hendi að svo mikill fjöldi þjónustuaðila á litlum markaði leiði til undirboða, gjaldþrots og svika einstakra aðila. Þá áhættu mun aldrei verða hægt að forðast meðan frjálsræðið er nánast óheft. En þá áhættu er betra að taka heldur en kalla yfir sig reglugerðir og opinbera íhlutun, svo ekki sé talað um einokun. Úreft verðlagsföggföf Þegar það blasir við öllum al- menningi hvaða kosti samkeppnin felur í sér má heita undarlegt hvílíka tregðu stjórnvöld sýna í því að leyfa samkeppninni að njóta sín á fleiri sviðum viðskipta og þjónustu. í allri almennri verslun er unnt að koma samkeppni við. Hún er áhrifa- ríkasta aðferðin til að lækka vöru- verð, bæta þjónustu og tryggja al- menningi hagstæð kjör. Engu að síður hafa heilu stjórn- málaflokkarnir það á stefnuskrá sinni að koma í veg fyrir samkeppni. Þeir ríghalda í úrelta verðlagslöggjöf, og þar standa fremstir í flokki verka- lýðsforingjar, umboðsmenn laun- þega, sem þó hafa mestra hagsmuna að gæta. Hver er það sem nýtur þess fyrst og fremst að samkeppnin blómstrar í ferðabransanum nema einmitt hinn almenni launamaður sem af litlum efnum vill veita sér þann lúxus að skreppa til sólarlanda í sumarfríinu? Hver er það sem mundi njóta þess að vöruverð lækkaði í verslunum, nema húsmóðirin á heimili launa- mannsins? „Ómæfdur gróði" í tíð ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks tókst á árinu 1978 að fá samþykkta nýja löggjöf um verðlag og verðmyndun. Þar var engan veginn stigið til fulls skrefið til frjálsrar verðmyndunar en dyrnar þó opnaðar í hálfa gátt. Vinstri stjórnin, sem við tók, lét það verða eitt sitt fyrsta verk að afnema það litla sem hin nýja löggjöf fól í sér til að samkeppni fengi notið sín. Nú um daginn var til meðferðar á alþingi frumvarp tengt efnahagsráð- stöfunum ríkisstjórnarinnar sem að örlitlu leyti þokaði verðlagningu til réttrar áttar. Sú viðleitni núverandi stjórnvalda er allrar virðingar verð og sjálfsagt að þakka. Svavar Gestsson, formaður Alþýðubandalagsins, gat hinsvegar ekki á sér setið við umræðu um þetta frumvarp og hellti sér yfir inn- flutningsverslunina og „ómældan gróða” hennar. afstöðu sina til þjóðmála, heldur fyrir tilstyrk annarra flokka. f borgarstjórn hafa Alþýðuflokkur og Framsókn lyft Alþýðubandalaginu til æðstu valda, í ríkisstjórn getur þjóðin þakkað örfáum sjálfstæðis- mönnum fyrir greiðann. Sórstæð fjármálast/órn Stundum hefur það verið nefnt, Alþýðubandalaginu til hróss, að •fjármálastjórn Ragnars Arnalds sé til fyrirmyndar. Hann haldi útgjöldum ríkissjóðs í skefjum og lækki skuldir ríkisins við Seðlabankann. Ragnar sjálfur gumar af þvi, að vera íhalds- samur í fjármálaráðuneytinu og er það út af fyrir sig fróðleg játning úr röðum sósialista að íhaldssemi teljist til dyggða. Allt er þetta þó hin mesta blekking og karlagrobb. Ríkisstjórnin hefur ástundað þann leik að halda útgjöldum á fjárlögum í skefjum með því að færa margvisleg verkefni og fjárveitingar af fjárlögum og yfir á lánsfjárlög. Þetta þýðir að í stað þess að viðurkenna útgjöld á rekstrarreikningi eru slegin lán á lán ofan sem auðvitað færast þjóðar- búinu til skulda á lánareikningi. Nú í vikunni undirritaði fjármálaráðherra stærsta lánasamning sem íslenska ríkið hefur nokkru sinni gert, eða sem nemur 750 milljónum króna. Friðrik Sófusson, varaformaður Sjálfstæðisflokksins hefur upplýst að þetta þýði að skuldastaðan sem hlutfall af þjóðarframleiðslu nemi nær 40% og greiðslubyrði erlendra lána sem hlutfall af útflutnings- tekjum er um 19%, en var 13,7% fyrir fimm árum. Þetta eru hrikalegar tölur og sam- svara því að hver fjögurra manna fjölskylda í landinu skuldi erlendum bönkum 200 þúsund krónur eða 20 milljónir gamalla króna. Það er hreint með ólíkindum hversu almenningur er sinnulaus um þessa þróun. Nú má réttlæta erlendar lántökur ef um er að ræða fjármagn sem ivarið er til arðbærrar uppbyggingar atvinnutækja, orkuvera eða arð- bærrar fjárfestingar. En þvi er ekki að heilsa. Hér er að stórum hluta til verið að fjármagna eyðslu, afla fjár í rikishítina. Þetta er óábyrgð fjármálastjórn, stórhættuleg og óafsakanleg gagnvart komandi kynslóðum. Gegndarlausar lántökur af þessu tagi bera ekki volt um dyggðir í fjármálastjórn, hvorki íhaldssemi né annað. ,Rikiö, það er ég' En ríkissjóður gerir meira en að safna skuldum erlendis. Þær duga hvergi. Það þarf einnig að afla fjár á innanlandsmarkaði. í því skyni hefur Seðlabankinn fyrir hönd ríkissjóðs auglýst sölu á spariskírteinum. í þeim efnum er einskis svifist samkvæmt kenningunni „að rikið, það er ég”, minn er mátturinn og valdið. I fyrra bauð Seðlabankinn fyrir hönd rikissjóðs út spariskírteini með 2 1/2% vöxtum., Nú eru skirteinin boðin út með 3 1/2% vöxtum. Gömlu bréfin eru enn á markaðnum, og ný og bætt kjör rýra að sjálfsögðu sölugildi og eignarvirði eldri bréf- anna. Þetta virðist ríkismönnum lítið koma við. Aðstoðarbankastjóri Seðlabankans svarar því með hroka þegar undan þessu er kvartað, segir það óheilbrigða auglýsingastarfsemi. Ekki nóg með þetta. Lifeyris- •sjóðunum er gert að kaupa skulda- jbréf af rikissjóði og öðrum opinber- lum sjóðum fyrir allt að 40% af Iráðstöfunarfé sínu. En það skal gert lá óhagstæðari kjörum .heldur en ríkissjóður býður nú með sölu á spariskírteinunum. Hér, eins og fyrri daginn, er almenningi og sjóðum fólksins sýnt dæmalaust virðingarleysi. Hér er enn á ferðinni sönnun fyrir því hversu hagsmunir borgaranna, fólksins i landinu, eru lítils metnir þegar hrokagikkir og hræsnarar komast til valda. Ellerl B. Schrarn. Svavar var að þvo hendur sínar gagnvart kjósendum sínum, gera verslunarstéttina tortryggilega og undirstrika vantrú sína og flokks- manna sinna á gildi samkeppninnar. Hún er enn eitur í beinum hans, frjáls verðmyndun er bannorð í eyrum hans. Ellert B. Schram ritstjóri skrifar Þeir sitja enn við sama heygarðs- hornið hinir sjálfskipuðu málsvarar launafólksins. Skyldi það ekki vera slík afstaða, þröngsýnt afturhald í verðlags- málum, afkáralegur málflutningur í varnarmálum, þvergirðingsháttur í orku- og virkjunarmálum og tvöfeldni í beinum kaup- og kjara- málum sem veldur því að Alþýðu- bandalagið er orðinn minnsti stjórn- málaflokkurinn samkvæmt skoðana- könnun DV? Samt blasir sú fáránlega staða við að Alþýðubandalagið er valdam'esti flokkurinn í íslensku þjóðlífi. Ekki fyrir tilverknað kjósenda, ekki fyrir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.