Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1982, Qupperneq 29

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1982, Qupperneq 29
Menning Menning Menning Menning Tónlist Innsetning á Akureyri Nýstárleg sýning verður opnuð á Akureyri í dag þar sem er sýning Gerlu á „Installation” eða innsetningum eins og það hefur verið nefnt á íslenzku. Þá stillir listamaður upp hlutum, aðfengn- um eða sjálfsköpuðum í ákveðið rými og byggir samspil hlutanna upp ástand eða andrúmsloft. Vefjist þetta fyrir ein- hverjúm er lausnin auðvitað sú að skoða sýninguna. Gerla er Guðrún Erla Geirsdóttir. Hún stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla íslands og hefur próf þaðan sem teiknikennari, auk þess sem hún nam frjálsan textíl. Gerla nam lengi í Hollandi, m.a. í textíl leik- mynda- og leikbúningagerð. Árið 1977—78 var hún á sérstökum náms- styrk frá hollenzka ríkinu. Sýning hennar á Akureyri nú er í Rauða húsinu og hefst kl. 16.00 í dag. Þetta er fjórða einkasýningOerlu, auk fjölda samsýn- inga bæði hér heima og erlendis. Sýn- ingin í Rauða húsinu varir til sunnu- dagsins 7. marz. Ms „Samspll hlutanna vekur andrums- ktft aða ástand... " DV.—HELGARBLAÐ. LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1982. Háskóáakórskis. Tónlist um helgina og i næstu viku. Tveir eru þeir aðilar sem halda uppi merkjum í tónlistarlífi höfuð- staðarins um helgina. Edda Erlendsdóttir leikur franska impressionista á Kjarvalsstöðum á morgun kl. 17. Eddu má líta á sem okkar helsta sérfræðing í franskri píanómúsík og má vænta skemmti- legra tónleika hjá henni. Háskólakórinn hefur náð að kþmast í fremstu röð íslenskra kóra. Nú um helgina flytur hann þrenna tónleika með alíslenskri efnisskrá. Hinjr fyrstu voru á föstudagskvöld, aðrir i dag kl. 17.00 og hinir siðustu á morgun kl. 20.30. Háskólakórinn hefur verið harðduglegur við að syngja nýja íslenska músík og nú hefur hann í hyggju að herja á írland að þessari tónleikalotu lokinni. Svo ber að endingu að minna á , að Guðný Guðmundsdóttir, konsert- meistari, og Mark Reedman, fiðlu- og víóluleikari, leika á Háskólatón- leikum í Norræna húsinu föstudag- inn 5. mars,. EM Alþýðuleikhúsið: Elskaðu mig eftir Vitu Anderson, sýnt i kvöld kl. 20.30. Súrmjólk með sultu, sænskt ævintýri, sýnt á morgun kl. 15. Illur fengur eftir Joe Orton, enskur farsi, sýndur annað kvöld kl. 20.30. Simi 16444 Garðaleikhúsið: Karlinn í kassanum — farsi eftir Arnold og Bach, sýndur í Tónabæ annað kvöld kl. 20.30. Sími 46600 Kópavogsleikhúsið: Leynimelur 13. Gamanleikur með söngvum eftir Jón Hjartarson, sýndur í kvöld og á mánudaginn kl. 20.30. Aldrei er friður eftir Andrés Indriða- son, fjölskylduleikur til gamans gerð- ur. sýndur á morgun kl. 15. Sýningum fækkar óðum. Sími 41985 Leikfélag Reykjavíkur: Jói í kvöld kl. 20.30. Salka Valka annað kvöld kl. 20.30. Ofvitinn — næsta sýning miðvikudag. Fáar sýningar eftir núna. Revían Skornir skammtar í kvöld kl. 23.30. Sími 16620 Þjóðleikhúsið: Hús skáldsins í kvöld kl. 20. í gær var frumsýning á Sögur úr Vínarskógi. Næsta sýning annað kvöld kl. 20. Gosi verður sýndur í dag og á morgun kl. 14. Ath. KI. 14.Sími 11200. Islenzka óper- an. Sigaunabaróninn, 24.sýning verður í kvöld kl. 20. Uppselt. Sími 11475: bregdast stórkosdega LlkMtag Akureyrar: prjár systur Höfundur: Anton Tsákhov TönRst OUvsr Ksntish Lýslng: Ingvsr BJömsson LsRtmynd og búningar: Jenny Ouðmundsdóttir LsHcstJóm og handrjt: Kári Halldór Ég kann ekki á því skil í neinum smá- atriðum, hvað ræður því að leiksýning heppnast fullkomlega. Þótt sumir menn virðist hafa þann hæfileika að koma slíkum sýningum á fjalirnar, þá leiðir ekki af sjálfu sér, að þeir geti Iýst skilmerkilega fyrir öðrum, hvernig þeir fari að því. Þennan hæfileika virðist með öðrum orðum ómögulegt að læsa í forskrift eða formúlu. Að koma upp góðri leiksýningu er álíka leyndardóm- ur og að skrifa góða bók. En þótt það sé leyndardómur, þá átta flestir sig á því, þegar þeir sjá góða leiksýningu. Ég held að það hafi ekki farið framhjá neinum, sem var á frumsýningu Leikfé- lags Akureyrar á Þrem systrum eftir Tsékhov, að hér var afburða sýning á ferðinni. Þrjár systur var næst-síðasta leik- rit Antons Tsékhovs (1860—1904). Eins og önnur meistaraverk hans fjallar það um dapurleg mannleg örlög, brostnar vonir og veiklyndi og erfið- leika. Þó er í því unaðsleg gamansemi, og þrátt fyrir allt lifir örlítil vonarglæta í lokin. Vladimir Nabokov, sem eyddi mestum hluta ævi sinnar á Vesturlöndum, lofar verk landa síns Tsékhovs, þegar hann hrífst af „þessu dapurlega myrkri, öllum þessum mann- lega veikleika, allri þessari grámósku heims Tsékhovs”. Hann bætir því við, að hann sé sérstaklega verðmætur ,,f glampa þessara sterku, sjálfum sér nægu heima, sem dýrkendur alræðisins lofa okkur”. Nú er það ekki ætlun mín að leggja í þetta verk einhvern félags- legan skilning, enda er ekki leitazt við að gera það í sýningunni. Hún dregur fram örlög persónanna, sem koma við sögu, og sýmir þá kurteisi við áhorf- anda að láta honum eftir að auka við efni leiksins að vild sinni. Það er ekki einfalt mál að rekja efni þessa leikrits, vegna þess að það virðist ekki mikið gerast i þvi. Þó er allt breytt í lokin frá því, sem það var í upphafi. Þá ræða systurnar þrjár, Olga, Írína og Masja um dauða föður þeira, sem hafði borið við ári áður. Það er sárt að tala um þetta, og brátt kemur í ljós, að þær hafa átt erfiða daga vegna þess að þær hafa ekki gert það, sem þær vildu. Allar þrjár dreymir þær um að flytja til Moskvu. Þar á mannlífið að vera betra, fullkomnara og umfram allt skemmtilegra. Masja býr í óhamingju- sömu hjónabandi með menntaskóla- kennaranum Kúligin, enda hafði hann ekki reynst eins gáfaður og hún hélt, þegar þau giftust.' Olga og írina eru ólofaðar. Olga þráir hjónaband, en eng- inn biður hennar, en um ástir Írínu keppa Soljonij og Túsenbach barón. Hún ann hvorugum, en ákveður að eiga baróninn. En baráttan á milli þeirra tveggja kemur í veg fyrir, að svo verði. . . Þær systur eiga einn bróður, Andrei, sem leikur á fiðlu og hyggur á nám og frama í Moskvuborg. Þær tala um að hann verði prófessor. f upphafi leikritsins er hann ástfanginn af Natösju. f lokin er hann giftur henni, tveggja barna faðir og kominn í bæjar- Hjónin Andrej (Guðjón Pedersen) og Natasja (Ingibjörg Björnsdóttir). stjórnina. Þeim systrum lízt ekki vel á konuefnið fyrst í stað, finnst hún gróf og einfeldningsleg. En hún ræður húsinu ein undir lokin, hefur ofurást á börnum sínum og er hið versta flagð og frekja. Það fer allt á versta veg i þessu leikriti. Inn í þessa fjölskyldusögu er fléttað fágaðri gamansemi og snýst mest af henni í kringum menntaskólakenn- arann, Kúlígín. Ég held, að flestir kennarar myndu geta kannazt við hann sem ýkta skopmynd af einfeldnings- legum kennara. Bezt þótti mér þó ræðan um ,,ut consecutivum,” sem er sérkennilegt sambland af barnaskap og skepnuskap og sprenghlægileg. En það á við um allar persónurnar, að þær hafa geðfelld og ógeðfelld einkenni og verða dýpri og sennilegri fyrir bragðið. Sýning LA á þessu verki er stílhrein og glæsileg. Leikmyndin er sérlega haganlega gerð, og það sem er skemmtilegast við þessa sýningu er, að leikmyndin er notuð mjög vel. Sviðinu er öllu beitt og göngunum sinú hvor-' um megin við sætin; staðsemingar og hreyfingar á leikurum voru mjög vel út- færðar. Og það tókst að ná samræmi í alla sýninguna, framsögn, hreyfingar, sviðið og túlkun leikaranna. Það ,var stíll yfir sýningunni. Leikstjórinn á ómælt lof fyrir það. Frammistaða leikaranna allra var góð. Sýningin er fyrst og fremst sigur hópsins. Mér finnst þó ástæða til að nefna nokkra og bið hina, sem ekki eru nefndir, velvirðingar. Það er ekki vegna þess, að þeir hafi staðið sig illa. Systúrnar þrjár, Írína, Olga og Masja, Guðbjörg Thoroddsen, Sunna Borg og Ragnheiður Elfa Arnardóttir, leika vel saman og tekst að koma til skila innra lífi systranna, en það er lykilatriði i list Tsékhovs. Samleikur barónsins, Andrésar Sigurvinssonar, og Soljonij, Theodórs Júlíussonar var einn af bezt heppnuðu þáttum sýningarinnar. Guðjón Pedersen sem Andrej og Natasja, Ingibjörg Björnsdóttir, sköpuðu mjög eftirminnileg hjón. Ef einhver hefur tekið öðrum fram á þessari sýningu var það Þröstur Guð- bjartsson í hlutverki Kúlígins. En aðal- atriðið var, að öllum tókst vel upp. Það var vel til fundið að leika tónlist á celló með þessu leikriti. Lág- stemmdur, tregablandinn tónninn hæfir leikritinu. í því bregðast nánast allar vonir öllum, en þær bregðast stór- kostlega. Sýningin hæfir leikritinu; hún er meistarastykki. Guðmundur Heiðar Frimannsson. Leiklist

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.