Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1982, Qupperneq 2
2
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1982.
p0 Ot'L'P
OO
ROYAL BÚÐINGAR
Caramel.........kr. 11,40
Vanilla.........kr. 11,40
Leuion....kr. 11,40
Chocolate.......kr. 11,40
Hver dag..................kr. 70,50
Wheal grain...............kr. 35,70
Guld Korn.................kr. 57.45
Bugles....................kr. 60,30
Chrisp Wheats’ Raisins....kr. 66,00
#3***
KELLOGGS
All Bran....................kr. 49,95
Country store 340 gr........kr. 63,70
Country store 680 gr........kr. 90,60
CocoaPuffs..................kr. 81,45
Puffa Puffa Rice............kr. 87,00
Bran Buds...................kr. 98,40
Frosties....................kr. 78,90
RiceCrispies................kr. 82,95
Bran Flakes...............kr. 101,70
Snacks......................kr. 70,35
Corn Flakes
500 gr. (2 stk.)..........kr. 43,70
Corn Flakes 340 gr..........kr. 50,10
Scrtilboð
Þvottacfni
25kgC—11...............kr. 323,40
5 kg. Vex..............kr. 80,00
5 kg Iva...............kr. 84,00
3kg.C—11...............kr. 48,15
3 kg. Oxan.............kr. 46,90
3 kg. Íva..............kr. 50,15
Öskjur
2,3 kg Sparr...
2,3 kg. Iva....
2,8 kg. Ariel..
75 dl Prana....
75 dl Cano.....
3kgC—11........
3 kg Vex.......
3 kg Blik......
3 kg Ajax tunna...
3 kg dósir
af niður-
soðnum
ávöxtum
og grænmoti
afsláttur á öllu öli
11/1
kössum.
Þér finnst það kannski skrítið
cn hjá okkur
færðu mikið fyrir lítið.
... 44,35
kr. 44,35
kr. 75,75
kr. 54,10
kr. 49,70
kr. 52,30
kr. 51,45
kr. 51,30
kr. 72,95
Sparimarkaðurinn
Austurveri j
Opið allan daginn. j
Hafréttarsáttmálinn:
„Höfum náð settu marki eftir
20 ára landheigisbaráthi"
—segir Gunnar G. Schram, en lög um200 mílna efnahagslögsögu strandríkja
erufuppkastinu
„Meginatriðið er að með þessum
sáttmála verða í fyrsta skipti til
alþjóðalög um 200 mílna efnahags-
lögsögu, sem er mjög merkilegur
áfangi og tryggir fiskveiðiþjóðum
eins og okkur endanlegan rétt innan
200 milnanna og auk þess nokkra
vernd utan þeirra. Það má því segja
að við höfum náð settu marki eftir 20
ára landhelgisbaráttu,” sagði
Gunnar G. Schram, prófessor og
fulltrúi íslands á hafréttarráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna í New York,
aðspurður um, hvaöa atriði í upp-
kasti hafréttarsáttmálans hefðu
mesta þýðingu fyrir ísland og íslend-
inga.
„Reyndar var gerð tilraun til að
fella niður sérstök forréttindi íslands
og gerði það eitt Afríkuríkja en til-
lagan var dregin til baka svo okkar-
réttindi standaóskert eftir.”
Gunnar sagði menn gera því skóna
að sáttmálsuppkastið yrði samþykkt
á morgun, föstudag, en eina
ágreiningsmálið nú væri varðandi
námuvinnslu á hafsbotni, mál sem
ekki snertir Ssland beint. Sagði hann
að allt benti þó til að samkomulag
um það atriði næðist fljótt.
„Þau alþjóðalög um 200 mílna
fiskveiðilögsögu eru lokapunktur á
langri baráttu strandríkja og veitir
fiskveiðiþjóðum eins og okkur mikla
möguleika. Að fá staðfestingu á 200
mílunum er ný og merkileg löggjöf
um hafið, sem jjekur um 75 prósent
jarðarinnar,” sagði Gunnar G.
Schram.
-KÞ.
Sjómannasamtökin mótmæla kaupum á Einari Ben.:
Ekkert út á aðbúnað að setja
segja skipverjar á togaranum
Farmanna- og fiskimannasamband
íslands og Sjómannasamband tslands
hafa samþykkt harðorð mótmæli gegn
kaupunum á togaranum Einari
Benediktssyni. Segir í ályktunum fram-
kvæmdastjórna samtakanna að togar-
inn uppfylli á engan hátt þær kröfur
sem gerðar hafa verið í samningum um
vistarverur áhafna og vinnuaðstöðu,
auk fjölmargra annarra atriða sem
áfátt er í skipinu.
Framkvæmdastjórnirnar skora á
stjórnvöld að endurskoða kaup þessa
skips og sjá um að þau skip sem keypt
eru til landsins fullnægi þeim kröfum
sem gilda i landinu.
Óskar Vigfússon, formaður
Sjómannasambandsins, sagði í viðtali
við DV að Einar Benediktsson hefði
veitt á grunnmiðum innan fjarða við
Bretland og að skipið væri ekki búið
undir átök á Norður-Atlantshafi. Væri
dekkið til dæmis ekki i standi til að
taka við þeim þungu sjóum sem menn
eiga að venjast við ísland.
Óskar sagði einnig að borðsalur væri
mjög þröngur og að aðeins væru kojur
fyrir 10 manns í skipinu. Þar sem um
skuttogara væri að ræða ættu að vera
15 menn í skipinu og jafnvel þótt menn
vilji kalla þetta bát.ætti áhöfnin að vera
14 til 16 manns, sagði Óskar. Taldi
hann að með þessum kaupum væri
horfið 20 til 30 ár aftur í timann hvað
varðar aðbúnað og öryggi skipshafnar.
Er DV hitti skipverja á Einari
Benediktssyni að máli sögðu þeir að
þessar fullyrðingar væru alrangar.
Aðbúnaður á skipinu stæði fyllilega
jafnfætis því sem væri á öðrum nýjum
skipum i flotanum og þegar lag-
færingum yrði lokið væri ekkert út á
öryggi og aðbúnað að setja. Sögðu þeir
að skipverjar myndu verða 10 talsins og
væru engar reglur sem segðu að þeir
ættu að vera fleiri. -óff
Skipverjar á Einari Benediktssyni voru ánægðir með aðbúnaðinn á skipinu. Lengst til hægri stendur Ólafur
Ingim undarsson stýrimaður og einn eigenda skipsins. ó V -mynd G V A.