Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1982, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1982, Blaðsíða 40
Fyrirhugaðar byggingarf ramkvæmdir á Rauðavatnssvæðinu: EKKERT SEM MÆL- IRÞEIMMOT ff —segir Sigurjón Pétursson, forseti borgarstjórnar, þrátt fyrir niðurstöður rannsókna um sprungumyndanir á svæðinu „Ég tel enga ástæðu til að fyrir- hugaðar byggingarframkvæmdir á Rauðavatnssvæðinu verði að engu þó komi i ljós að sprungur sé að finna á staðnum,” sagði Sigurjón Pétursson, forseti borgarstjórnar, í viðtali við blaðið í morgun, aðspurður urn ákvörðun meirihlutans í þessu máli í ljósi ummæla Kristjáns Benedikts- sonar borgarfulltrúa um að ekki væri skynsamlegt að taka svæðið til bygg- inga með hliðsjón af þeim rannsókn- um sem leiddu í ljós sprungur á svæð- inu. „Það hefur enginn grundvöllur skapazt ennþá til að hætt verði við framkvæmdir á svæðinu,” sagði Sig- urjón ennfremur. „Það er ljóst að fjölmargir þéttbýliskjarnar á landinu eru byggðir á sprungum. Um Rauða- vatnssvæðið er það að segja að þar hafa farið fram í fyrsta skipti rann- sóknir á fyrirhuguðu byggingarsvæði og niðurstöður þeirra rökstuddu að- eins þann grun okkar að þar væri að finna sprungumyndanir. Fyrirhugað- ar framkvæmdir á svæðinu verða svo væntanlega skipulagðar í ljósi þess- ara niðurstaðna. Til þess voru þær gerðar að eftir þeim yrði farið.” Aðspurður hvort þetta framtíðar- byggingarsvæði borgarinnar gæti ekki hugsanlega dæmzt úr leik um skeið, þar eð frekari rannsóknir á svæðinu væru taldar nauðsynlegar, sagði Sigurjón að svo gæti hugsan- lega farið. Hins vegar bæri að líta á þá stað- reynd að Reykjavík væri mest öll byggð á sprungum og þyrftu mönn- um varla að fallast hendur þó að slíkt kæmi einnig í ljós með næsta ná- grenni borgarinnar. Ef sá hugsana- gangur ríkti í borgarstjóm, væri ljóst að ekkert yrði af byggingarfram- kvæmdum á höfuðborgarsvæðinu á komandiárum. -SER. Margir unglingar sætta sig ekki við bann kvikmyndaeftirfíts- ins á kvikmyndinni Rokk í Reykjavík. Svo sem frá hefur verið sagt er myndin bönnuð ungfíngum innan 14 ára, en eftirkfípp- ingu myndarinnar er hún bönnuð innan 12 ára. í gær efndu krakkar tii mótmælagöngu frá Tóna/ íói niður á Lœkjartorg og mótmæhu síðan fyrir framan Stjómarráðið. A kröfuspjökfun- um mátti iesa; Burt með bannið, Við viljum Rokk í Reykjavík og Bannið á brott Krakkarnir hyggjast síðan efna tii sams konar kröfugöngu á morgun. -JH/DV-mynd GVA Frá Alþingi f morgun: MAKKAÐ UM HEITU MÁLIN Eftir fund atvinnumálanefndar sam- einaðs Alþingis í morgun er ljóst að makkað verður áfram um heitu málin, virkjanir og steinull, fram yfir helgi. Þau koma ekki til umræðu á þingfundi fyrr en líklega á þriðjudag. Þjarkað er um „samræmdan texta” vegna Blönduvirkjunar og hlutdeild ríkisins að steinullarverksmiðju. í dag em að- eins á dagskrá Alþingis fyrirspurnir í sameinuðu þingi. í kvöld verða síðan eldhúsdagsumræður, útvarpsumræð- ur. Myndin var tekin í morgun af atvinnu- málanefndinni að störfum í Þórshamri. Símalaust í Mosfellssveit ígær Simalaust varð í Mosfellssveit frá tólf á hádegi í gærdag og fram til klukkan fimm siðdegis. Var einungis ein neyðarlína til Reykjavíkur sem hægt var að nota. „Stööin bilaöi og allt datt út hjá okkur,” sagði Marta Guðmundsdóttir stöðvarstjóri er hún var innt eftir ásiæöu þess að sveitin varð sambandslaus. „Þetta er ný stöð hér, öll tæki tölvustýrð en ég hef bara ekki vit á hvað það var sem bilaði,” sagði hún. „Stutt er síðan stöðin bilaði en þá kom bilunin upp á laugardegi og stóð í mun styttri tima,” sagði Marta. Ekki vissi hún um vandræði sem skapazt höfðu vegna síma- leysisins í gærdag í Mosfellssveit. „Ég hef að minnsta kosti ekki frétt af neinu nema hvað þetta olli fólkióþægindum.” -ELA. frfálst, oháð daghlað FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1982. Áskrifendagetraun Dagblaðsins og Vísis: Skilafrestur framlengdur til miðviku- dags 5. maí Skilafrestur hefur verið framlengdur í hinni vinsælu áskrifendagetraun Dag- blaðsins og Vísis til miðvikudags 5. maí kl.22. Astæðan eru tilmæli nokkurra um- boðsmanna úti á landi en sendingar frá þeim höfðu ekki borizt í tæka tíð til DV, Þverholti 11. Enn er sem sagt tækifæri til að gerast áskrifandi að Dagblaðinu og Vísi, skila inn getraunaseðli og eiga góða mögu- leika á því að eignast Suzuki-jeppann glæsilega. Látið ekki happ úr hendt sleppa. -gb Samningaráó VSÍ: Vill frestun sáttafunda „Þegar flestir helztu forystumenn ASÍ hafa ákveðið að úrslit í kjarasamn- ingum fáist ekki fyrr en eftir lokun kjörstaða 22. maí næstkomandi eru sáttaumleitanir við svo búið tilgangs- lausar,” segir samningaráð Vinnuveit- endasambandsins í samþykkt frá í gær. Ráðið fór þá fram á það við sátta- semjara, að sáttaumleitunum milli ASÍ og VSÍ verði frestað fram yfir kosningadaginn. Tildrögin eru yfirlýsingar verkalýðs- ráðs Alþýðubandalagsins, þar sem 13 forystumenn ASÍ sitja, um að „úrslit í kjarabaráttunni ráðist á kjördegi 22. maí.” Er það áréttað þannig: „Það er of seint að átta sig eftir að kjörstöðum hefur verið lokað að kvöldi 22. maí.... Árangur kosningabaráttunnar mun ráða úrslitum i kjarabaráttunni.” Forseti ASf, Ásmundur Stefánsson, sem er jafnframt í verkalýðsráði Alþýðubandalagsins, kveðst „dolfall- inn” yfir samþykkt samningaráðs Vinnuveitenda og telur einsýnt að verkalýðsfélögin afli sér þegar í stað verkfallsheimilda, þar sem ráðgert hafi verið við síðustu samningagerð að samningar nú tækju gildi fyrir 15. maí. Rikissáttasemjari mun fjalla um beiðni samningaráðs VSÍ með sátta- nefnd í dag. HERB LOKI Þar sem fróðir menn spá þingkosningum í kjölfar bœj- ar- og sveitarstjómarkosning- anna, gefst væntan/ega tæki- færi til þess að fresta samn- ingaviðræðum ASÍ og VSÍ til haustsins. MH ■ I g

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.