Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1982, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1982, Blaðsíða 32
i I I SMJKRAUDAR SEGJA UPP Á MÁNUDAGINN —vilja ekkert eiga undir Kjaradómi oigriour Krisyansaottir tormaöur SjúkraliOafólagsins talar á tjöisóttum félagsfuna’í / gær. víkursvæðinu segja upp á mánudaginn. Um 600 sjúkraliðar á Reykja- Sjúkraliðar sem starfa áStór-Reykja- víkursvæðinu samþykktu einróma á fjölmennum fundi í gær að segja upp slörfum næstkomandi mánudag. „Þetta var mjög fjölmennur l'undur.” sagði Málhildur Angantýs- dóltir, sem sæti á í stjórn Sjúkraliða- félags íslands, í viðtali við DV í gær- kvöld. „Við förum út í þessar upp- sagnir til að knýja á um betri laun. Eins og dæmið stendur núna byrjum við i 6. launaflokki eftir þriggja ára sérnám. Að auki erum við tvcim launaflokkum lægri en sjúkraliðar sem eru að liefja störf úti á landi. Það sér hver maður að þetta er óviðunandi. Þær kröfur sem við gerum er að laka byrjunarlaun samkvæml 9. launa- flokki og að fá örari hækkanir en verið hefur.” Málhildur sagði enn fremur að með umræddum aðgerðum vildu sjúkraliðar fylgja fram kröfum latina- málanefndar. Starfsmannafélag rikis- stofnana, sem færi með hluta af samn- ingnum, hefði vísað þeim kröfum til Kjaradóms. Þar sem reynslan af úrskurði hans væri ekki góð hefðu sjúkraliðar ákveðið að fara út í að- gerðir áður en til þess kætni að þeir stæðu uppi með úrskurð um litlar sem engar kjarabætur. Þeir sjúkraliðar, sem nú starfa á Reykjavíkursvæðinu og hyggja á aðgerðir, eru um 600 talsins. Þeir starfa meðal annars á Borgarspitalanum, Landakoti, Landspítalanum og stofn- unum sem heyra undir hann, Reykja- lundi og hjá SÁÁ. 23 ára íslendingur f luttur heim f fylgd sænskra lögregluþjóna: Fékk tveggja ára dóm fyrir fíkniefnabrot Tottenham - Liverpooh LEIKNUM SJÓNVARP- AÐ BEINT Úrslitaleikur i ensku deildabikar- keppninni ve'rðttr scndttr út beint hcr- lendis, en leikurinn ler fram laugar- daginn 1.1. marz rnilli Tottenham og Liverpool. Pósli og sima vcrða greiddar 25 þúsund krónur fyrir mót- tökuna hcr cn kostnaður vegna elnis verður sáralílill þar sem þessi leikur er inni í þeim „pakka” sem íslenzka sjónvárpið kaupir af ensku knall- spvrnunni. Mál þetta var afgieitl á fundi útvarpsráðs i gær. Ellert B. Schram bar fram lillögu um aðsamþykkja að sjónvarpa leiknuin bcint og var hún samþykkt með fintin atkvæðum. Ólafur G. Einarsson og Vilhjálntur Hjálmarsson lélti bóka að þeir leldti þetta vafasama ráðstöftin með tilliti til kostnaðar. Fyrir fundi útvarpsráðs lágu lil- lögur Irá Bjarna Eclixsyni um að sjónvarpa attk þess enska bikar- leiknum i mai og fjórunt leik jtim í heimsmcistarakeppninni i júni, ennlremur að sjónvarpa bcint undan- úrslitum og úrslitaleiknum i júlí. Þar sem tölur um kostnað lágu ckki fyrir var slcgið á Irest að taka ákvörðun. -sc; mmaðiðmSemb /rpls/. ahai dagUaö Fré og með 1. marz er áskr'rftar- verð DV kr. 110 á mánuði. Verð blaðsins i lausasölu er kr. 8,00 eintakið en Helgarblaðið kostar á- fram kr. 10,00 eintakið. Grunnverð auglýsinga er kr. 66,00 hver dálk- sentímetri. „Þessi maður fékk tveggja ára dónt i Sviþjóð í haust vegna fíkniefnabrots og óskuðu sænsk yfirvöld eflir að dómnum yrði fullnægt hér á landi. ís- lenzk yfirvöld hafa samþykkt það og því var maðurinn flultur hingað heim,” sagði Þorsteinn .lónsson hjá dómsmálaráðuneytinu í samtali við DV í gær. Með þotu Klugleiða, sem kom frá Svíþjóð i gærdag, var tuttugu og þriggja ára íslendingur í fylgd sænskra lögregluþjóna. íslendingurinn var fluttur í hegningarhúsið á Skólavörðu- stíg þar sem hann ntun afplána sænska dóntinn. Ekki hefur verið tekin ákvörðun unt hvort hann verði fluttur á Lilla-Hraun. „Dónturinn var kveðinn upp i október í haust og maðurinn Itefur þegar setið eitthvað af sér,” sagði Þorsteinn. „Þetta er endanlegur dómur.” Þorsteinn var spurður unt hvort brotið hefði verið stótt og| svaraði hann: „Annaðhvort stórt brot eða þungur dómur. Um það get ég ekki dænit,” svaraði hann. -ELA Stjömumessa DV á Broadway Eins og undanfarin ár mun DV gangast fyrir Stjörnumessu þar sem hljómlistarmenn hljóta viðurkenningu fyrir framlag sitt til dægurtónlistar á árinu 1981. Stjörnumessa 1981 verður að þessu sinni haldin á Broadway fimmtudaginn 25. marz næstkomandi. 40—50 manna dómnefnd mun ásamt lesendum DV greiða atkvæði um þá tónlistarmenn sem þótt hafa skarað framúr á síðasta ári. Atkvæðaseðlar munu birtast i blaðinu í næstu viku. Mikið verður um dýrðir á Stjörnu- messu 1982 og meðal annars er Henrik Bemdscn í Blótnum og ávöxtum farinn utan til að leita eftir efni til skreytinga á salnum í Broadway. Stjörnuhljó sveitina i ár skipar hljómsvei MessOforte undir stjórn Eyþi Gunnarssonar og mun hún leika un hjá þeim listamönnum sem verðla hljóta. Nánar verður sagt frá Stjðrr messunni i blaðinu eftir helgina. fifálst, úháð daghlað LAUGARDAGUR 27. FEBR. 1982. Gæludýraverzlun lokað: Þrír smit- uðust af skjald- böku Vart hefur orðið í Reykjavík sjúkdómstilfella af völdum taugaveiki- bróður. Sýkingar hafa verið raktar til skjaldböku sem seld var í gæludýra- verzlun í Reykjavík en virtist heilbrigð. „Fyrsta tilfellið kom upp fyrir um viku og var það barn sem þar átti hlut að máli. Síðan hafa veikzt tveir til við- bótar á sama heimili,” sagði Heimir Bjarnason aðstoðarlandlæknir í samtali við DV. „Við vitum ekki enn hvort eða hversu hættuleg þessi sjúk- dómstilfelli eru en samt sem áður fannst okkur full ástæða til að vara fólk við þessu.” Heimir sagði að sjúkdómseinkenni væru meðal annars magaverkir, niður- gangur, ógleði, uppköst og sótthiti og stæðu að jafnaði i nokkra daga. Vill hann beina þeim tilmælum til fólks, sem hefði slík dýr undir höndum að gæta ýtrasta hréinlætis og handleika dýrin sem allra minnst. Þá sagði Heimir að áðurnefndri verzlun hefði verið lokað og verið væri að rækta sýni úr öðrum verzlunum af þessutagi. —KÞ ísland— Svíþjóð tef la í dag Skáksveitir Islands og Svíþjóðar mætast í Víghólaskóla í Kópavogi um helgina í Evrópukeppni landsliða. Tefll verður á átta borðum. Tvær umferðir verða tefldar, sú fyrri í dag milii klukkan 13og I8.en sú síðari á sama tíma á morgun. -KMU. 1.0Kr Ragnar ætlar að vetta sér upp úr 700 milljón króna vefti- lám'nu sem hann svo veitir yfir á næstu ríkisstjóm. hressir betur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.