Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1982, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1982, Síða 4
4 DV. MIÐVIKUDAGUR15. SEPTEMBER1982. Guðmundur J. Guðmundsson stjórnar- þingmaður og formaður Verkamanna- sambandsins. Rætt við Guð- mund J. í út- varpinu í kvöld Guömundur J. Guðmundsson al- þingismaður og formaður Verka- mannasambandsins ræðir afskipti ríkisvaldsins af kjarasamningum í útvarpsþættinum Félagsmál og vinna í kvöldkl. 20.40. Umsjónarmaður þáttarins, Skúli Thoroddsen lögfræðingur, sagði í sam- tali við DV að Guömundur yrði að sjálfsögöu spurður um síðustu bráða- birgöalög en aöallega yrði rætt um ýmis ríkisafskipti, bæði kjarabætur og kjaraskerðingar. Eflaust verður fróðlegt að heyra þetta spjall við Guðmund þar sem hann er i þeirri aöstööu aö vera bæði stjómarþingmaður og verkalýðsfor- ingi. -gb. Sinfóníuhljómsveit íslands: Sala áskríftar- miða hafin I gær hófst sala áskriftarmiða á tón- leika Sinfóníuhljómsveitar Islands. Áskriftarmiðar fyrra misseri kosta 800 kr. á 24 fremstu bekkjunum. Sæti í efstu f jórum bekkjunum kosta í áskrift 670 kr. Fyrstu tónleikar þessa misseris verða 7. október. Aðalhljómsveitar- stjóri veröur sá sami og undanfarin ár, Frakkinn Jean-Pierre Jacquillat. Fyrsta verkið á tónleikunum veröur nýtt íslenskt hljómsveitarverk eftir Jónas Tómasson, Noctumo nr. 4. Því næst verður fyrsti píanókonsert Tschaikowskys fluttur. Einleikari verður Bandaríkjamaðurinn Peteer Donohoe. Hann tók þátt í síöustu Tschaikowsky-keppni og deildi 2. verð- launum með einum keppinauta sinna. Engin 1. verðlaun voru veitt í keppn- inni í þetta skipti. Siöasta verkið á efnisskránni er sin- fónía nr. 6 eftir Tschaikowsky. -gb. Sáralítið fannst af þorsk- og ýsuseiðum Hinni árlegu könnun á fjölda og út- íárlegri könnun hafrannsóknarskipanna breiðslu fiskseiöa og ástandi sjávar, sem gerð hefur verið í ágúst/sepember, lauk nýlega. Þessum athugunum er einkum ætlað að gefa fyrstu vísbendingu um árgangastærð þorsks, ýsu, loðnu og karfa. Að venju var verkið unnið á tveim skipum þannig að R/S Bjarni Sæmundsson annaðist hinn íslenska hluta svæðisins en R/S Hafþór Grænlandshaf, Austur-Grænland- og Dohrnbankasvæðið. Leiðangurs- stjórar voru Hjálmar Vilhjálmsson og Vilhemína Vilhelmsdóttir. Svalt sumar Helstu niðurstöður voru sem hér segir: Sjórannsóknir sýna fremur svalt sumar í sjónum við tsland 1982, en þó ekki eins og var árin 1979 og 1981.1 Grænlandshafi var sjávarhiti í ágúst í sumar meö lægsta móti og lægri en i fyrra. Þannig var innstreymi hlý- sjávar á norðurmið fremur tregt (í sumar) eins og oft áður á síðast liðnum árum, og heiti sjórinn í Græn- landshafi virtist einnig vera óvenju djúpt undan Austur-Grænlandi. Kólnandi sjór á fslandsmiðum sl. 20 ár er í samræmi við breytingar á straumakerfi Norður-Atlantshafs þessi sömu ár. I raun er ekki eingöngu um að ræða kólnun í sjónum sem slíkum, heldur eru það öllu fremur breytingar eða svipt- ingar á áhrifasvæðum straumanna sem segja til sín. Slíkar breytingar verða sérstaklega áberandi við mót heitra og kaldra hafstrauma eins og gerist á Islandsmiðum. Rannsóknir hafa sýnt að þessar breytingar á haf- straumum Norður-Atlantshafs standa í nánu orsakasambandi við breytingar í lofthjúpnum á stórum svæðum á norðurhveli jarðar. Verður sérstaklega fjallað um þetta efni á ársfundi Alþjóðahaf- rannsóknáráðsins í Kaupmannahöfn í haust, svo og áhrif breytinganna á lífiö í sjónum. Mjög lítiö var um þorsk- og ýsu- seiöi og var heildarfjöldi þeirra sá langminnsti sem mælst hefur frá upphafi. Þessar tegundir héldu sig að venju á grunnslóð út af Norður- landi og Vestfjörðum, en annars staðar varð þeirra tæpast vart. Árgangur þorsks og ýsu frá 1982 verður því væntanlega afar lélegur. Fjöldi loðnuseiöa var einnig hinn minnsti sem mælst hefur frá upphafi, en hann hefur dregist jafnt og þétt saman frá 1976. Loðnuseiði voru einkum á svæðinu út af Noröur- landi og Vestfjörðum, eins og venja er í góðum árum. Otlitið varðandi 1982 árgang loðnu er því slæmt. Að þessu sinni var mestur hluti karfaseiðanna í vestanverðu Græn- landshafi og við Austur-Grænland. Mót venju var mjög lítið um þau á Dohrnbankasvæðinu og sáralítið hér vestanlands. Enda þótt segja megi að talsvert hafi verið af karfaseiöum vestast á útbreiðslusvæðinu var hvergi mikið nema á takmörkuðum blettum. Þegar á heildina er litið er f jöldinn með því minnsta sem mælst hefur og afrakstur gotsins frá í vor því hlutfallslega lélegur. Auk ofangreindra tegunda fást jafnan upplýsingar um seiði ýmissa annarra fisktegunda. Er þar flest á sama veg og má t.d. nefna lýsu, spræling, hrognkelsi og blálöngu sem voru nánast sjaldséð. Eina umtalsverða undantekningin voru grálúðuseiði, sem meira var af en oft áöur. Athygli vekur hve seiöafjöldi er lítill hjá nánast öllum fisktegundum sem hrygna á eöa í nágrenni við Islands-Grænlandssvæðið. Nærtæk- asta skýringin er því illt árferði til sjávarins í vor og sumar, einkum á mörkum hlýs og kalds sjávar vestan- og noröanlands og í Græn- landshafi. Að því er varðar loðnuna má auk þess benda á, að samkvæmt hergmálsmælingum sl. haust og vetur hrygndi aðeins um þriðjungur þess sem Hafrannsóknastofnunin telur eölilegt. Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Hin fríðhelga áþján einstaklingsins Sjónvarpsþáttur um upphaf Einingar í Póllandi rýfur enn einu sinni þá þögn, sem ríkir um áhrif og yfirráð Sovétríkjanna yfir löndum Austur-Evrópu. Þær sættir sem fjöl- miðlar á Vesturlöndum hafa gert við kúgun þjóða og áþján einstaklinga leyfa ekki að rætt sé um lönd Austur- Evrópu og stjórnarfarið þar, vegna þess að vinstri menn innan f jölmiðl- anna vilja ekkert af ófarnaði vita úr þeirri átt. Þess vegna eru sjónvarps- þættir, eins og þeir, sem voru gerðir um vorið í Tékkóslóvakíu og nú þátt- urinn um upphaf Einingar í Póllandi, sem búið er að kyrkja, eitt af þeim fyrirbærum sem kosta svolítið rifrildi innan fjölmiðlaheimsins en lítiö annað vegna þess að þeim fylgir sáralítil upplýsing. Þeir koma eins og einangruð fyrirbæri og virðast þar af leiðandi varla rökheldir. Hið sama er að segja um ástandið í Afganistan. Þaöan heyrist yfirleitt ekki neitt. Hægt er að bera fyrir sig, að engar daglegar fréttir sé að hafa úr þessum heimshlutum. Annað gilti um átökin í Victnam, þegar ekkert dugði minna en ganga í Mao-fötum inni á rit- stjórnarskrifstofum Dagens Nyheter, svo dæmi sé tekið. Og annað gildir um átökin fyrir botni Miðjarðarhafs. Þar Iiggja allar upplýsingar á lausu, og þar liggja líka á lausu mislýsingar, „disin- firmations”, sem þykja hagkvæmar í baráttunni um mannssálina. Það er auðvitað ágætt að eiga greiðan að- gang að stöðum þar sem atburðir eru að gerast. En þar sem stór hluti heimsbyggðarinnar er lokaður fréttamönnum ætti það að vera þeim hvöt til að linna aldrei leit að upp- lýsingum. Þessu nenna þeir tak- markað. Þátturinn um Lech Walesa og Einingu sýnlr ótvírætt hvað þögnin um stjórnarfarið í Póllandi hefur verið geigvænleg á undanförnum áratugum. Vesturlandabúum er lítt skiljanlegur sá mikli ótti sem íþyngir verkfallsmönnum og raunar erfitt að segja hann allan í kvikmynd. Það er þó reynt með því að leggja áherslu á kröfuna um minnismerki yfir fallna verkamenn við innganginn að Lenín- skipasmíðastöðinni. Það er nefnilega ljóst að hópurinn sem bíður og semur á endanum er öðrum þræði að bíða eftir að verða skotinn. Þetta mikil- vægasta atriði allrar baráttu í Austur-Evrópu kemst yfirleitt ákaf- lega illa til skila hér á Vesturlöndum, vegna þess að bér hafa menn skil- yrðalausan verkfallsrétt og hafa notað hann ótæpilega. í sjálfum „dýrðarríkjum” verkalýðsins fyrir- finnst enginn slíkur réttur, og þótt Eining næði honum í orði, er hann lítilsvirði nú og Walesa og félagar í fangelsi og verður ekki sleppt laus- um í bráð. Eining er orðið nafnið tómt. Um fimmtán prósent íslensku þjóðarinnar fylgja þeim stefnumið- um í meginatriöum sem stjórnarfar- 'ið í Póllandi byggist á. Forustulið þessara 15% getur verið að vafstra í borgaralegum ríkisstjórnum en í stefnuskrá þeirra stendur að ná megi völdum með byltingu, fáist þau ekki öðruvísi. Hvenær heppilegt er að gera slika byltingu ræðst af ástandi á Atlantshafi og upplausn hér innan- lands. Hefðu byltingartækifærið gef- ist 1946 væri hér pólskt ástand. Þau fimmtán prósent sem fallast á kenningu um byltingu væru þá reynslunni ríkari. Það dugar auðvitað lítið að sjá fyrirbærið í kvik- mynd. Engu að síður skyldu menn gera sér grein fyrir því að einber íhalds- stefna er svona álíka afturhald og fyrirfinnst í Póllandi að frádreginni lífshættunni. í viðureigninni viö hana hefur þurft ströng meðul á Vestur- löndum, og þau væru ólíkt skemmra á veg komin í mannfrelsisátt ef engr- ar róttækni hefði gætt. Allt leitar jafnvægis að miðju í pólitik. En slikt jafnvægi mun ekki fyrirfinnast í PóUandi í bráð. Walesa er maöur hins æskUega jafnvægis. Hann átti í efiöleikum við sér harðari samherja, en úrsUtum réði að stjórnvöld þoldu ekkert múður. Þess vegna situr hann inni. Þess vegna er Eining dauð. Svarthöfði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.