Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1982, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1982, Blaðsíða 6
6 DV.—HELGARBLAÐ. LAUG ARDAGUR 27. FEBRÚAR 1982. Út um hvippinn og hvappinn Ut um hvippinn og hvappinn Af Hið spegiltæra málgagn Sjálf- stæðismanna, Stefnir birtir i síðasta hefli sinu klausu þar sem segir frá brögðum Vilhjálms Finsen, fyr- verandi ritstjóra Moggans, sem hann hafði í frammi lil að lokka auglýs- endur til sín á rrieðan hann var og hét á Morgunblaðinu. Þannig var að Vilhjálmi leiddist það magn smáauglýsinga sem birtust í Vísi og vildi fá hlutdeild i þeim markaði. „Þá var það, að mér datt í hug þelta „snjalla” ráð, sem ég hcf oft og mörgum sinnum blygðast min fyrir og engum sagt fyrr en nú,” sagði hann og viðskulum alfariðgefa honum orðiö: „Ég settist niður og „fabrikaði” fjölda af smáauglýsingum: „Pils tap- að i þvottalaugunum. Finnandi hringi i Morgunblaðið.” „Lykla- kippa fundin á Laugaveginum, vitjist i afgreiðsluna.” „Budda fundin á Vesturgötu, vitjist í Mbl.” „Ung stúlka óskast i vist utan bæjar” o.s.frv. Svo voru þessar auglýsingar allar birtar i blaðinu. I skrifborðs- skúffunni hafði ég ævinlega tvær buddur, aðra gráa, hina svarta, lykla- kippu og veski og slíkt, þannig að ef einhver kom að spyrja um hið fundna, þá varð sá fyrst að lýsa hlutnum sem hann hafði týnt o.s.frv. Það var aldrei hans hiutur, sem ég dró fram úr skuffunni. Árangurinn varð sá, að smátt og smátt fór fóikið að koma með *má- augiýsingarnar til okkar og mætti segja, að þetta tiltæki mitt hafi lagt undirstöðuna að þeim fjölda smáaug- lýsinga, sem „mitt gamla blað” birtir nú daglega.” Það er eins og gengur og gerist i viðskiptalifinu. Allt má reyna, þó svo að lítið kunni að bera árangur. Flest er nú til — Af Afsökunarþjónustunni hf. þeir eiga í vanda með að útskýra fjar- veru sína fyrir makanum— og fá uppgefna gilda afsökun fyrir þvi hvers- vegna þeir séu stad'dir þarna, en ekki annarstaðar, þurfi að vinna frameftir eða skreppa til borgarinnar o.s.frv. Upphafsmaðurinn að þessari ný- tízkulegu og frumlegu þjónustu er maður að nafni, Mason Zelanzny. Mun Zelanzny vera orðlagður húmoristi og fékk hann hugmyndina að þessu fyrir- tæki sínu, þegar hann var í viðskipta- ferð í Miami ásamt vini sinum. Þegar komið var undir lok ferðarinnar veikt- ist félagi Zelanzni af inflúensu og þurfti að leggja hann inn á spitala. Ákvað Zelanzni að dvelja lengur í Miami vegna veikindanna, en þegar hann ætlaði að útskýra töfina fyrir konu sinni í gegnum simann, varð hon- um ljóst hversu ósannfærandi útskýr- ing hans væri. Sannleikurinn getur nefnilega oft á tíðum verið afkáralegur. Þar eð hann fékk enga góða hugmynd sem hann gæti notað fyrir fjarveru sinni nema sa n mleikann, leitaði hann til félaga síns og spurði um hans álit. Ekki var mikið á hugmyndum hans að græða, nema það að hann benti á hversu óþægilegt væri að engin þjón- usta værj til sem hægt væri að leita til og fá slíkar hugmyndir. Kviknaði þá á perunni hjá Zelan Zelanzny- og lifir hann nú góðu lifi ásamt konu sinni og græðir vel á „af- sökunarþjónustu” sinni.— Já, flest er nú til. tófunni dýrkeyj Ýmsar eru öfgarnar í henni Ammer- xil að mynda eiga þarlendir nú kost á íku og taka á sig hinar margbreytileg- því að hringja til svonefndrar „af- ustu myndir. sökunarþjónustu”, svo framarlega sem Sauðkindin lif i! Hagyrðingur og lesandi DV sendi okkur þessa visu f tilefni lesendabréfs, sem mótmæli harðýðgi gagnvart tófunni blassaðri: Taumlaus ergrimmdin við tófuna enn þeir tak ’ana og pina að lögum. Þó vitrari sé hún en velflestir menn og vilji aðeins fœkka i högum! Tófuvrðlingur: Kr Rjarnan notaður scm agn til að vinna X möðurinni. 6þverraaðferð við dýradráp: Móöurástin er Það er um að gera að hafa ofart af fyrir blessuðum börnunum. Snjókorn_______Snjókorn Snjókorn________Snjókorn_______Snjókorn • Jæja, Húsvíkingar Fyrr í vetur sendum við nokkur snjókorn til Húsvíkinga. Jafnframt fylgdi kornunum hvatning um að þau yrðu send jafnhörð ef ekki harðari um hæl. Þessu hafa Húsvíkingar í engu sinnt. Er því ástæða til að gefa þeim laust viðvörunarskot. Sagan segir frá löghlýðnum Hús- víkingi, sem kom til Akureyrar í fína veizlu. Hann bjó sig í smóking og pantaði leigubíl. Þegar hann kom inn í bílinn stirðnaði hann upp til að byrja með, en síöan spratt hann út úr bíln- um og inn á hótel. Eftir stutta stund kom hann út í bilinn aftur í gömlu góðu kaupfélagsfötunum sínum. Eig- inkonan, sem beðið hafði í bílnum furðu lostin, spurði hverju þetta sætti. Eiginmaðurinn svaraði engu, en benti á skilti i bílnum: „No smoking”. • Þaðskyldi þóaldreivera í nýútkomnum íslendingi segir: „Þegar litið er til þeirra fjögurra áætlana, sem geröar hafa verið af bæjarstjórn og verkefni þau og markmiö sem sjálfstæðismenn settu sér fyrir síðustu bæjarstjórnarkosn- ingar, sést að verulegur hluti þeirra verkefna sem þar voru sett fram hafa orðiðaðveruleika.” Þetta kemur mér svolítið spánskt fyrir sjónir þar sem ég veit ekki betur en ráðandi sé vinstri meirihluti á Akureyri. Er þaö ef til vill leiðin til að koma markmiðum Sjálfstæðisflokks- ins í höfn að vinstri meirihluti sé við stjórnvölinn? Það skyldi þó aldrei vera að „verkefni þau og markmið” sem flokkarnir í bæjarstjórn hafa sett sér séu þau sömu? • Lömbfyrir refi Herbert nábúi minn Ólason, þekktari undir nafninu „Kóki”, sem eitt sinn fataði táningana á Akureyri, en er nú gildur bóndi í næsta ná- grenni Akureyrar, gerði merkilega uppgötvun í sl. viku. Kóki býr m.a. með kindur, sem samkvæmt náttúrunni gefa af sér lömb að vori sé til þeirra stofnað á réttum tima. Nú er hann líka búinn að fá leyfi til refaræktar. Eins og bænda er siður hér nyöra, þá fór Kóki á bændaklúbbsfund á mánu- daginn. Þar nam Kóki þann fróðleik að þaö verð sem fæst fyrir lamba- kjötið í útflutningi geröi ekki betur en dekka þann kostnað, sem óhjá- kvæmilegur væri við aö slátra lamb- inu og koma kjötinu til annarra landa. Þá væri eftir að greiða bænd- um, sem „ríkið” geröi í formi út- flutningsbóta. í framhaldi af þessum staðreyndum þótti Kóka sýnt að rétt- ast væri að gefa refunum lömbin. Það væri þjóðhagslega hagkvæmt. Með því sparaöist fyrirhöfn við slátr- un og flutning til annarra landa. Taldi Kóki ólikt fyrirhafnarminna fyrir „ríkið” að senda sér útflutn- ingsuppbætur beint, án þess að vera með allt þetta tilstand. Hvað Kóki ætlar að gera við skrokkinn af tóf- um þegar hann hefur klætt þær úr pelsinum vitum við ekki! • Hamborgaravæðing En Kóki er framkvæmdasamur maður. Nú hefur hann í bígerð að setja upp hamborgarastaö i Hamborg, nánar tiltekið I húsi því á Akureyri er gengur undir þessu nafni. Það skal tekið fram strax að ham- borgarastaöurinn fyrirhugaði er ekk- ert í tengslum við hamflcttu tófurnar. Hins vegar er Kóki, að sögn kunn- ugra, í samvinnu við Tomma þann, sem að sögn þeirra sömu framieiðir lostæta hamborgara i Reykjavík. Og það eru fleiri sem hafa hug á að bjóða Akureyringum upp á þennan rétt. Ráöamenn Winny’s hamborgara ætla að kaupa upp heila verzlun, þ.e. Sport- og Hljóðfæraverzlun Akur- eyrar, til aö komast yfir húsnæði í miðbænum. •Af Sjátfstæðishúsi Nú lítur út fyrir að Sjálfstæöis- flokkurinn selji hlut sinn í Sjálf- stæðishúsinu, öðru nafni „Sjallan- um”, sem enn er brunarúst. Kaup- endur munu vera Þórður Gunnars- son, Aðalgeir Finnsson, Gunnar Sólnes, Karl Gunnarsson og ef til vill fleiri. Verði úr kaupunum getur „Sjalla” nafnið tæpast gengið leng- ur. Mun þá í ráði að kalla húsiö „Þórðarhöfða”. • Ogsvo ernúþaö „Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri óskar að ráða 1 1/2 læknaritara,” segir í auglýsingu í Degi á þriðjudag- inn. Með leyfi að spyrja; hvernig „hálfur” á þessi „hálfi” að vera; rallhálfur eða verður skurðstofan notuð? -GS Akureyri

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.