Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1982, Síða 11
DV.—HELGARBLAÐ. LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1982.
11
Rickogllsa - Bogart og Bergman.
Casáblanca
„Miðnætursýning” sjónvarpsins í
kvöld er kvikmyndin „Casablanca”
með Humphrey Bogart og Ingrid
Bergman — kunnugir segja að þetta
sé ein þeirra bíómynda sem sjá má
aftur og aftur.
Casablanca var gerð árið 1942.
Leikstjórinn var Michael Curtiz,
handritið gerði Howard Koch. Aðal-
hlutverkið er Rick (Bogart), Kani sem
barðist 1 spænska stríðinu með
lýðveldissinnum en rekur nú kaffihús
í Casablanca, Marokkó og neitar að
taka afstöðu til yfirstandandi styrjald-
ar. Hann virðist bitur út I allt stríð
þótt erfitt sé að segja hvort það sé
vegna afdrifa Spánar eða bara vegna
þess að kærastan hans sveik hann
þar. Og kærastan llse (Ingrid Berg-
man) birtist einmitt í Casablanca, nú
i fylgd með elskhuga sínum, sem er
hetja i neðanjarðarhreyfingunni gegn
nasistum. Elskhuginn er drepinn og
Rick og llse ná saman.
Ekki bara rómantík
Þessi einfaldaði söguþráður gefur í
skyn að Casablanca sé e.t.v. ástar-
saga. Svo er þó ekki nema einum
þræði. Stríðið stjórnmál, spilling og
hamingja eru hinir þræðirnir. Kaffi-
hús Ricks er fullt af allra þjóða kvik-
indum, sem flest óska þess heitast að
koniast burt frá Marokkó.Færir leik-
arar af mörgum þjóðernum koma
fram: Peter Lorre, Sidney Green-
street — gamalkunnug andlit úr
öðrum Bogart myndum — Marcel
Dalio, Conrad Veidt o.fl. i rullum út-
lendinganna. Þeir sýnast andstyggi-
legir sem slíkir en reynast beztir þegar
þeir eru að undirstrika þjóðerni sitt,
svo sem þegar Frakkinn syngur
franska þjóðsönginn í opið geðið á
nasistum. Alþjóðleg samvinna eða
þjóðrembueinangrunarstefna? spyr
kvikmyndin. Og segir svo: enginn
þessara manna hefði sloppið lifandi
ef þeir hefðu ekki verið svona spilltir,
rétt eins og striðið sjálft. Heimurinn
er spilltur eins og spilabankinn á
kaffihúsi Ricks. Siðgæði er afstætt.
Bogartog Bergman
Ekki er þó víst að siðgæðisyfirlýs-
ingarnar einar hafi orðið til að halda
nafni Casablanca á lofti. Andrúms-
loftið, kvikmyndatakan, leikurinn,
sviðið og ekki sízt Humphrey Bogart
sjálfur hafa orðið til að draga áhorf-
endur á þessa bíómynd aftur og aft-
ur. Og Bergman.
Ingrid Bergman hefur nýlokið
við að leika Goldu Meir i samnefndri
kvikmynd er nú fársjúk af krabba.
A.m.k. tvelr kvikmyndagerðar- >
menn hafa orðið til að leggja út af
Casablanca, Jean-Luc Godard í
„Breathless” og Woody Allen í „Play
it again Sam” (ódauðleg setning
Bergman í myndinni) þar sem Woody
leikur gaur með Bogart-dellu og sér
sjálfan sig í atriðum úr Casablanca.
Humphrey Bogart lézt úr krabba-
meini árið 1957. ->S
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á eigninni Ásbúð 41, Garðakaupstað, þingl. eign
Kristjáns Rafnssonar, fer fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn 2. mars 1982
kl. 13.00.
Bæjarfógetinn í Garðakaupstað.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 64., 70. og 72. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1981 á
eigninni Heiðangur 10, Hafnarfirði, þingl. eign Eiriks Jónssonar, fer fram
eftir kröfu Hafnarfjarðarbæjar og Sigurðar H. Guðjónssonar, hdl., á
eigninni sjáifri miðvikudaginn 3. mars 1982 kl. 15.30.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 74., 77. og 83. töiublaði Lögbirtingablaðsins 1980 á
eigninni Laufvangur 9, 3. h.t.h., Hafnarfirði, þingl. eign Jóhannesar
Georgssonar, fer fram eftir kröfu Hafnarfjarðarbæjar og lnnheimtu ríkis-
sjóðs á eigninni sjálfri miðvikudaginn 3. marz 1982 kl. 14.00.
Bæjarfógetinn i Hafnarfírði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 26., 31. og 33. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1981 á
eigninni Dvergholti 8, efri hæð, Mosfellshreppi, þingi. eign Árna Árna-
sonar, fer fram eftir kröfu Toilstjórans i Reykjavik, á eigninni sjálfri
þriðjudaginn 2. mars 1982 kl. 15.30.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á spildu úr Reykjadal, Garðyrkjustöð Mosfeilshreppi,
þingl. eign Erlings Ólafssonar, fer fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn 2.
mars 1982 kl. 15.00.
Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 103., 106. og 109. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1981, á
Furugrund 72 — hluta—, þinglýstri eign Indiönu Eybergsdóttur o. fl.,
fer fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 3. mars 1982 kl. 15.00.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
-----------------------------------------V
Aóalfundur
Hf Eimskipafélags íslands verður haldinn í
Súlnasal Hótel Sögu, föstudaginn 2. apríl 1982,
kl. 13.15.
DAGSKRÁ:
1. Aðalfundarstörf samkvæmt 14. gr.
samþykkta félagsins.
2. önnur mál, löglega upp borin.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hlut-
höfum og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu
félagsins í Reykjavík frá og með 26. mars.
Reykjavík 20. febrúar 1982
STJÓRNIN
EIMSKIP