Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1982, Síða 32
32
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1982.
Bodil Sahn menntaskólakennari lézt
22. apríl. Hún var jarðsungin frá
Dómkirkjunni í morgun klukkan
10.30.
Sólveig Guðmundsdóttir lézt 17. apríl.
Hún var fædd 29. apríl 1901 á
Indriðastöðum í Skorradal, foreldrar
hennar voru Guðmundur Guðmunds-
son og Hólmfriður Björnsdóttir.
Sólveig giftist Magnúsi Vigfússyni
húsasmíðameistara sem lézt áriö 1976.
Þau eignuðust 3 börn. Sólveig verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni í dag
klukkan 13.30.
Björn Ketilsson, Skipasundi 7, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju, á
morgun 30. apríl, kl. 13.30.
Karlott S. Þorsteinsdóttir verður
jarðsungin frá Þjóðkirkjunni i
Hafnarfirði á morgun 30. apríl, kl. 14.
Katrin Oddsdóttir,Rauðalæk 73, lézt í
Landspítalanum 27. þ.m.
Una Sigfúsdóttir, Hávallagötu 7, lézt
að morgni 28. apríl í öldrunardeild
Landspítalans að Hátúni 10B.
Stefán Bjarnason verkfræðingur
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju,
á morgun 30. april kl. 3.
Steinunn Guðbrandsdóttir,
Njarðvikurbraut 19 Innri-Njarðvík,
verður jarðsungin frá Innri-
Njarðvíkurkirkju, laugardaginn 1.
maí, kl. 2.
Þorbjörg Guðmundsdóttir, fyrrv.j
ljósmóðir frá Ólafsvik, Háagerði 67,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju á
morgun föstudaginn 30. apríl, kl.
10.30. f.h.
Sigríður Jóna Jóhannsdóttir frá
Hleiðargarði, Einholti 8B, Akureyri,
sem andaðist 22. apríl, verður
jarösungin 30. april frá Saubæjar-
kirkju, Eyjafirði, kl. 14.
Tilkynningar
Húsmœðrafólag
Reykjavfkur
heldur sýnikennslu í félagsheimilinu Baldursgötu 9
fimmtudaginn 29. apríl klukkan 20.30. Mat-
reiðslumenn frá Goöa sýna glænýjar geröir af pinna-
mat og brauðtertur. Konur, fjölmennið.
Húnvetningafólagið
(Reykjavfk
Föstudaginn 30. april heldur Húnvetningaféiagiö í
Reykjavík sinn árlega sumarfagnaö í Domus Medica
kl. 20.30.
Átthagasamtök
Hóraðsmanna
halda sinn árlega vorfagnaö í félagsheimili Raf-
magnsveitunnar laugardaginn 1. maí. Húsiö opnað
kl. 20.00. Dagskrá: Eysteinn Jónsson flytur ávarp,
Margrét Guttormsdóttir les skemmtilestur, Margrét
Pálmadóttir syngur létt lög og hljómsveitin Slag-
brandur leikur fyrir dansi.
Mitt Faðirvor
Þriöja útgáfa af laginu ,,Mitt Faöirvor” eftir
Kristján frá Djúpalæk og Árna Bjömsson er komin
út. önnur útgáfa var m.a. gefin á stofnanir o
heimili fatlaðra og er nú uppseld. Þriöja útgáfa
veröur fáanleg í íslenzkri tónverkamiöstöö og í
nokkrum bókabúöum.
I gærkvöldi I gærkvöldi
íslenzkar kvikmyndir og
þögul Hollywood
Það var mikið fjallað um kvik-
myndir í sjónvarpinu i gærkvöldi. í
Vöku var aðalefni þáttarins tvær nýj-
ar íslenzkar kvikmyndir, sem að und-
anförnu hafa verið sýndar í kvik-
myndahúsum Reykjavíkur og strax á
eftir Vöku var skyggnzt um í Holly-
wood þegar þöglu myndirnar voru
upp á sitt bezta og líf frægra leikara
tekið fyrir.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
stjórnaði nú í fyrsta sinn Vöku og
fórst þaö ágætlega úr hendi, en hún
hefur aðallega fengizt við kynningu á
léttum tónlistarþáttum. { byrjun þátt-
arins var hún með smáspjall við Guð-
mund Emilsson sem vann sér það ný-
lega til frægðar að stjórna íslenzku
sinfóníuhljómsveitinni, en að því er
virðist eru mjög fáir íslendingar færir
um það, alla vega er mikið flutt inn
af útlendingum til þessa starfs.
Sóley, kvikmynd Rósku og félaga,
hefur mikið verið á milli tannanna á
fólki frá því að hún var frumsýnd um
páskana, og þá helzt fyrir óvand-
virkni við hljóðgerð, og hef ég ekki
enn hitt neina manneskju sem hefur
hælt henni, en þaö má kannski segja
um okkur íslendinga að við séum of
kröfuharðir þegar fjallað er um ís-
lenzkt efni sem tengist þjóðtrú okkar.
Róska mætti í Vöku ásamt Guð-
mundi Bjartmars, spjölluðu þau um
gerð myndarinnar, peningavandamál
í upphafi og þegar Asta Ragnheiður
spurði Rósku um þá gagnrýni sem
myndin hefur fengið gat Róskaekki á
sér setið og lét gagnrýnendur heyra
að þeir fjölluðu ekki nóg um listrænt
gildi kvikmynda, hvað svo sem það
er.
Rokk í Reykjavík hefur einnig að
undanförnu verið mikið til umfjöll-
unar meðal fólks og ekki að ástæðu-
lausu. Enn einu sinni hefur kvik-
myndaeftirlitið okkar orðið sér til
skammar með því að láta banna
krökkum innan fjórtán ára inngöngu
á myndina sem er bæði fræðandi og
skemmtun fyrir unglinga. Friörik Þór
og Ari Kristinsson komu fram 1 Vöku
og ræddu aðallega um tilurð og gerð
myndarinnar, sem nú hefur verið
klippt, kvikmyndaeftirlitinu til geðs.
Þættirnir um bernsku Hollywood
eru í beinu framhaldi af þáttum sem
sjónvarpið sýndi fyrir nokkru um
hvernig ljósmyndin varð til og einnig
þáttaröð um frumherja kvikmynda-
vélarinnar. í þættinum í gærkvöldi
var aðallega fjallað um eina skærustu
gamanmyndastjörnu þöglu kvik-
myndanna, Fatty Arbucle, hvernig
hann flæktist í morðmál, sem að öll-
um líkindum var ekkert morðmál, en
endaði með því að hann var ákærður
fyrir morð og allt hans líf lagt í rúst,
þrátt fyrir það að hann var sýknaður.
Einnig var sýnt hvernig kvikmynda-
eftirlit getur haft grátbrosleg áhrif á
gerð kvikmyndanna og oftast eyði-
lagt meira en gert gagn.
Þessir þættir um Hollywood eru
mjög skemmtilegir og fræðandi og
ekki sakar að hafa jafnágætan mann
við kynningarnar og James Mason.
Hilmar Karlsson
Aðatfundur
Laugarnessóknar
verður haldinn í Laugarneskirkju sunnudaginn 2.
maí kl. 15.00 aö lokinni guösþjónustu.
Laugarneskirkja:
Opið hús fyrir aldraða á morgun, föstudag, klukkan
14.30. Sýndar verða litskyggnur frá kristinboðinu í
Konsó. Kaffiveitingar.
Húsmæðrafólag
Reykjavíkur
heldur sýnikennslu í félagsheimilinu Baldursgötu 9
fimmtudaginn 29. apríl, klukkan 20.30. Matreiðslu-
menn frá Goða sýna glænýjar gerðir af pinnamat og
brauðtertur. Konur, fjölmennið.
Hlutavelta
Drengirnir þrír, Ólafur Eiríksson, Jón Heiðar
Jónsson og Valur Hauksson, eru á aldrinum 8—9
ára. Þeir héldu hlutaveltu við Álfhólsveg. Alls
söfnuðust 675 krónur sem þeir gáfu til Styrktar-
fclags lamaðra og fatlaðra.
Jarðvinna - vélaleiga
TRAKTORSGRAFA
til leigu í stór og smá verk.
Vclalciga Njáls Harðarsonar,
símar 78410-77770.
Til leigu Broyt X2.
Þorbjörn Guðmundsson, Suðurhólum 20,
sími 74691.
Tok að mór húsgrunna og cfniskcyrslu.
Jarðvinna—Vélaleiga—Broyt X 20
Seljum fyllingarefni og moid.
Holtsbúð 22 Sími 43350
Garðabæ
Loftpressur
og sprengingar
Tökum að okkur allt múrbrot, sprengingar og
fleygavinnu. Margra ára reynsla í sprengingum.
Þórður Sigurðsson, sími 45522
Traktorsgrafa
til leigu,
vanur maður. Uppl. í síma 83762.
Bjarni Karvelsson.
TRAKTORSGRÖFULEIGA
Geri föst verðtilboð.
Opið alla daga, vanir menn.
GÍSU SVEINBJÖRNSSON.
SÍMI i7415.
s
s
LOFTPRESSUR - GRÖFUR
Tökum að okkur allt múrbrot, spreng-
ingar og fleygavinnu í húsgrunnum og
holræsum.
Einnig ný „Case-grafa” til leigu í öll
verk. Gerum föst tilboð.
Vélaleiga Símonar Símonarsonar,
Kríuhólum 6. Sími 74422
LOFTPRESSUR
TRAKTORSGRÖFUR
SPRENGIVINNA
Tökum að okkur allt múrbrot,
sprengingar og fleygavinnu í
húsgrunnum og holræsum.
Margra ára reynsla. Simi 52422
TÆKJA- OG VÉLALEIGA
Ragnars Guðjónssonar
Skemmuvegi 34 — Símar 77620 — 44508
Loftpressur
Hrœrivélar
Hitablásarar
Vatnsdælur
Háþrýstidæla
Stingsagir
Heftibyssur
Höggborvál
Ljósavái,
31/2 kilóv.
Beltavólar
Hjólsagir
Kafljusög
Múrhamrar
LOFTPRESSUR
OG TRAKTORSGRÖFUR
Múrbrot, fleygun, borun og sprengingar
Einnig traktorsgröfur í öll verk. Sigurjór
Haraldsson, sími 34364.
VÉLALEIGAN HAMAR
SÍMI 36011
Loftpressur í múrbrot og sprengingar, traktorsgröfur í
öll verk. Gerum föst tilboð ef óskað er.
VÉLÁLEIGAN HAMAR.
If APOLLfl SF LÍKAAVSI'AllkT
!\J\ Brautarholti 4, Sími 22224
Ef þú ert meðal þeirra sem lengi hafa ætlað sér í líkams-
rækt, skalt þú líta inn til okkar, því í Apolló er lang-
bezta aðstaðan.
ÞÚ NÆRÐ ÁRANGRI1APOLLÓ
Góð ryðvörn
tryggir endingu
og endursölu
BÍLARYOVÖRNhf
Skeifunni 17
s 81390