Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1982, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1982, Qupperneq 15
15 DV.—HELGARBLAÐ. LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1982. d sent :U kann Konur t stjómmálum. '‘jjHkjákvætt misréttí íausnin? Miklar deilur eiga sér nú staö innan Jafnaðarmannaflokksins í Bretlandi um það hvort tryggja skuli hlut kvenna í flokksstarfinu með sérstökum flokkslaga-ákvæðum. Úrslitin verða ráðin í bréf- legum kosningum flokksfélaga. í grein, sem nýlega birtist í The Times, gerir einn félaganna skilskoðunum stnum á þessu máli: Ættu stjórnmálaflokkar að tryggja jafnan hlut kvenna í flokksstarfinu með sérstökum ákvæðum 1 stefnu- skrá og lögum? Þetta var sú spurning sem mesta heift og lengstar umræður vakti á ráðstefnu nýja brezka Jafnaðarmannaflokksins um næst- síðustu helgi. Á ráðstefnunni var fjallað um starfskipulag flokksins. Hana sóttu um 300 manns, þar af 16% konur. Þrennt var einkum til umræðu 1 þessu sambandi: lögbundin lágmarkstala kvenna í framkvæmda- stjórn, jafn hlutur kvenna á próf- kjörslistum og jafn hlutur kvenna og karla á fulltrúaþingum. Þegar gengið var til kosninga um þessi atriði, náðu tvö hin fyrrtöldu fram aö ganga með góðum meirihluta. Hið síðasta þurfti að kjósa tvisvar um og féllu atkvæði jafnt í bæði skiptin. Nú liggur fyrir að láta fara fram bréflega kosningu meðal allra flokksfélaga sem eru um 78.000 talsins. Einn karlogein kona Þrætueplið var jafnrétti á fulltrúa- þingum. í drögum þeim að stefnu- skrá sem lágu fyrir ráðstefnunni var stungið upp á að hvert fulltrúasvæði sendi jafnan tvo fulltrúa á þingin, einn karl og eina konu. Þessi ákvæði munu runnin undan rifjum starfs- hóps á vegum flokksins, sem fjallar um konur í stjórnmálum — málefni, sem gömlu flokkarnir hafa látið fara fyrir ofan garð og neðan að sögn greinar 1 The Times um ráðstefnuna. Starfshópurinn var settur á fót fyrir tilstuðlan þeirra David Owen og Shirley Williams, sem bæði hafa lýst þeirri skoðun sinni, að aukin hlutur kvenna í stjórnmálum myndi verða til að áherzlur og forgangsröðun breyttist til hins betra. í starfshópn- um eru bæði konur og karlar af öllum gráðum menntunar og launa. Nokkrar kvennanna eru þegar í 300 — hópnum, en það er allra — flokka- nefnd, sem berst fyrir auknum fjölda kvenþingmanna. Fréleit rökgegn í fyrrnefndri grein í The Times, kemur fram að starfshópur Jafnaðarmannaflokksins einbeitir sér nú að því að reka áróður meðal flokksfélaga fyrir því að jöfn tala karla og kvenna á fulltrúaþingum verði tryggð 1 stefnuskrá flokksins. Yfir 42% félaga eru konur, en þær munu ekki allar styðja þetta ákvæði fremur en fulltrúar þeirra gerðu á ráðstefnunni. Þó er gert ráð fyrir að meirihluti flokksbundinna kvenna muni greiða atkvæði með því. Þegar rætt var um þessi mál á ráðstefnu flokksins* á dögunum snerist mörgum hugur við að hlusta á hin „fáránlegu rök” gegn ákvæðinu, segir í greininni í The Times. Þá segir: ,,Fyrir einu ári voru margar þeirra kvenna, sem nú berjast fyrir jafnri tölu karla og kvenna á flokksþingum á andstæðri skoðun. Þeim féll ekki þess konar „jákvætt misrétti”, fannst það niðurlægjandi, ónauðsyn- legt og smávægilegt. Þegar Jafnaðarmannaflokkurinn var í burðarliðnum virtust svo margar konur taka þátt í stofnun svæðafé- laga, sem hæfar sýndust til frekari starfa. Embætti innan flokksins áttu jú eftir að koma til kosninga og engin hætta sýndist á að konurnar yrðu undir í þeim kosningum. Það hefur þó komið 1 ljós síðan, að konum 1 Jafnaðarmannaflokknum nýja hefur ekki orðið betur ágengt en konum 1 gömlu flokkunum. Á ráð- stefnunni um stefnuskrá voru engar sérstakar ráðstafanir gerðar til að tryggja jafnan hlut karla og kvenna þar — en ráðstefnugestir voru valdir 1 héraði. Eins og áður sagði voru konur 16% þeirra fulltrúa sem sendir voru á þá ráðstefnu. Þess vegna eru nú margir þeirra sem áður voru á móti lögbundinni tryggingu jafn- ræðis innan flokksins, á þeirri skoðun að hann kunni að sitja uppi með algjör karlafulltrúaþing og lízt því ekki lengur á blikuna. Rökingegn Mörg rök komu fram á ráðstefn- unni gegn lögbundnum réttindum kvenna. Sum komu frá körlum, önnur frá konum. Nokkrir spurðu hvort ekki væri skylt að tryggja hlut annarra minnihlutahópa líka, svo sem svertingja, fatlaðra o.s.frv. Því var (auðvitað, innskot blm.) svarað á þá lund, að konur væru ekki minni- hlutahópur heldur rúmlega 52% brezku þjóðarinnar. önnur rök hnigu að manngildi — þó nokkrar konur risu úr sætum sínum til að segjast fremur vilja vera kjörnar á fulltrúaþing vegna ágætis en ekki kynferðis. „Bezti maðurinn á að sigra,” var sagt. Margar þeirra kvenna, sem héldu fram þessari skoðun, voru hámenntaðar eða komnar ofarlega í launa- og metorða- stiganum og væru ekki í neinum vandræðum í hópi þrautreyndra stjórnmálamanna. Þessar konur kærðu sig ekki um að sá skuggi félli á frama þeirra að þær hefðu aðeins komizt svo og svo langt vegna „tíma- bundins misréttis”. En hvað felst til ágætis á stjórn- málasviðinu? Hver er „bezti” maðurinn þar? Þeirri spurningu er ekki gott að svara eftir að hafa skoðað þá sem nú eru á toppnum í pólitíkinni. Hefur núverandi kerfi fleytt rjómann í raun og veru? Lítum á þingmennina okkar: Hvað eiga þessir menn allir sameiginlegt þrátt fyrir mismunandi bakgrunn? Jú, fæstir þeirra hafa nokkru sinni komið nálægt því sem helmingur þjóðarinnar gerir mestan part ævi sinnar: ala önn fyrir börnum, .fjöl- skyldum og finna mest fyrir þeim ákvörðunum sem teknar eru í þing- inu. David Owen hefur margsinnis haldið þvi fram í þingræðum, að ef fleiri konur væru á þinginu, væri for- gangsröð framkvæmda, ekki sízt á sviði félagsmála, allt önnur. Mœlikvarði á stjómmálamenn En þegar kemur til þess að velja fólk til starfa í stjórnmálaflokkum eða frambjóðendur þeirra, verður karlinn — sem hefur oftast fleiri próf, meiri fræðilega þekkingu, ofan á konunni og hennar reynslu. Það virðist ekki hvarfla að neinum að spyrja sjálfan sig hvort það að geta stjórnað skrifstofu, skipulagt verka- lýðsfélög og haldið hvetjandi ræður séu þeir eiginleikar, sem góður stjórnmálamaður þarf að hafa. Hvort það sé rétti mælikvarðinn. Uppstillinganefndir haga sér oft eins og þær séu prófanefndir háskóla eða vinnuveitendur í leit að starfs- manni. Fræðileg þekking og tungu- lipurð fær hæstu einkunn. Er nokkuð undarlegt við það hversu margir af þingmönnum okkar eru lögfræðingar? Menn, sem hafa enga reynslu af lífinu eins og það gengur fyrir sig í raun og veru og þekkja lítið annað en skólagöngu, réttarsali og ungliðastarf innan flokks sem oft leiðir beint út í stjórn- málastörf á þingi. Árum saman hafa konur með stjórnmálahæfileika helzt úr lestinni, ekki sizt í flokksstarfinu sjálfu og þá vegna fordóma gegn þeim. Karlmenn hafa beztu störfin í atvinnulífinu og þeir líta á forsvarsstörf innan stjórn- málaflokkanna sem sín réttindi. Það er fjöldinn allur af hæfum konum í góðum stöðum, sem að auki hafa reynslu af heimilisrekstri. Sú reynsla ætti að teljast til kosta þeirra, ekki lasta. Ef við i í raun og veru viljum að Parliament vinni í umboði allrar þjóðarinnar, þá nægir ekki að halda því fram að þessi 86,3%. þing- manna, karlarnir, geti starfað í umboði meira en helmings lands- manna. Uppstillinganefnd Jafnaðar- mannaflokksins er að gera liðskönn- un meðal flokksbundinna félaga í leit að væntanlegum frambjóðendum. Einn af hverjum fimm, sem gefið hafa kost á sér, eru konur. Að sögn nefndarinnar, eru þær konur allar í hópi frambærilegustu manna flokks- ins. Vegna þess, að engin kona lætur sér detta i hug að gefa kost á sér nema hún viti fyrir víst að hún sé hæf í starfið. Karlarnir, hins vegar eru öruggari með sig. Fæstir þeirra hafa nokkuð sérstakt fram að færa en efast þó aldrei um hæfileika sína. Þeir spyrja ekki, eins og konurnar, sem stungið er upp á, gera: „Hvað ég? Ertu alveg frá þér, ég get það aldrei!” Það þarf að hvetja konurnar, ýta á eftir þeim, ota þeim. Þær ota sér aldrei sjálfar. Vegna þess hversu lítinn áhuga gömlu flokkarnir hafa sýnt konum, eru afar fáar konur til með pólitiska reynslu að baki. Konur hafa verið látnar sleikja frímerki, hella upp á kaffi, gángast fyrir flóamörkuðum og dreifa bæklingum. Þessu þarf að breyta. Flokkarnir eiga að byggja konurnar upp, gefa þeim sjálfstraust til að auðvelda þeim leiðina inn í þingheimana. Þingmenn verða ekki til á einni nóttu, þeir hafa fengið sína þjálfun inni í flokkunum fyrst. Sjái nýi Jafnaðarmannaflokkurinn ekki til þess að hlutur kvenna verði tryggður með stefnuskrárákvæðum, mun hann seint verða fær um að geta af sér marga kvenþingmenn. Það er undir flokksbundnum meðlimum hans komið nú, hvers konar flokkur þetta verður. Hvort hann verður framsækinn umbóta- flokkur á vinstra kanti brezkra stjórnmála eða varkár og íhalds- samur á miðjunni. Hér ræður ekki aðeins sú afstaða, sem flokkurinn kann að taka til þeirra málefna, sem greina gömlu flokkana hvern frá öðrum. , Hitt, hvernig Jafnaðar- mannaflokkurinn tekur á málum, sem gömlu flokkarnir hafa sameinazt í, skiptir líka höfuðmáli. Gömlu flokkarnir hafa sameinazt í afstöðu sinni til málefna kvenna, þeir hafa sameinazt í afskiptaleysinu. Úrslit kosninganna um lögbundna trygg- ingu fyrir jafnrétti innan Jafnaðar- mannaflokksins geta þvi lika ráðið úrslitum um það, hvers konar fiokki er verið að hleypa af stokkunum. Það er verið að kjósa um það hvort losa skuli úr viðjum þá orku og reynslu sem konur búa yfir. Hvort breyta skuli þvi gildismati, sem verið hefur ráðandi allt of lengi. Ein kona í Downing Street nr. 1Ö breytir litlu. Bretlandi hefur alltaf verið stjórnað af körlum — og það er svo sem ekki eins og árangurinn sé nokkuð til að hrópa húrra fyrir!” Polly Toynbee The Times Ms-þýddi. Ct&tí Shirley Williams, einn af stofnendum nýja Jafnaðarflokksins í Bretlandi. Konur í flokknum berjast nú fyrir því sem kalla mætti ,Júkvætt misrétti” til að auka hlut sinn íflokksstarfinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.