Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1982, Blaðsíða 15
AGBLAÐIÐ & VÍSIR. FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1982.
15
Menning Menning Menning
ísland, 1978-1980 152x252 sm nr. 42
/ smiðiu
Um þessar mundir stendur yfir
athyglisverð sýning í Listasafni ASÍ á
verkum eftir örn Þorsteinsson. Lista-
maðurinn er einn af yngri kynslóð-
inni, sem fellur vel inn í hina stuttu ís-
lensku listasögu, sem um fram allt
hefur einkennzt (út á við) af abstrakt
myndmáli. Listamaðurinn á þegar
nokkurn feril, tekið þátt í fjölda sam-
sýninga bæði hér heima og erlendis,
en þetta er önnur einkasýning hans.
Sýningunni lýkur 9.5.
í smiðju.
Það er virkilega lifandi ástand á
þessari sýningu í salarkynnum Lista-
safns A.S.Í. Hér ægir saman mál-
verkum, tekningum, lágmyndum og
skúlptúrum þar sem hálf- lifræn
form eru sem rauður þráður í gegn-
um myndverkin. í raun er það eins og
að koma inn í smiðju þar sem allt er
að gerast, listaverk mislangt á veg
komin. Þetta er einskonar leit sem á
sér stað samtímis á mörgum vígstöð-
um. Þetta kemur sérlega fram i
teikningunum þar sem listamaðurinn
teiknar/ skrifar upp fantasíur án þess
að finna megi raunveruleg tengsl
Myndlist
GunnarB.Kvarán
Úr þúsund mynda safni, 1981, 75x63
sm nr. 37
milli myndanna, — jú, stundum má
greina og lesa stutt myndferli; tema
sem gengur i gegnum nokkur
myndbrot.
„Þúsund mynda safnið” er
líkt og myndletur sem raðað er upp
í láréttar línur (kannski einnig lóð-
réttar?) sem áhorfandinn les ósjálf-
rátt eins og blaðsíðu í bók. En þar
sem oftast er um að ræða sjálfstæð
myndbrot, læðist að manni sá grunur
að hér sé um að ræða einskonar
„hugmyndabanka”, þar sem geymd-
ir eru myndrænir möguleikar, sem
ekki enn hafa fengið endanlega um-
fjöllun eða úrvinnslu. Myndbrotin
eru frekar líkt og minnisatriði sem
listamaðurinn ritar/teiknar hjá sér.
Sama virðist uppi á teningnum hvað
varðar lágmyndirnar og
skúlptúranna, þar sem listamaðurinn
teiknar með sög í stað blýants, nema
hvað hér er teiknað í rýmið.
Málverk
Málverkin eiga nokkra sérstöðu
hér á sýningunni, þar sem öll úr-
vinnsla bæði formrænt og tematískt
er orðin ítarlegri. Þetta eru verk sem
vega salt milli abstraktionar og raun-
sæis þar sem formræna spurningin
virðist fyrst og fremst liggja í þeim
vanda að samræma fjarlæg rými og
beina gagnverkun ólíkra forma og
þannig tengja ólík brot ósamfelldrar
frásagnar. Listamaðurinn sýnir okk-
ur nokkra möguleika t.d. í myndinni
í „sumarundrið” 1978—1980, nr..
43, á frásögnin sér stað á einum fleti,
þar sem óskilgreind lituð form að-
greina mismunandi figuratif mynd-
brot og um leið tengja þau saman í
eina heild. Þá kynnumst við öðrum
möguleika í myndinni „ísland”
1978—1980”, nr. 42, þar sem lista-
maðurinn vinnur rýmið likt og
collage þar sem fletir eru settir hver
ofan á annan. Við þetta er rýminu
þjappað saman og öll rýmissjón-
blekking hverfur. Myndin eignast
mun óhlutlægari karakter og við les-
um umfram allt út úr hrynjandi
formsins, sem virðist liðast áfram og
metamorphosast yfir myndflötinn, i
þessum samspili óhlutlægra og hlut-
lægra forma er sem formin umbreyt-
ist í figúru, og figúrur í form.
Samruni
Víst er að þetta er fremur óvenju-
leg sýning þar sem áhorfandinn
fær tækifæri að koma og sjá inn i
sköpun sem er að gerast. Og það er
ljóst að þó við finnum ekki bein
tengsl milli teikninganna og mál-
verksins, þá er vist að spennandi væri
að sjá hvernig hægt væri að nýta
teikningarnar í stærri olíuverk eða lit
í skúlptúrin. í raun bíðum við aðeins
eftir listrænu efnahvarfi.
G.B.K.
Vetrarbrautin, 1981,122x88 sm nr. 58
Miði er möguleiki
dae
300 utanferðir
á 15.000 krónur hver.
Auk þess 12 toppvinningar til íbúða- og húseignakaupa á
250.000, 500.000 og 1.000.000 króna.
100 bílavinningar á 150.000 og 50.000 og á sjöunda þúsund hús-
búnaðarvinningar.
Sala á lausum miðum og endurnýjun flokksmiða og ársmiða
stendur yfir.
Rafsuðuvélar og vír
Haukur og Ólafur
Ármúla 32 - Sími 37700.
PANTANIR
Sími
43010
HÁRGREIÐSLU-
STOFAN
KLAPPARSTÍG 29
Bótasaumur
Innritun í bótasaumsnámskeið HMl stendur nú yfir.
Námskeiðin hefjast í maíbyrjun. Getum enn bætt
nokkrum nemendum við á maínámskeiðið. Innifalið í
namsgjöldum er:
1. 3 kennsluaðferðir og 1808 munstur með öllum
nauðsynlegum sniðum og efni í formin.
2. Efni í kodda (verkefni 1) og efni í 60 x 100 cm vatterað
veggteppi (verkefni 2).
3. Nálar, tvinni og annað sem til þarf.
lltnsjón og tilsögn: Anna Þórdís Guðmundsdóttir.
HAIMDI
MEIMIMTA
SKÓLH
VELTUSUNDI 3
101 REYKJAVfK
S fMf : 91/2 76 44
ISLANDS
Ég óska eftir að fá scnt
kynningarrit HMÍ mér
að kostnaðariausu
Nafn:________________
Hcimiiisf: