Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1982, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1982, Blaðsíða 14
14 DV.—HELGARBLAÐ. LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1982,. 77/ sölu þessi glœsilegi Le Baron árg. 79, kom 6 götuna í nóv. '80.8 cyl. aflbremsur og -stýri. Rafdrifnar rúður. Skipti á ódýrari koma tii greina. Uppl. í síma 41438. EINN MEÐ ÖLLU! bakarí r Handverksbakan Framleiðum margar staerðir af kransakökum kransakökukörfum ur hinum peKK a ODENSE marsipanmassa. ^""'^aTkum rjómatertur og marsipantertur eftir kaupanda. Geymið auglýstnguna. ^ A.H. Bridde bakarameistam^_^ Lítil saumastofa úti á landi óskar eftir framtíðarverkefnum eða skammtíma- verkefnum. Vönduð vinna. 2 beinsaumavélar og 2 over- lockvélar. Uppl. í síma 38299 sunnudag og næstu daga kl. 9—16. Til sölu þessi ANTIK peninga kassi Uppl. í síma 12342 á búðar- tímum TIL SÖLU ,.W/AV/A,A' Þessi gullfallegi Mercedes Benz 300 dísil árg. 79, er til sölu. Bíllinn er allur mjög vel með farinn, brúnsanseraður að lit og með alveg nýrri vél. Ekinn á vél aðeins 3000 km. Allar nánari upplýs- ingar veittar í síma 46060. towWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWW1 Gjaldmiöill meö súkku- laöihj úp —Psst, hvæsti sóðalegur maður í slitnum regnfrakka, sem gengið hafði í þrjá ættliði og ekki verið þveginn í millitíðinni. —Psst, hvæsti hann aftur, þegar greinilegt var, að ég tók kveðjuna ekki til mín. —Hver, ég? —Já, þú. Ég heyri, aö þú sért að leita að samböndum. Þessi síðustu orð vöktu áhuga minn til fulls. Ég hafði leitað lengi. Hreinlega kembt allan svarta mark- aðinn, talað við sjómenn í siglingum, flugmenn, góða leigubílstjóra og í örvinglan minni jafnvel hringt I Magnús Ólafsson leikara. Ekkert, ekki biti, hvergi. Ég var staddur niðri á Hallæris- plani að fylgjast með því, hvort ég sæi eitthvað af efninu í gangi á meðal krakkanna, þeir gætu þá ef dl vill komið mér i samband. Ég hafði verið að þvælast þarna í rúman klukku- tíma, þegar sá í frakkanum vakti áhuga minn og á augabragði var allur kuldi og skjálfti horfinn úr likamanum. —Hefurðu áhuga á 10 stöngum?, spurði hann. Ur ritvél Jóns Björgvinssonar Þeir, sem eins og ég sýna föðurlandinu hollustu sina með þvi að lifa einungis á þjóðarréttunum, urðu fyrir óvæntu áfalli fyrir áramótin, þegar herforingjar fóru að stjórna Póllandi og skorið var á allar matvælasendingar til landsins, þ.e. islands. úr sögunni, hækkun Prills Póló hefur hingað til haldið í við aðrar verk- hækkanir í landinu ólikt ástkæru krónunni. En komi þrátt fyrir þetta til kreppu má draga fram lífið á sjálfum gjald- miðlinum öfugt við krónuna, sem ekki er hæf til manneldis nema eftir mjöglangasuðu. Gengisfellingar yrðu úr sögunni. Tilgangur slíkra aðgerða hefur hingað til verið sá einn að hækka verðið á Prins Póló. Með gildistöku Prins Pólós yrði þar af leiðandi með öllu hætt að minnast á gengis- fellingar. í staðinn yrði sagt, að gjaldmiðill landsmanna Prins Póló hefði hækkað í verði, sem er mun hljómþýðara, eða einfaldlega að gengi Prins Pólós hefði verið hækkað. Ég er sannfærður um, að almenningur í landinu sé orðinn það þreyttur á öllum krónum bæði gömlum og minna gömlum, að hann. muni fagna nýja gjaldmiðlinum. Ég leiði þessa skoðun mina af því, að sífellt verður algengara, að menn taki laun fyrir vinnu sina út í vörum l»KI*V« 1 POK i , ’ ■■ : . —Stórum —Biddu fyrir þér! Nei, ég get bara komist yfir litlar. Við mæltum okkur mót daginn eftir í vinnuskúr við nýju þjóðarbók- hiöðuna. Samkvæmt umtali lét hann sem hann sæi mig ekki, þegar ég kom á staðinn á slaginu tíu. Hann gekk hröðum skrefum í áttina að Hótel Sögu. Fyrir utan Rammagerðina nam hann staðar. Ég gekk að honum. Hann talaði án þess að hreyfa var- irnar og gætti þess að líta ekki á mig. —Ertu með peningana eins og um var talað? —Já, helminginn nú og helminginn á eftir. Ég rétti honum þúsund krónur. —Segðu henni, að Jaruzekski hafi sent þig, það er lykilorðið, tuldraði hann í gegnum lokaðar varirnar og benti með höfðinu á afgreiðslu- konuna í Rammagerðinni. Hún brosti og bauð góðan daginn, þegar ég kom inn í verzlunina. —Jaruzelski sendi mig! Brosið fraus á andliti hennar, hún leit flóttalega í kringum sig áður en hún teygði sig undir afgreiðsluborðið og dró þaðan 10 lítil Prins Póló stykki. —Það gera 25 krónur. Nokkuð fleira? Ég, sem ákveðið hafði að sýna Solidarnosc samstöðu mína með þvi að tvöfalda Prins Póló át mitt, sat nú uppi með þá köldu staðreynd, að hvergi var Prins Póló að fá. Ég gat ekki séð ég fengi herlögin í Póllandi afnumin, þótt vingjarnleg afgreiðslu- kona hjá Rammagerðinni gaukaði að mér stykki og stykki af því hún var nýbúin að fá sendingu, þegar reiðar- slagið skall yfir. Nei, til þess þyrfti mun meira, minnst fjögur tíl fimm stór stykki á dag. Þessi skyndilegi skortur setti líka stórt strik í þær bollaleggingar mínar að fá Prins Póló tekið upp sem opin- beran gjaldmiðil íslendinga, líkt og þeir í Bandaríkinu voru um daginn að gera frumkönnun á því, hvort hag- kvæmt væri að leggja niður doll- arann sem gjaldmiðil landsmanna i skiptum fyrir Mars súkkulaði. Mars súkkulaðið er að vísu alþjóðlegra, en kostir prinspólósins umfram það eru þó augljósir. Það er harðara og bráðnar síður, fer betur í veski og að auki býr það yfir þeim eiginleikum að vera gefið út í tveim verðgildum, lítið Prins Póló og stórt Prins Póló. Efnahagslegir kostir Prins Póló umfram okkar ríkjandi gjaldmiðil eru einnig augljósir. Verðbólga yrði frekar en peningum. Þarna er sem sagt kominn aftur vísir að vöru- skiptaverzlun. Verð flestra vara breytist lítið innbyrðis. Með því að taka þannig út laun sín í „föstu formi” nær verðbólgan ekki að éta þau. Vöruskiptaverzlun er lausnin á verð- bólguvandanum og ekkinógmeð það, heldur eru laun sem greidd eru á þann hátt líka skattfrjáls. Eða hvar hefurðu til dæmis séð dálka.fyrir 50 gallabuxur, 30 kiló af kexi og 25 afturdempara undir Fólkswagen vinstra megin á skattskýrslunni þinni. Það eina sem stendur vexti vöruskiptaverzlunarinnar nú fyrir þrifum er að finna hentugan við- miðunargjaldmiðil. Vonir eru bundnar við, að hann komi í leitimar um svipað leyti og lýðræðið í Póllandi. Síðustu fróttir: Stór sending af nauðþurftum hefur nú loks borizt aftur til landsins frá Póllandi. Nú er tækifærið að sýna samstöðu og fylkja sér saman undir slagorðinu: Fjórar stórar stangir á dag, bæta pólskan efnahag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.